Alþýðublaðið - 19.03.1996, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 19.03.1996, Blaðsíða 8
ft JAFNAÐARMAÐURINN ■ Benedikt Gröndal íviðtali við Kolbein Einarsson og Hólmfríði Sveinsdóttur um klofninga, sameiningu og söguna Stefnuskráin gæti verið eitt orð f tilefni af 80 ára afmæli Alþýðu- flokksins þótti okkur við hæfi að taka hús á fyrrum formanni flokksins, Benedikt Gröndal. Benedikt var for- maður Alþýðuflokksins á tímabilinu 1974 til 1980 og því við því að búast að hann hefði frá ýmsu að segja. I af- mælisfylgiriti Alþýðublaðsins 12. mars 1966 er að finna grein eftir Benedikt sem sem hefst svona: „Af hverju er Alþýðuflokkurinn ekki eins stór og jafnaðarmannaflokkar hinna Norðurlandanna? Þannig spyr unga fólkið. Hvemig hefur Alþýðuflokkur- inn náð svo miklum völdum og fram- kvæmt svo margar hugsjónir, ekki stærri en hann er? Þannig spyija hinir eldri.“ Þessi klausa var sett fram fyrir réttum 30 árum, en hefði getað verið skrifuð í gær. Það lá því beinast við að spyrja Benedikt fyrst hvort ekkert hefði breyst á þessum tíma og jafn- framt hvemig spumingunni hefði ver- ið svarað 1966. Er það svar ef til vill enn í fullu gildi nú þegar nálgast alda- mót? „Svör við þessum spumingum er að frnna í sögu Alþýðuflokksins, en hún hefur verið viðburðarík og sérkenni- leg, full af gleði og sorg, sigrum og ósigrum. Flokkurinn boðaði íslensku þjóðfélagi jafnaðarstefnu sem leið til frelsis, jafnréttis og bræðralags. Þær hugmyndir eru kjami þess velferðar- ríkis sem nú er við lýði. Hinsvegar hefur flokknum ekki tekist að vinna pólitískt fylgi í sama mæli og jafnað- armannaflokkum í öðrum löndum. Hvað eftir annað hafa átök og klofn- ingur valdið því að flokkurinn hefur ekki orðið jafn sterkur og farsæll og samskonar flokkar í nágrannalöndun- um. I öllum íslensku flokkunum er fjöldi fólks sem telur sig aðhyllast markmið jafnaðarstefnu þótt það styðji ekki Alþýðuflokkinn.“ Bræðravíg íslenskrar alþýðu „f þeim hópi sem stóð að stofnum Alþýðusambands íslands og Alþýðu- flokksins vom meðal annarra komm- únistar. Þessir menn voru aðilar að Komintem og þeir vom að hlýða fyr- irmælum þess er þeir slitu samvistum Ungir jafnaðarmenn Sambandsstjórnar- fundurSUJ Að þessu sinni hyggjast ungir jafnaðarmenn ieggja land undir fót og halda sambandsstjórnarfund norðan heiða, á Akureyri. Jafnframt verða fundahöld í skólum og fyrir- tækjum með þingmönnum flokksins. Drög að dagskrá: Miðvikudagur: 13:30: Opinn fundur í Verkmenntaskólanum með fulltrú- um allra ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna. Einnig fundur í Háskólanum á Akureyri-tímasetning ekki ákveðin. Fimmtudagur: 16:00: Kappræður í Menntaskólanum milli þingmanns Alþýðuflokksins og mótmælanda. Fundir í fyrirtækjum með Guðmundi Árna Stefánssyni, Lúðvíki Bergvinssyni og Gesti G. Gestssyni. Föstudagur: 14:00: Langferðabifreið leggur af stað frá Alþýðuhúsinu. Fundir í fyrirtækjum. 20:30: Koma á Akureyri. 21:00: Móttaka og kvöldverður. 22:30 - Hið gróskumikla næturlíf höfuðstaðar Norður- lands kannað. Laugardagur: 11:00: Sambandsstjórnarfundur. 13:00-14:00: Hádegisverður. 19:00: Kvöldverður á veitingahúsinu Greifanum. Afgangurinn af næturlífinu rannsakaður. Sunnudagur: 12:00 Menningarferð í Listagilið undir leiðsögn Alfreðs Gíslasonar, formanns menningarmálanefndar Akureyr- arbæjar. 14:00: Opinn fundur með þingmanni Alþýðuflokksins og Gísla Braga Hjartarsyni, bæjarfulltrúa á Akureyri. 17:00: Brottför. Verð pr. mann er einungis 3000 kr. með rútuferð og gist- ingu. Gist verður í orlofsíbúðum. Þeir sem ætla með, óháð því hvort þeir eru í sambandsstjórn eða ekki, skrái sig hjá Þóru í síma 552 9244 eða 552 1979. ....... , • JSF2»t- - Benedikt í lestarferð í Þýskalandi með Willy Brandt, einum mesta og minnisstæðasta ieiðtoga jafnaðarmanna. „Erfitt er að komast hjá þeirri ályktun að foringjar kommúnista hafi verið harðari, duglegri og ósvífnari en foringjar Al- þýðuflokksins." við sósíaldemókrata og stofnuðu Kommúnistaflokkinn 1930, svo og þegar þeim var sagt að taka upp sam- einingarlínu árið 1938 og þeir náðu Héðni Valdimarssyni í nýjan flokk, Sósíalistaflokkinn. Klofningurinn tókst í bæði þessi skipti og Kommún- istaflokkurinn varð álíka stór og Al- þýðuflokkurinn. Þetta gerðist ekki í öðrum löndum Norðvestur-Evrópu þar sem kommúnistar voru ávallt smá- flokkar. Kommúnistar gátu ekki séð sinn gamla flokk í friði eftir að þeir yfrrgáfu hann, heldur einbeittu þeir sér að því að vinna gegn jafnaðarmönn- um, ná af þeim forystu í verkalýðs- hreyfingunni og brjóta flokk þeirra niður. Þannig varð sú ógæfa, að ís- lensk alþýða átti í bræðravígum ein- mitt þann áratuginn, sem hún hefði sameinuð gert Alþýðuflokkinn að stærsta eða næststærsta flokki landsins og tryggt honum stöðu í íslenskum stjórnmálum, sem hefði svipað til þess, er verið hefur á hinum Norður- löndunum. Ekki er viðtekin skýring á því af hverju þessi pólitíska þróun varð hér á landi. Erfitt er að komast hjá þeirri ályktun að foringjar komm- únista hafi verið harðari, duglegri og ósvífnari en foringjar Alþýðuflokks- ins. Þá var þjóðin að flytjast á mölina, mynda þéttbýli og þráði betri h'fskjör. Því hefur verið góður jarðvegur fýrir róttæka pólitík og klofningsmenn voru oftast utan ríkisstjórna og ábyrgðar- lausir.“ Regnhlífarleiðin Síðustu misserin hefur umrœðan um sameiningu jafnaðarmanna fengið aukinn byr, hver er skoðun þín á því máli? „Sameiningu jafnaðarmanna ber að kanna með gætni. Það þarf að athuga hvort að einhveijar nýjar leiðir opnast. Þetta er mál sem hefur margar hliðar og hefur lengi verið rætt en reynist því flóknara sem umræðan kemst lengra. Að mínu mati er skynsamlegra og vænlegra til árangurs að reyna ,regn- hlífarleiðina“. Það er að segja að vinstriflokkamir myndi með sér kosn- ingabandalag. Það að sameina flokks- stofnanir er að mínum dómi alltof stórt og viðamikið til að byija með og alls ekki tímabært. Stefnumótun sam- einaðra jafnaðarmanna ætti hins vegar ekki að vera mikið vandamál. Raunar gæti stefnan verið aðeins eitt orð: Jafnrétti.“ Okkur langar að fá þig til þess að spá dálítið í framtíðina með okkur. Hvemig heldurðu aðflokkurinn okkar muni spjara sig á nýrri öld? „Alþýðuflokkurinn hefur þróttmik- inn og litríkan formann og nokkur góð ráðherraefni, en hann hefúr misst góða forystumenn sem hafa horfið frá stjómmálum til starfa á öðmm svið- um. Flokknum er mjög mikilsvert að styrkja foiystuliðið með nýju og ungu fólki. Það merkir að flokkurinn þarf að leggja ríka áherslu á að þjálfa upp ungt fólk og gefa því tækifæri til að takast á við ábyrgðarstörf. Flokkurinn þarf á unga fólkinu að halda og í því er framtíðin fólgin. Stjórnmálin munu taka miklum breytingum með tækni upplýsingaald- ar. Hið öra samband milli manna og stofnana mun veita flokknum ný tæki- færi til sambands við kjósendur. Ef þessi tækni verður ekki of dýr getur farið svo að minni flokkamir fái nýjar leiðir til fylgisöflunar sem jafna að- stöðu þeirra og hinna stærri. Það er löngu Ijóst að rfk þörf er fyrir flokk eins og Alþýðuflokkinn til að standa vörð um velferðarkerfið þegar komið er að þeim mörkum skattlagn- ingar, sem þjóðin vill taka á sig. Flokkurinn verður að höfða til hinnar nýju kynslóðar menntaðra heimsborg- ara sem nýrík þjóð okkar hefur verið að ala upp.“ Ef þú lítur til baka yfir farinn veg, hvað er minnisstœðast úr pólitíkinni? „ Það er löngu Ijóst að rík þörf er fyrir flokk eins og Alþýðuflokkinn til að standa vörð um velferðar- kerfið þegar komið er að þeim mörkum skattlagn- ingar, sem þjóðin vill taka á sig. Flokkurinn verður að höfða til hinnar nýju kynslóðar menntaðra heimsborgara sem nýrík þjóð okkar hefur verið að ala upp." „Það er ný Kfsreynsla að fara á eft- irlaun og horfa á stjómmálabaráttuna utan frá. Eitt af því sem ég tek eftir er að menn em enn að glíma við sömu vandamál og þegar ég var í baráttunni, einungis með örlftið öðm yfirbragði. Umbúnaður tímans er öðruvísi en þetta em sömu vandamálin aftur og aftur. Það er þannig með þessi félags- legu fög, eins og pólitík, að menn virðast ekki geta miðlað reynslu sinni og þekkingu milli kynslóða, öfúgt við vísindi og tækni þar sem menn geta gengið að því sem gert var á undan þeim. Hver kynslóð virðist þurfa að finna upp hjólið á ný. Þó snýst þetta ávallt um sömu grundvallaratriðin, eins og það hvernig við ætlum að stækka kökuna og hvemig á að skipta henni. Hugurinn reikar um hálfrar aldar ferð með Alþýðuflokknum. Minnis- stæðastir em sigrar í kosningum og áhrif þeirra - en einnig ósigrar, þegar byija varð á nýjan leik að vúina fylgi við fagrar hugsjónir sem þegar hafa reynst þjóðinni vel - en rætast aldrei að fullu.“ Benedikt Gröndal var formaður Alþýðuflokksins 1978 þegar hann vann sinn stærsta kosningasigur nokkru sinni og hlaut 14 þingsæti.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.