Alþýðublaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 8
\WRE Vffll/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar 5 60 55 221 Miðvikudagur 14. febrúar 1996 25. tölublað - 77. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk ■ Ingibjörg Pálmadóttir kúvendir í afstöðu sinni til Fæðingarheimilis Reykjavíkur. Á síðasta kjörtímabili flutti hún barátturæður á þingi um framtíð heimilisins, en nú bendir allttil að það verði ekki opnað aftur vegna fjárskorts. Kolbrún Bergþórsdóttir kynnti sér málið og las gamlar þingræður Ingibjargar Baráttumálið sem fæddist og dó Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þingmaður Þjóð- vaka: Sérkennilegt að Ingibjörg skuli ekki gera neitt. Ráðherrar Framsóknar hafðir í skítverkunum. „Það er æði sérkennilegt að Ingi- björg Pálmadóttir skuli ekki taka á málefnum Fæðingarheimilisins þar sem það var hennar hjartans mál á síð- asta kjörtímabili,“ segir Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir þingmaður Þjóð- vaka og fulltrúi í heilbrigðisnefnd. Ásta Ragnheiður átelur framgöngu Ingibjargar Pálmadóttur heilbrigðis- ráðherra í málefnum Fæðingarheimilis Reykjavíkur. Sorgarsaga Ingibjargar stjórnarandstöðuþingmanns Ekki verður sagt að Ásta Ragnheið- ur taki sterkt til orða þegar hún segir að málefni Fæðingarheimilisins hafi verið Ingibjörgu hjartans mál. Ræður Ingibjargar Pálmadóttur stjómarand- stöðuþingmanns báru vott um ríka um- hyggju hennar fyrir framtíð heimilis- ins, eins og þessi þriggja ára gamla ræða er til marks um: „Hvemig getur það gerst í borg sem á trúlega heimsmet í vannýttu hús- næði, þar á meðal fæðingarheimili sem ekki er nýtt, að ekki sé pláss fyrir fæð- andi konur? Hvemig getur það gerst að sami maður sem státar sig af húsnæði á borð við ráðhúsið, tækniundir á borð við Perluna í Öskjuhlíðinni, sá sami maður, hæstvirtur forsætisráðherra, sem byggir þessar tvær glæsibygging- ar geti sagt á hinu háa Alþingi að þeir sem gagnrýni aðgerðir í heilbrigðis- málum séu vinir eyðslunnar? Hvers konar verðmætamat er það að það skuli skorta pláss þegar mesta undur veraldar skeður að nýr borgari lítur dagsins ljós?“ Þama beindi Ingibjörg orðum til Davíðs Oddssonar í mars 1993 og áhyggjur hennar af málefnum Fæðing- arheimilis Reykjavíkur leyna sér ekki. Á síðasta kjörtímabili hélt Ingibjörg alls sex barátturæður þar sem hún beitti sér af hörku fyrir opnun Fæðing- arheimilisins. Á Alþingi í apríl 1992 þegar Ingibjörg vék tahnu að Fæðing- arheimilinu sagði hún: „Sú óvissa sem ríkir almennt víða í heilbrigðismálum er með þeim hætti að útilokað er að sætta sig við hana.“ Undir lok ársins er þingmaðurinn enn að lýsa yfir áhyggj- um sínum og nú er það „sorgarsaga" að búið sé að loka heimilinu og þing- maðurinn segir: „...ég fagna því að Kvennalistinn er með tillögur á borð- um þingmanna þar sem gert er ráð fyr- ir að endurreisa Fæðingarheimilið því sú krísa sem við búum við varðandi fæðingardeildina er óverjandi." Áhyggjur Ingibjargar heil- brígðisráðherra minnka Stjórnarandstöðuþingmaðurinn Ingibjörg varð heilbrigðisráðherrann Ingibjörg. Þann 10. nóvember 1995 beindi Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir til hennar fyrirspum um íramtíð Fæð- ingarheimilisins. Enn virtist eitthvað eima eftir af áhuga Ingibjargar á mál- efnum heimilisins, því hún gaf Ástu það svar að áætlað væri að mæðraeftir- lit kvennadeildar flytti á fyrstu hæð Fæðingarheimihsins og hluta annarrar hæðar. Með þessu, sagði Ingibjörg, væri húsnæði Fæðingarheimilis Ingibjörg Pálmadóttir: Var sem stjórnarandstöðuþingmaður helsti talsmaður opnunar Fæðingarheim- ilisins en hefur sem heilbrigðisráð- herra beitt niðurskurði svo ótæpi- lega að heimiiið verður nú vart tek- ið í notkun. Reykjavíkur fullnýtt í þjónustu verð- andi foreldra. Síðan sagði hún: ,Jafn- íramt þessari breytingu velta menn fyr- ir sér möguleika á því að skipta sæng- urkvennadeild kvennadeildarinnar annars vegar í létta deild fyrir konur sem hafa fætt eðhlega og þyngri deild sem sinnir konum sem hafa farið í keisaraskurð, ættu erfiða fæðingu að baki eða glímdu við læknisfræðileg vandamál." Ingibjörg var á þessum tíma, að eigin sögn, að kanna ýmsar leiðir til að tryggja áffamhaldandi rekstur Fæðing- Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir: Ingibjörg er í hlutverki heilbrigðis- ráðherra undir stjórn Sjálfstæðis- flokksins. Samstarfsflokkar Sjálf- stæðisflokksins hafa verið settir í skítverkin. Fyrst var það Alþýðu- flokkurinn og nú lendir Framsókn- arflokkurinn í nákvæmlega sömu stöðu. arheimilisins. Hún ræddi meðal annars um að flytja MFS einungu í Fæðingar- heimilið, en það er sérstök þjónusta við fæðandi konur sem byggist á því að ljósmóðir fylgist með fæðingu, kon- ur fæða í heimilislegu umhverfi, fara snemma heim og ljósmóðirin fylgist með þeim á sængurlegunni. „Það er sérkennilegt að Ingibjörg skuh ekkert ætla að láta verða af þeim áformum sem komu ífarn í máli henn- ar þegar hún svaraði fyrirspum minni,“ sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. „Annars held ég að hún sé í mjög erf- iðri stöðu. Hún er í hlutverki heilbrigð- isráðherra undir stjórn Sjálfstæðis- flokksins. Samstarfsflokkar Sjálfstæð- isflokksins hafa verið settir í skítverk- in. Fyrst var það Alþýðuflokkurinn og nú léndir Framsóknarflokkurinn í ná- kvæmlega sömu stöðu.“ Óvissa um framtíð Fæðingar- heimilisins Viljug eða óviljug hefúr Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra tekið þetta fynum baráttumál sitt af dagskrá. Stjómarandstöðuþingmaðurinn er orð- inn heilbrigðisráðherra og hefur í því embætti staðið fyrir gríðarlegum nið- urskurði í heilbrigðiskerfinu. Ein af- leiðing þess er að ekki virðist mögu- legt að opna Fæðingarheimih Reykja- víkur fyrir sængurkonum. Framtíð heimilisins er í algjörri óvissu. í DV síðastliðinn mánudag kom fram að ljósmæður hefðu lýst yfir áhuga sínum á að taka að sér rekstur heimilisins. Enn er þó allt á huldu í því sambandi og fátt virðist geta komið Fæðingarheimilinu til bjargar. Fyrir ekki alllöngu lýsti Ingibjörg Pálma- dóttir því yfir á Alþingi að orð skyldu standa. „Ef orð eiga að standa þá verða þau að standa. Ráðherra sem segir „orð skulu standa" getur vitanlega ekki sagt það varðandi eitt afmarkað málefni og álitið sem svo að orðin eigj ekld við önnur málefni,“ segir Ásta Ragnheiði ur. Þeir sem berjast fyrir opnun Fæð- ingarheimilisins eygja veika von í því að Ingibjörg taki sjálfa sig á orðinu, láti orð sín standa og beiti sér nú fyrir opnun heimilisins af þeim sama kraftí og hún gerði í starfi sínu sem stjómar- andstöðuþingmaður. ■ Sjúkraliðar harðorðir í garð stjórnvalda vegna niðurskurðar í heilbrigðismálum Yfirmönnum fjölgar einsog arfa á haug - á sama tíma og almennt starfsfólk þarf á áfallahjálp að halda vegna niðurskurð- ar, segja sjúkraliðar. Framkvæmdastjórn Sjúkraliðafé- lags íslands fjallaði nýverið um ákvarðanir ríkisstjómar og Alþingis um niðurskurð á íjárveitingum til heil- brigðisþjónustunnar. Framkvæmdastjórnin mótmælir harðlega margendurteknum niður- skurði á fjárveitingum til heilbrigðis- þjónustunnar, án þess að fyrir liggi mótuð heildarstefna stjómvalda varð- Gísli S. Einars- son með viðtalstíma Eins og áður hefur komið fram í Alþýðublaðinu munu þingmenn Al- þýðuflokks vera með viðtalstíma á skrifstofu flokksins að Hverfisgötu 8-10 á hveijum fimmtudegi til vors. Fimmtudaginn 15. febrúar mun Gísli S. Einarsson hafa viðtalstíma milli kl. 17.00 og 19.00. Þeir sem óska eftir að ná tali af þingmannin- um geta pantað viðtalstíma í síma 552- 9244 eða litið inn. andi bætta eða breytta þjónustu við landsmenn. Þá segir í samþykkt stjómarinnar: „- Krafa um aðstoð og jafnvel áfallahjálp fyrir starfsmenn sjúkrahúsanna, segir allt um afleiðingar af markmiðslaus- um og tilviljunarkenndum kröfum um niðurskurð starfseminnar. Mál er að linni og hætt verði að nota launþega aftur og aftur í þráskák stjómenda og stjórnmála til að knýja heilbrigðis- ráðuneytið til uppgjafar í markmiðs- og stefnulausri aðför að heilbrigðis- þjónustu landsmanna. A sama tíma og almennt launafólk er notað sem fómarpeð í valdbeitingu stjórnenda sjúkrahúsanna gegn fjár- veitingavaldinu, fjölgar yfirmönnum einsog arfa á haug og lagt er í gegnd- arlausan kostnað við breytingar á hús- næði sjúkrahúsanna. Þar gildir eitt í dag og annað á morgun um hvað sé nauðsyn og hvað ekki. Eftir stendur stöðug Qölgun silkihúfa, sem hver um sig þarfnast síns snaga, til að sinna sínum gæluverkefnum." Mál til komið að heilbrigðisráðuneytið verði knúið til uppgjafar í stefnu- lausri aðför að heilhrigðisþjónustunni, segja sjúkraliðar. Steinunn á vinnustofu sinni. Opnar níundu einkasýninguna á laugardag. Ljósmynd: Arnaldur Halldórsson. ■ Steinunn Þórarinsdóttir í Gerðarsafni „DálítiM galdur og mikið súrefni" A laugardaginn opnar í Gerðarsafni í Kópavogi sýning á verkum Stein- unnar Þórarinsdóttur myndhöggvara. Þetta er níunda einkasýning Steinunn- ar, sem fædd er árið 1955, en auk þess hefur hún tekið þátt í nokkuð á þriðja tug samsýninga, bæði heima og er- lendis. Steinunn nam höggmyndalist á Italíu og á Englandi en hefur síðustu 15 ár unnið á Islandi, og meðal annars verið fengin til að vinna stóra minnis- varða, svosem í Sandgerði og á Grundarfirði. Verkin sem Steinunn sýnir í Gerðarsafni eru aðallega úr jámi, en hún notar einnig gips, gler og blý. Þorgeir Þorgeirson rithöfundur segir í skrá sem nú er komin út um Steinunni og verk hennar að við þurf- um á jáminu að halda: „Blóð okkar tekur lit af því. Sjón okkar mótast af jámi því jarðlitimir tveir, sá rauðbrúni og hinn dimmblái koma af sambönd- um járns við súrefni í loftinu." Og Þorgeir heldur áfram: „Áferð þess er þegjandaleg. Það er lokað efni. En með heppni, þrautsegju, dálitlum galdri og miklu súrefni má þó töfra manninn og sál hans framúr jáminu.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.