Alþýðublaðið - 19.03.1996, Page 5

Alþýðublaðið - 19.03.1996, Page 5
afnaðarmaðurinn Húsbréfakerfið Notaðar íbúðir Upp úr 1960 voru staddir hér á landi tveir ungir jafnaðarmenn frá Sví- þjóð, þeir Ingvar Carlson sem síðar varð forsætisráðherra og Tage Petterson sem síðar varð ráðherra og forseti sænska þingsins. Nokkrir ungir jafnað- armenn frá Islandi buðu þeim með sér út að borða á Naustið og þar snæddu þeir Körfukjúkling sem þótti nýstárlegur réttur á þeim tíma. Með réttnum var borinn fram einhvertorkennilegur vökvi í skál og vissi enginn þeirra hvaða glundur þetta var, en þar sem þetta eru allt siðaðir menn drukku þeir bara úr skálunum. Þegar máltíðinni lauk lomust þeir svo að því að glundrið í skálinni var sítrónuvatn sem nota átti til að þvo sér um hendurnar eftir matinn. Allir geta nú orðið forsætisráðherrar Svíþjóðar. Ein saga af Framsóknarmönnum: Guðmundur og Sigurjón á Reyðar- firði voru miklir Framsóknarmenn og höfðu alltaf verið. En eins og títt er um framsóknarmenn urðu þeir gamlir og þar kom að Sigurjón var lagður inn á spítala á Egilsstöðum. Þaðan bárust síð- an þær fréttir að Sigurjón væri genginn í Sjálfsstæðisflokkinn og var Guðmund- ur sendurtil að koma vitinu fyrir deyj- andi manninn. Guðmundur fer á spítal- ann og fer að rifja upp alla skenmtilegu hlutina úr flokksstarfinu, stofnun kaup- félagsins, ferðirnar með Eysteini og stofnun ungliðahreyfingarinnar. Sigur- jón jánkar því að þetta hafi jú verið mjög skemmtilegt alltsaman og Guð- mundur spyr þá af hverju í ósköpunum hann sé að ganga í Sjálfstæðisflokkinn eftir alla þessa góðu tíma. Þá segir Sig- urjón „Þegar ég dey verður einum Sjálf- stæðismanninum færra". Þetta kallast nú flokkshollusta í lagi. ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 1996 n Talkór Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík 1936. Neðst til hægri má sjá Jón Magnússon sem varð bæði formaður FUJ í Hafnarfirði og FUJ í Reykjavík. arstjóri var að hlusta á og kom að máli við mig og sagði mér að ég hefði rödd sem hljómaði vel í út- varpi. Það held ég að hafi verið kveikjan að því að ég lét á það reyna síðar.“ Þið genguð í einkennisbúning- um? „Já, þeir voru mjög í tísku á þeim tíma. Þetta voru bláar skyrt- ur, rauð bindi og stjarna með merki FUJ í barminum. I þessu gengum við hnarreist um götur og vorum stolt af.“ Hvenær lögðust talkórarnir af? „Blómlegasta starfsemin var að ég held á árunum 1935 og fram- undir 1940. Ég gekk úr FUJ 1946 vegna deilna um herinn og Kefla- víkursamninginn. Þá var mikið tekist á og sumir urðu sárir eftir. Ég hef ekki gengið í flokk síðan og geri væntanlega aldrei. En þá hætti ég að fylgjast með starfseminni eins og ég hafði gert, tíðarandinn breyttist nú líka með árunum og annars konar starfsemi varð ríkj- andi innan félagsins. En þetta var skemmtilegur tími, þarna eignaðist ég góða félaga og minnist þessa tímabils í talkórnum með ánægju.“ Pétur Pétursson þulur: „Ég gekk úr FUJ 1946 vegna deilna um herinn og Keflavíkursamninginn. Þá var mikið tekist á og sumir urðu sárir eftir. Ég hef ekki gengið í flokk síð- an og geri væntanlega aldrei." hléi milli ræðuhalda og fluttum okkar boðskap. Við fórum meira að segja í upptöku í útvarpinu eitt sinn og það má segja að það hafi verið upphafið að störfum mínum hjá útvarpinu. Þórarinn Guð- mundsson tónskáld og hljómsveit- Hvernig fara íbúðarkaup fram? # HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI: 569 6900 (kl. 8-16) • BRÉFASÍMI: 568 9422 GRÆNT NÚMER: 800 6969 0 é é Greiðslumat Fyrsta.skrefiðer að sækja um skriflegt mat á greiðslugetu hjá viðurkenndri fjármálastofnun, t.d. banka, sparisjóði eða verð- bréfafyrirtæki. Fasteignamarkaður Umsækjandi skoðarsig umá fasteignamarkaðnum í leit að notaðri íbúð. Kauptilboð gert Við gerð kauptilboðs í notaða fbúð getur húsbréfalánið numið allt að 70% af kaupverði íbúðarinnar við fyrstu íbúðarkaup, en annars 65% af kaupverði. Umsókn um húsbréfalán Þegar seljandi hefur gengið að kauptilboði, leggur kaupandi inn umsókn um húsbréfalán ásamt greiðslumati og kauptilboði til Húsnæðisstofnunar. Mat Húsnæðisstofnunar Meti stofnunin kauptilboðið lánshæft fær íbúðarkaupandinn afhent fasteignaveðbréf til undir- ritunar, útgefið á nafn seljanda, og hægt er að ganga frá kaupsamningi. Kaupsamningur Því næst er kaupsamningur undirritaður. Mjög óvarlegt er ad undirrita kaup- samning áður en samþykki Hús- næðisstofnunar fyrir kaupum á fasteignaveðbréfi liggur fyrir. Með undirritun kaupsamnings eru kaupin orðin bindandi og fyrir- varinn um samþykki stofnunar- innar fyrir kaupunum niður fallinn. Kaupsamningi þinglýst Kaupandi lætur þinglýsa kaup- samningi og kemurafriti til seljanda. : Fasteignaveðbréfi þinglýst Kaupandi lætur þinglýsa fast- eignaveðbréfi hjá sýslumanni og afhendir það síðan seljanda. Afgreiðsla húsbréfa Húsnæðisstofnun kaupir fasteigna- veðbréf seljanda og greiðir fyrir það með húsbréfum. Veðdeild Landsbanka íslands annast þessi viðskipti. Eftir að húsbréfa- flokki er lokað geta þau ekki farið fram. Greiðslur af húsbréfaláni hefjast Veðdeild Landsbanka íslands innheimtir afborganir af fast- eignaveðbréfum fyrir Húsnæð- isstofnun. Greiðslur hefjast á 3. almenna gjalddaga frá útgáfudegi þess og gjalddagar eru 15. hvers mánaðar. / mörgum tilfellum sjá fasteignasalar alfarið um alla þætti við íbúðarkauþ eða frá þvíað kauptilboð er gert, fram að afhendingu húsbréfa.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.