Alþýðublaðið - 10.04.1996, Qupperneq 8
V *
XWREVF/i//
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Miðvikudagur 10. apríl 1996
mUBLiiBID
53. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
■ Slysavarnarfélagið sker upp herör gegn tíðum slysum sjómanna
Þrjúhundruð slys
á ári í smábátum
Guðjón Ingi Sigurðsson: „Þó ótrúlegt sé, þá er minna um slys á mönnum sem eru að byrja til sjós en þeim sem
eru búnir að vera lengi til sjós."
„Astæðan fyrir því að við förum af
stað með átakið eru tíð slys í smábát-
um og í höfnum. Með þessu átaki er-
um við að höfða til sjómanna, útgerð-
arinnar og til almennings," segir Guð-
jón Ingi Sigurðsson formaður björg-
unarsveitarinnar Sigurvonar í Sand-
gerði í samtali við Alþýðublaðið. Nú
stendur yfir forvamarátak á vegum
Slysavarnarfélags Islands þar sem
hugað er að öryggismálum sjómanna
á smábátum og almennu öryggi við
haíhir landsins.
Guðjón segir láta nærri að um þrjú
hundruð slys verði á ári í smábátum,
misalvarleg, og um þrjú banaslys í
höfhum. Hann segir öryggismál í smá-
bátum vera víða í ólestri. „Öryggis-
búnaður er mjög dýr, sérstaklega gall-
amir, menn hafa hreinlega ekki efni á
því að fá sér þá. Einnig má kenna um
gáleysi á sjó og því miður held ég að
menn séu stundum ekki vakandi fyrir
því sem þeir em að gera. Þó ótrúlegt
sé, þá er minna um slys á mönnum
sem em að bytja til sjós en þeim sem
em búnir að vera lengi til sjós. Þeir
sem em vanir verða oft óvarkárir og
hugsa ekki um alvöru málsins í sama
mæli og þeir sem eru að byrja til
sjós,“ segir Guðjón.
Guðjón segir að öryggi í höfnum sé
mjög ábótavant. Einn liður í átakinu
snýr að því að efla öryggi bama sem
sækjast eftir að leika sér við hafnir.
„Þar leggjum við megináherslu á
notkun björgunarvesta. Sums staðar
fara böm ekki út á hafnir öðmvísi en í
vestum. í Sandgerði hafa hafnarverð-
imir verið mjög samviskusamir í því
bjóða bömum upp á vesti. Krakkamir
em að sama skapi mjög samviskusam-
ir og taka tillit til þess og fara ekki út á
hafnirnar án þess að koma við hjá
þeim og fá vesti. Við hvetjum menn
til að huga að þessum málum,“ sagði
Guðjón Ingi Sigurðsson.
Guðjón Ingi Sigurðsson formaður björgunarsveitarinnar Sigurvonar í
Sandgerði: Öryggisbúnaður er mjög dýr, sérstaklega gallarnir, menn hafa
hreinlega ekki efni á því að fá sér þá.
Ný Ijóðabók
eftir Matthías
Johannessen
Út er komin, hjá Hörpuútgáfunni,
sautjánda ljóðabók Matthíasar Jo-
hannessen og ber hún heitið Vötn þín
og vœngur. Bókin er meðal stærstu
og veigamestu ljóðabóka Matthíasar
og sú bók hans sem sýnir einna best
helstu yrk-
isefni hans
og listræn
tök. Skiptist
bókin í átta
flokka sem
nefnast:
Um vind-
heim víðan,
Hugmynd
okkar um
jörð, Inní
einn draum,
Vötn þín og
vængur,
Huldunnar
rísandi dagur, „Hið eilífa þroskar
djúpin sín“, í nærvem tímans og
Kumpánlegt olnbogaskot.
A bókarkápu segir meðal annars
þetta um skáldskap Matthíasar: „f til-
raunum Matthíasar með málið sjálft
má greina tvískipta afstöðu hans til
hefðarinnar. Þrátt fyrir allan sinn
módemisma færir hann sér í nyt
gömul stflbrögð, einkum kenningar
fomkvæðanna, sem hann umskapar
og gefur nýtt líf.“
■ Sjónþing Hafsteins
Austmanns í Gerðubergi
Alltskilar
sér í
afstrakt
-segir Hafsteinn
Austmann listmálari
Næstkomandi laugardag mun list-
málarinn Hafsteinn Austmann sitja
fyrir svömm á Sjónþingi í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi og rekja
lífshlaup sitt og feril fyrir opnu húsi
en spyrlar á Sjónþingi em að þessu
sinni myndlistarmennirnir Haraldur
Jónsson og Kjartan Guðjónsson.
Hafsteinn mun sama dag opna yfir-
litssýningu í Gerðubergi en á sunnu-
daginn verður opnuð sýning á nýrri
verkum Hafsteins á Sjónarhóli við
Hverfisgötu. Þess má einnig geta að
nú eru liðin 40 ár frá því Hafsteinn
hélt sína fyrstu einkasýningu í
Listamannaskálanum við Austur-
völl.
Sagt hefur verið um Hafstein að
hann sé að vissu leyti síðasti móhík-
ani harðlínu-afstraktsins hérlendis,
því enginn hefur haldið meiri trú-
festu við þá stefnu allt frá byrjun en
hann. Hafsteinn telur þó ekki að al-
þjóðlegir straumar hafi átt mestan
þátt í að móta list sína, heldur sveit-
in á Gilsbakka í Hvítársíðu: „Það
kann að vera að svo ungur maður
hafí þá áttað sig á að töfrar náttúr-
unnar verða varla festir á léreft. Það
er svo ótal margt sem opinn hugur
finnur og skilur. Fuglasöngurinn,
lyktin, ámiðurinn verða seint fest á
mynd. Og þessi sérkennilega kyrrð
morgunsins. En allt skilar þetta sér í
afstrakt málverki þegar best tekst
til,“ segir Hafsteinn.
Hafsteinn Austmann rekur lífshlaup sitt og feril og situr fyrir svörum Har-
aldar Jónssonar og Kjartans Guðjónssonar.
■ Málstofa um börn
og bækur
Breytt
ímynd
barnsins í
bókum
Málstofa um böm og bækur verður
haldin laugardaginn 13. apríl klukkan
14 í Odda, húsi félagsvísindadeildar
Háskóla íslands í stofu 101. Málstof-
an er haldin á vegum félagsvísinda-
deildar Háskóla Islands og Barna-
bókaráðsins, fslandsdeildar IBBY.
A dagskrá verður fyrirlestur dr. Je-
an Webb frá Bretlandi um breytta
ímynd barnsins í bamabókum. Auk
þess ílytja erindi dr. Ragnheiður Bri-
em sem fjallar um fyrstu skref í ís-
lenskukennslu ungra bama, Silja Að-
alsteinsdóttir fjallar um röddina í
barnabókinni, Aðalsteinn Asberg
Sigurðsson segir frá viðhorfum
bamabókahöfunda, Hildur Hermóðs-
Ólína Þorvaröardóttir ræðir gildi
þjóðsagna fyrir börn. Hún gaf út
nú fyrir jólin úrval þjóðsagna.
dóttir skoðar bamabækur frá sjónar-
hóli útgefenda, Ólína Þorvarðardóttir
ræðir gildi þjóðsagna fyrir böm og
Ragnheiður H. Þórarinsdóttir flytur
erindi um stöðu barnamenningar.
Fundarstjóri verður dr. Sigrún Klara
Hannesdóttir.
■ Guðrún Pétursdóttir unir vel sínum hlut í skoðanakönnun Hagvangs og Guðrún
Agnarsdóttir kveðst bjartsýn þráttfyrir aðeins 13,4 prósenta stuðning
Ékki marktæk skoðanakönnun
- segir Guðrún Agnarsdóttir. „Áhugavert að Ólafur Ragnar nýtur meira fylgis en aðrirframbjóðendur".
,Úg held að ég megi una vel mínum
hlut á þessu stigi málsins. Ég fagna
sérstaklega fylgi unga fólksins," segir
Guðrún Pétursdóttir lífeðlisfræðingur
og forsetaffambjóðandi um niðurstöð-
ur skoðanakönnunar Hagvangs. Þar
kemur fram að 27,9 prósent þeirra
sem afstöðu taka styðja hana sem
næsta forseta. Guðrún hefur mest fylgi
allra hjá fólki á aldrinum 18 til 29 ára,
31,9 prósent. Guðrún kvaðst fagna því
hversu góðar undirtektir framboð sitt
hlyti úti á landi og sagði: „Enn er mik-
ið starf óunnið og kosningabaráttan
varla hafin.“
„Ég held að það sé ekki mikið að
marka þessar skoðanakannanir ennþá
á meðan kynning er varla farin í gang
og ekki er ljóst hveijir verða í fram-
boði,“ segir Guðrún Agnarsdóttir
læknir og forsetaframbjóðandi og
bendir á að hún hafi til dæmis ekki
hafið kynningu ennþá. „Ég er bara
bjartsýn og bíð þangað til kosninga-
baráttan hefst. En þessar tölur eru auð-
vitað athyglisverðar og segja mér að
það er verk að vinna. Það er eðlilegt
að þeir sem hafa verið að kynna sig í
talsverðan tíma fái byr og svo er
greinilegt að Ólafur Ragnar nýtur
þama meira fylgis en aðrir frambjóð-
endur og það er áhugavert," segir
Guðrún.
Guðrún Pétursdóttir: Ég fagna sér-
staklega fylgi unga fólksins.
Guðrún Agnarsdóttir: Þessar tölur
segja mér að það er verk að vinna.