Alþýðublaðið - 18.01.1996, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
AIMDWID
21049. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
„Er þetta ekki
bíllinn hans afa?“
I Morgunblaðinu í gær birtist grein eftir Eirík Óskarsson undir fyrir-
sögninni ,,Fjölrniðlaslys?“ og hlýtur að vekja starfsfólk fjölmiðla til um-
hugsunar. Eiríkur missti föður sinn og sambýliskonu hans í átakanlegu
slysi á Suðurlandsvegi 14. október í íyrra. Ökumaður annars bfls, sem
var á flótta undan lögreglu, lét einnig Kfið. Slysið varð klukkan 18.10
og voru fféttamenn beggja sjónvarpsstöðva komnir á staðinn skömmu
síðar. Eiríkur hefur eftir lögreglu að sjónvarpsmenn hafi verið beðnir að
sýna ekki myndir af vettvangi þá um kvöldið. Eigi að síður liðu ekki
nema 80 mínútur frá slysinu þangað til Stöð 2 birti myndir af slysstað.
Fréttastofa Rfldssjónvarpsins virti líka að vettugi tilmæli lögreglunnar.
Eiríkur Óskarsson upplýsir að vegna þessara myndbirtinga hafi sjón-
varpsskjárinn orðið fyrstur til að flytja ástvinum hinna látnu fréttir af
slysinu hörmulega. Dóttir konunnar sem lést hafi hringt í hann eftir frétt
Stöðvar 2 og spurt: Er mamma dáin?
Eiríkur Óskarsson rekur samtöl sín við fréttastjóra sjónvarpsstöðv-
anna vegna málsins. Fréttastjóri Stöðvar 2 hafi sagt að Sjónvarpið „-
hefði sýnt miklu verri myndir" og auk þess hefði Stöð 2 upplýsinga-
skyldu að gegna gagnvart almenningi vegna þess að Suðurlandsvegi var
lokað og umferð beint annað. A fréttastofu Sjónvarps var hinsvegar sagt
að ákvörðun um myndbirtingu hafi verið tekin þarsem Stöð 2 hefði þeg-
ar sýnt myndir frá slysstað. Allar eru þessar mótbárur vitanlega mark-
laus fyrirsláttur. Eiríkur bendir á, að Suðurlandsvegur hafi verið aftur
verið opinn umferð þegar fréttatími Stöðvar 2 hófst og því engri upplýs-
ingaskyldu að gegna í því efni. Þar fyrir utan gátu starfsmenn fréttustofu
Stöðvar 2, ef upplýsingaskyldan var að sliga þá, einfaldlega sagt frá því
að slys hefði orðið án þess að sýna myndir af vettvangi. Og fréttastofa
Sjónvarpsins hefði auðvitað átt að sjá sóma sinn í því að fylgja ekki
Stöð 2 á foraðið.
Eiríkur Óskarsson gerir einnig að umtalsefni nýlegan úrskurð Siða-
nefndar Blaðamannafélagsins vegna þessa máls. Vegir Siðanefndar eru
að sönnu órannsakanlegir: Hún komst að þeirri niðurstöðu að ekkert
væri athugavert við fréttaflutning af slysinu. Flestir aðrir munu hinsveg-
ar sammála um að fréttaflutningurinn hafi verið yfirgengilega siðlaus og
lágkúrulegur. Eða hvað segja menn um þessi orð Eirflcs Óskarssonar:
„Þegar ég nú horfi til baka og skoða þessa fréttamennsku finnst mér að
ég og fjölskylda mín, og einnig lögreglan, hafi því miður verið fómar-
lömb í samkeppni fréttastofa sjónvarpsstöðvanna, um að vera fyrstir
með myndir af vettvangi og afleiðingin var til dæmis að 9 ára gamalt
bam kallaði: Er þetta ekki bfllinn hans afa? Og fólk sá bifreið foreldra
sinna í umferðarslysi og þetta og þetta marga látna.“
„Upplýsingaskyldu“ fjölmiðla em takmörk sett. Það er ekki í verka-
hring fjölmiðla að færa fólki fréttir í beinni útsendingu af andláti ást-
vina.
s
A asnaeyrunum
Góðærið til launafólks
Um það er ekki blöðum að fletta,
að kreppan er að baki í íslensku
efnahags- og atvinnulífi eftir rúm-
lega sjö ára mögur ár. Og þegar á
heildina er litið er hægt að fullyrða
að stjómvöldum og raunar íslending-
um öllum hafi tekist vei upp í þessari
erfiðu vamarbaráttu. Á þessu sjö ára
tímabili var verðbólgu náð niður í
viðunandi stærðargráðu, vextir lækk-
uðu umtalsvert, það tókst að koma
þokkalegum böndum á ríkisútgjöld
og festa hefur verið í efnahagslífi
þjóðarinnar. Atvinnulífinu var forð-
að frá kolisteypum og hornsteinar
velferðarkerfisins standa á traustum
gmnni f aðalatriðum var líka horfið
frá fyrri stefnu íslenskra stjómvalda
sem byggðist á þeirri von að „þetta
myndi reddast einhvernveginn" og
enginn vissi þá í raun hvað morgun-
dagurinn bæri í skauti sér. Sú tíð er
sem betur fer að baki og fyrirhyggj-
Háborðið |
an og skynsemin voru leiddar til
öndvegis í íslenskri pólitík. Alþýðu-
flokkurinn var við stjórn landsins öll
þessi erfiðu ár. Fékk oft og tíðum
ómældar skammimar, enda ekki allt-
af til vinsælda failið að takast á við
stjórn landsmála þegar á móti blæs.
Hins vegar hygg ég að flestir viður-
kenni innst inni að skynsamlega hafi
verið á málum tekið þessi árin, þótt
vissulega megi um einstakar aðgerð-
ir deila.
Betri tíð
En þetta tímabil samdráttar hefur
að sönnu reynt á þolrifin. fslenskt
launafólk hefur orðið að bera þungar
byrðar. Þetta hefur verið ákaflega
erfiðir tímar hjá íslenskum heimil-
um. Það sækir nú eðlilega sinn rétt-
mæta hlut, þegar góðærið er gengið í
garð og úr meiru er að spila í ís-
lensku þjóðarbúi. Á tímum samdrátt-
arins var allt kapp á að halda at-
vinnuvegunum gangandi til að forða
stórfelldu atvinnuleysi og í því skyni
var létt skattaálögum á fyrirtækjum.
Nú er hins vegar tími launafólks
runninn upp. Launamenn hafa fært
fórnir - hafa staðið við sinn hluta
þjóðarsáttarinnar og eiga nú að upp-
skera.
Ekki verður þó séð, að stefna nú-
verandi ríkisstjómar taki mið af því.
Fyrir kosningamar í apríl varaði Al-
þýðuflokkurinn mjög alvarlega við
afleiðingum þess að Sjálfstæðis-
flokkur og Framsóknarflokkur rynnu
saman í eina sæng að kosningunum
afloknum. Þau aðvörunarorð komu
þó fyrir lítið því þessir flokkar hlutu
um það bil 65% atkvæða og rugluðu
saman reitum og mynduðu nýja rík-
isstjóm. Reynslan af helmingaskipta-
ríkisstjórnum íhalds og framsóknar
er vond. Samstarf þessara tveggja
flokka kallar fram verstu hliðar
hvors þeirra um sig - sérhyggjuna,
íhaldssemina, hagsmunagæsluna. Og
Vika er langur tími í pólitík, en tíminn er líka
afstæður þegar stjórnmál eru annars vegar. Klukk-
an tifar. Apríl árið 1999 mun renna upp. Þá verða
þingkosningar. Þá spyrjum við að leikslokum.
það er engin tilviljun að réttmætt
heiti ríkisstjóma þessara flokka er
helmingaskiptastjórnir. Það þarf í
raun ekki annað en rifja upp tvær
þær síðustu af þessari tegund til að
rökstyðja og sýna fram á réttmæti
þessara fullyrðinga. Enginn launa-
maður gleymir helmingaskiptaríkis-
stjóminni í 974-1978 sem réðst að ís-
lensku launafólki með fádæma of-
forsi og fékk lfka einkunn kjósenda í
samræmi við það í hinum frægu
kosningum 1978 þegar félagshyggju-
flokkamir, Alþýðuflokkurinn og Al-
þýðubandalagið, unnu sína stærstu
sigra. Og ekki var árangurinn gæfu-
legri í samstjóm þessara sömu flokka
1983-1987, sem lét reka á reiðanum
og gafst hreinlega upp í glímunni við
verðbólguna með hroðalegum afleið-
ingum fyrir íslensku heimilin.
Skuldasöfnun ríkissjóðs var gífur-
iega og ekki síður söfnuðu íslensku
heimilin skuldum sem þau eru enn
þann dag í dag að berjast við.
í sama farveg
Og alit bendir til þess að Davíð og
Halldór fari í sömu sporin og fyrir-
rennarar þeirra - eðli framsóknar/-
íhalds breytist ekki þótt nýir foringj-
ar fari fyrir liðinu. Þótt þessi ríkis-
stjórn hafi verið einkar aðgerðalítil
og stefna hennar óljós í mörgu, þá
hefur hún þegar sýnt sitt rétta andlit í
nokkrum Íykilmálum. Það er engin
tilviljun að ríkisstjómin er nú þegar
komin í stríð við samtök launafólks.
Það kemur heldur ekki á óvart að
hagsmunir heimilanna varðandi
lækkun vöruverðs eru fyrir borð
bomir þegar úrelt kerfi landbúnaðar-
mála sem er einkar fjandsamlegt
neytendum er vemdað af stjómvöld-
um. Né heldur vekur hún undran hin
altæka hagsmunagæsla fyrir
kvóta“eigendur“. Þetta er allt í stíl
við fyrri reynslu af helmingaskipta-
stjómum.
Þessi ríkisstjórn hefur drjúgan
þingmeirihluta og mun að öllum lík-
indum sitja út kjörtímabilið. Þær
gera það venjulegast þessar helm-
ingaskiptastjórnir. Sitja meðan sætt
er. Hins vegar mun að óbreyttu fara
eins fyrir þessari hægri stjóm og hin-
um fyrri - hún fær falleinkunn hjá
kjósendum í kosningum í lok kjör-
tímabilsins .
Að standa vaktina
Alþýðuflokkurinn mun veita þess-
ari rfldsstjórn strangt aðhald og vill
taka saman höndum við samtök
launafólks og aðra þá er vilja auka
veg félagshyggjunnar og þar með
jöfnuðar í íslensku samfélagi. Þetta
verða væntanlega löng fjögur ár -
erfið ár fyrir launafólk þar til árið
1999 rennur upp og íslenskum kjós-
endum gefst kostur á því að koma
stjórninni frá og kalla til verka þá
stjórnmálamenn og - flokka sem
kunna og geta og iáta hagsmuni
fólksins í landinu ráða ferð - en ekki
sérhagsmuni hinna fáu.
Við jafnaðarmenn erum vanir því
að vera í vörninni. Nú munum jtví
standa vaktina og sækja á íhaldsöflin
í stjómarráðinu og verja kjör fólksins
í landinu, sem allar forsendur era til
að megi bæta umtalsvert væri til þess
pólitískur vilji valdhafa. Við fslend-
ingar eigum góð sóknarfæri., Vjð
höfum góða möguleika 4 þvií’lð
stækka þjóðarkökuna og einnig að
jafna kjör í þessu landi. Því miður er
þess ekki að vænta að núverandi
stjórnvöld noti þessi tækifæri. Til
þess vantar einfaldlega pólitískan
vilja. Forgangsröðunin er önnur í
stjómarráðinu nú um stundir.
Klukkan tifar
En það styttir upp um síðir. Það
vorar að vetri loknum. Það er ekki
eftirsóknarvert hlutskipti að vera í
stjórnarandstöðu. Það gefur hins
vegar Alþýðuflokksmönnum kær-
komið tækifæri til að hlaða batteríin,
undirbúa sig undir næstu stórsókn,
næstu kosningar, næsta sigur. Þolin-
mæði þrautir vinnur allar. Við kratar
eigum að halda ró okkar og vinna
skipulega og markvisst að okkar
málum á næstu misserum og við
munum uppskera í samræmi við það.
Jafnaðarmenn verða að standa saman
og vera reiðbúnir til að taka við
stjómartaumunum eigi síðar en eftir
þrjú og hálft ár hálft ár. Vika er lang-
ur tími í pólitík, en tíminn er líka af-
stæður þegar stjórnmál eru annars
vegar. Klukkan tifar. Aprfl árið 1999
mun renna upp. Þá verða þingkosn-
ingar. Þá spyrjum við að leikslokum.
Höfundur er alþingismaður
og varaformaður Alþýðuflokksins.
Oddur Ólafsson ritstjómarfulltrúi Tímans skrifar pistil í blað sitt í gær
þarsem hann segir að Davíð Oddsson dragi sjálfstæðismenn á asnaeyr-
unum með því taka ekki af skarið og tilkynna hvort hann ætlar í forseta-
framboð. Jafnframt segir Oddur að framsóknarmenn muni varla „una
því að bíða landsfundar Sjálfstæðisflokksins til að fá fréttir af því hvort
hafa eigi hausavíxl á ríkisstjóminni samhhða því að nýtt forystulið verði
kosið til að leiða íhaldið til sólbjartrar framtíðar."
Þessi orð sýna glöggt að óvissan um fyrirætlanir Davíðs veldur ekki
einasta titringi innan Sjálfstæðisflokksins, heldur er maddama Fram-
sókn orðin uggandi um framtíð þess hjónabands sem stofnað var til um
páskahelgina í fyrra. í Alþýðublaðinu í gær var haft eftir þingmanni
Sjálfstæðisflokksins að Davíð muni nota tækifærið á miðstjómarfundi
flokksins á morgun til að skýra frá áformum sínum. Jafnframt er getum
að því leitt að Davíð muni ekki gefa kost á sér að þessu sinni, en drösla
Steingrími Hermannssyni f framboð gegn því að hann sitji aðeins eitt
kjörtímabil. Vitanlega er óljóst hvort hrossakaup af þessu tagi eiga sér
nú stað bakvið tjöldin. Hitt dylst engum að þögn Davíðs er að verða
þrúgandi fyrir báða ríkisstjómarflokkana, og vandséð hvað forsætisráð-
herra gengur til. ■
E
a a t a 1 18. j a n ú a r
Atburðir dagsins
1911 Flugvél lendir um borð í
skipi í fyrsta skipti. 1930 Hótel
Borg tók til starfa. 1943 Rauði
herinn týfur 890 daga umsátur
Þjóðverja um Leníngrad. 1969
Leigubíistjóri myrtur í Reykja-
vík. Málið var aidrei upplýst.
1977 82 farast í lestarslysi í
Ástralíu. 1991 Lögreglan í
Bandaríkjunum handtekur fjór-
tánhundruð manns sem mót-
mæla hemaði gegn frak.
Afmælisbörn dagsins
Emmanuei Chabrier 1841,
franskur tónsmiður. Oliver
Hardy 1892, bandarískur leik-
ari, annar helmingur Laurel og
Hardy. Cary Grant 1904,
breskur leikari og kvennagull.
Danny Kaye 1913, bandarísk-
ur leikari og skemmtikraffur.
Annálsbrot dagsins
Voru þá fangaðir 18 þjófar eð-
ur ránsmenn fyrir vestan á
Staðaröxl í einum hellir. Höfðu
þeir rænt konum og píkum, týj-
um, vopnum og öðru fé, og
báru í hellirinn. Voru allir
hengdir, utan einn sveinn, 18
vetra: þeir höfðu hvatt hann til
að leggja saman við sig.
Vatnsfjarðarannáll elsti 1453.
Málsháttur dagsins
Jafnan vinnur fólskur maður
fyrsta leik.
Réttindi dagsins
Indland er enn fangelsi, en yfir-
fangavörðurinn leyfir föngun-
um að kjósa embættismenn, er
annast rekstur fangelsisins.
Mahatma Gandhi, 1869-1948, eftir
setningu nýrrar stjórnarskrár Ind-
lands.
Röksemd dagsins
Óspakur mælti: „Far þú eigi til
Álfur,“ segir hann, „þú hefur
haus þunnan en eg hefi öxi
þunga.'1
Eyrbyggja saga.
Orð dagsins
Hafir þú um kyrrlcítt kveld
kysst og faðmað svanna,
verður lilýtt við arineld
endurminninganna.
Einar Kristjánsson frá Hermundar-
felli.
Skák dagsins
Nú skoðum við skák sem tefld
var í Stokkhólmi fyrir fjórum
árum. Backelin hefur hvítt og á
leik gegn D. Cramling. Svart-
ur var að leika illa af sér, Dd8-
d4; ætlaði að knýja fram
drottningakaup en var í staðinn
gersigraður í einu vetfangi.
...... •» « d « >8 h
'¥ •I i * á á Á
* * á
W n
» .
•A A a A
1 > fí
_»_____i
Hvítur leikur og vinnur.
1. Hxg6! Cramling gafst upp.
Samanber: 1. ... Dxe4 2. Bg7+
Kxh7 3. Hh6+ Kg8 4. Hh8
mát.