Alþýðublaðið - 10.05.1996, Side 5
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
ást & skák
Hardy ásamt seinni eiginkonu sinni, Florence, og hin sérvitra Emma sem sakaði hann um illsku og mannfyrirlitn-
ingu.
■ Útgáfa á bréfum eiginkvenna Thomasar Hardys varpar nýju
Ijósi á einkalíf rithöfundarins
Bitrar eiginkonur
og bréfaskrifti r
Nýleg útgáfa á bréfum Emmu og Florence Hardys, fyrri
og seinni eiginkonu Thomasar Hardy, varpar nýju ljósi
á einkalíf breska rithöfundarins. Svo virðist sem hjóna-
böndin hafi einkennst af afbrýðiköstum, miður geðsleg-
um uppákomum og bijálæði. Þessir þættir, sem gera líf
einstaklinga nánast óbærilegt, voru Hardy uppspretta
sköpunar og eru fyrirferðarmiklir í bestu skáldsögum
hans, eins og Tess og Jude the Obscure.
Bréfin varpa ljósi á mögnuð
átök, ofsafull rifrild og langvinnar
fjölskyldudeilur. Sjö binda útgáfa á
bréfum Hardys birtir allt aðra og
friðsælli mynd. Þar gerir rithöfund-
urinn aðeins einu sinni að umtals-
efni, og þá undir rós, erfiðleika í
fyrra hjónabandi sínu og þá sektar-
kennd sem fylgdi honum inn í
seinna hjónabandið. Ef Hardy
hefði fengið að ráða hefði heimilis-
erjunum verið haldið leyndum fyrir
umheiminum, en eiginkonurnar
gerðu sér aðrar hugmyndir.
Dr. James Gibson, einn af ævi-
sagnariturum Hardys segir bréfin
auka mjög skilning á einkalífi Har-
dys. Um eiginkonurnar segir Gib-
son: „Persónulega hefði ég ekki
kunnað við þær, nema kannski
Emmu þegar hún var ung og full af
lífsþrótti. Það var vitað að fyrra
hjónabandið var afar óhamingju-
samt; nú fáum við skýrari mynd af
því hvers eðlis þessi óhamingja var
og hvernig hún skapaðist."
Hardy hitti Emmu árið 1874.
Tveimur áratugum seinna var
hjónabandið komið í hundanna.
Astæðurnar eru óljósar en eðlileg-
ast virðist að ætla að meginskýr-
inganna sé að leita í fjöllyndi Har-
dys og erfiðu skapferli Emmu.
Þegar ung brúður spurði Emmu eitt
sinn hvers hún mætti vænta í
hjónabandinu sagði Emma, og virt-
ist tala af eigin reynslu, að hún
skyldi ekki vænta „þakklætis né at-
hygli, ástar né réttlætis, eða nokk-
urs annars sem þú óskar þér.“
í bréfi árið 1896 skeytir Emma
skapi sínu á systur Hardys: „Ég
mana þig eða nokkurn annan til að
bera út lygasögur af mér, eins og
þær að ég hafi reynst bróður þfnum
illa. Bróðir þinn hefur verið mér
svívirðilega vondur - og það er
eingöngu þín sök. Þú hefur ætíð
verið óvinur minn og algjörlega af
tilefnislausu. Þú ert líkust norn og
líkleg til að óska öðrum ills og
spreða út róg. Ég get ímyndað mér
þig, móður þína og systur, uppi á
heiði að magna upp storm. Þú hef-
ur valdið óbætanlegum skaða en nú
hefur verið bundinn endi á vald
þitt.“
Florence, ungur blaðamaður hjá
London Evening Standard, bjó árið
1910 á heimili þeirra hjóna. Hún
var mikill aðdáandi Hardys og
trúnaðarvinur Emmmu en yfirgaf
heimilið eftir að hafa blandast í
rifrildi hjónanna.
Florence hélt vináttu sinni við
Emmu en um þetta leyti var hún
mjög sennilega orðin ástkona Har-
dys. Emma átti ekki langt eftir ólif-
að og hin unga Florence bjó sig nú
undir að taka sæti hennar í lífi rit-
höfundarins. Bréf Florence til
Emmu eru varfærnisleg og kurteis-
leg, meðan bréf Emmu eru full af
nöprum athugasemdum um rithöf-
undinn sem hún sakaði um illsku,
eigingirni og mannfyrirlitningu.
Geðheilsa Emmu var á þessum
tíma orðin æði tæp. Hún lést árið
1912 og tveimur árum síðar giftist
Florence Hardy og þau voru gift
allt til dauða hans árið 1928.
Lífið með Hardy reyndist Flor-
ence ekki auðvelt. Síðasta stórorr-
usta hennar var við Gertrude Bugl-
er, fagra leikkonu, sem Hardy
hreifst ákaflega af þegar hann sá
hana á sviði í leikritum byggðum á
verkum hans.
í bréfunum kemur fram að Flor-
ence gerði ákafar tilraunir til að
koma í veg fyrir að Bugler léki
hlutverk Tess á sviði, þótt hinn ást-
fangni Hardy liti svo á að hún væri
fullkomin í hlutverkið. Þegar Bugl-
er gerði tilraun til að heimsækja
Hardy á heimili hans sendi Flor-
ence hana burt. „Dama heimsækir
ekki herramann óboðinn," sagði
hún. „Ef þú ert í viðskiptaerindum
skal ég annast málið persónulega."
Simon Curtis, einn Hardy-sér-
fræðinga heimsins, segir að það
hafi ekki verið auðvelt að búa með
rithöfundinum. „Hann leitaði skjóls
frá tilfinningastormunum, flúði inn
í vinnustofu sína og sökkti sér nið-
ur í skrif sín. Það hefur ekki komið
sér vel fyrir sambönd hans við eig-
inkonurnar en kannski ætti um-
heimurinn að vera honum þakklát-
ur fyrir að hafa einmitt brugðist
þannig við.“ ■
■ Tölvur og skák hafa lengi átt í vellukkuðu ástarsambandi
og með tilkomu Netsins er sambandið jafnvel enn nánara.
Alþýðublaðið ræddi við Helga Ólafsson stórmeistara um
tölvur, skák og Netið og komst meðal annars að því að skák
er besta aðferðin til að mæla gervigreind
Tölvur að öðlast innsæi?
Það vakti heimsathygli þegar Ka-
sparov tefldi ekki alls fyrir löngu við
tölvuna Deep Blue og tapaði. Aldrei
áður hafði tölva unnið heimsmeistar-
ann og sjálfur hafði Kasparov sagt að
það yrði í fyrsta lagi árið 2010 en
sennilega aldrei. Hann gekk sigurviss
til leiks og krafðist þess að vinningsféð
rynni óskipt til sigurveg-
arans. Eftir sigur tölvunn-
ar í fyrstu skákinni vakn-
aði því sígild spurning:
Getur tölvan þá hugsað?
Því nær sem þessi vél,
sem virðist sálarlaus,
kemst í að gera eins og
við mennimir - að hugsa
- því auðveldara verður
að ímynda sér manneskj-
una sálarlausa.
Helgi Ólafsson stór-
meistari sagði fyrst frá
hvað hefði gerst í einvígi Kasparovs og
Deep Blue.
„Kasparov skrifaði grein eftir þetta
einvígi við Deep Blue þar sem fram
kom meðal annars að forrit tölvunnar
hefði ekki endilega verið svo sterkt,
heldur væri reiknigetan svo gríðarleg.
Á meðan maðurinn getur reiknað tvær
til þijár stöður á sekúndu skoðar tölvan
tvær milljónir möguleika. Það sem var
mjög athyglisvert við skákina var að
tölvan fómaði peði í ákveðnu afbrigði
sikileyjarvarnar. Þetta hefði enginn
skákmaður þorað eða getað gert á móti
Kasparov, útreikningamir voru svo
flóknir. Kasparov sá strax að tölvan
gæti ekki unnið þetta peð aftur svo glatt
og í raun átti tölvan ekki að geta leikið
þennan leik. Hann fór því að velta fyrir
sér hvað hefði gerst, hvort tölvan hefði
náð nýrri vídd, - það er að segja innsæ-
inu. Því þegar skákmaður fómar peði
byggir hann fórnina oft á innsæinu.
Eftir skákina komst Kasparov hins
vegar að þeirri niðurstöðu að tölvan
hafði reiknað sex leiki fram í tímann
enda reiknigetan ofboðsleg.
Það er staðreynd að skák er besta
tækið til að mæla gervigreind og stóm
tölvufyrirtækin eins og IBM og Intel
hafa nýtt sér það. Skákforritin hafa sinn
sérstaka persónuleika, sem lætur stjóm-
ast af efnishyggju, og leikir þeirra
vekja sjaldnast neinn fögnuð í brjósti
áhorfenda, nema auðvitað helstu að-
standenda; forritaranna. Tölvumenn
halda alltaf með tölvunni. Ég hef fund-
ið fyrir því þegar ég hef teflt við tölvu.
Ef maður tapar verður mikil kátína. Og
þar sem sigurgleðin er nú einu sinni
það afl sem dregur menn að taflborðinu
hlýtur að skapast ákveðin fjarlægð
milli tölvu og manns.“
En Netið. Hvemig nýtir þú þér Netið
sem atvinnuskáhnaður?
„Það er til eitthvað sem heitir Inter-
net Chess Club, þar sem ljölmargir ís-
lenskir skákmenn tefla gjaman. Tafl-
mennska á Netinu býður upp á þann
möguleika að fylgjast með öðrum
skákum um leið og þær eru tefldar.
„Þú spilar ekki fótbolta á Netinu,"
segir Helgi Ólafsson en margir
firnasterkir skákmenn tefla að
staðaldri í sérstökum skákklúbbi á
Internetinu.
Menn verða að samþykkja ákveðnar
siðareglur í upphafl og séu þær brotnar
er sú hætta fýrir hendi að memi lendi á
svörtum lista, svokölluðum „Abuse-
list“.
Þar sem skák og tölvur eiga mjög vel
saman má eiginlega segja að allir bestu
kostir tölvunnar og Netsins nýtist skák-
inni betur en öðm. Þú spilar ekki fót-
bolta á Netinu. Það er miklu meiri dýpt
í skákinni ólíkt öðrum spilum, eins og
briddsi. Það em oft mjög sterkir skák-
menn að tefla á Netinu. Eini gallinn er
að biðin sem áður felldi menn á tíma
kemur ekki að sök þegar álagið er það
mikið að tölvan frýs. Póstur og sími
hefur ekki staðið sig sem skildi í þess-
um efnum, þeir nota ekki þá möguleika
sem hægt væri. Þeim hjá Pósti og súna
finnst greinilega að það sé verið að taka
spón úr þeirra aski. Það er augljóst, að
ef þú getur verið að tala við mann í
klukkutíma á Netinu fyrir 25 krónur, þá
tapar Póstur og sími stórfé. Tæknin er í
raun að ganga af svona stofnunum
dauðum.
En eins og maður getur teflt við
mann á Netinu getur maður líka fylgst
með öðmm skákum. Þetta býður auð-
vitað uppá mikla möguleika en þótt
möguleikamir séu fyrir hendi er tvennt
ólíkt að sitja fyrir ffaman tölvuna og
tefla, og að tefla við mann. Það er eins
og þú sért að tefla við tölvu, þegar þú
teflir á Netinu, nema hvað það er mað-
ur á bak við.“ ■
Staðgreiðsluyíirlit
— breytt fyrirkomulag
Undanfarin ár hafa staðgreiðslu-
yfirlit verið send til launamanna
í aprílmánuði. Nú hefur þessu
fyrirkomulagi verið breytt og
verður yfirlit yfir innborgaða stað-
greiðslu birt á álagningar- og
innheimtuseðli 1996 sem sendur
verður út að lokinni álagningu
opinberra gjalda. Seðlinum fylgir
bæklingur með helstu upplýs-
ingum um álögð gjöld og í honum
verður einnig að finna upplýsingar
um yfirlit vegna innborgaðrar
staðgreiðslu.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI