Alþýðublaðið - 15.02.1996, Page 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996
veröld
■ Vissir þú að það er ekki hægt að brjóta blað
saman oftar en sjö sinnum; að það líður yfir þig
brot úr sekúndu þegar þú hnerrar; að næringar-
duftið Pulverpise var kosið borgarstjóri í borg í
Ekvador? Kynntu þér þessar staðreyndir og aðrar
jafn furðulegar
Otrúlegt
en satt
Þrátt fyrir þá almennu trú að fílar hafi stálminni
þá er staðreyndin sú að þeir hafa nær ekkert
minni.
Þegar rússneski rithöfundurinn
Tolstoy var drengur stofnaði
hann klúbb ásamt bróður
sínum. Til að fá inngöngu
urðu væntanlegir meðhmir
að standa úti í homi í klukku-
stund og forðast að hugsa um
hvítan bjöm.
Thomas Young, 18. aldar
læknir, stærðfræðingur og vís-
indamaður gat talað tólf tungu-
mál reiprennandi strax átta ára
gamall.
Georg 1. Enlandskonungur
1714-1727 varþýskurog
kunni ekki orð í ensku.
Einstaklingur sem þjáist
af oiokophobia er haldinn
djúpstæðum ótta við að vera
heima hjá sér.
Fyrsti sjálfsali sem vitað er um
var í hinum fomu hofum Alex-
andríu, um 641 f.Kr. Þar var
tæki sem hægt var að setja
mynt í og fá í staðinn vígt vatn.
Styijöld sem hófst milli
Englands og Zansibar þann 27.
ágúst 1896 stóð einungis í þrjá-
tíu og átta mínútur.
Lengsta setning sem birst hefur
á prenti er að finna í Vesaling-
um Victor Hugos. Hún er 823
orð. Hugo er í hópi þeirra sem
skrifað hafa stystu bréf sem vit-
að er um. Þegar hann var í fríi
forvitnaðist hann um það
hvemig salan á Vesalingunum
gengi. Hann skrifaði útgefanda
sínum: „?“ Svarið var: „!“
Alan Lemer var tvær vikur að
semja síðustu línuna í laginu
„Wouldn’t it be Loverly’" fyrir
söngleikinn My Fair Lady. Síð-
asta línan er „Loverly, loverly,
loverly.”
1 f
Charles Justice sem afplánaði
fangelsisdóm í ríkisfangelsinu í
Ohio árið 1897 aðstoðaði við
að hanna, byggja og setja upp
lyrsta rafmagnsstólinn. Nokkr-
um árum síðar sneri hann aftur
til fangelsisins sekur um morð.
Arið 1911 var Charles Justice
tekinn af lífí í þeim sama stól
sem hann hafði dundað við að
koma í gagnið.
Fyrsta opinbera tilskipun Vikt-
oríu drottningar eftir krýning-
una var að hundar hennar
fengju heitt bað. Viktoría átti
um tíma áttatíu hunda og
þekkti þá alla með nafni.
Lúðvík XIV Frakkakonungur
var fyrstur karlmanna til að
ganga í háhæluðum skóm og
kom þeim sið sínum í tísku.
Benjamín Franklín fann upp
ruggustólinn.
Það er ekki hægt að hnerra
með opin augu. Staðreyndin er
meira að segja sú að mönnum
er hættast við að missa stjóm á
bíl meðan þeir hnerra, enda líð-
ur yfír þá brot úr sekúndu.
Edgar Allan Poe skrifaði
allar sögur sínar meðan
svarti kötturinn hans Magic
sat á öxl hans.
Fyrsta handsprengjan með
púðri var fundin upp af
mongólanum Khubla Khan
- árið 1230.
Ef rúsína er sett í glas með
kampavíni þá rís hún og hnígur
til skiptis í það óendanlega.
Alfred Nobel, stofnandi
Nóbelsverðlaunanna, fann
upp dýnamítið.
Spagettíið kemur ekki upp-
runalega frá Ítalíu heldur Kína.
o
Górillur geta ekki synt.
Það er ómögulegt
að brjóta saman pappír - sama
hversu stór hann er - oftar en
sjö sinnum.
Fyrsta skipulagða verkfall sem
vitað er um varð árið 309 f.Kr
þegar Aristos, grískur tónlistar-
maður, sagði hljómsveit sinni
að hætta leik sínum, vegna þess
að tónlistarmönnunum var
bannað að matast í hofínu.
Árið 1851 skaut skosk boga-
skytta, Robert Kilpatrick, egg
af höfði sonar síns af hundrað
metra færi. Hann hafði aðra ör
tilbúna og ætlaði hana foringja
sínum, William MacDonald,
sem hafði skipað honum að
reyna skotið.
Af ótta við að
leiðast í ver-
aldlegar freist-
ingar sem
tefðu hann frá
andlegri íhug-
un rakaði
gríski heim-
spekingurinn
Demosthenes af sér allt hár á
annarri hlið höfuðsins til að
verða svo afkáralegur útlits að
hann treysti sér ekki á al-
mannafæri.
í borgarstjómarkosningunum í
Picoaza í Ekvador var næring-
arduftið Pulverpise auglýst
undir slagorðinu: „Kjósið þann
frambjóðanda sem ykkur sýn-
ist, en ef þið viljið góða heilsu
og hollustu kjósið þá Pulverp-
ise. Þegar talið var upp úr
kjjörkössunum hafði Pulverp-
ise verið kosið borgarstjóri
Picoaza.
Haggis er ekki skoskt að upp-
mna. Fom Grikkir eiga heiður-
inn af því og kölluðu það koila
prodateia.
Ljón vom notuð sem varð-
hundar í Tower of London allt
fram til ársins 1781.
Fíllinn er eina dýrið sem getur
ekki hoppað. Það er einnig eina
dýrið sem hægt er að kenna að
standa á haus.
Teddy bangsar
vom skírðir í höf-
uðuð á Theodore
Roosevelt Banda-
ríkjaforseta.
Lögreglubílar hafa fengið nafn-
ið Svarta María. Þeir heita eftir
Maríu Manning. Með aðstoð
eiginmanns síns myrti hún
leigjanda þeirra og var tekin af
lífí árið 1849 og var þá klædd
síðum svörtum kjól.
Þorrablót
Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði heldur þorrablót
í Alþýðuhúsinu Strandgötu laugardaginn
24. febrúar næstkomandi.
Dagskrá:
Húsið opnar klukkan 20:00
Þorramatur að hætti hússins
Glaumur, glens og gaman.
Allar upplýsingar í símum:
555-0499 555-1920 565-4132
565-1070 565-1772