Alþýðublaðið - 11.04.1996, Page 8
<£þccf«r íslenski ostunnn er kom 'mn á
ostabakkann, fegar hann kórónar mataraerdina
- brreWur er)a d/úpsteiktar - eda ec einf}atdtecja
seltur
t munnutn
(dslmskur (dffeta
l knjddoTíit
Frábær með fersbu salati
og sem snarl.
ostababbann og með
feexi og évöxtum.
(dþónÓa <g%rie
Með feexinu. brauðinu og
ávöxtunum. Mjög góður
djúp- eða smjörsteibtur.
0ceuucmf)one
Góður einn og sér og
tilvalinn i matargerðina.
dplvítur /casla/i
Með fersfeum ávöxtum
eða einn og sér.
c(óamembert
Einn og sér, á ostabafefeann
og í matargerð.
(dJljómaostuc
Á bexið. brauðið.
í sósur og ídýfur.
@)tort -^fJmton
Ómissandi þegar vanda
á til veislunnar.
Jdíuxttstjr/a
Mest notuð eins og hún feemur fyrir
en er einfear góð sem fylling í bjöt- og
fisferétti. Bragðast mjög vel djúpsteifet.
DlHON
...
oPort <d)atut
Bestur með ávöxtum, brauði
og feexi.
fjrádaostur
Tilvalinn til matargerðar - í súpur.
sósur eða til fyllingar í bjöt- og
fisferétti. Góður einn og sér.
<£Pepf)eroneostur
Góður í ferðalagið.
(jptvítlauks £Pri
Kærfeominn á
ostabafebann, með bexi.
brauði og ávóxtum.
ÍSLENSKIR
^ElNASfy
Séra Ragnar Fjalar á sjálfur tvö af 40 eintökum Þorláksbiblíu sem til eru á
íslandi, og hefur skoðað eintakið sem nú er til sölu í Noregi. A-mynd: E.ÓI.
■ Eintak af Þorláksbiblíu, sem gefin var
út á Hólum árið 1644, til sölu í Noregi á
ríflega hálfa milljón
Fyrir 35 árum
dugði andvirði
biblíunnar fyrir
kjallaraíbúð
- en nú fæst ekki einu sinni Skódi fyrir hana, segir Bragi
Kristjónsson fornbókasali. Séra Ragnar Fjalar Lárusson: 40
Þorláksbiblíurtil á íslandi, en tæplega margar í útlöndum.
„Ég hef séð þetta eintak. Það er
alveg þokkalegt en vantar að vísu í
það aftasta blaðið. Sú er raunin
með sum eintök Þorláksbiblíu,"
sagði séra Ragnar Fjalar Lárusson
prófastur í samtali við Alþýðublað-
/ð í gær. I nýjum sölulista norska
fyrirtækisins Damms Antikvariat
er boðin til sölu Þorláksbiblía sem
prentuð var á Hólum árið 1644.
Uppsett verð er 50 til 60 þúsund
krónur norskar, eða allt að 600
þúsund krónum íslenskum. Þor-
láksbiblía er næstelst íslenskra
biblía, aðeins Guðbrandsbiblía er
eldri.
Séra Ragnar Fjalar þykir mestur
sérfræðingur landsins í útgáfusögu
á íslenskum biblíum, og sagði
hann að 40 eintök Þorláksbiblíu
væru til á íslandi; sjálfur á hann
tvö. Hann kvaðst ekki telja að
mjög mörg eintök væru til í út-
löndum, enda hefðu útlenskir efna-
menn sem ferðuðust um fsland fyrr
á tímum fremur sóst eftir Guð-
brandsbiblíu. Af henni eru aðeins
til 30 eintök á íslandi. Verðmæti
Guðbrandsbiblíu er um ein milljón
króna, að sögn séra Ragnars Fjal-
ars.
Hann sagði að norsku bóka-
höndlararnir hefðu lækkað nokkuð
verð Þorláksbiblíunnar, síðast
hefði hún verið boðin á 75 þúsund
krónur norskar. „Ég hygg að það
ætti að vera hægt að ná verði þessa
eintaks niður í 50 þúsund krónur
norskar eða 55 þúsund í mesta
lagi. Það væru þá ágæt kaup,“
sagði hann.
En þótt ýmsum vaxi sjálfsagt í
augum að snara út hálfri milljón
fyrir þrjú hundruð og fimmtíu ára
gamla biblíu kom Bragi Kristjóns-
son fornbókasali í Bókavörðunni,
Vesturgötu 17, með dæmi um
gengisfall guðsorðs á síðustu ár-
um: „Fyrir svona 35 árum var hægt
að kaupa ágæta kjallaraíbúð fyrir
andvirði Þorláksbiblíu. Nú dugar
það ekki einu sinni fyrir Skóda,“
sagði Bragi í samtali við blaðið.
En þótt hinn forni kjörgripur hafi
þannig fallið mikið í verði frá því
sem áður var er ævinlega nokkur
eftirspurn. Bragi segir að Þorláks-
biblía sé auðveld f sölu, og að-
spurður um íslenska kaupendur
sagði hann: „Það eru til svona
leynimenn ennþá sem hafa áhuga,
einn og einn stöndugur karl eða
kerling, sem langar í þessar bækur
af einhverjum tilfinningalegum
ástæðum."
Bragi sagði að norska fyrirtækið
sem nú býður Þorláksbiblíu ásamt
ýmsum öðrum íslenskum guðs-
orðabókum og gömlum útgáfum
norræna fornbókmennta væri sú
verslun á Norðurlöndum sem einna
best byggi að íslensku efni. „Þetta
er gömul og snobbuð búð. Þeir
kaupa aðallega á uppboðum í Evr-
ópu. Margar gamlar íslenskar bæk-
ur eru í söfnum aðalsmanna sem
kannski lenda á uppboði í ein-
hverju smáþorpi í Þýskalandi. Þar
eru útsendarar frá þessu fyrirtæki
vel á verði."