Alþýðublaðið - 15.05.1996, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o d a n i r
Yfir bjórkollu á Krúsirmi
sveitarfélagi á Vestfjörðum eigi
frekar að semja við Sjálfstæðis-
flokkinn eða aðra. Það sem maður
skammast sín fyrir er sá hryllilegi
ávani alþýðuflokksmanna að geta
aldrei gert út um deilur sín á milli,
inni á flokkskontórnum eða yfir
bjórkollu á Krúsinni. Stríðið skal
alltaf fara fram í fjölmiðlum,
frammi fyrir alþjóð. Eg held að
það sé misskilningur að það sé
ranglátt kjördæmakerfi eða komm-
únistar eða kolkrabbinn eða hvað
sem tínt hefur verið til að sé aðal-
orsök þess að Alþýðuflokkurinn
hefur ekki meira fylgi en raun ber
vitni. Þegar öll þessi orka fer í að
koma höggi á þá sem eru með þér í
flokki, þá er nú varla von að vel
takist til við að höggva aðra. Svo
sorglegt sem það er, hefur Alþýðu-
flokkurinn klofið sjálfan sig í
herðar niður oftar en nokkurn jafn-
aðarmann langar að muna og virð-
ist aldrei læra af reynslunni.
Eg er ekki að mæla með flokk-
saga eins og hjá Sjálfstæðisflokkn-
um, sem refsar og umbunar eftir
hlýðni við flokkslínuna - auðvitað
eiga allir að fá að hafa sínar skoð-
anir og koma þeim á framfæri.
Mergurinn málsins er hins vegar sá
að það er hægt að koma þeim á
framfæri án þess að hafa hljóð-
nema fyrir framan sig.
Ég held að mesta áskorun sem
næsta kynslóð í Alþýðuflokknum
stendur frammi fyrir, sé stjórnmál-
um sem slíkum óviðkomandi. Hún
felst í því að læra ákveðna manna-
siði. Sumsé hvenær eigi að opna
munninn og hvenær ekki. Hvenær
sé nauðsynlegt að kyngja örlitlu af
stolti sínu fyrir hag heildarinnar og
hvenær ekki. Hvenær eigi að rjúka
af fundi í fússi og hvenær ekki...
Unga kynslóðin í flokknum er
náttúrlega alin upp við mikið aga-
leysi í þessum efnum, fyrirmynd-
irnar hafa einfaldlega ekki verið
fyrirmyndir. En enn er von. Sam-
Nú eru bæjarstjórnarkosningar
yfirstaðnar í þeim kaupstað sem
hér áður fyrr var eitt höfuðvígi
jafnaðarmanna á landinu. Þar slitu
til dæmis þrír af sjö þingmönnum
Alþýðuflokksins barnsskónum. Nú
er öldin svo sannarlega önnur. Það
er ekki annað hægt en að sam-
gleðjast nemendum framhaldsskól-
ans sem eru ótvíræðir sigurvegarar
kosninganna. Þeir fengu tvo menn
kjörna í bæjarstjórn og til muna
Pallborðið |
Þóra
Arnórsdóttir
skrifar
„Ég held að mesta áskorun sem næsta kyn-
slóð í Alþýðuflokknum stendur frammi fyrir,
sé stjórnmálum sem slíkum óviðkomandi.
Hún felst í því að læra ákveðna mannasiði."
band ungra jafnaðarmanna hefur
byggst hægt og rólega upp síðustu
árin, á meðan gengi flokksins hef-
ur verið upp og ofan - reyndar að-
allega ofan. Við skulum vona að
næstu kynslóð takist betur að til-
einka sér mannasiði og náunga-
kærleik.
Höfundur er háskólanemi og fram-
kvæmdastjóri Sambands ungra jafnað-
armanna.
fleiri atkvæði en bæði Framsókn-
arflokkur og Alþýðuflokkur. Að
sama skapi er ekki annað hægt en
að hugsa um liðna tíð og velta fyr-
ir sér hvað hafi farið úrskeiðis hjá
þeim flokki sem kennir sig við
jafnaðarstefnuna. Hann fékk 335
atkvæði af 2483. 13.5%. Einn
mann kjörinn af ellefu.
Það var svo sem nógu slæmt, að
tapa manni. En það sem á eftir
hefur fylgt er miklu verra. Oddviti
flokksins á í erjum við samherja
sína, um við hverja eigi að ræða
meirihlutamyndun. Hann vill þeg-
ar í stað semja við Sjálfstæðis-
flokkinn, en meirihluti félaga í Al-
þýðuflokksfélaginu, sem hann er
fulltrúi fyrir, vill fyrst láta reyna á
möguleika á samstarfi allra flokka
nema Sjálfstæðisflokks. Sigurður
R. Ólafsson, oddviti Alþýðu-
flokksins telur afar ólíklegt að
samkomulag náist þar á milli. Með
slíkt hugarfar er það auðvitað
heldur ólíklegt. Persónulega ætla
ég ekkert mat að leggja á það hvort
Alþýðuflokkurinn í hinu nýja
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Þetta verður til þess, að fólki
gefst sjálfu kostur á að kjósa
um hvort það vill fara í verk-
fall og um afgreiðslu kjara-
samninga.
Sif Friðleifsdóttir alþingismaður um frum-
varpið um stéttarfélög og vinnudeilur.
Morgunblaðið í gær.
Aðstöðumunur skólabarna
vegna skorts á uppeldi.
Fyrirsögn í Mogganum í gær.
í gegnum glansmynd róman
tíkur og hugarflugs brýtur
blákaldur veruleikinn sér
hægt og bítandi leið.
Þunglyndur Garri í Tímanum í gær.
Hagyrðingar landsins gera
sér nú mjög títt um for-
setakosningarnar, einsog
eðlilegt er. Inná skrifstofur
Alþýðubladsins bárust tvær
limrur, merktar „Njáli", og
fjalla um Ólaf Ragnar
Grímsson í léttum dúr:
Ólst upp í framsóknarfjósi
ei furda þó annað nú kjósi.
Á Bandalags-braut
um bensíngjöf hnaut;
fór yfir á rauðu Ijósi.
Forseti vill hann verða
með vígtönnunum mer'ða.
Gullbringu-grís
ég grillaðan kýs;
skítlega eðlið er'ða.
Aðeins meira um Ólaf
Ragnar. Hann fagnaði
53 ára afmæli í gær, 14. mai.
Hátíðahöldin hafa líklega
verið með öðru sniði en
venjulega, alltjent heyrum
við að þeir vinirnir, Ólafur
Ragnar og Ámundi
Ámundason hafi ekki snætt
saman í tilefni dagsins ein-
sog stundum áður fyrr. Ólaf-
ur Ragnar og Ámundi eiga
nefnilega sama afmælisdag,
en það kemur engum á
óvart: báðir eru þeir hæglátir
geðprýðismenn einsog al-
þjóð veit...
Stuðningsmenn Fram eru
enn að jafna sig á því
áfalli að liðið skyldi falla í 2.
deild á síðasta ári. Framarar
ætla vitanlega ekki að hafa
langa viðdvöl í skammar-
króknum, eins þóttýmsir
máttarstólpar liðsins hafi
yfirgefið það í hremmingun-
um. Ásgeir Elíasson er
kominn aftur til liðsins sem
þjálfari, en Fram var nánast
áskrifandi aðtitlum undir
hans stjórn á síðasta áratug.
Nú hafa þjálfarar í 2. og 3.
deild gert spá um lokastöðu
í deildunum, og er Fram
spáð auðveldum sigri í 2.
deild. Þá ætla þjálfararnir að
FH - sem féll líka í fyrra -
fylgi Fram upp en að ÍR og
Leiknir falli niður í 3. deild...
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
Eftir áralanga hjónabandssælu fer að bera á spennu í
samskiptum Kamban-hjónanna.
Haukur Jóhannsson tann-
læknir: Nei, ég ætla að dvelja
á hólmanum.
Þorvaldur Örn Krist-
mundsson Ijósmyndari: Já,
ég fer í viðskiptaerindum til
Kaupmannahafnar í haust.
Anna Gústafsdóttir
íhlaupamaður: Já, ég fer til
Danmerkur.
Bergljót Ólafsdóttir búðar-
loka: Nei, ég ætla að ferðast
um Island.
Bergdís Ottósdóttir versl-
unarmaður: Nei, ég er búin
með kvótann.
Þegar gemlingarnir komu á
hús í áðurumgetnum vorhret-
um, voru þeir eins og úr eldi
komnir, með rúkraga og
hornahlaupi.
Guömundur P. Valgeirsson í fréttabréfi úr
Árneshreppi. Tíminn í gær.
Spurningin er þessi.
Eru það betri forsetaefni
sem láta undan þrýstingi eða
þau forsetaefni sem ekki láta
undan þrýstingi?
Dagfari í DV í gær.
Okkur var fullkomin alvara.
Vínveitingar Sjálfstæðis-
flokksins er hlutur sem við
höfum orðið vitni að í
gegnum tíðina.
Hilmar Magnússon efsti maöur á Funklist-
anum í ísafjaröarbæ. DV í gær.
fréttaskot úr fortíd
Fangi rændur
í fangelsi.
Um daginn brutust innbrotsþjófar
inn í fangelsið í Hooversville, Pasa-
dena í Kalifomíu. Þeir komust við-
stöðulaust inn í klefann til eins fang-
ans, sem heitir James Berdill, og stálu
af honum 50 krónum, er hann átti.
Berdill hefir nú kært þetta til yfir-
manna fangelsisins.
Alþýðublaðið
sunnudaginn 11. nóvember 1934