Alþýðublaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 1
■ Fundi Finns Ingólfssonar með seðlabankastjórum um vaxtalækkun frestað til morguns að kröfu Davíðs Oddssonar. Framsóknarmenn telja að hann ætli að eigna sér heiður af vaxtalækkun „ Davíð er að stela senunni" - segir áhrifamikill framsóknarmaður. Sjálf- stæðismenn sakaðir um ítrekuð óheilindi í stjórnarsamstarfinu. „Málið er einfalt, Davíð ætlar að stela senunni frá Finni. Það eflir nátt- úrlega landsföðurímyndina ef Davíð kemur því inn hjá fólki að hann hafi uppá eigin spýtur lækkað vextina. Slíkur maður hlýtur að vera tilvalinn forsetaframbjóðandi," sagði áhrifa- mikill framsóknarmaður í samtali við Alþýðublaðið í gær. Ráðgert hafði verið að Finnur Ingólfsson viðskipta- ráðherra hitti bankastjóra Seðlabank- ans í dag til þess að knýja á um vaxtalækkun bankanna. Davíð Odds- son forsætisráðherra fór hinsvegar fram á að fundinum yrði frestað þangað til á morgun og mun hann ætla að stýra fundinum, og kynna niðurstöður hans. Framsóknarmaðurinn sem blaðið talaði við sagði að þetta væri þriðja dæmið síðustu daga um að sjálfstæð- ismenn virtu samstarfsflokk sinn í ríkisstjórn ekki mikils. Fyrst hefðu fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokks flutt frumvarp um eignarhlut útlend- inga í íslenskum sjávarútvegsfyrir- tækjum. Það hefði verið augljós ögr- un gagnvart Framsókn enda var Finn- ur Ingólfsson sama dag að mæla fyrir stjórnarfrumvarpi um sama efni. Þá „Það eflir náttúrlega landsföðurímyndina ef Davíð kemur því inn hjá fólki að hann hafi uppá eigin spýtur lækkað vextina. Slíkur maður hlýtur að vera tilvalinn forsetaframbjóðandi." hefði Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra komið í bakið á Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra í fjölmiðlum síðustu daga, og vísað allri ábyrgð á framkvæmd fjárlaga í heilbrigðismálum á hana. „Eftir það sem á undan er gengið síðustu daga þarf kannski að koma á óvart þótt Davíð ætli að eigna sér vaxtalækkunina," sagði heimilda- maður blaðsins, en hann sagði að nánast væri búið að ganga frá því að bankamir yrðu látnir lækka vexti. Viðmælandi blaðsins sagði að mikill pirringur væri í þingmönnum Framsóknar um þessar mundir gagn- vart sjálfstæðismönnum. „Við höfum sýnt full heilindi í þessu stjómarsam- starfi. Því miður er ekki hægt að segja sömu sögu af félögum okkar.“ Jack Daniels? „Til að fari ekki á milli mála að það sé rokk og ról," segir Megas. A-mynd e.ói Undirheimarnir eru ekki hér - þeir eru í Alþingishúsinu, segir Megas sem spilar á Hafnarkránni í kvöld ,Þetta er mjög intímt lókal og það hentar ágætlega því sem ég er með,“ segir Megas, en næstu íjögur kvöld heldur hann tónleika á hinu ágæta vertshúsi, Hafnarkránni í Hafnarstræti. Tónleikamir em auglýstir undir yfirskriftinni Megasukk, en ásamt Megasi leikur einnig dúettinn Súkkat. Á auglýsingu kemur ffarn að þama verði „tekin öll gömlu góðu lögin“. ,£g verð nú að gera ráð fýrir því að það sé svo- lídð af gömlu sjóaraliði héma. Flestir em líklega komnir til að fá einhveijar veitingar en heyra þá mig í leiðinni; þess vegna ætla ég að taka dáh'tið af þessu gamla stöffi sem ég spilaði í gamla daga en fór aldrei á plötu.,“ segir Megas. Hafharkráin er þekkt fyrir að vera eitt af fjörlegri veitinga- húsum bæjarins, svo tæpast er óeðlilegt þótt listamaðurinn sé spurður hvers hann vænti af tónleikagestum? Megas: ,Maður veit ekkert hveijir koma. Það var prógramm um staðinn á Stöð 2 og það hræddi heilmikið af fólki frá því að koma héma inn. Þar var talað um undirheima Reykjavíkur, að þeir væm hér, en við vitum að þeir em í Alþingishúsinu." En Megas, af hveiju Jack Daniels? „Til að fari ekki á milli mála að það sé rokk og ról. Uppá- haldssöngvari minn, Keith Richards, lætur aldrei taka af sér mynd öðmvísi en það sé Jack Daniels á myndinni." ■ Sighvatur Björgvinsson um fjárfestingar útlendinga í sjávarútvegi Eigum að leyfa ótak- markaðar fjárfestingar - segir Sighvatur og telur marga þingmenn lifa í fortíðinni. „Auðvitað vita allir sæmilega greindir menn að það er vemlegt erlent áhættufjármagn í gangi nú þegar bæði í útgerð og fiskvinnslu. Það er ekki ofan á borðinu heldur undir því. Menn kjósa hins vegar að láta eins og þeir viti ekki af því,“ seg- ir Sighvatur Björgvins- son, en á Alþingi takast þingmenn nú á um við- horf til erlendra fjárfest- inga í sjávarútvegi. Sighvatur telur fortíð- arviðhorf móta mjög af- stöðu margra þingmanna. „Þeir lifa í fslandi gamla tímans, ekki í íslandi samtímans, hvað þá að þeir líti til framtíðar. Þegar slík viðhorf em ráð- andi verður umræða þessara manna á skjön við raunvemlegt ástand í land- inu.“ Sighvatur segir að í marga áratugi hafi verið hér á landi viðloðandi hræðsla við útlendinga. „Menn hafa staðið í þeirri trú að erlendir fjárafla- menn ættu sér enga ósk heitari en að koma hingað með peningana sína og leggja undir sig þetta litla land. íslend- ingar telja sig hafa þurft að verja sig með því hlaða múr í kringum landið til að koma í veg fyrir að ríkir Jóakimar frændar kæmu hingað og legðu allt undir sig. Þeg- ar við íslendingar bijót- um síðan niður múrana þá blasir við okkur autt Atlantshafið. Það er eng- inn sem bíður eftir því að fá að leggja peninga sína í íslenskt atvinnulíf." Sighvatur segir ákjós- anlegt að fá erlent áhættufjármagn inn í ís- lenskt atvinnuh'f til að byggja það upp. „Um allan heim er mikil eftirspurn eftir erlendu fjánnagni til uppbygging- ar í atvinnuh'fi. Þjóðir sækjast eftir því en em ekki að forða sér ffá því. Mín afstaða er sú að við eigum að heimila ótakmarkaðar fjárfestingar á íslandi í öllum þáttum íslensks atvinnulífs. Það er ekki til neins nema góðs fyrir okk- ur. En við eigum að tryggja að sá rekstur sé alfarið eftir íslenskum lög- um þannig að þingið geti gert þær breytingar á umhverfi atvinnureksturs- ins sem það vill.“ Sighvatur Björgvinsson. ■ Ungir jafnaðarmenn gerðu hallarbyltingu í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur. Aðeins fjórir af níu manna lista uppstillinganefndar náðu kjöri í stjórn Fagna því að ungt og þróttmikið fólk kemur til starfa -segirGunnarlngi Gunnarsson nýrformaðurfélagsins. Pálmi fær góða dóma Séra Pálmi Matthíasson fékk klár- lega bestu útkomuna í viðhorfs- könnun sem Alþýðublaðið gerði og birt- ist í blaðinu í dag. Þátttak- endur í könn- uninni voru beðnir um að gefa forseta- kandídötum e i n k u n n i r fyrir ýmsa þá eiginleika sem prýða mega forseta, en úr innsendum svörum var síðan reiknuð meðaleinkunn. I öðru sæti, á eftir Pálma, er Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Pétursdóttir í því þriðja. Langneðstur á prófinu er svo Steingrímur Hermannsson - með falleinkunn. „Mér finnst að með þessu komi ungliðarnir inn í Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur með því afli sem ég taldi mig skynja í kosningabaráttunni. Þótt eftirsjá sé í eldri félagsmönnum hlýtur Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur að fagna því þegar ungt og þróttmikið fólk kemur til starfa," sagði Gunnar Ingi Gunnarsson, nýkjörinn formaður Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur. Aðalfundur félagsins, sem er stærsta félagið innan Alþýðuflokksins, var haldinn í fyrrakvöld. Hlín Daníels- dóttir lét af formennsku og var Gunn- ar Ingi kjörinn einróma í hennar stað. Kosning stjórnarinnar að öðru leyti var hinsvegar söguleg. Uppstillinganefnd hafði gert tillögu um stjórnina, sem skipuð er sex aðal- mönnum og þremur varamönnum. Aðeins fjórir af þessum lista náðu kjöri: Bolli Valgarðsson, Hólmfríður Sveinsdóttir, Jónas Þór og Sigrún Benediktsdóttir. Fimm af lista upp- stillinganefndar náðu ekki kjöri: Ás- laug Þórisdóttir, Birgir Jónsson, Bryn- dís Kristjánsdóttir, Erlingur Þorsteins- son og Helgi Daníelsson. I þeirra stað voru kjörin Ingvar Sverrisson, Halldór Kristjánsson, Aðalsteinn Leifsson, Hrafnhildur Hauksdóttir og Jóhanna Þórdórsdóttir. Flest koma þau úr röð- um ungrajafnaðarmanna. Aðspurður um helstu verkefnin framundan sagði nýr formaður að löngu tímabært væri að koma reglu- bundnu skipulagi á starfsemi félags- ins. „Ég vil ná sambandi við félaga í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur og sýna fólkinu að félagið man ekki bara eftir félögunum þegar það þarf á þeim að halda. Ég ætla að koma á upplýs- ingakerfi þarsem félagar fá að vita hvað er á döfinni." Gunnar Ingi sagði að ennfremur væm mörg verkefni framundan á vett- vangi stjómmálanna. „Alþýðuflokkur- inn hefur lengi verið sterkur málefna- lega, og við eigum að baki marga glæsta málefnasigra. Mér finnst hins- vegar að flokkurinn og formaður hans hafi ekki notið sannmælis fyrir störf sín. Nú er nýr sigur í sjónmáli, ég held að það sé aðeins spurning um tíma hvenær veiðileyfagjald verður tekið upp.“ Gunnar Ingi sagði að áhersla yrði líka lögð á Evrópumál og landbúnað- armál. Þá þyrftu flokksmenn að bregðast við samfylkingarhugmynd- um. „Enn eitt stórverkefni felst í því að við þurfum að skoða stöðu jafnað- armanna og hugmyndir um samfylk- ingu. Það er verið að banka uppá hjá okkur og auðvitað fömm við til dyra,“ sagði Gunnar Ingi Gunnarsson for- maður Alþýðuflokksfélags Reykjavík- ur.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.