Alþýðublaðið - 13.02.1996, Blaðsíða 8
•1
MUNDU BARA AÐ:
MDMA er byggingalega og verkunarlega skylt amfetamíni
MDMA veldur ofskynjunum á sama hátt og LSD
Þegar þú kaupir E-töflu, færöu bara Eitthvað
MDMA hefur valdiö dauöa eftir töku einnar töflu.
Taktu upplýsta ákvöröunl
Hvaö er MDMA?
MDMA(3,4-metylendíoxý-N-
metyl-amfetamín) er amfetamín-
afleiða sem upphaflega var
framleidd sem geðlyf. Það var sett
á bannlista árið 1977 í Bretlandi
og 1985 í Bandaríkjunum í sama
flokki og heróín og LSD. Verkun
efnisins byggist á losun boðefna í
heila, aðallega dópamíns og
serótóníns. Dópamín veldur örvun
og er sama boðefni og amfetamín
losar, en serótónín veldur m.a.
ofskynjunum og svefntruflunum.
LSD og meskalín (t.d. úr sveppum)
losa einnig serótónín.
Hvaö gerist þegar ég
droppa „E“?
Þú tekur töfluna. Hún leysist
upp í maganum á þér. Hún fer um
blóðrásina upp í heila. Hún losar
og eykur virkni boðefna í heila
óeðlilega mikið. Við það verður
mikil örvun á allri líkamsstarfsemi
og brenglun á skynjun. Þú ferð að
hamast. Svo getur farið að líkaminn
ráði ekki við svo mikla óeðlilega
örvun.
Hvernig deyr fólk á
MDMA?
Ofhitnun vegna truflunar á hita-
stjórnun er ein algengasta orsök
dauðsfalla. Líkamshiti neytanda
hefur mælst allt að 43,3°C við komu
á bráðamóttöku. Hiti yfir 41 °C er
lífshættulegur og yfir 42°C illviö-
ráðanlegur. Við slíka ofhitnun falla
storkuprótín blóðsins út (DIC) og
innvortis blæðingar valda dauða.
Einnig geta vöðvar leyst upp
(rhabdomyolysis) og álagið á
nýrun við það valdið nýrnabilun.
Örvun MDMA og hamagangurinn
sem henni fylgir eykur geysilega
álagið á hjartað. Auk þess veldur
hitinn oft ofþornun. Saman getur
þetta valdið hjartsláttartruflunum,
sem verða mörgum að bana.
Aörar aukaverkanir
Ýmsar aðrar aukaverkanir eru
þekktar. Þeirra á meðal eru svitaköst,
skjálfti, svefntruflanir og svefnleysi.
Þunglyndi fylgir MDMA, því eftir
að boðefnahirslur í heilanum hafa
verið tæmdar, tekur langan tíma
að fylla þær á ný. Einnig eru þekktar
ýmsar langtímaverkanir, s.s.
lifrarskemmdir og heilablæðingar.
Sýnt hefur verið fram á óafturkræfar
heilaskemmdir í rottutilraunum.
E fyrir eitthvaö
MDMA er framleitt í neðanjarðar-
rannsóknastofum, oft af meira
kaþpi en kunnáttu. Oft er skyldum
amfetamínafleiðum eins og MDEA
og MDA blandað í töflurnar.
Auðvitað er ekkert eftirlit með
framleiðslunni, svo hver framleið-
andi getur bætt því í sem hann vill.
Auk þess er hreinlæti oft
ábótavant. Þegar þú kaupir E-töflu
færðu því bara eitthvað.
Þetta er það helsta sem vitað er
um MDMA í dag, en efnið er tiltölu-
lega lítið rannsakað og því gætu
fleiri verkanir og aukaverkanir komið í
Ijós síðar.
FÉLAG LÆKNANEMA
flT
III i
Félagsstofnun stúdenta
Viö þökkum eftirtöldum stuðninginn:
QLAN