Alþýðublaðið - 19.03.1996, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 19.03.1996, Qupperneq 2
B2 afnadarmaðurinn ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 1996 Ungir jafnaðarmenn Útgefandi Samband ungra jafnaðarmanna Ritstjórn Þóra Arnórsdóttir Hreinn Hreinsson Útlit Gagarín hf. Attatíu ár og ein vika Fyrir réttri viku átti Alþýðuflokkurinn- Jafnaðarmannaflokkur Islands stórafmæli. Á ýmsu hefur gengið þessa átta tugi ára sem liðnir eru. Það sem kemur yfirleitt fyrst upp í huga manna þegar litið er um öxl er annars vegar árangur baráttunnar fyrir velferðar- kerfi öllum til handa og hins vegar hinar eih'fu róstur og klofning- ar innan flokks. Alþýðuflokkurinn getur verið stoltur af sögu sinni og fortíð. Hann hefur fengið ótrúlegustu hlutum áorkað þrátt fýrir smæð. Það eru ýmsar ástæður nefndar fyrir því að flokkurinn er ekki stærri en raun ber vitni, hann slagar ekki einu sinni upp í bræðraflokka sína á Norðurlöndum. Yfirleitt ber þar hæst ranglátt kosningakerfi, öðruvísi atvinnulíf og síðast en ekki síst tíða klofn- inga. En flokkurinn má ekki festa sig í vísun til einhvers fortíðar- ljóma, „þá riðu hetjur um héröð“-hugsunarhætti. Það þýðir lítið að hengja sig í vonbrigði yfir því að detta út úr ríkisstjóm, tímann í stjómarandstöðu á einmitt að nota til þess að þjappa hðsmönn- unum saman og undirbúa næsta slag. Formaðurinn hefur lýst því yfír að metnaður flokksins fyrir næstu Alþingiskosningar miði að 20-30% kjörfylgi. Það á ekki að gerast með því að þegja og halda sér til hlés eins og virðist virka alltof vel í íslenskum stjómmálum. Nútímaleg jafnaðarstefna á erindi til allra og það er verkefni flokksins að kynna alþjóð hana á öflugan hátt. Það hefur kannski aldrei verið jafn brýnt og nú, þegar íslenskt þjóðfélag stendur á þeim tímamótum að það em þúsundir af ungu fólki að mennta sig bæði innan lands og utan til starfa á alþjóðlegum vinnumarkaði á meðan Island dregst sífellt aftur úr á þeim vettvangi, háð sjávarút- veginum sem aldrei íyrr. Við þurfum ekki nema horfa hér nokkur hundmð kílómetra til suðausturs til að gera okkur grein íyrir hver áhrif atgervisflótti ungs fólks hefur. Það er erfitt að stöðva skrið- una þegar hún er farin af stað. Alþýðuflokkurinn hefur löngum verið sá flokkur í íslensku flokkakerfi sem er hvað alþjóðlegastur, ekki bara vegna sterkra tengsla við aðra sósíaldemókrataflokka um allan heim, heldur vegna opinna skoðana í alþjóðamálum. Einangmn hefur aldrei þótt heillavænleg samfélagsþróun, þótt hæfileg þjóðemishyggja sé hverju þjóðfélagi nauðsynleg. Samt hefur Alþýðuflokkurinn verið vændur um að selja landið hvað eftir annað, einkum þegar hann hefur haft forgöngu um ýmis framfaramál eins og EES- samninginn. Þetta tregðulögmál er í reynd alveg merkilegt, því þegar litið er blákalt á söguna þá er það staðreynd að íslendingar hafa yfirleitt alltaf verið sjálfum sér verstir. Sett á sig eigin höft og múlbindingar. Þetta virðist vera að breytast smátt og smátt, með aukinni menntun og ferðalögum landans. En það gengur hægt. Alltof hægt. Innan raða Alþýðuflokksins er að finna sterkt afl sem nefnist Samband ungra jafnaðarmanna. Mörgum finnst það heimskulegt að binda sig í ákveðnum stjómmálaflokki og telja það skerða framtíðarmöguleika sína í þessu litla klíkusamfélagi okkar. Það er alltaf auðvelt að sigla milli skers og bám, vera í þeim hópi sem gagnrýnir stöðugt það sem gert er og þær ákvarðanir sem teknar em hveiju sinni, en gera svo ekkert til að hafa áhrif á þær. Það fólk sem starfar innan ungliðahreyfingar Alþýðuflokksins gefur lítið fýrir slík viðhorf. Þar er samankomin fylking fólks sem er til- búið að vinna að sínum hugsjónum af heilindum og hefur gert frá stofnun sambandsins 1929. Við samfögnum flokknum okkar á áttatíu ára afmælinu. ■ ■ Kveðja frá Jóni Baldvini Hannibalssyni, formanni Alþýðuflokksins Kynslóðaskipti í íslenskum stjórnmálum í vændum í dagskrá á myndbandi sem gert var í tilefni af 70 ára afmæli Alþýðuflokksins 1986, segir Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur að stjórnmálaflokkar séu þeirrar náttúru að þurfa ekki að eldast, þótt árunum fjölgi. Þeir lúta því ekki endilega því náttúrulögmáli mannanna að hnigna með árunum samkvæmt því harða lögmáli að allt eyðist sem af er tekið. Við dauð- legir menn érum seldir und- ir þetta náttúrulögmál. En stjórnmálaflokkum er gefið annað líf. Ef þeir gæta þess að staðna ekki hugmynda- lega í kreddum þá geta þeir gengið í endurnýjun lífdag- anna. Ástæðan er sú að kynslóðir koma og kynslóð- ir fara. Með nýju fólki koma nýjar hugmyndir. Nýtt fólk á að leggja sjálf- stæðan dóm á feðranna verk. Ef unga kynslóðin á hverjum tíma hlítir kalli tímans og verður andlega fullburða getur hún einfald- lega ráðið því að stjórnmálahreyf- ing sem er aldin að árum getur yngst upp - getur gengið í endur- nýjun lífdaganna með nýju fólki og nýjum hugmyndum. Þegar við lítum til baka yfir feril Alþýðuflokksins sjáum við að það er einmitt þetta sem hefur gerst, nánast með reglulegu millibili í sögu flokksins. Kannski einkennir það Alþýðuflokkinn umfram aðra stjórnmálaflokka hér á landi. Al- þýðuflokkurinn hefur löngum ver- ið og er reyndar enn í dag stjórn- málahreyfing sem beitir sér fyrir róttækum minnihlutaskoðunum í upphafi undir þeim formerkjum að hlutverk flokksins sé að breyta þjóðfélaginu. Þessar hugmyndir vekja oft harða andstöðu þeirra sem sitja á fleti fyrir, telja sig hafa sérstök forréttindi að verja eða líta hlutverk sitt þeim augum að við- halda óbreyttu ástandi. Það virðist vera svo eftir að Al- þýðuflokkurinn hefur á tímabilum í ríkisstjórn lagt sig fram um að knýja á um róttækar breytingar, sem oftar en ekki hafa sætt and- stöðu eða verið gerðar tortryggi- legar, svo að hann hefur goldið þess í fylgi, þá tekur við nýtt tíma- bil í stjórnarandstöðu. Nýtt tímabil hugmyndalegrar endurnýjunar sem jafnframt þýðir að flokkurinn end- urnýjast af liðsmönnum. Þetta gerðist með eftirtektar- verðum hætti á stjórnarandstöðu- tímabilinu 1976-78. Sá sem ruddi brautina fyrir þeirri hugmyndalegu endurnýjun var Vilmundur Gylfa- son. I málflutningi hans kvað við nýjan tón sem átti greiðan aðgang að hjörtum unga fólksins sem var sáróánægt með vanahugsun og kerfismennsku ríkjandi ástands. Það er svo annað mál og ekki við Vilmund að sakast að kosningasig- urinn' 1978 og sú stökkbreyting sem varð á fylgi flokksins dugði ekki til þess að fylgja málunum eftir. Jafnvægislistin virðist vera í því fólgin að saman fari hæfileg blanda reynslu eldri kynslóðarinn- ar og hugsjónaglóðar og umbóta- vilja yngri kynslóðarinnar. Sagan endurtók sig að vissu marki á stjórnarandstöðutímabilinu 1984-87. f sveitarstjórnarkosning- um 1986 tvöfaldaði Alþýðuflokk- urinn fylgi sitt. Þá var áberandi hversu margt ungt fólk gekk til liðs við flokkinn og jafnframt hitt að hann var eftir þessar kosningar mjög víða í meirihlutaaðstöðu í sveitarstjórnum í landinu. Þetta var aðdragandi að þingkosningunum 1987 þegar flestir væntu þess að Alþýðuflokkurinn myndi vinna sinn stærsta kosningasigur þangað til. Á seinustu stundu fyrir kosn- ingarnar 1987 var hrundið af stað atburðarás sem tók vindinn úr seglum okkar. Ástæðan var klofn- ingur í Sjálfstæðisflokknum sem leiddi til flokksstofnunar og sér- framboða á vegum Alberts Guðmundssonar undir heit- inu Borgaraflokkurinn. Engu að síður dugði hin hugmyndalega endurnýjun og hinn nýji liðskostur til þess að Alþýðuflokkurinn náði málefnalegu frum- kvæði eftir þingkosning- arnar 1987 og var ráðandi um myndun ríkisstjórnar næstu átta árin. Á þessu tímabili kom flokkurinn miklu í verk. Að lokum fór þó svo að flokkadrættir innbyrðis og klofningur flokksins fyrir seinustu þingkösningar varð þess valdandi að flokkurinn glataði þessari lykilstöðu með þeim afleiðingum að helmingaskiptastjórn flokkanna þar sem sérhags- munaaðilarnir ráða mestu situr nú að völdum til þess að tryggja hið óbreytta ástand. Alþýðuflokkurinn er enn á ný í stjórnarandstöðu. Hann er enn sem fyrr rót- tækur umbótaflokkur. I augum margra í röðum ungu kyn- slóðarinnar er hann jafnvel kallað- ur framúrstefnuflokkur. Þeir and- stæðingar okkar sem á annað borð vilja láta jafnaðarmenn njóta sann- mælis viðurkenna að Alþýðuflokk- urinn hafi bæði í heild og í ein- stökum málum bæði skýra og af- dráttarlausa stefnu. Að sérstaða hans í flokkaflórunni sé mikil. Hugmyndir flokksins um róttækar breytingar á atvinnuháttum, um lausnir á skipulagsvanda atvinnur veganna, um auðlindagjald til þess að tryggja þjóðinni fremur en fá- mennum forréttindahóp arð af helstu auðlind hennar, ásamt með framtíðarsýn flokksins í alþjóða- málum og Evrópumálum - allt eru þetta mál sem greinilega skírskota til unga fólksins í landinu fremur en þeirra eldri. Það fór ekki fram hjá neinum í tengslum við seinustu kosninga- baráttu Alþýðuflokksins að unga fólkið gekk þar fram fyrir skjöldu. Burðarásinn í því starfi sem unnið var á vegum flokksins við undir- búning kosningabaráttunnar og „Að lokum fór þó svo að flokkadrættir innbyrðis og klofningur flokksins fyrir seinustu þingkosningar varð þess vald- andi að flokkurinn glataði þessari lykil- stöðu með þeim afleiðingum að helm- ingaskiptastjórn flokkanna þar sem sér- hagsmunaaðilarnir ráða mestu situr nú að völdum til þess að tryggja hið óbreytta ástand."

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.