Alþýðublaðið - 26.03.1996, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 1996
s k i I a b o ð
9 Útboð
f.h. Skólaskrifstofu Reykjavíkur, er óskað eftir tilboðum fyrir
grunnskóla Reykjavíkur í akstur með skólabörn á vegum Skólaskrif-
stofu Reykjavíkur.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: miðvikud. 17. apríl n.k. kl. 11:00.
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur, Gatnamálastjóra, Símstöðvarinnar
f Reykjavík, Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Vatnsveitu
Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið: Endurnýjun veitukerfa
og gangstétta 2. áfangi 1996 - Safamýri, Skjól o.fl.
Helstu magntölur eru:
Legnd hitaveitulagna í plastkápu:
Tvöfaltkerfi 1.600 m
Einfaltkerfi 1.900 m
Skurðlegnd 4.400 m
Malbikun 1.450 fm
Steyptar gangstéttir 2.850 fm
Hellulagðar gangstéttir 1.00 fm
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, þriðjud. 26. mars gegn
kr. 15.000 skilatr.
Opnun tilboða: þriðjud. 16. aprfl n.k. kl. 14:00
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur, er óskað eftir tilboðum í verkið'
„Nesjavallavirkjun-lenging vélasala". Verkið felst í lengingu nú-
verandi vélasala. Salirnir eru um 14m há stálgrindabygging klædd
með stálklæðningu.
Verkkaupi leggur til efni í stálklæðningu en verktaki annað efni að
mestu.
Helstu magntölur eru:
Legnd hitaveitulagna í plastkápu:
Gröftur 650 m3
Fylling 350 m3
Steinsteypa 170 m3
Stálgrind 37 tonn
Stálklæðning utanhúss 1.000 m2
Stálklæðning innanhúss 900 m2
Loftræstistokkar 0 250-500 90 m
Verkinu skal lokið fyrir 15. október 1996.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, gegn kr. 25.000 skilatr.
Opnun tilboða: þriðjud. 9. aprfl n.k. kl. 14:00
Hitaveita Reykjavíkur býður væntanlegum bjóðendum til
vettvangsskoðunar á Nesjavöllum þriðjud. 2. apríl n.k. kl.
14:00.
F.h.Gatnamálastjórans í Reykjavík, er óskað eftir tilboðum í
gatnamerkingar. < •: .
Verkið nefnist: Gatnamerkingar 1996.
Helstu magntölur:
Málun akreinalína u.þ.b. 50.000 m
Mössun u.þ.b. 11.600 m2
Sprautumössun akreinalína u.þ.b. 20.000 m
Útvégun massa 20.000 kg
Síðasti skiladagur er 1. október 1996. Útboðsgögn verða afhent á
skrifstofu vorri frá og með mánudeginum 25. mars n.k. gegn 5.000,-
skilatryggingu.
Opnun tilboða: miðvikud. 3. aprfl n.k. kl. 11:00.
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavíkóskað eftir tilboðum í 650 stk.
umferðarmerki.
Verkið nefnist: Umferðarmerki 1996.
Síðasti skiladagur er 1. júlí 1996. Útboðsgögn verða afhent á skrif-
stofu vorri frá og með mánudeginum 25. mars n.k. gegn kr. 5.000,-
skilatryggingu.
Opnun tilboða: miðvikud. 3. aprfl n.k. kl. 14:00.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftir tilboð-
um í utanhúsviðgerðir að Jórufelli 2-12 í Reykjavík.
Helstu magntölur:
Endursteypa 150 m2 Sílanböðun 1280 m2
ílögn í svalagólf 340 m2 Málun 2600 m2
Viðgerð á ryðpunktun 300 stk.
Útboðsgögn verða afhent mánudaginn 25. mars gegn skilatrygg-
ingu kr. 15.000,-. Verkinu á að vera lokið í ágúst 1996.
Opnun tilboða: miðvikud. 10. aprfl n.k. kl. 11:00.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftir tilboð-
um í 2. og 3. áfanga á endurbótum og breytingum á leikskólanum
Ásborg. Um er að ræða 560 m2 húsnæði.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri þriðjud. 2. mars gegn
skilatr. kr. 10.000,-
Opnun tilboða: miðvikd. 17. apríl n.k. kl. 11:00.
F.h. Reykjavíkurhafnar, er óskað eftir tilboðum í dýpkun Sunda-
hafnar.
Verkið nefnist „Sundahöfn - dýpkun" og skiptist í tvo áfanga:
1. áfangi - dýpkun í Kleppsvík. Aætlað efnismagn alls 25.000 m3
2. áfangi - dýpkun í Vatnagörðum. Áætlað efnismagn alls 15.000 m3
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri þriðjud. 26. mars gegn
skilatr. kr. 5.000,-
Opnun tilboða: miðvikud. 17. aprfl n.k. kl. 14:00.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftir tilboð-
um í viðhald loftræstikerfa í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu vorri á kr. 1.000,-
Opnun tilboða: þriðjud. 16. aprfl n.k.kl. 11:00.
INNKAIIPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík
Sími 552 58 00 Bréfsími 562 26 16
E
Landsvirkjun
Útboð
Sandblástur og málun
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í að sand-
blása og mála stálklædda vatnsvegi Steingríms- og
írafossstöðva í samræmi við útboðsgögn SOG-07.
Verkið felst í að sandblása og mála vatnsvegina sem
eru um það bil 2400 fermetrar og útvega í því skyni
og leggja til allt efni og alla vinnu, svo og allt annað
sem þarf til að framkvæma verkið og Ijúka því að
fullu.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með þriðju-
deginum 26. mars 1996 gegn óafturkræfu gjaldi að
upphæð kr. 3.000,—m VSK fyrir hvert eintak.
Tekið verður á móti tilboðum á skrifstofu Landsvirkj-
unar að Háaleitisbraut 68, Reykjavík til opnunar mið-
vikudaginn 10. apríl 1996, kl. 14:00. Fulltrúum bjóð-
enda er heimilt að vera viðstaddir opnunina.
Auglýsing frá
menntamálaráðuneytinu
Styrkir til sumarnámskeiða á dönskum lýðhá-
skólum fyrir íslenska dönskukennara.
Sumarið 1996 veitir danska ríkið 10 íslenskum
dönskukennurum styrk til sumarnámskeiða á dönsk-
um lýðháskólum. Gert er ráð fyrir a.m.k. tveggja vikna
löngu námskeiði.
Styrkir þessir eru fyrst og fremst ætlaðir íslenskum
dönskukennurum sem lokið hafa BA prófi í dönsku,
BEd prófi með dönsku sem valgrein eða hafa sam-
bærilega faglega menntun í dönsku.
Styrkþegar þurfa sjálfir að afla sér skólavistar í dönsk-
um lýðháskólum.
Hver styrkur er að upphæð 3000 danskar krónur og er
ætlaðurtil að greiða námskeiðskostnað.
Umsókn skulu fylgja upplýsingar um fyrra nám og
störf umsækjenda . Jafnframt skal gerð grein fyrir fyr-
irhuguðu námskeiði. Skila skal stuttri skýrslu um
námskeiðið til menntamálaráðuneytisins strax að því
loknu.
Umsóknir um styrkinn fyrir sumarið 1996 skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu
4, 150 Reykjavík fyrir 12. apríl 1996.
Auglýsing frá
menntamálaráðuneytinu
Menntamálaráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar
nokkra styrki frá danska ríkinu sem ætlaðir eru til
skólaheimsókna íslenskra grunn- og framhaldsskóla-
nemenda til Danmerkur vorið 1996.
I Styrkir þessir miðast við nemendur í 8-10 bekk
grunnskóla og nemendur í framhaldsskóla.
II Umsókn skal fylgja ítarleg lýsing á ferðinni og til-
gangi hennar. Þeir skólar sem þegar hafa umtalsverð
bréfaskipti/tengsl við danska skóla skulu að öllu jöfnu
hafa forgang við styrkveitingu. Skólaheimsóknina
skal undirbúa í nánu samráði við skólann sem heim-
sóttur er og skal skrifleg staðfesting frá danska skól-
anum um fyrri tengsl milli skólanna og samvinnu um
skipulagningu heimsóknarinnar fylgja umsókninni.
Einnig skal tilgreina hvort sótt er um styrk til annarra
aðila og þá hverra.
Gert er ráð fyrir að nemendahópurinn dvelji a.m.k.
átta daga í skólum eða fræðsluumdæmum sem hóp-
urinn heimsækir.
III Styrkurinn skal alla jafna miðaður við fasta upp-
hæð á nemanda að hámarki 6 þúsund krónur. Við
styrkveitingu skal miðað við 30 nemendur að hámarki
í hverjum skóla. Að námsferð lokinni ber bæði styrk-
þegum og stjórn þess skóla sem heimsóttur er að
skila skriflegri skýrslu um ferðina. Menntamálaráðu-
neytið ákveður skilatíma skýrslu.
Umsóknir um styrki skulu hafa borist mennta-
málaráðuneytinu fyrir 15. apríl 1996. Nánari
upplýsingar fást hjá menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
í fremri röð frá vinstri standa verð-
launahafarnir Stefán Freyr Guð-
mundsson, Kári Ragnarsson og
Sveinn B. Sigurðsson. í aftari röð
eru þrír af bakhjörlum keppninnar,
Jónas Frímannsson verkfræðingur
hjá ístaki, Birgir ísleifur Gunnars-
son Seðlabankastjóri og Eggert
Briem stjórnarformaður Raunvís-
indastofnunar
■ Stærðfræði
Úrslit í stærð-
fræðikeppni
framhaldskóla-
nema
Laugardaginn 23.mars var haldin
stærðfræðikeppni í Háskóla íslands.
Þar leiddu saman hina stærðfræðulegu
hesta sína 35 ungmenni í úrslitum
Stærðfræðikeppni framhaldskólanna.
Keppni þessi hefur verið haldin í 12 ár
og er opin öllum nemendum fram-
haldsskólanna. Síðastliðið haust mættu
746 nemendur úr 17 skólum til leiks í
forkeppni og unnu 40 þeirra sér rétt til
að taka þátt í úrslitunum nú. Fyrir
keppendur voru lagðar 6 þrautir og
fengu þeir 4 tíma til þass að leysa þær.
Sigurvegari var Kári Ragnarsson, MH.
Hann sýndi töluverða yfirburði í
keppninni og leysti allar þrautimar nán-
ast á fullkominn hátt.
Ursht vom tilkynnt sunnudaginn 24.
mars. í tíu efstu sætunum vom:
1. Kári Ragnarsson MH. 2. Stefán
Freyr Guðmundsson Flensborg. 3.
Sveinn B. Sigurðsson MR. 4. Þórður
Heiðar Þórarinsson MR. 5. Magnús
Þór Torfason MR. 6. Pétur Runólfsson
FSlands. 7. Hannes Helgason Flens-
borg. 8. Þórdís Linda Þórarinsdóttir
MH. 9. Bjami R. Einarsson MH. 10.
Finnbogi Óskarsson Flensborg.
Tíu efstu keppendunum verður boð-
ið að taka þátt í tíundu norrænu stærð-
ffæðikeppninni, sem fram fer 11. apríl
næstkomandi. Að henni lokinni verður
landslið fslands valið, sem keppir á
Ólympíuleikunum í stærðfræði í
Mumbai (Bombay) á Indlandi næsta
sumar. Félag raungreinakennara og ís-
lenska stærðfræðifélagið standa að
keppninni og þjálfa landsliðið. ístak hf.
Steypustöðin hf. veita þremur efstu
keppendum í úrslitakeppninni peninga-
verðlaun og standa straum af kostnaði
við keppnina. Raunvísindastofhun Há-
skólans leggur til aðstöðu og stendur
straum af kostnaði við þjálfun nem-
enda. Menntamálaráðuneytið og Seðla-
banki íslands styrkja landsliðið til Ind-
landsfararinniar.
Ný stjórn
Alþýðuflokksfélags
Kópavogs
Ný stjórn Alþýðuflokksfélags
Kópavogs var kjörin á aðlafundi fé-
lagsins þann 18.
mars síðastliðinn.
Nokkur endumýj-
un var í stjóminni,
meðal annaars nýr
formaður. Stjómin
skipti með sér
verkum á fyrsta
fundi sínum sem
var á sunnudaginn
þann 24. mars og
er hún skipuð sem
hér segir: Magnús
Árni Magnússon
formaður, Loftur
Þór Pétursson
varaformaður, Kristín Jónsdóttir ritari,
Hrönn Hrafnsdóttir gjaldkeri, Hulda
Finnbogadóttir ritstjórnarfulltrúi,
Helga E. Jónsdóttir og Hreinn Hreins-
son meðstjórnendur. Stjórnin hefur
ákveðið að brydda upp á þeirri ný-
breytni að hafa Alþýðuhúsið í Kópa-
vogi opið á laugardagsmorgnum frá
10-12 fyrir gesti og gangandi, auk
þess vitaskuld að viðhalda hinum
vikulegu félagsfundum á mánudags-
kvöldum frá kl. 20:30 - 22.30.
Magnús Árni
Magnússon,
nýr formaður
Alþýðuflokks-
félags Kópa-
vogs.