Alþýðublaðið - 18.01.1996, Síða 1
Fimmtudagur 18. janúar 1996 Stofnað 1919 10. tölublað - 77. árgangur
■ Mikil ólga innan Leikfélags Reykjavíkur. Á stormasömum leikhúsráðsfundi samþykkti meirihlutinn
að fela Viðari Eggertssyni sjálfdæmi um starfsmannahald
Auðvitað verða mikil átök
— segir fulltrúi í leikhús-
ráði um yfirvofandi
uppsagnir leikara.
„Þetta verður náttúrlega allt erf-
itt. Auðvitað verða mikil átök, það
hlýtur að vera. Hversu mikil þau
verða, það leiðir tíminn í ljós. Það
er ekki búið að birta nöfn þeirra
sem sagt verður upp,“ sagi fulltrúi
í leikhúsráði Leikfélags Reykjavík-
ur (LR) í samtali við Alþýðublaðið
í gær. Mikil ólga er nú meðal
starfsmanna LR vegna yfirvofandi
uppsagna og fyrr í vikunni voru
tveir átakafundir í leikhúsráði þar-
sem starfsmannamál voru til um-
ræðu. Viðar Eggertsson, nýráðinn
leikhússtjóri, hefur boðað breyt-
ingar í Borgarleikhúsinu enda hef-
ur það verið í djúpum öldudal síð-
ustu ár.
Atökin í leikhúsráði snerust fyrst
og fremst um hvort ráðið ætti að
hlutast til um mannaráðningar eða
láta Viðari þær alfarið eftir. Viðar
mun hafa lagt alla áherslu á að fá
skýrt umboð til að móta leikhópinn
eftir sínu höfði. Heimildir blaðsins
herma að Þorsteinn Gunnarsson
leikari, sem á sæti í ráðinu, hafi
krafist þess að uppsagnir starfs-
manna LR yrðu bornar undir ráðið.
Viðmælandi Alþýðublaðsins sagði
hinsvegar að „traustur meirihluti“ í
ráðinu hefði markað þá stefnu að
leikhúsráð ætti ekki að hafa af-
skipti af mannaráðningum.
„Viðar hlýtur að velja í leikhóp-
inn. Hans stefna er að búa til fast-
an leikhóp sem vinnur öðruvísi en
verið hefur. Leikfélagið hefur ver-
ið einsog brautarstöð í sambandi
við mannaráðningar. Hann hlýtur
að velja fólk í samræmi við sitt
verkefnaval, sem er eðlilegt, og
hvað hann getur látið reyna á við-
komandi listamenn," sagði heim-
ildamaður biaðsins. „Auðvitað er
slæmt að hafa þessa óvissu í hús-
inu, allir vita að það kemur til upp-
Viðar: Undirbýr uppstokkun í
leikarahópnum.
sagna en enginn nema Viðar veit
ennþá hverjum verður sagt upp.“
Samkvæmt öðrum heimildum
blaðsins verður allstórum hópi
leikara sagt upp störfum innan tíð-
ar. Uppsagnarfrestur er í flestum
tilvikum sex mánuðir og því ekki
hægt að bíða lengi fram á vorið
vegna undirbúnings fyrir næsta
leikár, en þá fagnar LR hundrað
ára afmæli. „Væntanlega liggur
þetta fyrir hjá Viðari í febrúar, í
síðasta lagi í byrjun mars,“ sagði
viðmælandi blaðsins.
Viðar Eggertsson vildi ekki tjá
sig um málið og sömu sögu er að
segja af Þorsteini Gunnarssyni.
■ Jón Sigurðsson
bankastjóri og
fyrrverandi ráðherra
Ekki á leið
á Bessa-
staði
Vilji menn sýna öðrum
kurteisi þá orða þeirfor-
setaframboð.
„Mér sýnist það nánast orðið þann-
ig að vilji menn sýna öðrum fulla
kurteisi þá orða þeir við þá forseta-
framboð," sagði Jón Sigurðsson,
bankastjóri Norræna fjárfestingar-
bankans, þegar blaðið leitaði til hans
og grennslaðist fyrir hvort hann íhug-
aði forsetaframboð, en nafn banka-
stjórans hefur nokkuð borið á góma í
þeirri umræðu.
„Sem betur fer á ég vini á Islandi
sem hugsa sæmilega vel til mín og
það hefur komið fyrir að þeir hafi orð-
að framboð. En ég held að það sé æði
stór hópur sem það sama gildir um.
Sjálfur er ég ekki að íhuga slíkt,“
sagði Jón Sigurðsson.
Sem betur fer á ég vini á íslandi
sem hugsa sæmilega til mín, segir
Jón Sigurösson, sem þrátt fyrir
hvatningu vina íhugar ekki forseta-
framboð.
Lopafánar og gamlar tóftir „Ég leitast frekar að búa til myndlist
úr mínum ranni og nota þann efnivið sem stendur mér næst," segir Birgir Andrésson myndlistarmaður sem á
laugardag opnar sýningu á Sólon íslandusi. Þetta eru verk sem Birgir sýndi á hinum margfræga Feneyjatvíær-
ingi í sumar, en þar var hann fulltrúi íslands; fánar sem eru prjónaðir úr lopa og teikningar af gömlum bæjar-
stæðum.
Sendiherra
Rússlands fjall-
ar um nýjustu
viðhorfin í
heimalandinu
Reshetov flytur fyrirlestur
Næstkomandi laugardag 20. janúar
klukkan 15.00 verður sendiherra
Rússlands á íslandi, Júríj Reshetov,
gestur félagsins MIR í félagsheimilinu
Vatnsstíg 10 og spjallar um málefni
sem ofarlega eru á baugi í heimalandi
hans. I lok liðins árs var sendiherrann
á ferð ásamt fleirum á þeim slóðum
Kamtsjatka, þar sem íslensk fyrirtæki í
útgerð og fiskvinnslu hafa haslað sér
völl og ætlar hann að segja frá ferð
sinni þangað og samstarfsverkefnum
Islendinga og Rússa þar austur frá.
Ræðir hann og almennt um samstarf
þjóðanna á sviði atvinnumála og við-
skipta. Einnig mun Reshetov sendi-
herra fjalla um nýjustu viðhorfin í
Rússlandi - í ljósi úrslita þingkosning-
anna í desember síðastliðnum og
væntanlegar forsetakosningar í júní
næstkomandi. Aðgangur er öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
■ Össur Skarphédinsson segir að ásakanir heilbrigðisráðherra í sinn garð um
„karlrembu" séu til marks um fullkomið rökþrot
Friðrik lagði fram tillögumar
Áfundi formanna þingflokka með Friðriki Sophussyni og Ingibjörgu Pálmadóttur var það fjármálaráðherra sem
kynnti niðurskurðartillögur í
„Ég segi það auðvitað ekki út í blá-
inn að Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra ráði ferðinni í heilbrigðismálum.
Mér finnst athyglisvert á hvað stig
Ingibjörg setur umræðuna þegar hana
brestur rök. Þá heldur hún því einfald-
lega fram að andmælanda hennar
gangi það eitt til að niðurlægja hana
persónulega og kemur með ásakanir í
minn garð um karlrembu. Þetta er
átakanlegt dæmi um fullkomið rök-
þrot ráðherrans," segir Össur Skarp-
héðinsson formaður heilbrigðisnefnd-
ar Alþingis. I Alþýðublaðinu í gær
þvertók Ingibjörg fyrir að Friðrik Sop-
husson réði ferðinni í heilbrigðismál-
um og að niðurskurðartillögur væru
ættaðar úr ráðuneyti hans. Hún sagði
heilbrigðismálum. Ingibjörg
Ingibjörg virðist hafa þann eina
starfa að koma fram sem blaðafull-
trúi Friðriks Sophussonar, segir
Össur Skarphéðinsson.
hafði ekkerttil málanna að
að yfirlýsingar Össurar í þessa veru
bæru vott um ,Jcarlrembu“.
Össur segist hafa sterk rök fyrir
yfirlýsingum sínum um að Ingibjörg
ráði litlu en Friðrik sé í raun yfirheil-
brigðisráðhena. Hann sagði: „I fjár-
lagaumræðunni gerði stjómarandstað-
an harða hríð að stjómarliðinu fyrir að
hafa ekki tillögur í heilbrigðismálum
tilbúnar við aðra umræðu. Forseti Al-
þingis átt fund með fonnönnum þing-
flokka, heilbrigðisráðherra og fjár-
málaráðherra vegna þessarar gagn-
rýni. Til málamiðlunar vorú formönn-
um þingflokkanna kynntar væntanleg-
ar tillögur um niðurskurð í heilbrigðis-
málum. Það vildi einfaldlega svo til,
að sá sem kynnti tillögumar var ekki
leggja.
ráðherra málaflokksins - heldur fjár-
málaráðherra. Friðrik Sophusson
kynnti semsagt tillögumar á fundinum
og gerði það af röggsemi. Forseti
þingsins spurði svo heilbrigðisráð-
herra, hvort hún hefði einhverju við
þetta að bæta. Svo var ekki. Tillögur
um niðurskurð í heilbrigðismálum
vom fyrst kynntar af íjármálaráðherra,
enda vom þær samdar í fjármálaráðu-
neytinu. Ingibjörg Pálmadóttir virðist
hafa þann eina starfa að koma fram
sem blaðafulltmi Friðriks Sophusson-
ar. Það er illa komið fyrir þeim stjóm-
málamanni sem á síðasta kjörtímabili
mátti ekki til þess hugsa að hróflað
væri við heilbrigðiskerfinu," sagði
Össur Skarphéðinsson.
Guðmundur Árni
Stefánsson
um góðæri
ríkisstjórnarinnar
Kristján Árnason
formannsfram-
bjóðandi í Dagsbrún
Kolbrún
Bergþórsdóttir
um gömul skriftamál
Þorgeir Ástvaldsson
dregur fram
bítlabúninginn
Bryndís Hlöðversdóttir
um ál
og allaballa