Alþýðublaðið - 29.12.1995, Side 11
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
11
Islenskur jólasveinn í Sarajevo
Kvittað fyrir stríð
f nóvember 1991 kom ég til Frakk-
lands úr fyrstu ferð minni til Balkan-
skaga. Þá hafði stríð Króata og Serba
staðið síðan um sumarið: í fyrsta sinn í
nærfellt hálfa öld var barist í Evrópu.
Fyrstu vikumar í nóvember ferðaðist
ég um Króatíu og sagði frá því sem
fyrir augu bar i útvarpspistlum. Þetta
var yfirþyrmandi h'fsreynsla fyrir strák
úr Vesturbænum sem hafði ekki af eig-
in raun kynnst öðm stríði en áflogum í
frímínútum í Melaskóla. Þegar ég kom
til Frakklands hringdi ég í vin minn á
íslandi og sagði: Em ekki allir heima
að tala um þetta stríð?
Einsog gengur I
Nei, sagði hann, ekki allir heima em
að tala um þetta stríð.
Með leyfi að spyrja, um hvað töluðu
menn á íslandi í vetrarbyrjun 1991, ef
ekki stríð í Evrópu? Eg man það ekki
nákvæmlega - rámar í að hann segði
mér að umræður snerust um vonsku
ríkisstjómarinnar, væntanlegt jólabóka-
flóð, nýjustu hneykslismálin, sjón-
varpsdagskrána, veðrið.
Tómlæti íslendinga gagnvart helför
Júgóslavíu á sér ýmsar skýringar. Að
upplagi erum við eyjarskeggjar þótt
engin þjóð í heiminum sé heimsvanari
við veisluborð veraldarinnar. Við sitj-
um „on the top of the world“ og getum
valið bestu skyndibitana: nýjustu
tækniundrin, heimsffumsýningar á bíó-
myndum, verslunarferðir til Newcastle.
Stríð einhversstaðar í útlöndum flokk-
ast hinsvegar undir vesen og okkur
leiðist vesen.
Ekki síst óskiljanlegt vesen. Hvað
var Júgóslavía í flestra hugum? Sólrík
strönd við Adríahaf plús Tító mar-
skálkur. Á þessari baðströnd dúkkuðu
allt í einu upp Króatar, Slóvenar og
Serbar og háðu óskiljanlegt stríð á
óskiljanlegum forsendum. Svar íslend-
inga var einfalt: Þeir aflýstu ferðum til
Portoroz og fóm í staðinn til Benidorm.
Skiptu um rás þegar fréttamyndirnar
vom orðnar uppáþrengjandi um of.
Það varð síst til að auka áhuga Is-
lendinga á veseninu á Balkanskaga
þegar stríðið teygði klær sfnar til Bo-
sm'u- Herzegóvinu. Þá bættust í leikinn
Bosm'u-Serbar, Bosm'u- Króatar og ein-
hverjir múslímar sem enginn hafði
hugmynd um að þrifust í Evrópu. Þeg-
ar fréttir tóku síðan að berast af ókyrrð
í Makedóníu og kúgun í Kosovo var
mælirinn fullur: stríðið á Balkanskaga
var greinilega bæði óskiljanlegt og
heimskulegt vesen. Menn gátu talað
um veðrið með góðri samvisku. Stríðið
í Evrópu komst í mesta lagi á dagskrá
þegar veðrið þraut og sjónvarpsdag-
skráin tók við: Gersamlega óþolandi
þessar fréttamyndir frá Júgóslavíu -
hvað kemur það okkur við þótt ein-
hverjir Júgóslavar séu að drepa hver
annan?
En það var þessum júgóslavnesku skálkum líkt að halda áfram
að berjast í trássi við einróma samþykkt íslenskra sjónvarpsáhorfenda
sem höfðu löngu afgreitt styrjöldina sem allsherjar leiðindi.
En það var þessum júgóslavnesku
skálkum líkt að halda áfxam að beijast í
trássi við einróma samþykkt íslenskra
sjónvarpsáhorfenda sem höfðu löngu
afgreitt styijöldina sem allsherjar leið-
indi.
Jón Baldvin hafði séð til þess að ís-
lendingar urðu fyrstir til að viðurkenna
sjálfstæði Slóvem'u og Króatíu, en að
öðru leyti sýndu íslenskir stjómmála-
menn stríði í Evrópu ekki vott af
áhuga; trúir þeirri hefð sem skapast
hefur á Islandi að alþjóðamál flokkist
ekki undir pólitík. Enginn stjórnmála-
maður gerði athugasemdir þótt fslend-
ingar væm eina þjóð Evrópu sem ekki
tók við flóttamönnum frá Balkanskaga.
Á Alþingi ræddu menn fremur um nýt-
ingu rekaviðar og varðveislu arfs hús-
mæðraskóla.
íslendingar eru skorpumenn. Við
klárum hús í akkorði, verslum í ak-
korði, lifum í akkorði. Á þessu ári
fengu íslendingar áhuga á styijöldinni
á Balkanskaga. f akkorði. Auðvitað var
alltof seint að reyna að henda reiður á
öllum þessum kynlegu þjóðabrotum
sem höfðu barist uppá líf og dauða í
fjögur ár og því varð skyndileg þjóðar-
sátt um að ástandið væri alveg agalegt.
Jafnvel þeir sem höfðu verið harðsvír-
aðastir talsmenn þess að „leyfa þessu
liði að berjast í fríði“ vildu nú að eitt-
hvað yrði gert í málinu. I íslenskri
þjóðarsál slær nú þrátt fyrir allt heitt
hjarta og þessvegna létu menn sér ekki
nægja að hleypa stríðinu á efnisskrá
kaffitímanna heldur efhdu til stórfelldr-
ar söfnunar á skíðagöllum og ullar-
peysum til að senda „þessu veslings
fólki" í Sarajevo sem í 48 h'fshættulega
mánuði hafði meira og minna búið við
hungur og kulda. Og blessuð ríkis-
stjómin hespaði af samþykkt um að fs-
firðingar tækju við 25 flóttamönnum
frá Balkanskaga.
Hið almenna herútboð íslendinga
vegna stríðs í Evrópu náði vitanlega
líka til bamanna: þau vom látin fylla
heila flugvél af jólapökkum og sjálfur
íslenski jólasveinninn tók að sér að
dreifa þeim í Sarajevo. Jólasveinninn
meikaði það alla leið í CNN þar sem
hann tilkynnti með þessum sér ísl-
enska framburði: Æ am ðe æslandikk
Sankta Klos...
Og íslenskir sjónvarpsáhorfendur
kinkuðu stoltum kollum þegar kinn-
fiskasoginn bosnísk börn slóust um
pakkana sem Sankta Klos útbítti af ein-
urð og festu: nintendo-tölvumar frá síð-
ustu jólum komnar í góðar hendur.
Áhugi íslendinga á velferð „þessa
veslings fólks“ á Balkanskaga er vissu-
lega lofsverður. Það er líka sérlega
ánægjulegt að íslenski jólasveinninn
skyldi mæta til Sarajevo í þann mund
að stríðinu lauk. Það þýðir nefnilega að
við getum farið að tala um eitthvað
annað. Veðrið til dæmis. ■
■ Landssöfnun
Rauða krossins
Vetrar-
föttil
barna í
Bosníu
Rauði kross íslands sendir um sjö
tonn af vetrarfatnaði til Bosnfu-Her-
segóvínu milli jóla og nýárs. Fata-
sendingin er liður í þeirri aðstoð sem
Rauði kross íslands veitir til fyrrum
Júgóslavíu í kjölfar landssöfnunar-
innar Konur og böm í neyð sem fé-
lagið efndi til í byrjun september.
Söfnunarféð nam alls 30 milljónum
króna og hefur langmestum hluta
þess sem ætlað var til hjálparstarfa í
fyrrum Júgóslavíu nú verið varið.
Ráðgert er að veita um fimm
milljónum króna til þróunarverkefn-
is í fjallahéruðum í norðurhluta Ví-
etnams fljótlega á nýju ári. Verkefn-
ið í Víetnam miðar að því að bæta
heilsugæslu á svæði þar sem bama-
dauði er landlægur og algengt er að
konur látist af barnsförum. Það er
unnið í samvinnu við Rauða kross-
inn í Danmörku.
Um þessar mundir herja miklar
vetrarhörkur á íbúa Bosníu- Herseg-
óvínu. Fólk býr þúsundum saman
við óviðunandi aðstæður, hefst við í
skýlum, sefur undir segldúkum, í
farartækjum og kofum án upphitun-
ar. Starfsmenn Rauða krossins í
landinu hafa lýst miklum áhyggjum
af afdrifum þessa fólks, einkum
barna, gamals fólks og veikburða.
Rauði kross Islands hefur þijá sendi-
fulltrúa að störfum í fyrrum Júgó-
slavíu. Maríanna Csillag hjúkxun-
arfræðingur hefur aðsetur í Split í
Króatíu, Hólmfríður Garðarsdótt-
ir hjúkmnarfræðingur er að störfum
í Bijeljina í Bosníu-Hersegóvínu og
Þorkell Diego starfar að matvæla-
dreifingu í Trebinje í suðurhluta
Bonsíu-Hersegóvínu. Auk þess em
sendifulltrúar Rauða kross Islands
nú að störfum í Eþíópíu, Georgíu,
Palestínu og Tansaníu.
d a g a t a 1 29. desember
Atburðir dagsins
1170 Riddarar Hinriks II Eng-
landskonungs myrða Tómas
Becket erkibiskup af Kantara-
borg. Mikil togstreita hafði ver-
ið millum konungdæmis og
kirkju. 1860 Bretar hleypa af
stokkunum fyrsta herskipinu
sem sntíðað er eingöngu úr
jámi.
1908 Ofsaveður á Suðurlandi.
Kirkjur á Stóra-Núpi og
Hrepphólum fuku og brotnuðu.
1962 Eggert Stefánsson stór-
söngvari lést, 72 ára. 1972 Tíu
af sextán mönnum sem lifðu af
flugslys í Andesfjöllum viður-
kenna á blaðamannafundi að
hafa lagt sér til munns manna-
kjöt til að halda lífi. 1989 Leik-
skáldið og andófsmaðurinn
Vaclav Havel kjörinn forseti
Tékkóslóvakíu.
Afmælisbörn dagsins
William Ewart Gladstone
1809, einn helstur stjómmála-
maður Breta á seinni hlula síð-
ustu aldar. Pablo Casals 1876,
spænskur sellósnillingur. Jon
Voight 1938, bandarískur leik-
ari; Óskarsverðlaunahafi fyrir
myndina Coming Home.
Annálsbrot dagsins
En um veturinn var Herdís
Bjamadóttir mjög veik í Tungu
af óvanalegu krankdæmi, með
ofsjónum og stórri neyð á lík-
amanum; komu verkir í ýmsa
limu, á augabragði úr öðrum
limnum í annan.
Ballarannáll 1650.
Val dagsins
Menn vanda aldrei um of val
óvina sinna.
Oscar Wilde.
Langanir dagsins
Allt sem mig langar að gera er
ýmist ólöglegt, ósiðlegt eða fit-
andi.
Alexander Woollcott, 1887-
1943, bandarískur rithöfund-
ur.
Málsháttur dagsins
Teldu vini þína, þegar þú ert í
nauðum staddur.
Orð dagsins
Hvert cír, sem líður ú í se'r
þó endurminning, sem oss ber
cið Idta verða ’ leiðsögn þá
er lýsi re'tta veginn á.
Ágúst Jónsson.
Skák dagsins
Svartur þarf ekki nema einn
leik til að knýja hvítan til upp-
gjafar. Nutrizio stýrði svörtu
mönnunum f þessari skák gegn
Gusti árið 1958. Vinningsleið-
in er afar snotur.
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
d Saf 5 0 8.139.930
3+4af5 3 225.510
3 4af 5 109 10.700
0 3 af 5 4.297 630
BÓNUSTALA;
©
Heildarupphæð þessa vlku:
12.689.870
UÞÞLÝSINGAR; SlMSVARÍ 66ð 1511 EÐA GRÆNT
NR. 800 6511 - TEXTAVARP 453 BIRT MED FYRIR-
' VARA UM PRENTVILLUR
Svartur leikur og vinriur.
1. ... Dh3!! Hvítur gafst upp.
Samanber 2. gxh3 Rf2++ 3.
Kgl Rh3 mát. Gleðilegt nýtt
ár!
mrm
Vinningstölur r --------
miövikudaginn: 27.des. 1995
HM
M
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
d 63,6 2 19.190.000
n 5 af 6 tJH+bonus 0 794.478
tcl 5af6 3 66.490
0 4af6 179 1.770
ri 3 af 6 Cfl+bónus 657 200
Aöaitölur:
BÓNUSTÖLUR
(|)(Í)(28)
Heildarupphæó þessa viku:
39.822.178
á ísi, 1.442.178
ÚPPLÝSINGAR; sIMSV'Ari 568 1511 EDA GRÆN+
6511 - TEXTAVARP 453 BIRT MEÐ FYRIR
'ARA UM PRENTVILLUR
| fór til Noregs og Svíþjóöar