Alþýðublaðið - 19.01.1996, Page 8

Alþýðublaðið - 19.01.1996, Page 8
* * 'mzvnu/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar 5 88 55 22 Föstudagur 19. janúar 1996 MWBLMHD 11. tölublað - 77. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk ■ Linda Vilhjálmsdóttir gekk í leiksmiðju og nýtt verk er að fæðast Nútímafólk og dauðinn Höfiindasmiðja Leikfélags Reykja- víkur verður opnuð í Borgarleikhús- inu, laugardaginn 20. janúar næstkom- andi, en næstu mánuði mun leikhúsið standa fyrir kynningu á verkum ungra höfunda. Höfundamir hafa um nokk- urt skeið haft aðstöðu í Borgarleikhús- inu til að gera tilraunir með verk sín ásamt leikurum LR. Einn þeirra er Linda Vilhjálmsdóttir skáld, en brot úr leikriti sem hún vinnur nú að verður á meðal þeirra verka sem áhorfendur fá að berja augum á laugardagssýningun- um. „Ég hef ekki komið nálægt leikrita- gerð fyrr en nú,“ segir Linda. „I mörg ár gekk ég með hugmynd um bama- leikrit. Það sem háði mér var að ég gat ekki sest niður og skrifað það leikrit vegna þess að ég þekkti ekki miðilinn og var því sífellt að reka mig á vegg. Ég fór á námskeiðið til að geta unnið úr hugmynd minni. Sú hugmynd komst þó aldrei í gagnið því ég fékk aðra hugmynd sem ég hef verið að vinna. Ég er nú með grind að leikriti, sem ég ætla að taka mér góðan tíma til að vinna úr. Mér hefur fundist ís- lenska aðferðin við að skapa skáld- verk byggjast of oft á því að skrifa verk í einum rembingi og slengja því síðan á framfæri. Bunkarnir sem manni er sagt að séu til af leikritum á lager em víst á við smjörfjall." Hvernig finnst þér leikritaformið henta þér? „Mér finnst það henta mér vel. Ég var búin að hamast í skáldsögum og smásögum í nokkum tíma og það kom ekkert út úr því nema rembingur. Mér Linda Vilhjálmsdóttir: Vestrænt þjóðfélag lítur á dauðann sem ta- bú. hentaði illa að skrifa umhverfislýsing- ar, lýsingar á veðurfari og annað það sem er nauðsynlegt til að skapa teng- ingu í sögu. Það fór í taugamar á mér að semja slíkt og mér virtist það til- gangslaust. Þessum hlutum þarf ég ekki að sinna í leikritagerð og aðferðin hentar mér því vel.“ Um hvað er leikritið sem þú vinnur að? „Það er um dauðann." Dauðann <núttmanum? „Það er einmitt um dauðann í nú- tímanum. Ég held að hann sé frá- bmgðinn því sem hann var. Ég finnst nútímafólk eiga mjög erfitt að sætta sig við dauðann. Vestrænt þjóðfélag lítur á dauðann sem tabú.“ Við viljum kannski öll vera ódauð- leg. „Við viljum allavega ekki hafa dauðann fyrir augunum. Ég er að velta fyrir mér ástæðunni.“ ■ Forsetaframbjóð- endur þurfa að fá meðmæli 1500 kjós- enda úr öllum lands- fjórðungum Ekki þarf nema 85 meðmæl- endurá Austurlandi Þeir sem hyggja á forsetaframboð þurfa bráðlega að fara að huga að því að safna á lista nöfnum fólks sem gefur frambjóðendum meðmæli sín. Lög kveða á um að þurfi uppá- skrift minnst 1500 kosningabærra manna. Þeir eiga að koma úr öllum landsfjórðungum og dreifast hlut- fallslega milli íjórðunga eftir fjölda kjósenda. Samkvæmt lögum birtir forsætis- ráðuneytið auglýsingu um lág- marks- og hámarks meðmælenda- fjölda í hverjum landsfjórðungi þremur mánuðum fyrir kjördag sem er 29. júní. Þótt ekki kæmi til kosn- inga var slík auglýsing birt vorið 1992 og má gera ráð fyrir að hlut- föllin hafi ekki breyst að marki síð- anjrá. I Sunnlendingafjórðungi, sem nær frá og með Vestur- Skaftafellssýslu og í Borgarfjarðarsýslu, þurfli að minnsta kosti 1120 meðmælendur. í Vestlendingafjórðungi, sem nær frá Mýrasýslu norður í Strandasýslu þurfti að lágmarki 95 meðmælend- ur. I Norðlendingafjórðungi, frá Húnavatnssýslu og austur í Suður- Þingeyjasýslu, þurfti 200 meðmæl- endur, en í Austlendingafjórðungi, frá Norður-Þingeyjasýslu og suður í Austur-Skaftafellssýslu þufti 85 meðmælendur. Framboðsfrestur rennur út fimm vikum fyrir kosningar og þurfa frambjóðendur þá að geta lagt fram listann með meðmælendum sínum. Önnur skilyrði sem þeir þurfa að uppfylla er að hafa náð 35 ára aldri og hafa óflekkað mannorð. Grunnskólastig: ígildi 9., 9. og 10. bekkjar. Upprifjun og undirbúningur fyrir framhaldsskóla. Framhaldsskólastig: Sjúkraliða- og viðskiptabraut. Fjölbreytt tungumálanám M.a. íslenska fyrir útlendinga, Norðurlandamál, enska, franska, þýska, hollenska, spænska, ítalska, arabíska, japanska, rússneska, gríska og portúgalska. Verklegar greinar og myndlistarnámskeið Teikning, vatnslita- og olíumálning, módelteikning, bókband, fatasaumur, skrautskrift, rósamálning, öskjugerð, postulínsmálun, glerskurður og fleira. Starfsnám fyrir ófaglært fólk í atvinnulífinu (umönnunarstörf) Námskeið fyrir atvinnulausa. Kennsla fyrir börn í norsku, dönsku, sænsku, þýsku og spænsku. Sérkennsla í lestri og skrift. Hópur fólks sem æskja fræðslu um tiltekið efni sem ekki er á námsskrá geta snúið sér til okkar og við reynum að koma til móts við óskir þess.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.