Alþýðublaðið - 29.03.1996, Síða 8
k *
'mWFILL/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Föstudagur 29. mars 1996
MÞYBUBLMB
50. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Skemmtilegt að strika úttexta
- segir Bragi Ólafsson sem fær um helgina að sjá sitt fyrsta leikrit á sviði
„Ég var sjálfur beðinn að skrifa
auglýsingatexta og mér fannst fyndið
að setja sig í þær stellingar. Svo kom
hitt af sjálfu sér eins og annað sem ég
hef skrifað," segir Bragi Ólafsson um
tilurð einþáttungsins Spurning um
orðalag sem sýndur verður á Leyni-
bamum í Borgarleikhúsinu á laugar-
daginn klukkan fjögur. Bragi segir að
einþáttungurinn sé í aðalatriðum um
tvo vini; smásagnahöfund sem hefur
fengið það verkefni að skrifa auglýs-
ingatexta og verkefnalítinn blaða-
mann, sem reynir að koma vini sínum
til hjálpar í örvæntingafullri leit að að
grípandi auglýsingatexta.
Bragi hefur verið að fást við leik-
ritaskrif síðustu tvö árin en fyrir
skömmu var hljóðritað verðlaunaleik-
rit hans, Sumardagurinn fyrsti, og
verður því útvarpað í næsta mánuði.
Spuming um orðalag er hins vegar
fyrsta verk Braga á sviði.
„Mér finnst mjög skemmtilegt að
skrifa leikrit, rétt eins og mér finnst
skemmtileg að lesa leikrit, maður þarf
þá að geta í eyðumar - fylla inn í á
milli talmálsins,“ segir Bragi og ber
vinnu með leikurum og leikstjóra
góða sögu. „Þá bæði breytist textinn
Reykjavík - Akureyrí
í bakkanum eru begónía,
og ein græn pottaplanta
satínviður).
páskacrýsi
(drekatré eða
Stærri
Þriár plöntur í bakka
Ódýrar
I Páskaskreytin gar
Bragi var beðinn að skrifa auglýs-
ingatexta - svo kom hitt af sjálfu
sér. A.-mynd: E.ÓI.
og það er skemmtilegt að strika út það
sem maður hélt að væri fullkominn
texti,“ segir Bragi.
■ Össur Skarphéðins-
son um framboð
Ólafs Ragnars
Þjóðarsálin
er fljót að
fy ri rgefa
- hef þó ekki gert upp hug
minn, segir Össur
Ossur
Skarphéðinsson:
Mönnum er sér-
lega annt um að fá
sem forseta ein-
stakling sem þeir
geta verið nokkuð
vissir um að engin
hneyksli fylgi.
„Mér Kst afar vel á framboð Ólafs
Ragnars. Ég finn að hann nýtur mikils
stuðnings. Reyndar verð ég var við
ótrúlega mikið fylgi við hann í röðum
Sjálfstæðismanna og finn líka fyrir
nokkxu fylgi við hann innarlega í Al-
þýðuflokknum, þótt ég eigi að sjálf-
sögðu eftir að gera upp hug minn, enda
kann að vera að ekki séu fram komnir
allir þeir írambjóðendur sem slægur er
í,“ segir Össur j
Skarphéðinsson
alþingismaður
er hann er
spurður hvemig
honum lítist á
forsetaframboð
Ólafs Ragnars
Grímssonar.
„ M a r g i r
undrast að Olaf-
ur Ragnar skuh
hafa náð að
vinna sig inn í
hjörtu lands-
manna þar sem
ekki eru nema
örfá misseri síð-
an hann var í
eldlínu pólit-
ískra deilna. Þetta sýnir ekki bara það
að þjóðarsálin er fljót að gleyma og
fyrirgefa, að prestunum frátöldum,
heldur að Ólafur Ragnar býr yfir pólit-
ískum kostum sem sérstök eftirspum er
eftir núna. Það ríkir upplausn í þjóðfé-
laginu vegna átaka innan kirkjunnar.
Mönnum er sérlega annt um að fá sem
forseta einstakling sem þeir geta verið
nokkuð vissir um að engin hneyksli
fylgi. Ólafur er á hinum rétta aldri og
hvað sem mönnum finnst um hann þá
ber hann með sér að vera það sem
Bretar kalla safe pair ofhands.
í þjóðfélaginu er í bili nokkuð frá-
kast ffá hinni alþjóðlegu umræðu sem
til skamms tíma var í brennidepli. Tals-
vert stórir hópar í þjóðfélaginu, einkum
eldra fólk, óttast þá alþjóðlegu þróun,
sem meðal annars Alþýðuflokkurinn
hefur staðið í fylkingarbrjósti fyrir.
Samt vilja menn ekki vera einangrunar-
sinnar. Ölafur Ragnar sameinar þessi
sjónarmið. Annars vegar hefur hann
verið í íylkingarbijósti þeirra sem vilja
ekki of náin tengsl við Evrópu. Engum
blandast þó hugur um að hann er
heimsborgari í bestu merkingu þess
orð. Þar fyrir utan hefur Ólafur gefið
sér mjög gott orð sem erindreki ís-
lenskra fyrirtækja í Austur Asíu. Menn
hafa sannreynt það að tengsl hans við
þjóðarleiðtoga og stjómmálamenn eru
ótrúlega víðtæk," segir Össur Skarp-
héðinsson.