Alþýðublaðið - 13.02.1996, Blaðsíða 7
7
ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Karlar eiga að stjóma og konur að
vera undirgefnar. Þeir eru A en þær B.
Karl Barth, svissneskur guöfræöingur
(1886-1968).
Það er köllun kvenna og lífsfylling
að vera elskendur karla, félagar
þeirra og mæður. Þetta er kjami sjálfs-
myndar þeirra, hvort sem þær em
giftar eða ógiftar.
Paul Tillich, þýskur guðfræðingur (1886-1965).
Konur hafa sinn vígvöll.
Með hveiju bami sem þær ala þjóð-
inni heyja þær sitt stríð fyrir hana.
Adolf Hitler, þýskur stjórnmálamaður
(1889-1945).
Svona norpuðum við um aldir, konur
á íslandi, eigandi varla nokkra bók,
stundum ólæsar og dóu allar úr leið-
indum sem hneigðar vom til lesturs,
en hinar tórðu og fylla nú landið.
Málfríður Einarsdóttir rithöfundur
(1899-1983), Samastaður í tilverunni.
Kona sem geingur til manns á
næturþeli á ekki nema eitt erindi.
Halldór Laxness, íslandsklukkan, 14. kafli.
Sigurður dómkirkjuprestur.
Þrá er sauðkindin en hvað er það á
móts við kvenkindina.
Halldór Laxness, Sjálfstætt fólk, 14. kafli.
Bjartur í Sumarhúsum.
Kvenmenn em mitt drep,
sagði maðurinn og þurkaði framanúr
sér með erminni. Þessir drekar hafa
mig að leiksopp og pynta mig. Ég
reyni að svíkja þær, en þær elta mig
uppi og segjast elska mig. Hefði ég
ekki brennivín að forða rhér útí,
værí ég dauður.
Halldór Laxness, Paradísarheimt, 21. kafli.
Lúterstrúarmaður.
Mesta vandamálið við konur
er að láta líta út eins og þær séu
jafningjar okkar.
Cyril Conolly, breskur rithöfundur (1903-1975).
Það er ekkert eins og góður skammtur
af annarri konu til að fá karlmann til
að meta konuna sína.
Clare Booth Luce, bandarískur rithöfundur
(1903-1987).
Borðaðu aldrei á stað sem heitir
Mom’s. Spilaðu aldrei á spil við mann
sem heitir Doc. Og sofðu aldrei hjá
konu sem hefur meiri vandamál en þú.
Nelson Algren, bandarískur rithöfundur
(1909-1981).
Að baki hvers karlmanns sem
hefur komist áfram í lífinu finnurðu
konu - sem er alveg kviknakin.
James Stewart, bandarískur kvikmyndaleikari.
Hjónabandið hefur íjögur stig. Fyrst er
ástarsambandið, svo kemur hjóna-
bandið, þá bömin og loks fjórða stig-
ið, en án þess þekkir maður konuna
ekki neitt - skilnaðurinn.
Norman Mailer, bandarískur rithöfundur.
Komdu fram við hveija drottningu
eins og hún sé hóra og hveija hóru
eins og hún sé drottning.
Anthony Quinn, bandarískur kvikmyndaleikari.
Ég vil helst félagsskap kvenna. Þær
era ráðgáta sem ég átta mig aldrei á.
Ég segi yngri mönnum að það séu
þijár reglur: Þær hata okkur, við höt-
um þær; þær eru sterkari, þær eru klár-
ari; og það sem skiptir mestu máli -
þær hafa rangt við.
Jack Nicholson, bandarískur kvikmyndaleikari.
Að hveiju ég leita í konu?
Hreinum nærbuxum.
James Caan, bandarískur kvikmyndaleikari.
Veðrið minnir á fallega konu en kalda.
Hægt að dást að henni en óðar og
nálgast snýr hún kuldahliðinni að þér.
Pétur Gunnarsson rithöfundur, Vasabók.
Stelpur sem leyfa það eru lauslátar.
Stelpur sem leyfa það ekki em dömur.
En líklega er frekar úrelt að tala
svona. Ef einhver af ykkur strákunum
hittir stelpu sem leyfir það ekki,
verið þá ekki allt of fljótir að halda að
hún sé dama. Þið hafið líklega
lent á lesbíu.
Fran Lebowitz, bandarísk blaðakona.
Borgarholtsskóli og þar
með talin Fræðslumiðstöð
bílgreina (FMB) auglýsir
eftir kennurum til starfa
haustið 1996
Borgarholtsskóli er framhaldsskóli við Mosaveg í Grafar-
vogi og er byggður af ríki, Reykjavíkurborg og Mosfells-
bæ. Hann tekur til starfa haustið 1996 og mun á fyrsta
ári geta hýst 250-300 nemendur.
Borgarholtsskóla er ætlað stórt hlutverk sem starfs-
námsskóla og mun leggja áherslu á nýbreytni í starfs-
menntun á framhaldsskólastigi. Þar verður boðið upp á
nám í bíl- og málmiðnagreinum og nám og starfsþjálfun
á ýmsum starfstengdum brautum auk bóknáms til stúd-
entsprófs. í FMB fer auk þess fram eftirmenntun og önn-
urfræðsla í bílgreinum.
Framundan er skapandi þróunarstarf og sækist skólinn
eftir starfskröftum þeirra sem hafa áhuga á að vinna af
heilum hug að eflingu bók-, hand- og siðmenntar ís-
lenskra ungmenna. Leiðarljós starfsmanna í samskipt-
um við nemendur er agi, virðing, væntingar.
Kennslugreinar og kennslusvið eru:
Bíliðngreinar*, danska, enska, félagsgreinar, fornám,
kennsla þroskaheftra/fjölfatlaðra, handíðir, íslenska, list-
greinar, líffræði, líkamsrækt, málmiðnagreinar, saga,
stærðfræði, tölvufræði og verslunargreinar.
Kennarar verða ráðnir frá 1. ágúst. Úr þeirra hópi verða
verkefnaráðnir fjórir kennslustjórar frá 15. mars (málm-
iðnum, á almennri braut, stuttum starfsnámsbrautum
og í fornámi/námi f. fatlaða), áfangastjóri og deildarstjóri
frá 1. maí. Æskilegt er að kennarar geti kennt fleiri en
eina kennslugrein á fyrsta ári skólans.
Umsóknir skal senda skólameistara, Eygló Eyjólfsdóttur,
í menntamálaráðuneytinu Sölvhólsgötu 4, 150 Reykja-
vík, fyrir 10. mars. Upplýsingar um störf í FMB gefur Jón
Garðar í síma 581- 3011 (eftir 14. febr.). í umsókn skal
koma fram menntun kennara og störf svo og umsagnir
fyrri vinnuveitenda. Þeir sem sækja um störf í FMB gefi
einnig upplýsingar um eftirmenntun og sérfræðikunn-
áttu innan bílgreina.
*Ath. Kennsla í bíliðngreinum er tilraunverkefni mennta-
málaráðuneytisins, bílgreinasambandsins og Bíliðnafé-
lagins
Menntamálaráðuneytið, 9. febr. 1996.
e
Landsvirkjun
Útboð
Kvíslveita 5. áfangi
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í gerð 5.
áfanga Kvíslaveitu í samræmi við útboðsgögn KVÍ-50.
Verkið felur í sér að veita upptakakvíslum Þjóðsár aust-
an Hofsjökuls í núverandi Kvíslaveitu með því að byggja
stíflur í Þjórsá og Austurkvísl, grafa skurð, byggja botn-
rás í stíflu með öllum tilheyrandi búnaði, leggja veg og
byggja brú. Helstu magntölur eru áætlaðar.
Fyllingar í stíflur: 325.000 rúmmetrar
Steypa í botnrás: 2.000 rúmmetrar
Gröftur: 750.000 rúmmetrar
Verktaki skal Ijúka verkinu eigi síðar en 1. desember
1997.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með miðviku-
deginum 14. febrúar 1996 gegn óafturkræfu gjaldi að
upphæð kr. 10.000,- m/vsk. fyrir hvert eintak. Tilboðum
skal skila á sama stað fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 26.
mars 1996.
Tilboðin verða opnuð í stjórnstöð Landsvirkjunar að Bú-
staðavegi 7, Reykjavík sama dag, 26. mars 1996, kl.
14.00. Fulltrúum bjóðenda er heimilt að vera viðstaddir
opnunina.
1 Útboð
F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað
eftir tilboðum í efni og vinnu við parketlögn í ýmsum
fasteignum Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn verða seld á kr. I.OOO,- á skrifstofu vorri.
Opnun tilboð: Þriðjudaginn 27. febr. nk. kl. 11.00.
F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað
eftir tilboðum í endurmálun á fasteignum Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000,- á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: Fimmtudaginn 22. febr. nk. kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík
Sími 552 58 00 Bréfsími 562 26 16
Ungir jafnaðarmenn
Opinn fundur á efri hæð Sólon íslandus,
miðvikudagskvöldið 14. febrúar kl. 20:30.
Verkalýðshreyfingin
- Fílabeinsturn eða virk
fjöldahreyfing???
Framsögumenn:
Halldór Björnsson formaður Dagsbrúnar.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson Dr.Phil.
Erskipulag verkalýðshreyfingarinnar úrelt og úr
sér gengið?
Hafa forystumenn tengsl við hinn almenna félags-
mann?
Höfum við efni á verkalýðshreyfingu?
Er gagnrýni atvinnrekenda réttmæt eða ómakleg?
Spennandi umræður, allir velkomnir.
Málstofa FUJR um Verkalýðsmál.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur verður haldinn
þriðjudaginn 13. febrúar klukkan 20.30
á Kornhlöðuloftinu.
A dagskrá er stjórnarkosning
og venjuleg aðalfundarstörf.
Listi uppstillingarnefndar til stjórnar liggur
frammi á skrifstofu Alþýðuflokksins, Hverfis-
götu 8-10, viku fyrir aðalfund.
Stjórnin.