Alþýðublaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 4
s ALÞÝÐUBLAÐHD a ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 1996 a ■ Skáldsögur Jane Austin vöktu ekki verðuga eftirtekt meðan skáldkonan lifði. Á tuttugustu öld hafa menn lesið bækur hennar af áfergju. Sjálf forðaðist Jane Austin sviðsljósið. Kolbrún Bergþórsdóttirfjallar um skáldkonuna dáðu Hlédrægi snillingurinn Þegar Jane Austin lést árið 1817, íjörtíu og tveggja ára að aldri, ríkti enginn söknuður í breskum bókmenntaheimi. Fæstir höfðu vitað af þessari hlédrægu konu sem gefíð hafði út íjórar skáldsögur án þess að leggja nafn sitt við þær. Með- al samtímarithöfunda var það einungis Walter Scott sem veitti verkum hennar verðuga eftirtekt. Reyndar var athygli nokkuð sem Jane Austin sóttist aldrei eftir. í lífí sínu tók hún að sér hlutverk áhorfandans, rannsakaði hið hversdagslega og gæddi það töfrum í skáldverkum sem heillað hafa kyn- slóðir. Hún var prestsdóttir, fæddist ár- ið 1775, næstyngst átta systkina. Hún átti afar hamingjuríka æsku og var sérlega hænd að einu systur sinni, Cassöndru, sem var alla tíð besti og nánasti vinur hennar. Fjöl- skyldumeðlimir voru vanir að. segja að Cassandra hefði ætíð stjórn á skapi sínu en Jane hefði skap sem ekki þyrfti að hafa stjórn á. A hvaða tíma sem er hefði Jane Austin þótt sérlega vel gerður ein- staklingur. Hún var fullkomlega laus við hégómagirnd og athygli- sýki, en bjó í þess stað yfir ríku- lergum skaínmti af'sjfynsemi og skarpri atþyglisgáíu. Húnjvar skemmtilegur og orðheppinn fé- lagi, og vingjarnleg við alla sem hún mætti. Hún var þó hlédræg þegar ókunnugir áttu í hlut og lítt gafin fyrir að trana sér fram. Hún v|r vönd að virðingu sinni og hafði tröllatrú á mikilvægi skyn- seminnar. Eins og títt er um orð- heppið fólk átti hún til að lauma út úr sér meinlegum setningum og frjeg er þessi athugasemd úr einu bréfa hennar: „Frú Hale í Sher: borne lagðist á sæng í gær og eign: • aðist andvana barn, nokkrum vik- um fyrir tímann, vegna þess að hún hafði orðið hrædd við eitt- hvað. Ég býst við að henni hafi óvart orðið lítið á mann sinn“. Verk án nafngreinds höfundar Jane Austin vár einungis barn þegar hún byrjaði að skrifa sjálfri sér og fjölskyldu sinni til skemmt- unar. Hún sagði sjálf að hún hefði oft óskað þess að hún hefði skrifað minna og lesið meira frá níu til séxtán ára aldurs. Hún var um tvítugt þegar hún hóf að rita Sense and Sensibility (Vit og viðkvæmni), verk sem hún endurskrifaði nokkrum sinnum. Það kom loks út árið 1811. Höf- undurinn var sagður vera „Kona“. Þar segir Austin sögu tveggja systra Elinor Dashwood (vitið) og Marianne (viðkvæmnin) og sögu- þráðurinn byggir á mismunandi vtðbrögðum þeirra gagnvart um- hverfi, vinum og elskhugum. Tveimur árum síðar kom Pride aód Prejudice (Hroki og hleypi- dómar), sem nú er viðurkennt sem besta og vinsælasta verk Jane Austin. Þetta er eina bók Jane Austin sem komið hefur út á ís- lénsku, hjá Máli og menningu árið 1988 í þýðingu Silju Aðalsteins- dóttur. Austin hafði margunnið þá bók, eins og Sense and Sensibility. f upphafi hét verkið First Impressi- on og hún sendi handritið til útgef- anda sem gerði bókmenntunum vísast mikinn greiða þegar hann hafnaði því. Jane Austin lagðist þá í miklar lagfæringar á verkinu og sigldi því örugglega í höfn. Það kom út árið 1813. „Eftir sama höf- und og Sense and Sensibi 1 i ty“ stóð á titilblaðinu. Mansfield Park kom ári síðar og Emma tveimur árum eftir það. Northanger Abbey og Persuasion komu út eftir dauða Jane Austin. Snilldin í einfaldleikanum Söguþráðurinn hefur ekki sér- stakt vægi í bókum Jane Austin. Aðalsöguhetjan í verkum hennar er ung stúlka sem höfundur skilur við eftir að hafa komið henni í örugga höfn hjónabandsins. f bókunum er kastljósinu beint að sambandi stúlkunnar við unnusta, fjölskyldu og vini og þeim misskilningi sem oft rís vegna ólíkra viðhorfa. Þetta eru frásagnir af lágaðli eða milli- stétt sem lifir sínu daglega, tiltölu- lega fábreytta lífi á sveitasetrum. Og þótt eitt og annað bjáti á þá er alltaf von til þess að vinna megi úr því á skynsamlegan hátt. Jane Austin bjó yfir þeirri náð- argáfu að géta skapað meistaraverk úr fremur litlu efni. Það gerast engir stóratburðir í bókum hennar, heldur veitir hún athygli samskipt- um milli einstaklinga og sinnir þar, hinum smæstu þáttum. Hún skrifar af slíkri næmni og skilningi um aðferð, tilgerðarlaus og svo létt að það er eins og hún líði áfram, án nokkurs átaks af höfundar hálfu. Jane Austin bjó yfir þeim hæfi- leika að geta sett athyglisgáfu sína og ríka skynsemi í tilgerðarlausan tjáningarmáta. Og loks bjó hún yf- ir dásamlegri kímnigáfu sem litar öll verk hennar. Ástin í skáldskap, en ekki í lífinu I verkum Jane Austin verður þess vart að þarna fór kona sem taldi að gott hjónaband væri það ákjósanlegasta sem hent gæti ein- >:{■> , ........................... ,:f "CA ;> t V '■ - , .... _ ,■ 'f', • : , ; ' ■"’i . .....,,. . Greer Garson sem Elísabet Bennett og Laurence Olivier sem Darcy í rómaðri kvikmyndaútgáfu af Hroka og hleypidómum frá árinu 1940. Emma Thompson sem Elinor Dashwood í margverðlaunaðri kvikmynd sem byggð er á Sense og Sensibility. Kvikmyndin er líkleg til að laða nýj- an hóp lesenda að verkum Jane Austin. venjulegt fólk að lesandanum finnst eins og á blaðsíðunum sé hann að hitta aldagamla vini. „Að lesa bækur hennar er eins og að lifa,“ sagði George Eliot. „Lesand- inn þekkir persónurnar eins og hann hafi búið með þeim og það er ekki annað hægt en að láta sér þykja vænt um þær.“ Þetta eru persónur fullar af lífi og gallaðar eins og venjulegt fólk jafnan er. Persónurnar draga rang- ar ályktanir, sýna af sér fljótfærni, hroka og heimsku eða aðra lesti, einfaldlega af því þær vita ekki betur þá stundina. Sumar átta sig á mistökunum, aðrar ekki. En hvort sem persónurnar stefna til þroska eða svamla í eigin ófullkomleika þá er hver og ein þeirra dregin svo skýrum dráttum að hún birtist les- andanum ljóslifandi og hann fær ekki ruglað henni saman við aðrar. Svo er hin óþvingaða frásagnar- stakling. Þetta er skoðun sem ein- hverjum kann að þykja gamaldags, en á sér þó örugglega enn marga talsmenn í einstaklingshyggju- brjálæði 20 aldar. Skilaboðin í verkum Jane Aust- in eru þau að ást án gagnkvæms skilnings og skynsemi sé engin ást, heldur einungis duttlungar sem líða hjá og hverfa. Þar er ævinlega ljóst að ástin, sem er það mikil- vægasta í lífinu, fær ekki dafnað nema þeir sem elski geti mæst sem andlegir jafningjar; að raunveruleg ást sé vitsmunaleg en byggist ekki á hrifningu andartaksins. Jane Austin þekkti aldrei ástina sem söguhetjur hennar kynntust svo ríkulega og lengi. Hún var tuttugu og sex ára þegar hún hitti ungan mann sem hreifst af henni og hún af honum. Hann dó skyndi- lega, áður en varanleg kynni höfðu tekist með þeim. Svo virðist sem Jane Austin. Mynd eftir Cassöndru systur hennar. Jane Austin er eitt af stóru nöfnunum í bókmenntasögunni en í lifanda lífi komu einungis út fjórar skáldsögur eftir hana og engin þeirra undir nafni hennar. að hún sæi það á titlinum að þetta væri bók sem væri ekki þessi virði að hún væri lesin. Bróðir Jane Austin sagði eftir dauða hennar að ekkert hefði getað fengið systur hans til að birta sög- ur sínar undir sínu rétta nafni. Hún var vitaskuld kona að skrifa á tím- um þar sem ekki var gert ráð fyrir að konur hefðu sérstaka listræna tjáningarþörf. En það þarf ekki að seilast til slíkra skýringa til afsaka hlédrægni hennar. Þeir sem þrífast á athyglinni og glaumnum og glys- inu sem fylgja því að sjá nafn sitt á prenti við mismerkileg tækifæri, munu vísast seint skilja að öðrum kann að vera lítt í mun að fylgja í fótspor þeirra. Jane Austin kunni vissulega að gleðjast og skemmta sér, en hún var ekki gefin fyrir at- hygli, og hefði hún notið sannmæl- is sem einn fremsti rithöfundur síns tíma þá hefði hún ekki sótt í bókmenntaklúbba Lundúnaborgar. Hún var vön að sitja í setustof- unni á heimili Austin fjölskyld- unnar með töflu á hnjánum og skrifa á hana, það sem hún hafði enga hugmynd um að ættu eftir að verða ódauðlegar bókmenntir. Á kvöldin sat hún fyrir framan arin- inn og saumaði. Skyndilega átti hún til að reka upp skellihlátur, og þjóta að skrifborðinu til að skrifa niður eitthvað sem henni hafði flogið í hug þá stundina. Skriftim- ar voru ætíð skemmtun og ung frænka hennar minntist þess að þegar Jane Austin kom í heimsókn hafði hún venjulega með sér hluta af nýjustu skáldsögu sinni. Hún lokaði sig inni ásamt eldri frænk- um og unga frænka lagðist öfund- arfull og forvitin eyrun við skráar- gatið. Þaðan bárust hlátrasköll kvennanna sem hlýddu á Jane Austin lesa um kostuleg samskipti karlmanna og kvenna. Jane Austin varð ekki langlíf. Þessi hæfileikaríka, geðþekka kona var einungis fjörtíu og tveggja ára þegar hún lést af völdum nýrna- sjúkdóms. Hún þjáðist mjög á banalegunni og þegar Cassandra systir hennar spurði hana hvort hún þarfnaðist einhvers svaraði hún: „Einskis nema dauðans." ■ hún hafi tregað hann mjög og hugsunina um það sem hefði getað orðið. Seinna tók hún bónorði frá efnuðum manni, bróður vinkvenna sinna. Hún játaðist honum í fáti, kannski vegna þess að hún vildi fá að elska og vera elskuð og hélt að þannig gæti samband þeirra hugs- anlega orðið. En þar sem hún elsk- aði hann ekki og var ekki þeirrar gerðar að geta selt sig fyrir efna- hagslegt öryggi, þá tók hún loforð sitt til hans aftur daginn eftir bón- orð hans. Andúð á glaumi og glysi Hún var rithöfundur sem vildi síst af öllu auglýsa sig og verk sín. Örfáir aðilar innan fjölskyldunnar vissu af skáldverkum hennar og Jane Austin lagði ríkt á við þá að tala ekki um þau við aðra. Frænka Jane Austin, sem ekki hafði hug- mynd um bókmenntaafrek hennar, fór eitt sinn með henni í bókabúð og sá þar Pride and Prejudice til sölu. Hún henti bókinni frá sér og sagði við frænku sína, höfundinn,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.