Alþýðublaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐK)
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996
■ Eva Braun var ekki konan í lífi Adolfs Hitlers einsog margir
halda. Flest bendirtil að eina konan sem kaldlyndi austurríkis-
maðurinn elskaði hafi verið Geli Raubal, ung og lífsglöð ná-
frænka hans. Hún framdi sjálfsmorð árið 1931 eftir storma-
samt ástarsamband við nasistaforingjann
17. september 1931 urðu tveir íbúar í einu fínasta hverfi
Munchen vitni að því að ung stúlka með ljóst, liðað hár kom
út í glugga á glæsilegu einbýlishúsi og kallaði örvæntingar-
full: „Þú ætlar þá ekki að leyfa mér að fara til Vínar?“ Svart-
klæddur maður, sem var að stíga upp í bifreið, hrópaði á
móti: „Nei!“ Morguninn eftir fannst unga stúlkan skotin til
bana í herbergi sínu. ítarleg rannsókn leiddi til þeirrar niður-
stöðu að hún hefði framið sjálfsmorð. Unga stúlkan hét Geli
Raubal; maðurinn sem neitaði henni um að fara til Vínar-
borgar var móðurbróðir hennar - Adolf Hitler. Hún var lið-
lega tvítug og hafði verið ástkona nasistaforingjans í tvö ár.
Albert Speer, einn sakbominga við
réttarhöldin í Niirnberg, sagði að ef
Adolf Hitler hefði átt einhvem per-
sónulegan vin um ævina, þá væri hann
sá maður. Speer var ólíkur þeim
ómenntuðu ribböldum sem Hitler rað-
aði í kringum sig: fágaður menntamað-
ur og hæfileikaríkur arkitekt. Enginn
hefur skrifað af jafnmiklu innsæi um
persónuleika Hitlers, og því er ekki
ástæða til að véfengja Albert Speer
þegar hann segir að Hitler haft aldrei
orðið fyrir jafnmiklu reiðarslagi og
þegar Geli Raubal yfirgaf þennan
heim. Speer sagði að næstmesta áfallið
í lífi Hitlers hefði verið þegar Rudolf
Hess, staðgengill hans, flaug vitfirrtur
til Englands árið 1941 í því skyni að
semja frið.
Dagana eftir að Geli Raubal dó
þurftu félagar Adolfs Hitlers að vaka
yfir honum til að koma í veg fyrir að
hann fremdi sjálfsmorð, slík var ör-
væntingin. Ef þeir hefðu soíhað á verð-
inum hefði saga heimsins orðið önnur.
Kvenhylli Hitlers
Ekki alls fyrir löngu voru dregin
fram í dagsljósið ástarbréf sem þýskar
konur sendu Adolf Hitler. Bréfin vöktu
aðhlátur margra, sem áttu erfitt með að
ímynda sér að pasturslitli austurríski
liðþjálfinn hefði verið mikið kvenna-
gull. Eigi að síður var staðreyndin sú,
að eftir að Hitler braust til valda gerðist
hann plássfrekur í draumum þýskra
kvenna.
Það hljómar eflaust einsog mótsögn
en Hitler var með latari mönnum. Hann
undi sér best í djúpum hægindastól,
með fjölmenna hirð ritara, samheija og
félaga í kringum sig. Þeir sem skipuðu
hirð Hitlers minntust með hrolli ótelj-
andi kvölda sem aldrei virtust ætla að
taka enda: þá sat hann og talaði enda-
laust um líf sitt og drauma. Þegar vel lá
á honum rifjaði hann jaíhvel upp æsku-
ár sín, og lét að því liggja að hann hefði
ævinlega notið hylli kvenna, þótt gengi
heimsins hefði verið fallvalt að öðru
leyti.
Nánir samstarfsmenn Hitlers hafa oft
sagt frá því, að honum virðist hafa liðið
best í félagsskap kvenna. Síðustu mán-
uði ævi sinnar, meðan herir banda-
manna moluðu niður Þriðja ríkið, leit-
aði Hitler helst til einkaritara sinna en
sniðgekk jafnvel gamalreyndustu og
traustustu samhetja, og virti herforingja
sína tæpast viðlits. Þegar Rauði herinn
var við borgarmörk Berlínar gat Hitler
enn fundið athvarf í fiásögnum af hinu
liðna. Örsjaldan minntist hann á Geli
Raubal, sem þá hafði legið í gröfinni í
14 ár, og aldrei án þess að vikna.
Fortíðin afmáð
Adolf Hitler átti hálfsystur sem hét
Angela Raubal, en önnur systkini hans
lifðu ekki bemskuár. Hitler var hreint
ekki stoltur af uppruna sínum og gerði
sitt ítrasta til að menn væru ekki að
hnýsast í fjölskyldumál hans. Eftir að
hann náði völdum í Þýskalandi lét hann
á kerfisbundinn hátt eyðileggja gögn
sem vörpuðu ljósi á fortíð hans. Hitler
OEUTSQltVHD S
Æjw ílí’viK 'v - * • MHff:. _;' Wm
:
Wjw *é EWMKm, W&KHt
j .f * V'*
4 ! Jt I l'- i ; r ■ i
Nasistar í Niirnberg árið 1927. Um þetta leyti benti fátt til þess að ribbaidalýður nasista myndi ná völdum í
Þýskalandi. Á myndinni má sjá, frá vinstri, Heinrich Himmler, Rudolf Hess, Gregor Strasser, Hitler og Pfeffer von
Salomon.
Geli Raubal: Systurdóttir Adolfs Hitlers var eina kon
sem hann elskaði. Þegar hún framdi sjálfsmorð ári
1931, eftir rifrildi við Hitler, þurftu samherjar hans <
vaka yfir honum svo hann færi ekki sömu leið.
lét jaíhvel elta uppi og myrða gamla fé-
laga frá auðnuleysisámnum í Vínar-
borg, þegar hann bjó á ömurlegum
gistiheimilum og dró fram lífið með
því að mála póstkort og auglýsinga-
skilti.
Þegar Hitler hafði tryggt sér völd í
Nasistaflokknum þýska á þriðja ára-
tugnum, sem framan af var hjákátlegur
smáflokkur og ólíklegur til stórræða,
vann hann markvisst að því að byggja
upp ftnynd sína sem varðmaður þýskr-
ar arfleifðar og sóma. Hann var vita-
skuld einn snjallasti áróðursmaður allra
tftna, og enginn þýskur stjómmálamað-
ur komst með tæmar þar sem hann
hafði hælana. Þó vom það ekki nema
sumpart eigin hæfileikar sem um srðir
fleyttu gamla skiltamálaranum í þýsku
kanslarahöllina; rás atburða á þriðja og
fjórða áratugnum var honum hagstæð
um flest. Gríðarleg beiskja kraumaði í
Þýskalandi eftir ósigurinn í fyrra stríði,
1914-18, og hina auðmýkjandi friðar-
samninga sem meðal annars fólu í sér
að Þjóðverjar þurftu að greiða himnin-
háar stríðsskaðabætur. Óðaverðbólga
Weimar-lýðveldisins og gífurlegt at-
vinnuleysi vom vatn á myllu Hitlers,
og þegar verðbólgan var tekin að
hjaðna og atvinnuleysið að minnka
kom heimskreppan einsog happdrættis-
vinningur. Hann var sérffæðingur að
nýta sér óánægjuna, og þegar hann
hafði hrært saman við hana dularfullum
kenningum um yfirburði aríska kyn-
stofnsins var komin blanda sem rann
ljúflega ofan í stóran hluta Þjóðveija.
Áform um hjónaband
Árið 1928 leigði Hitler glæsilega
villu í Munchen og fékk Angelu hálf-
systur sína, sem þá var orðin ekkja, til
að annast húshaldið. Með Angelu
komu dætur hennar tvær, Geli og Fri-
edl. Geli stóð á tvítugu og bjó yfir
geislandi þokka. Ekki leið á löngu áðtir
en Hitler var orðinn yfir sig ástfanginn
af hinni ungu frænku sinni. Sjálfur var
hann tuttugu ámm eldri, og enn vom
fimm ár þangað tO hann næði völdum í
Þýskalandi.
Hitler var heillaður af Geli og tók
hana með sér hvert sem hann fór, á
fundi og ráðstefnúr, á leiksýningar og á
kaffihúsin í Munchen.
Ekki leið á löngu uns allt logaði í
slúðursögum um flokksleiðtogann og
ungu ffænkuna hans. Forystusveit nas-
ista var hreint ekki skipuð siðavöndum
nákvæmnismönnum, en þar kom að
ýmsir formfastir - eða öfundsjúkir -
flokksforkólfar hvöttu Hitler til að
hætta að sjást svo mikið opinberlega
með Geli, eða kvænast henni ella. Hitl-
er brást ókvæða við slíku tali. Þrátt fyr-
ir það telur William Shirer, einn helstur
sérfræðingur í sögu nasista, að Hitler
hafi haft áform um að giftast ffænku
sinni og segist hafa heimildir um slíkt
frá mönnum sem nákomnir vom Hitler
um þetta leyti. Shirer segir engum vafa
undirorpið að Hitler hafi verið ástfang-
inn upp fyrir haus, en er ekki eins viss
um tilfinningar Geli í hans garð. Hún
hafi verið upp með sér að njóta þvílíkr-
ar athygli manns sem orðinn var frægur
og á hraðri leið til valda, en óvíst að
hún hafi endurgoldið ást hans.
Sjálfspíningarhvöt
harðstjórans
Hafi Geli Raubal einhvemtíma elsk-
að Adolf Hitler er ljóst að sú ást kuln-
aði um síðir. Ekki er vitað með vissu
hvað olli djúpstæðri togstreitu sem upp
Hitler um borð í flugvél á kosningaferðalai
ástarsambandi við frænku sína.