Alþýðublaðið - 10.04.1996, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1996
s k o ð a n i r
MÞYDU6LHDID
21093. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Guð og Tony Blair
Breski Verkamannaflokkurinn er á mikilli siglingu þessi misserin
undir forystu Tony Blair, og ekkert virðist geta komið í veg fyrir að
hann verði næsti húsráðandi í Downingstræti. Breskir kjósendur era vit-
anlega orðnir örþreyttir á íhaldsmönnum sem hafa verið einráðir í ríkis-
stjóm síðan 1979 og hanga nú á völdunum einsog hundur á roði. John
Major hefur ekkert fram að færa og innan íhaldsflokksins er nú hart
deilt um með hváða hætti skuh búast til kosninga. Áhrifamenn í flokkn-
um vilja reyna að kaupa aftur atkvæði millistéttarinnar með skattalækk-
unum, aðrir vilja reyna að lappa uppá heilbrigðiskerfi sem er að hrani
komið.
Tony Blair nýtur vitanlega góðs af þreytu Breta á stjóm Majors og
óeiningu innan Lhaldsflokksins. Honum hefur hinsvegar líka tekist að
breyta ímynd Verkamannaflokksins, færa hann nær miðjunni og róa
inná hefðbundin mið íhaldsmanna. Allan m'unda áratuginn átti Verka-
mannaflokkurinn í miklu tilvistarbasli, og burðaðist enn með erfðagóss
sem flestir aðrir jafnaðarmannaflokkar Evrópu vora löngu búnir að aka
á öskuhaugana. Skýrt dæmi um þetta er sá úlfaþytur sem varð innan
flokksins þegar Tony Blair lagði til atlögu við ævafomt stefnuskráratriði
um þjóðnýtingu. Norrænir jafnaðarmenn afgreiddu slík mál fyrir áratug-
um, en það er ekki fýrren þessi misserin að Tony Blair og „Nýi verka-
mannaflokkurinn" afneita þjóðnýtingu sem trúarbrögðum gærdagsins.
En þótt Tony Blair hafi aukið svo fylgi Verkamannaflokksins að
Ihaldsflokkurinn er aðeins hálfdrættingur í skoðanakönnunum, hefur
hann í reynd sett fátt eitt fram sem hönd á festir. Yfirlýsingar hans era
ákaflega almennar í flestum málum. Hann ætlar að sönnu að stokka upp
í heilbrigðis- og menntamálum; uppræta atvinnuleysi og efla skilyrði
breskra fyrirtækja til að keppa á alþjóðlegum mörkuðum, svo nokkuð sé
nefnt af löngum loforðalista. Ennþá á Tony Blair hinsvegar eftir að út-
skýra hvernig hann ætlar að hrinda öllum áformum sínum í fram-
kvæmd. Það er ekki algerlega að ósekju sem andstæðingar hans segja
að lítil innistæða sé fyrir stóra orðunum.
Um páskahátíðina gáfu Bretar sér í fyrsta skipti í nokkrar vikur tóm
til að rífast um eitthvað annað en kúariðu: Nefnilega þá fullyrðingu
Tony Blair í blaðagrein á páskadag að það færi alls ekki saman að vera í
senn kristinn og stuðningsmaður Ihaldsflokksins. Þessi orð verðandi
forsætisráðherra Bretlands vöktu sannarlega storm í mörgum breskum
tebollanum. Ekki að ástæðulausu: Það er fátítt í seinni tíð að stjómmála-
menn í lýðræðisríkjum Evrópu telji ástæðu til að blanda guði inn í póht-
íska umræðu. Orð hins verðandi forsætisráðherra þóttu einnig til marks
um hroka og yfirlæti - en hingað til hefur Blair reynt að byggja ímynd
sína á hinu gagnstæða. Eftir stendur að umheimurinn veit ennþá næsta
lítið um þá pólitík sem Tony Blair ætlar að reka sem forsætisráðherra
Breta. Og meira að segja er óvíst hvort liðveisla guðs dugar til að hið
hrömandi heimsveldi rétti úr kútnum.
90 prósent gegn
æviráðningu
I nýrri skoðanakönnun GaUup kemur ffam að 90 prósent Islendinga
vilja afnema æviráðningu opinberra starfsmanna. Innan við fimm pró-
sent vilja halda sig við núverandi fýrirkomulag. Þetta era skýr og af-
dráttarlaus skilaboð til Alþingis, en þar hafa menn tekist á um framvarp
um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Ýmislegt er athugavert
við framvarpið, en um það verður tæpast deilt að afnám æviráðningar
opinberra starfsmanna er þjóðþrifaverk.
Æviráðning opinberra starfsmanna er rándýr tímaskekkja. Ógjöming-
ur er að reikna út hvað vitlausar mannaráðningar í mikilvæg embætti
hafa kostað þjóðarbúið. Æviráðningin hefur þýtt að ekki hefur verið
unnt að leiðrétta mistök í mannaráðningum, og fyrir vikið höfum við
setið uppi með marga óhæfa embættismenn áratugum saman. Þá er ævi-
ráðning ekki beinh'nis til þess fallin að menn leggi sig alla fram í starfi.
Hin síðari misseri hafa sjónir manna beinst að því að ffamleiðni á ís-
landi er í engu samræmi við það sem gerist í nágrannalöndunum. Þetta
er ein af helstu skýringunum á lágum launum hérlendis, og nokkuð sem
verður að taka á ef Islendingar ætla að vera í fremstu röð á nýrri öld.
Einn liður í nýsköpun atvinnulífs á Islandi felst í uppstokkun í opinbera
geiranum. Afnám æviráðningar er þar mikilvægt skref sem þjóðin er
einhuga um að stíga. ■
Með hvaða liði heldur
Olafur Ragnar?
Einhver dýrlegasta sjón allrar
Páskahátíðarinnar var svipmynd í
sjónvarpsfréttum af Ólafi Ragnari og
Búbbu þarsem þau sátu í Hallgríms-
kirkju og hlýddu á lestur Passíusálma.
Ólafur Ragnar hefur hingað til meir
hugað að fremd þessa heims lífs en
dýrð annars heims fagnaðar, en Einar
Karl Haraldsson, sóknamefndarmaður
í Hallgrímskirkju og brottflæmdur
framkvæmdastjóri Alþýðubandalags-
ins, hefur greinilega stefnt hinum
gamla leiðtoga sínum til kirkju - hvort
sem það var nú til að hitta guð eða
sjónvarpsvélar.
Einsog gengur |
Hrafn
Sá maður íslenskur sem kemst næst því að
hafa verið félagi í öllum stjórnmálaflokkum
heldur auðvitað líka með öllum íþróttafélög-
um landsins. Þessvegna klappaði Ólafur Ragn-
ar allan tímann í Höllinni á föstudaginn langa.
segir: ,Ég hef mikla trú á íþróttum...
En ég hef ekki haldið með neinu fé-
lagi umfram annað til fram til þessa.“
Ekki láta ykkur detta í hug að Guð-
rún Agnarsdóttir fari að halda með
einhverju félagi á næstunni. Hún á
sameiginlegt með Guðrúnu Péturs-
dóttur og Guðmundi Rafni Geirdal að
tilheyra þeim smásjártæka hópi Is-
lendinga sem ekki heldur með neinu
sérstöku félagi. (Guðrún Péturdóttir
lét þess hinsvegar getið að hún héldi
með íslenska landsliðinu þegar það
keppti við útlendinga. Ágætt að hafa
það þó allavega á hreinu.)
En svo var það fegurðin. Guðrún
Agnarsdóttir þarf á stílfræðingi, hug-
myndafræðingi og ræðuskrifara að
halda, ætli hún ekki að fara algera
sneypuför í kosningunum. Aðspurð
um fegursta stað sem hún hefur komið
á svarar hún: „Fegurðin er margbreyti-
leg og staðimir margir sem em fagrir.
Eg hef víða farið um heiminn, en það
er erfitt að benda á einn stað...“ Uff.
Guðrún Pétursdóttir sleppur betur
þegar hún segir að víða á Vestijörðum
sé óhemjufallegt en Guðmundur Rafn
Geirdal sker sig úr: Klettafjöllin í Kó-
lóradó, takk fyrir.
Þær nöfnur em á svipuðum slóðum
í svömm við spumingum um eftirlæt-
ismat og hvernig þær myndu verja
óvæntum frídegi. Islenskur fiskur -
hvað annað? - er besti matur í heimi.
Frídeginum ætla þær báðar að verja
úti í náttúrunni með fjölskyldunni.
Enn er Guðmundur Rafn einn á báti:
Hrísgrjón em hans eftirlæti og hann
myndi ekki hreint ekki verja frídegi í
náttúruskoðun, heldur innri skoðun,
hugleiðslu. (Hann hefur líka kjark til
að segja að hann hlusti lítið á tónlist
og hafi engan áhuga á myndlist.
Uppáhaldshöfundurinn er hinsvegar
enginn annar en Albert Einstein.)
Ætli frambjóðendur líti almennt á
það sem skilyrði þess að ná kjöri sem
forseti íslenska lýðveldisins að losa
sig við allar skoðanir, kveða niður
sjálfstæða hugsun og álit en verða
þess í stað einhver allsherjar þver-
summa af skoðunum kjósenda? Ein-
hver hlýtur skýringin að vera á útvötn-
uðum svömm við einföldum spurn-
ingum. Ef forsetaframbjóðandi segist
halda með KR, munu þá Valsarar ekki
kjósa viðkomandi? Ef Guðrún Agn-
arsdóttir segir að Einar Kárason sé
mestur rithöfundur á fslandi mun þá
aðdáendaklúbbur Vigdísar Grímsdótt-
ur snúa sér að Guðrúnu Pétursdóttur?
Ólafur Ragnar Grímsson er eldri en
tvævetur í pólitík. Hann hefði svarað
spumingum Tímamanna af einurð og
festu. Þeim er hinsvegar vorkunn, þótt
erfiðlega hafi gengið að hafa hendur í
hári á hinum ljóshærða draumi vors-
ins. Dagskráin hjá Ólafi Ragnari og
Búbbu (en þau em saman í framboði,
sem kunnugt er) var til dæmis býsna
ströng á föstudaginn langa. Eftir að
hafa hlustað á tuttugu Passíusálma eða
svo sást næst til okkar manns í Laug-
ardalshöll þarsem KA og Valur
þreyttu síðasta leikinn um fslands-
meistaratitilinn í handbolta.
Með hvetjum hélt Ólafur Ragnar?
Sá maður íslenskur sem kemst næst
því að hafa verið félagi í öllum stjóm-
málaflokkum heldur auðvitað líka
með öllum íþróttafélögum landsins.
Þessvegna klappaði Ólafur Ragnar
allan tímann í Höllinni á föstudaginn
langa. ■
Jökulsson
skrifar
En ég saknaði Ólafs Ragnars úr
Tímanum á fimmtudaginn. Þá vom
fimm spumingar lagðar fyrir þtjá for-
setaframbjóðendur, en sagt að ekki
hefði náðst í Ólaf Ragnar. Þessvegna
fengum við bara svör Guðrúnar Agn-
arsdóttur, Guðrúnar Pétursdóttur og
Guðmundar Rafns Geirdals. Þunnur
þrettándi: eða hefur ekki Ólafur Ragn-
ar meira fylgi en þau samanlagt (og
eins þótt þessum tveimur prósentum
Davíðs sé bætt við)?
Yfirskrift Tímagreinarinnar var
„Hin hliðin á forsetaframbjóðendun-
um“ og spumingamar vom svohljóð-
andi: Hver er eftirlætis rithöfundurinn
þinn, tónlistarmaðurinn og myndlist-
armaðurinn? Er einhver matur í sér-
stöku uppáhaldi hjá þér? Ef þú fengir
óvæntan frídag, hvernig myndir þú
veija honum? Með hvaða íþróttafélagi
heldur þú? Hver er fallegasti staður
sem þú hefur komið á?
Kannski finnst einhveijum að þetta
séu heldur ómerkilegar spurningar,
jafnvel ekki samboðnar verðandi for-
seta lýðveldisins. Öðra nær. Það em
svör við svona spumingum sem ein-
mitt vaipa ljósi á persónuleika manna.
Dæmi: Eg þekki Guðrúnu Agnarsdótt-
ur ekki nokkurn skapaðan hlut per-
sónulega og hef hingað til ekki haft
sérstaka skoðun á henni. Svör hennar
við hinurn einföldu spumingum koll-
ega minna á Tímanum vom hinsvegar
þess eðlis að ég lét eftir mér að koma
mér upp skoðun á Guðrúnu Agnars-
dóttur.
Um listina sagði hún: „Ég á svo
marga eftirlætishöfunda, eftirfætistón-
skáld og eftirlætismyndlistarmenn. ...
Ég les mikið og hlusta mikið á tónlist
og hef líka mikla ánægju af myndlist."
Er einhver einhveiju nær? Nei, ekki
að öðm leyti en því að forsetafram-
bjóðandinn er einsog útspýtt hund-
skinn að lesa, hlusta og skoða.
Svo er það spurningin um uppá-
halds íþróttafélagið. Þetta er einföld
spurning og vefst áreiðanlega ekki
fyrir neinum nema forsetaframbjóð-
endum (samanber spumingu dagsins
hér í opnunni). Guðrún Agnarsdóttir
Atburðir dagsins
1663 Bananar á boðstólum í
breskum búðum í fyrsta skipti.
1809 Austurríki lýsir stríði á
hendur Frökkum. 1864 Max-
imilian erkihertogi af Austur-
ríki verður keisari í Mexíkó.
1886 Magnús Stephensen skip-
aður landshöfðingi á íslandi.
1940 Alþingi samþykkir að
fela ríkisstjórninni meðferð
konungsvalds eftir innrás Þjóð-
veija í Danmörku. 1991 Georg-
ía lýsir yfir sjálfstæði sínu, síð-
ast Sovétlýðvelda.
Afmælisbörn dagsins
William Booth 1829, stofn-
andi Hjálpræðishcrsins. Joseph
Pulitzer 1847, bandarískur
blaðaútgefandi sem stofnaði til
samnefndra verðlauna sem
veitt eru fyrir afrek f frétta-
mennsku og bókmenntum.
Max von Sydow 1929, sænsk-
ur leikari sem bæði hefur leikið
í myndum Ingmars Bergmans
og í Hollywood. Omar Sharif
1932, egypskur kvikmynda-
leikari.
Annálsbrot dagsins
Fellivetur mikill og snjóa. Kom
góður bati á páskadaginn, og
var hálfa aðra viku. Síðan kom
hafís með miklum kuldum. Féll
margt af fátækum mönnum.
Skarðsannáll 1566.
Málsháttur dagsins
Illt er að pína sýknan til sagna.
Drykkur dagsins
Margir Islendingar eru mjög
hreyknir og þóttafullir og þá
einkum af líkamsburðum sín-
um. Eg sá einn íslending taka
upp Hamborgartunnu fulla af
bjór, bera hana að vörum sér
og súpa af. Varð honum ekki
meira um þetta en hefði hann
lyft einhverju lítilræði.
Dithmar Blefken, íslandsfari, árið
1563.
Orð dagsins
Mér hcfir lífið opnað und
enn með kvölum sárum.
Þornað blóð af þreyttri mund
þvœ eg burt með tárum.
K.N.
Skák dagsins
Rússneski stórmeistarinn Efim
Geller var á sjöunda áratugn-
um einn af sterkustu skák-
mönnum heims. Við skoðum
nú endalok skákar sem tefld
var í Reykjavík árið 1990.
Geller hcfur hvítt og á leik
gegn Howell.
Hvítur leikur og viitnur.
1. Bxb7+! Hxb7 2. Hc8+ Hb8
3. Df3+ og mátið er á næsta
leiti.