Alþýðublaðið - 18.01.1996, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
ALÞÝÐUBLAÐHD
3
s k o ð a n i r
Ja, hérna!
En hvernig eigum við kæru félagar, nema við
stöndum saman allir sem einn, að opna augu
þeirra sem öllu ráða fyrir því, að hærri laun til
verkafólks fara aftur út í þjóðfélagið og skapa
vaxandi velmegun sem þýðir: Aukna atvinnu og
almennari ánægju stærri þjóðarinnar í landinu,
sem er hinn venjulegi verkamaður og verkakona.
Það rekur marga í rogastans, þegar
þeir heyra hvað núverandi varafor-
maður Dagsbrúnar og, að eigin dómi
sjálfkjörinn verðandi formaður, er
fullviss um eigið ágæti og síns lista.
Stríðsletrið I
------y-y—------------B
.i Kristján
Árnason
Maður sem rekur í vörðurnar þegar
hann er spurður í fjölmiðlum um
stefnuskrá A-listans, en reynir að láta
líta svo út sem B-listi „Ný Dagsbrún"
hafi enga stefnuskrá. Þvílík firra! B-
listinn var með nærri fullbúna stefnu-
skrá áður en þessi „ágæti“ maður
hafði einu sinni hugmynd um að hann
þyrfti að óttast um sæti sitt í forystu-
sveit Dagsbrúnar. Hvort sá hinn sami
hefur einhvem tíma unnið raunveru-
leg verkamannastörf, veit ég ekki, en
vona að svo hafi verið því hvernig
gétur hann annars sett sig í spor hins
þrælandi þjóðfélagsþegns. Það veit
nefnilega enginn hvar skórinn kreppir
nema sá sem hefur hann á fætinum!
Og svo þegar við mættumst í þætti
Hauks Hólm í 19:19, er lítið annað
sem kemst að, annað en áður er getið
og hneykslan hans á leiðara DV mið-
vikudaginn 10. janúar, sem er skrifað-
ur af hinum virta ritstjóra blaðsins,
Jónasi Kristjánssyni, og vill láta siða-
nefnd blaðamannafélagsins fjalla um
þessi skrif. Já, hver er sannleikanum
sárreiðastur! Veit ekki maður sem hef-
ur verið í forystuliði stærsta baráttufé-
lags verkamanna um áratuga skeið, að
það eru aðeins tveir menn sem hafa
þorað að tjá sig opinberlega um, að í
þessu landi byggju tvær þjóðir, stað-
reynd sem verður æ sannari. Það er að
segja: Þeir ríku sem verða ríkari með
hverju árinu og við hin sem verðum
fátækari með hverju árinu. Annar
þessara manna er fráfarandi formaður
Dagsbrúnar. Guðmundur J. Guð-
mundsson, en hinn, Jónas Kristjáns-
son ritstjóri, sem alla tíð hefur af ein-
urð þorað að segja skoðun sína um-
búðalaust og hvergi hallað sannleikan-
um, að því er ég veit og sýnir þessi
leiðari berlega hversu Jónas er sjálfum
sér samkvæmur. Og eftir að hafa á
þennan hátt opinberað afstöðu sína í
garð þeirra sem minna mega sín, vill
Halldór fá að sitja á eintali allan þátt-
inn og móðgast ef ég eða stjómandinn
viljum koma einhveiju að. Ja, héma!
Brot á fundarsköpum!
Þetta fáheyrða atvik minnti mig á
mistök í fundarstjóra þessa sama
manns í Bíóborginni sem er öllum í
fersku minni. Þegar mælendaskrá var
orðin mikið meira en full, (þetta átti
að vera stuttur fundur) vék síðasti
maður af mælendaskrá, (eða var vik-
ið) en í stað þess að loka þá mælenda-
skrá eins og eðlilegt hefði verið er
konu úr stjóm hleypt að með ótrúlegt
brot á trúnaði félagsins gagnvart fé-
lagsmönnum sínum og ásakanir gegn
Sigurði Rúnari; að hann stefni á það
eitt að ná í formannssætið í þeim eina
tilgangi að nota síðan verkamenn sem
stökkpall inn á Alþingi. Hvað er þetta
annað en brot á fundarsköpum.
Gagnslausir bitlingar!
I framhaldi af þessu kom svo yfir-
lýsing um hvað fyrri formenn félags-
ins hefðu gert í þessu efni. Hvað er
hún að segja annað en að forysta
Dagsbrúnar hafi einmitt notað verka-
menn og aðstöðu sína á þennan hátt,
sem var að vísu auðvelt því lög Dags-
brúnar hvetja einmitt til þessara hluta
og að Dagsbrún eigi fulltrúa í Borgar-
stjóm. Einhveiju þarf nú að breyta eft-
ir þessu að dæma, því hingað til hafa
þetta verið gagnslausir bitlingar eng-
um til hagsbóta nema þeim sjálfur.
Áralöng kúgum
Hvað heldur þetta fólk að við sé-
um? Þetta fólk sem hefur haft töglin
og hagldimar í hinu virðulega verka-
mannafélagi Dagsbrún, heldur það
virkilega að verkafólk sé svo heimskt
og blint að það sjái ekki hvernig er
farið með valdið og stóran hluta þess
sjálfs? Ó jú, við erum vitibornar
manneskjur og höfum okkar skoðanir,
þótt áralöng kúgun og skammarleg
laun hafi brotið niður baráttuþrekið að
einhveiju leyti og gert það að verkum
að allt of fáir þora að andmæla af
hræðslu við að missa vinnuna og
þurfa að skrimta af atvinnuleysisbót-
um sem eru líka til skammar. En
hvemig eigum við kæm félagar, nema
við stöndum saman allir sem einn, að
opna augu þeirra sem öllu ráða fyrir
því, að hærri laun til verkafólks fara
aftur út í þjóðfélagið og skapa vaxandi
velmegun sem þýðir: Aukna atvinnu
og almennari ánægju stærri þjóðarinn-
ar í landinu, sem er hinn venjulegi
verkamaður og verkakona. Þau láta
ekki blekkjast þótt formannsefni A-
listans skipti yfir í dökka skyrtu og
taki af sér bindið. Því það eitt gerir
hann ekki að verkamanni!
x-B. Ykkar til baráttu.
Höfundur er formannsefni B-listans til
nýrrar Dagsbrúnar.
r
IVÍkurfréttum 11. janúar
síðastliðinn kemurfram
að blaðið hefur valið Þor-
stein Erlingsson mann
ársins 1995. Þorsteinn er
fiskverkandi og útgerðar-
maður, en af frásögn
blaðsins má skilja að það
séu ekki afrek hans á þeim
sviðum sem urðu til þess
að hann hlaut þessa nafn-
bót. Þorsteinn mun nefni-
lega vera upphafsmaður
og hugmyndasmiðurinn á
bak við byggingu fiski-
mjölsverksmiðju í Helgu-
vík. Á síðastliðnu ári rætt-
ist þessi gamli draumur
hans þegar SR-mjöl ákvað
byggingu verksmiðju sem
framleiða mun hágæða-
mjöl til útflutnings. Ekki er
að efa að þetta mun verða
atvinnulífi á Suðurnesjum
mikil lyftistöng og Þor-
steinn er því vel að þess-
ari nafnbót kominn...
Nú heyrum við að mikil
ólga sé meðal starfs-
manna á fréttastofu ríkis-
útvarpsins hljóðvarps.
Ástæðan mun vera mikill
niðurskurður á fjárveiting-
um til fréttastofunnar.
Þannig hefur næturfrétta-
mönnum stofunnar verið
sagt upp og munu þá næt-
urfréttir RÚV falla niður.
Eins heyrist að svo finnist
fréttamönnum að sér
þrengt að þeim sé gert
ókleift að halda uppi þeirri
virðingu sem fréttastofan
hefur áunnið sér í gegn-
um árin. Kári Jónasson
og starfsmenn hans munu
því bera heldur þungan
hug til þeirra félaganna
Heimis Steinssonar út-
varpsstjóra og Harðar
Vilhjálmssonar fjármála-
stjóra, og finnst skilningur
þeirra á málefnum frétta-
stofunnar vera í rýrara
lagi...
Sameiginlegt kosninga-
blað Dagsbrúnar-
manna er komið út. í þeim
hluta þess sem er undir
umsjón A-listans er að
finna eftirfarandi tilvitnun
í útvarpsviðtal við Ólaf
Björn Baldursson fram-
bjóðenda á B-listanum:
„Guð minn almáttugur, að
það ætla ég bara hrein-
lega að vona vegna þess
að það er ekkert annað
sem blæs mér í brjósti
heldur en að... heldur en
að berjast fyrir, fyrir kaup-
um og kjörum verkafólks
vegna- vegna þess að það
er ekki nokkur kjaftur í
Verkamannafélaginu
Dagsbrún í forystusveit-
inni þar sem sýnt hafa
dug og kjark eða þor til
þess að hreyfa litlaputta.
Er lýðum það Ijóst að
Guðmundur J. Guð-
mundsson gekk inn á
skrifstofu Dagsbrúnar að-
eins 33 ára gamall,
ha?...Og lét pabbi hans
svo um mælt. Ja, það var
gott að Guðmundur komst
inn á skrifstofuna. Hann
hefur alltaf verið svolítið
latur greyið."
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
„Æi Bidda...! Þetta er ekki nógu áhrifamikið. Reyndu nú
að halda uppi heilanum, Bidda. Stóra heilanum..."
fimm á förnum vegi
Myndir þú kjósa Steingrím Hermansson sem forseta?
Hrafnhildur Garðasdóttir
skrifstofumaður: Nei, hann
er fínn í Seðlabankanum.
Gissur Jóhannsson húsa-
smiður: Já, já, hann verður
góður í því embætti.
Brynjólfur Sævarsson Héðinn Reynisson múr-
nemi: Nei, þrátt fyrir að hann arameistari: Nei, ég vil ekki
sé ekki óhæfur. hafa stjómmálamann sem for-
seta.
Pálmi Stefánsson múrara-
meistari: Nei, ég vil ekki
svona ellismell.
JÓN ÓSKAR
m e n n
En það er augljóslega ekki
mikill sáttahugur í Flóka.
Jón Stefánsson organisti
í Tímanum í gær.
Ég hef beðið alla aðila að
gæta þess að halda þessu máli
þannig að vatnið yrði ekki
gruggað frekar.
Herra Ólafur Skúlason biskup
í Tímanum í gær.
Þetta er vonlaus barátta
langt gengins drykkjumans með
skerta dómgreind.
Jónas Kristjánsson um Jeltsín Rússlandsforseta
í forystugrein DV í gær.
Maðurinn fer inn á íbúðir hjá
konum og þær hafa lýst honum
sem „hreinlegum“ ungum
manni frá góðu heimili.
DV í gær um „flassara" sem angrar
gamlar konur á ísafirði.
Pólitíkusar verða alltaf
pólitíkusar og sumir pólitíkusar
verða alltaf öðruvísi en aðrir.
Helgi Haraldsson formaður FRÍ
um Júlíus Hafstein formann ólympíunefndar.
DV í gær.
Ég hef ekki heyrt um þetta
fyrr og ég finn það ekki hjá mér
sem köllun guðs.
Snorri Óskarsson í Betel um hugsanlegt
framboð sitt til forseta.
DV í gær.
fréttaskot úr fortíð
Þræll
ástarinnar
Danskur stórþjófur, Chr. Maakjær,
kom nýlega á lögreglustöðina og ját-
aði á sig 80 innbrotsþjófnaði. Hann
var þegar í stað færður í fangaklefa,
þar sem hann fékk uxasteik og fleira
góðgæti. Þetta var líka um jólin.
Astæðuna til þess að hann játaði,
kvað hann vera þá, að hann væri trú-
lofaður fiskistúlku og vildi ekki
kvænast henni fyrr en hann hefði af-
plánað syndir sínar, sem hvorki voru
fáar né smáar.
Alþýðublaðið
sunnudaginn
26. janúar 1936