Alþýðublaðið - 19.12.1995, Page 8
JAFNAÐARMAÐURINN
Gunnar Alexander Olafsson
Ungir jafnaðarmenn á
Norðurlöndum funda
Alþýðuflokkurinn er eini jafnaðarmannaflokkurinn á Norðurlöndum sem ekki á aðild að ríkisstjórn
Helgina 28.-30. október síðastliðinn
var haldinn stjómarfundur á vegum
FNSU, (Sambandi ungra jafnaðar-
manna á Norðurlöndum) í Helsinki,
Finnlandi. Til fararinnar af SUJ hálfu
völdust undirritaður og Þóra Amórs-
dóttir. Fyrri dagur fundarins fór í að
tala um innri málefni sambandsins og
var stjóminni gerð grein fyrir íjárhags-
stöðu sambandsins. Þar á eftir voru
ræddar skýrslur um landsmálin í hverju
landi. í skýrslu okkar til sambandsins
kom fram að Alþýðuflokkurinn hefði
tapað fylgi í síðustu kosningum og þar
með dottið út úr ríkisstjóm. (En þess
má geta að Alþýðuflokkurinn er eini
jafnaðarmannaflokkurinn á Norður-
löndum sem ekki á aðild að ríkis-
stjóm.) I því sambandi reyndum við að
gera grein fyrir því sem við töldum
helst hafa haft áhrif á slælega útkomu
flokksins í kosningunum. Þar á eftir
gerðum við grein fyrir þeirri stöðu sem
upp er komin í íslenskum stjómmálum,
þeirri umræðu um sameiningu eða
samstarf á vinstri væng þeirra flokka
sem eru í stjórnarandstöðu og hver
stefna núverandi ríkisstjómar sé. Eftir
að fulltrúar allra aðildarfélaga höfðu
gert grein fyrir stöðu landsmála í sínu
landi var fundi frestað fram á næsta
dag. Gestgjafar okkar Finnar gátu auð-
vitað ekki látið hjá Kða að bjóða í ekta
fínnskt gufubað, en lítið var um snjó-
veltur því miðborg Helsinki ku ekki
henta sérlega vel til þess arna. Auk
þess sem við fengum mesta blíðviðri
og borgin þar af leiðandi snjólaus.
Fundarmenn mættu svo fílefldir til
sunnudagsfundarins. Á þeim fúndi var
tekið fyrir þema stjómarfundarins, at-
vinnuleysi ungs fólks á Norðurlöndum.
Kom þar fram að án efa er atvinnuleysi
hjá ungu fólki minnst hér á íslandi og
er þó ærið, en ástandið var sýnu verst í
Finnlandi. Þar er atvinnuleysi hjá ungu
fólki allt frá 25%- 60%. Samhliða
þessu atvinnuleysi var áberandi að hjá
öllum löndunum á velferðakerfið í
miklum vanda og ríkisstjómir em að
draga saman seglin í ríkisbúskapnum,
þannig að hætta er á að atvinnuleysi
ungs fólks verði varanlegt ástand í stað
tímabundins vandamáls. Lýstu fulltrúar
sig áhyggjufulla yfir þessu ástandi.
Þessi stjómarfundur var mjög lær-
dómsríkur fyrir okkur og veitti okkur
tækifæri til að ræða um mál sem em
ofarlega í hugum ungs fólks á Norður-
löndum. Þessi fundur var skipulagður
af skoðanabræðmm okkar og systmm í
Finnlandi og fórst þeim verkið mjög
vel úr hendi. Þess má geta að næsti
stjómarfúndur FNSU verður haldinn á
Islandi í lokjanúar.
Höfundur er annar varaformaöur Sam-
bands ungra jafnaðarmanna.
Umhverfismál - Jón
Eggert Guðmundsson
skrifar
Er hægt
að lífga
hafið við?
Það hefur
verið rætt
undanfarið
hvort það
væri ekki
gott að bera
áburð á haf-
ið til þess
að auka
magn svifs í
yfirborð-
slögunum.
Þessi hug-
mynd er
ekki ný af
nálinni því
það var talsvert fjallað um hana rétt
fyrir seinna stríð. Hugmyndin virðist
ekki vera galin við fyrstu sýn en get-
ur verið varhugaverð þegar nánar er
að gáð.
Þessi hugmynd byggist á því að
leysa vanda sem allar fískveiðiþjóðir
eiga við að glíma, þ.e.a.s fækkun í
nytjastofnum og ofveiði. Heimshöfin
eru að mestu leyti dauð nema við
strendur þar sem næringarefni falla í
hafið frá landi. Með því að auka
framleiðni bæði plöntu og dýrasvifs í
úthöfunum má ætla að fiskistofnamir
vaxi í kjölfarið. Ef þetta væri fram-
kvæmanlegt þá væri þetta mjög gott
mál en það er því miður ekki svona
einfalt. Með því að bæta næringar-
efnum í sjóinn þá eykst vitanlega
framleiðni bæði dýrasvifs og plöntu-
svifs en um væri verið að fara út í
aðgerðir sem við höfum ekki hug-
mynd um hvernig myndu enda. Vist-
kerfi og sveiflur í vistkerfum eru ein-
faldlega það flóknar að það getur allt
gerst. Þetta svokallaða vistfræðilega
jafnvægi sem oft er minnst á í um-
ræðunni um veiðar á hval og sel er
ekki til í raun og veru. Þess í stað
sveiflast stofnstærðir eftir ógrynni af
þáttum sem leggjast á eitt um að
halda stofninum niðri eða uppi. Það
sem ég er að meina með þessu er að
ef framleiðni eykst sem hún gerir
mjög líklega þá viljum við auka
framleiðni þeirra þörunga sem eru
ekki skaðlegir. En vegna þess að
náttúrulegar sveiflur eru það flóknar
þá þarf það ekki endilega að gerast.
Þess vegna tel ég að best sé að fara
sér hægt í þessu máli.
Höfundur er formaöur málstofu ungra
jafnaöarmanna um umhverfismál.
Gleðileg jól!
Bifreiðar og
landbúnaðarvélar
Fjardannót
EIMSKIP
STáFB
Sandgerðisbær