Alþýðublaðið - 29.12.1995, Side 9
9
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
á
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Stalín, heimsins mesti draumóra-
maður, - hann var hinn mikli raun-
sæismaður. Aftur hafði byltíngin
sigrað í Rússlandi. Hún sigraði á
því að forystan trúði á fólkið og
elskaði það eins og Lenín, en van-
treysti því aldrei, sagði Laxness
fullur hrifningar á blóðhundinum
Stalín, en eins og kunnugt er ksot-
aði tortryggð einræðisherrans
milljónir manna lífið.
sýndist andlitið á eirnum alt í einu
vera uppljómað af dularfullu undur-
samlegu lífi. Ég vil taka fram að það
var ekkert „yfirskilvitlegt" í sambandi
við þessa sýn, aðeins skynjun hins
náttúrlega, heilbrigða og réttláta".
Áratugum síðar er þessi „náttúrlega,
heilbrigða og réttláta skynjun" orðin
svo óþægileg minning að á hana er
ekki minnst.
I endurútgáfu Gerska ævintýrsins er
ekki heldur að finna þennan texta:
„Það sem trotskistamir töldu bijál-
æðisdraumóra harðstjórans: að byggja
með byltíngasinnaðri aðferð samvirkt
þjóðfélag meðal slíks fólks í slíku
landi á þessum tíma, það var þá eftir
alt saman - sjálf raunsæin. Stalín,
heimsins mesti draumóramaður, -
hann var hinn mikli raunsæismaður.
Aftur hafði byltíngin sigrað í Rúss-
landi. Hún sigraði á því að forystan
trúði á fólkið og elskaði það eins og
Lenín, en vantreysti því aldrei. Og hún
á eftir að vinna alla sína framtíðarsigra
á því sama.“
Þetta er rakalaus samsetningur. Það
er enginn efi á því að Laxness hafði
viljað margt til vinna að hafa aldrei
sagt þessi orð.
Lítum á fleiri úrfellingar. í Gerska
ævintýrinu segir Laxness frá því að
auðveldsblöð séu sífellt að leggja Sta-
lín í rúmið og spá honum dauða. Eftir
eina slíka ffétt kemur þessi setning ffá
skáldinu og ber nokkum vott um um-
hyggju: „... jæja, manngreyið, von-
andi næ ég þá í jarðarforina, hugsaði
ég“. Þetta var árið 1938. Árið 1983
var umhyggjan fyrir bí: „... jæja
manngreyið, hugsaði ég“. - Þar stend-
ur ekkert um vilja til að fylgja „mann-
greyinu" til grafar.
I endurútgáfu Gerska ævintýrsins
finnast ekki mörg hörð orð sem Lax-
ness lét falla í fmmútgáfunni um
hægri krata“, sem hann nefnir svo.
Meðal þess sem einungis finnst í fyrri
útgáfunni em þessi gagnrýnisorð:
„Á þá sem höfðu nokkra þekkingu
á samheingi málanna orkuðu hinar
órökstuddu yfirlýsingar hægrikrata um
sakleysi Trotskís, Búkharíns og Pjata-
kofs eins og sóttkent óráð. Það var
ömurleg sjón að sjá þessa menn reyna
umfram alt að gera málstað prófaðra
spellvirkja, eiturmorðíngja og land-
ráðamanna að sínum eigin, án nokk-
urrar tilraunar til að kynna sér stað-
reyndir í málinu, aðeins í þeirri von að
þeir gætu bakað Ráðstjómarríkjunum
eitthvert tjón, sveija og sárt við leggja
að þetta væm alt að því heilagir menn,
þrátt fyrir þótt yfirheyrslur og dóms-
ástæður væm tiíkvæmar öllum heimi í
bókarformi orð fyrir orð samkvæmt
hraðriti réttarins".
„...án nokkurrar tilraunar til að
kynna sér staðreyndir í málinu..."
Áratugum síðar, þegar ekki er lengur
hægt að komast undan því að endurút-
gefa bókina, gína þessi orð við höf-
undinum. Hann kemur engum öðrum
vömum við en að láta eins og þau hafi
ekki verið skrifúð.
Hann kaus einnig að láta sem hann
hefði aldrei ritað eftirfarandi orð um
þá jafnaðarmenn sem ekki voru til-
búnir að vegsama verk Stalíns og fé-
laga: „Þeir menn innan verkalýðs-
hreyfingarinnar, sem nefna sig jafiiað-
armenn, en telja það hlutverk sitt að
afflytja hin gersku verklýðsríki og
brjála hugmyndir alþýðu um rök
þeirra og eðli, eru vegheflar fasism-
ans“.
Sömuleiðis treysti Laxness sér ekki
til að birta í endurútgáfu Gerska ævin-
týrsins þessi orð sem finna má í fmm-
útgáfunni: „Verndarar nútímaauð-
valdsins vita að þeir em glæpamenn,
enda haga þeir sér samkvæmt því. Og
það er líka misskilningur að tala við
þá öðm vísi en samkvæmt því“.
Hann treysti sér þó til að endurbirta
þessa setningu: „Það sem hreinrækt-
aður auðvaldssinni nútímans skilur er
ógnun“. Þama kaus Laxness að setja
punktinn í endurútgáfunni, en í fmm-
útgáfunni hélt setningin áfram með
orðunum:....það sem hann ber virð-
ingu fyrir er morð“.
í frumútgáfu Gerska ævintýrsins
stendur þessi setning: „Sjónarháttur
4>eirra sem m'ddu ráðstjómina og lýstu
landinu sem óbætandi hörmúngarvíti
var að öllu leyti rángur".
í annarri útgáfu er setningin „lítil-
lega“ breytt: „Sjónarháttur þeirra sem
níddu ráðstjórnina og lýstu landinu
sem hörmúngarvíti var að nokkm leyti
rángur".
Rithöfundurinn André Gide fékk í
Gerska ævintýrinu margar ónotalegar
kveðjur frá hinu íslenska skáldi. Gide
var á þeim tíma fast að sjötugu og
mjög hafði dregið úr afköstum hans á
ritvellinum. Hann átti þó eftir að vinna
til Nóbelsverðlauna. Það vissi Laxness
ekki árið 1938 en hann fékk tækifæri
til að lagfæra ummæli sín um skáld-
snillinginn með nýja vitneskju í huga.
„Gide er.. .laungu kominn á leið norð-
ur og niður þegar hér er komið sögu“,
sagði Laxness árið 1938. Árið 1983 er
setningin svohljóðandi: „Gide er...
laungu kominn á leið í helgan stein
þegar hér er komið sögu“.
Rússneska skáldið Púskín fær lof-
samlega umfjöllun í Gerska ævintýr-
inu, en eftirfarandi setning fékk þó
ekki inni í seinni útgáfunni þótt hún
hefði laumast inn í þá fyrri: „En að
kynnast Púskín, það er að læra að
elska Rússland, og það er ekki hægt
að elska Rússland á vorum tímum án
þess að verða um leið Sofétvinur og
staðfastur sósíalisti og besti vinur
kommúnista".
Blind augu trúmanna
Halldór Laxness sagði eitt sinn um
grein sem hann ritaði um dvöl sína hjá
Benediktsmunkum að hún væri skrif-
uð „af þeim hætti sem einkennir trú-
menn þá er þeir vitna um sýn af helg-
um stöðum trúar sinnar; verður óger-
legt af lýsingunni að sjá að þeir hafi
komið þar. Eftilvill stafar þetta af því
að staðurinn er ekki til í reyndinni eins
og þeir sjá hann“.
Sæluríkið Sovét var ekki til. Fannst
ekki í raunveruleikanum en þreifst í
hugum þeirra sem vildu finna trú sinni
helgan stað. Þeir hefðu vart getað ver-
ið seinheppnari í staðarvali.
Því er gjama borið við að á þessum
tíma hafi menn ekki getað vitað betur.
Upplýsingar um atburði í Sovétríkjun-
um hafi ekki verið fyrir hendi. Það er
einfaldlega rangt. Þeir sem kærðu sig
um að horfa með öðrum augum en
trúmannsins gátu lesið um staðreyndir
í ótal bókum og blaðagreinum þar sem
lýst var framferði Ráðstjómarinnar á
þriðja og fjórða áratugnum; fjölda-
morðum, nauðungarflutningum,
hörmungum samyrkjuvæðingarinnar,
hungursneyð af mannavöldum í Ukra-
ínu, gegndarlausum ofsóknum gegn
bændum og loks herferð Stalíns gegn
gömlum samherjum úr flokki bolsé-
víka. Margir kusu að sjá ekki, aðrir
gátu ekki varist efasemdum og tóku
oftast sönsum fljótt eftir að þær fóm
að leita á.
Sú réttlæting að menn hafi viljað
trúa er ekki afsökun. Það kallast af-
neitun. Halldór Laxness gekk seint og
um síðir af trúnni, en tók þá að afneita
fortíð sinni. Það gerði hann hraustlega
á blaðamannafundi í Gautaborg eftir
að tilkynnt var að hann hefði hlotið
Bókmenntaverðlaun Nóbels. Þá fengu
blaðamenn og umheimurinn að heyra
útgáfuna sem skáldið óskaði að væri
sönn, tæpum tuttugu árnrn eftir ritun
Gerska ævintýrsins: „Ég hef aldrei
verið kommúnisti eða hlynntur
kommúnistum. Ég hef aldrei skipt mér
af stjórnmálum og hef ekki hugsað
mér að breyta afstöðu minni í því
efni“.
Sæmundur Guðvinsson sló á
þráðinn til nokkurra þekktra
borgara og spurði hvort þeir
strengdu áramótaheit og
hvernig komandi ár legðist í þá
ísólfur Gylfi Pálmason
alþingismadur:
Ætla að
grenna mig
„Það er alltaf sama áramótaheitið hjá
mér; það er að grenna mig. Ég strengi
þess heit að verða grennri en ég er og
tek svona einn mán-
uð í að tálga af mér.
Svo fer ég aftur í
karamellumar,“
sagði ísólfur Gylfi
Pálmason alþingis-
maður.
, J>Jæsta ár leggst
þokkalega í mig og
ég er bjartsýnn á lífið
og tilveruna. Það þýðir ekkert annað,“
sagði ísólfur Gylfi.
Guðrún Helgadóttir
rithöfundur:
Engin
áramótaheit
„Nei, það em alveg hreinar línur. Ég
strengi engin áramótaheit," sagði
Guðrún Helgadóttir rithöfundur.
„Ég reyni að vera
bjartsýn á komandi
ár og trúa því að
heimurinn fari held-
ur skánandi. Ég vona
að ríkisstjómin batni
því versnað getur
hún ekki og þegar á
allt er litið horfi ég
björtum augum fram
á veginn,“ sagði Guðrún Helgadóttir.
Steinunn
Sigurðardóttir
rithöfundur:
Eitt heiti á dag
,Jfei, ég hef aldrei strengt áramóta-
heit. Hins vegar strengi ég um það bil
eitt heit á dag en það
er ekki bundið við
áramót. Svo brýt ég
þau jafnharðan. Þetta
er svona svipað og
hjá Þóibergi með
lífsreglumar," sagði
Steinunn Sigurðar-
dóttir rithöfundur.
„Þegar ég lít til
næsta árs hef ég miklar áhyggjur af
ástandinu hér heima. Það er ekki hægt
að horfa framhjá því að fólk er farið
að flýja ættjörðina. Þeir sem fara em
þeir sem hafa frumkvæði og dug og
em á góðum aldri. Ég er ekki mjög
bjartsýn á að þetta fólk skili sér aftur
ef ekkert breytist hér. Mér líst ekki á
þetta og það gengur ekki til lengdar að
hafa fólk hér á sultarlaunum. En ég er
ósköp ánægð með hvemig málin em
að þróast hjá mér persónulega. Ég
hlakka mikið til að geta sest niður og
haldið áffam með bókina sem ég er
komin á ról með,“ sagði Steinunn Sig-
urðaidóttir.
Arthur Bogason
formaöur Landssam-
bands smábátaeigenda:
Hætta að
reykja.
, Já, já. Ég mun strengja þess heit að
hætta að reykja eins og ég geri alltaf
um hver áramót. Ég er vanafastur
maður og held mig áfram við þetta
heit,“ sagði Arthur Bogason formað-
ur Landssambands smábátaeigenda.
„Hvað varðar komandi ár þá get ég
vel ímyndað mér að þar skipti í tvö
hom. Annars vegar
að þau málefni sem
við emm að vinna að
hér verði í miklum
erfiðleikum en hins
vegar kunni ýmislegt
að vera að breytast til
betri vegar almennt.
Ég veit ekki hvort
það er að þakka stjómvöldum eða að-
gerðum þeirra, en held að það verði
miklu frekar ytri aðstæður og náttúm-
far sem mun hjálpa okkur áfram,“
sagði Arthur Bogason.
Edda Heiðrún
Bachman leikari:
Bjargaði
mannslífi
„Ég hef ekki strengt nein áramótaheit.
Eg reyni að lifa fyrir hvem dag og
reyni að strengja þess heit á hveijum
degi að hann geti á
einhvem hátt orðið
betri en dagurinn á
undan,“ sagði Edda
Heiðrún Bachman
leikari.
„Næsta ár leggst af-
skaplega vel í mig. Á
þessu ári sem er að
enda varð ég þeirrar
gæfu aðnjótandi að bjarga mannslífi
og mér þótti blessun fylgja því. Ég
kom að manni sem hafði fengið
hjartaáfall og gat strax náð í hjálp.
Þetta var eins og að vinna stóra vinn-
inginn. Raunar „dó“ maðurinn í hönd-
unum á mér en mánuði seinna hafði
hann upp á mér og færði mér blóm-
vönd með þökk fyrir lífgjöfina. En
það em mörg spennandi verkefni sem
bíða mín á komandi ári bæði í sam-
bandi við mína atvinnu og einkalífið,"
sagði Edda Heiðrún Bachman.
Gísli S. Einarsson
alþingismaður:
Standa mig
betur
.d’egar maður h'tur yfir liðið ár um
áramót hvarflar oft að mér að ég hefði
getað gert betur það árið og þá strengi
ég þess heit að reyna
að gera betur á nýju
ári. En þetta er
kannski ekki form-
legt áramótaheit,"
sagði Gísli S. Ein-
arsson alþingismað-
ur.
„Komandi ár leggst
vel í mig. Þegar
gengið var til kosninga á þessu ári
vorum við alþýðuflokksmenn sam-
mála um að batnandi hagur væri ffam-
undan. Það virðist allt ætla að standast
þótt við alþýðuflokksmenn hefðum
viljað fara varlegar í hlutina og nýta
betra ástand til að vinna á því sem er
alvarlegast í okkar þjóðfélagi sem eru
skuldimar. En árið leggst vel í mig og
ég held að á næsta ári muni ýmsir
hlutir gerast sem koma mönnum mjög
á óvart,“ sagði Gísli S. Einarsson.
Gunnar Þorsteinsson
forstööumaður:
Skýr áramót
„Ég strengi ekki áramótaheit en ég er
með afskaplega skýr áramót í rm'nu
lífi. Ég hef haft þá reglu um áratuga-
skeið að taka sjálfan mig taki þegar
nýtt ár byijar. Ég fer í einveru, leita
Guðs, fasta og bið og fæ leiðsögn fyrir
nýtt ár. Það tekur mig svona tvær vik-
ur,“ sagði Gunnar Þorsteinsson for-
stöðumaður Krossins.
„Varðandi nýtt ár þá
eru vogarskálar í því.
Það ieggst vel í mig
öðrum megin og ég
held að þetta verði
mjög athafnasamt og
árangursríkt ár í
starfi Guðs á Islandi.
Hins vegar sé ég svo
ógnvænlegar bylgjur
rísa við sjóndeildarhringinn. Ég held
að makt myrkursins sæki verulega í
sig veðrið á því ári sem er að fara í
hönd. En á sama tíma rís verk Guðs
hátt og það verða rnikil átök á því ári
sem er að byija,“ sagði Gunnar Þor-
steinsson.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson fréttamaður:
Ganga á Esju
„Ég ætla að strengja þess heit að
anga nú loksins á Ésju á næsta ári.
g fór í uppskurð á
hné á þessu ári og
áttaði mig þá á því
hvað það er mikil-
vægt að hafa tvo
jafnfljóta undir sér.
Konan gaf mér úr-
valsgönguskó í jóla-
gjöf svo það verður
ekki aftur snúið,“
sagði Sigmundur Emir Rúnarsson
fféttamaður og ljóðskáld.
„Næsta ár leggst mjög vel í mig. Mitt
fimmta bam kemur í heiminn á árinu
og við munum flytja í nýtt hús. Það er
því mikið sem stendur til og þetta
verður ár athafna“ sagði Sigmundur
Emir.
Jóhann Páll
Valdimarsson
útgefandi:
Kemur þótt
hægt fari
„Ég strengi mjög sjaldan áramótaheit
og hef ekki í hyggju að gera það um
þessi áramót. Ég man
ekki til þess að hafa BjrJEfiJi
strengt áramótaheit
nema einu sinni og I
þá reyndi ég eftir
fremsta megni að H
standa \'ið það cn
það er trúnaðarmál t
hvert heitið var,“
sagði Jóhann Páll MB5S8B3I
Valdimarsson útgefandi.
,Ætli þetta mjakist ekki heldur upp á
við á næsta ári. Kemur þótt hægt fari,“
sagði Jóhann Páll.
Sigrún Hjálmtýsdóttir
söngkona:
Miklarannir
„Nei, ég strengi engin heit um áramót
enda mundi ég hvort sem er alltaf
bijóta þau. Ég reyni
bara að lofa mér ein-
hveiju af og til en
ekki sérstaklega
kringum áramót,"
sagði Sigrún Hjálm-
týsdóttir söngkona.
„Komandi ár leggst
mjög vel í mig. Það
verða miklar annir
hjá mér á árinu. Strax í janúar mun ég
syngja tvenna tónleika í London. í
apríl verð ég í Finnlandi og Japan og í
júní verð ég á ítah'u og í Ameríku. Það
er því mjög spennandi ár framundan,"
sagði Sigrún Hjálmtýsdóttir.