Alþýðublaðið - 19.01.1996, Page 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996
Auglýsing um styrki úr
Fræðslusjóði brunamála
nr. 138
í samræmi við reglugerð nr. 1380/1993, skv. 24. gr. laga
nr. 41/1992, er hér með auglýst eftir umsóknum úr
Fræðslusjóði brunamála.
Fræðslusjóður brunamála starfar innan Brunamálastofn-
unar ríkisins. Markmið sjóðsins er að veita þeim sem
starfa að brunamálum styrki til náms á sviði brunamála.
Sjóðurinn greiðir styrki til rannsókna- og þróunarverk-
efna, námskeiðsgjöld, ferða- og dvalarstyrki, laun á
námsleyfistíma og styrki vegna námskeiða og endur-
menntunar. Frá árinu 1993 hafa verið veittir 64 styrkir.
Til úthlutunar í ár eru samtals 3,5 milljónir króna.
Auk styrkja til stakra verkefna mun sjóðurinn á þessu ári
styrkja yfirmenn slökkviliða til að sækja námskeið sem
Brunamálastofnun skipuleggur í samvinnu við þjálfunar-
miðstöðvar slökkviliða í Svíþjóð og Finnlandi. Styrkir til
námskeiðanna verða veittir viðkomandi slökkviliðum og
skulu slökkviliðsstjórar sækja um fyrir hönd þeirra
manna sem þeir hyggjast senda á námskeiðin.
Umsóknir um styrki skal senda Brunamálastofnun ríkis-
ins, Laugavegi 59,101 Reykjavík, fyrir 1. mars 1996.
Nánari upplýsingar um styrkveitingar og starfsemi
sjóðsins veitir Árni Árnason verkfræðingur. Upplýsingar
um yfirmannanámskeiðin veitir Guðmundur Haraldsson
skólastjóri.
Sími Brunamálastofnunar er 552-5350. Grænt númer
800-6350.
Reykjavík, 11. janúar 1996.
Brunamálastofnun ríkisins.
Verkamannafélagið Dagsbrún
Stjórnarkjör
Kosningar til stjórnar og annarra trúnaðarstarfa í félag-
inu verða haldnar föstudaginn 19. janúar og laugardag-
inn 20. janúar 1996.
Kosið verður frá kl. 9 til 21 báða dagana.
Kjörstaður er að Lindargötu 9, 1. hæð.
í framboði er A listi stjórnar og trúnaðarráðs Dagsbrúnar
og
B listi borinn fram af Kristjáni Árnasyni, Friðriki Ragnars-
syni og fl.
Kjörstjórn ertil húsa að Lindargötu 9, 2. hæð.
Kjörstjórn Dagsbrúnar
Menningarsjóður
Umsóknir um styrki
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Menn-
ingarsjóði skv. 1.gr. reglugerðar um sjóðinn nr.
707/1994.
Hlutverk Menningarsjóðs er að veita útgefendum
og/eða höfundum fjárhagslegan stuðning til útgáfu
þeirra bóka á íslenskri tungu, sem verða mega til efling-
ar íslenskri menningu. Sérstök áhersla skal lögð á að
efla útgáfu fræðirita, handbóka, orðabóka og menning-
arsögulegra rita. Jafnframt getur sjóðurinn veitt fjár-
hagslegan stuðning annarri skyldri starfsemi, s.s. vegna
hljóðbókagerðar.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðublöðum til
stjórnar Menningarsjóðs, menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 26. febrúar 1996.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu menntamálaráðu-
neytisins.
Stjórn Menningarsjóðs
■ John Wayne segist ekki treysta neinum sem
drekkur ekki. John Cleese segir að sér hafi
leiðst mestallt lífið. Sjötugur segir John
Gielgud að hann sé loks farinn að öðlast
sjálfstraust. Orson Welles segir að það sé
gott að búa í Kaliforníu, ef maður er appelsína.
Og Francis Coppola segir:
„Ég er líklega
snillingur.
En ég hef enga
hæfileika."
Eini munurinn á mér og
öörum leikurum er að ég hef eytt
meiri tíma í fangelsi.
Robert Mitchum, 1990.
Ég treysti aldrei manni
sem drekkur ekki.
John Wayne, 1974.
Móöir mín var á móti því
að ég yröi leikkona - þangað til ég
kynnti hana fyrir Frank Sinatra.
Angie Dickinson, 1986.
Ef maöur er giftur Marilyn Monroe,
þá finnur maður sér Ijóta stelpu til
að halda framhjá með.
George Burns, 1978.
Lionel Barrymore lék fyrst afa
minn, svo pabba minn og loks lék
hann manninn minn. Ef hann hefði
lifað er ég viss um að ég hefði leikið
mömmu hans. Svona er þetta
í Flollywood. Karlmennirnir
yngjast en konurnar eldast.
Lillian Gish, 1984.
Kalifornía er frábær staður - ef það
vill svo til að þú ert appelsína.
Orson Welles, 1973.
Það er enginn vafi að persónan sem
Woody Allen leikur á hvíta tjaldinu
er goðsöguleg útgáfa af því sem
hann er í einkalífinu. Ég hitti hann
einu sinni og hann reyndi að fela sig
bakvið Miu Farrow.
John Cleese, 1986.
Mættu á réttum tíma í
vinnuna, lærðu textann og ekki
rekast á hina leikarana.
Spencer Tracy, 1958.
Skímarnafn Duke (John Wayne)
var Marion Morrison. Flann var við
tökur á myndinni The Alamo í
Texas. Laurence Flarvey þurfti að
ganga upp á mjóum vegg og Duke
hrópaði til hans: „Hvað er þetta,
geturðu ekki einu sinni gengið eins
og maður?" Larry leit við og sagði:
„Ertu að tala við mig, Marion?"
Robert Mitchum, 1989.
Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
INIæturvaktir
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa nú þegar á heilsu-
gæslu vistheimilis Hrafnistu. Tveir hjúkrunarfræðing-
ar verða á næturvakt í einu, annar á hjúkrunardeild-
um, en hinn á vistheimilinu.
Hjúkrunarfræðinga vantar einnig í 100% stöðu á heilsu-
gæslu og hlutastarf á kvöld- og helgarvaktir á hjúkrunar-
deild.
Höfum leikskólapláss. Upplýsingar veita ída Atladóttir
hjúkrunarforstjóri og Þórunn A. Sveinbjarnar hjúkrunar-
framkvæmdastjóri í síma 5535262 og 5689500.
Leiklistin hefur aldrei gert neittfyrir
mig nema að ýta undir hégóma-
girndina og magna upp hrokann.
Candice Bergen, 1967.
Henri-Georges Clouzot:
„Finnst þér ekki að kvikmyndir eigi
að hafa upphaf, miðju og endi?"
Jean-Luc Godard: „Vissulega, en
ekki endilega í þessari röð."
Samtal í Cannes, 1965.
Ég trúi ekki á neins konar verðlaun.
Ég trúi ekki á friðarverðlaup Nóbels.
Marlon Brando, 1979.
Ég hef aldrei lagt lag mitt
við giftar konur. Ég virði
annarra manna eignir.
Michael Caine, 1967.
Ég gat ekki afborið það þegar
maðurinn minn hélt framhjá mér.
Ég er nefnilega Raquel Welch.
Raquel Welch, 1973.
Ég safna öllum
dómunum um myndirnar
sem ég vildi ekki leika i. Og ef
þær eru lélegar - þá brosi ég.
Simone Signoret, 1977.
Faðir minn áleit að þeir
sem færu í kirkju og brögðuðu
ekki áfengi væru óþolandi.
Ég ólst upp í þeirri trú.
Richard Burton, 1963.
Ég á auðvelt með að láta
mér leiðast. Mér hefur leiðst
mestallt lífið.
John Cleese, 1988.
Bond er alls ekki mín manngerð.
Ég vil kyrrláta, greinda og
viðkvæma menn.
Bondstúlkan Barbara Bach
(eiginkona Ringo Starr), 1976.
Ég var Marlon Brando
minnar kynslóðar.
Bette Davis, 1982.
Ég spurði Dylan Thomas
hvers vegna hann hefði komið til
Hollywood. Hann svaraði hátíðlega:
„Til að koma við brjóstin á kvik-
myndastjörnu." „Allt í lagi," sagði
ég, „en bara með einum fingri."
Shelley Winters, 1971.
Hugmynd mín um helvíti.
Maður sér allt fólkið sem maöur
hélt að væri dautt og fólkið sem á
skilið að vera dautt. Eftir smástund
fer maður að halda að maður
sé dauður sjálfur.
Dirk Bogarde (um kvikmyndahátíðina
í Cannes), 1975.