Alþýðublaðið - 15.05.1996, Qupperneq 8
*■ *
\mEVFILl/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Miðvikudagur 15. maí 1996
MMBLMfi
71. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
i
■ Marel hf.
Kaupir fjórðungshlut
í Slippstöðinni
Fyrirtækin munu vinna saman að verkefnaöflun. Aukning áfram hjá Marel í smíði vinnslukerfa.
Marel hefur nú gengið frá kaupum
á hlut í Slippstöðixuii hf. á Akureyri,
og hefur þarmeð fjórðungsaðild til
jafns við Burðarás hf., Jökla hf. og
Málningu hf. Hlutabréfm voru í eigu
Slippstöðvarinnar en höfðu áður ver-
ið eign Regins hf., eignarhaldsfélags
Landsbankans.
Áframhaldandi aukning er fram-
undan hjá Marel í smíði vinnslukerfa
fyrir verksmiðjuskip sem útheimtir að
Marel efli samstarf sitt við fyrirtæki
sem geta tekið að sér hluta slíkra
verkefna og jafnframt framkvæmt
ýmis verkefni, svosem almennt við-
hald sem oft er framkvæmt samtímis
því sem ný vinnslulína er sett um
borð í skip.
Marel hefur náð lykilstöðu í ffam-
leiðslu á fullkomnum vinnslukerfum í
verksmiðjuskip og hefur meðal ann-
ars afhent slfk kerfi eða hluta þeirra í
Amar I, Amar II, Baldvin Þorsteins-
son, Guðbjörgina, Höfrung III, Venus
og Vesturvon. Verksmiðjuskip geta
með þessari tækni unnið sambærilega
vinnslu og fiskvinnslustöðvar í landi,
en það byggist meðal annars á sjálf-
virkum skurði í bita og flokkun
þeirra.
Bæði fyrirtækin hafa mikla verk-
reynslu og er gert ráð fyrir að þau geti
miðlað hvort öðm af þeirri reynslu.
Þannig hefur Slippstöðin til dæmis
mikla reynslu af verkefnastjómun og
að takast á við stærri verkefhi. Marel
aftur á móti rekur til dæmis mjög öfl-
ugt vöruþróunarstarf og hefur mikla
reynslu í sölu- og markaðsstarfi er-
lendis. Þótt gert sé ráð fyrir nánu
samstarfi fyrirtækjanna í verkefhaöfl-
un og á fleiri sviðum mun sjálfstæði
þeirra haldast óskert, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu vegna
kaupanna.
RENAULT
FER I kÓSTÚM
‘BúnaSur er mismunandi eftir gerSum.
Mégane er einn öruggasti bíll sem þú getur keypt. Oruggt
arými meS tvöföldum styrktarbitum í hurSum og sérstaklega styrktum
og botni er bara grunnurinn sem öryggi bílsins byggist á.
eltin í Framsætum eru meS strekkjara og sérstökum höggdeyfi sem er
eini sinnar tegundar í heimi og í aftursæti eru jorjú þriggja punkta belti.
Einnig er loftpúSi í stýri* og höfuSpúSar í fram- og aftursætum* og
barnalæsingar á afturhurðum sem auka öryggi þeirra sem ferðast í bílnum.
Þokuljós aS framan* og aftan, upphituS afturrúSa meS stórri rúSuþurrku og
bremsuljósi gera Mégane enn öruggari.
Llugt hemlakerfi meS gaumljósi fyrir bremsuklossa í mælaborSi og
rómuS fjöSrun Renault tryggir bílnum öryggi, veggrip og rásfestu þegar mest
á reynir. Einstök (oægindi fjöSrunar, sæta, innréttingar og stjórntækja Mégane
tryggja ökumanni og farþegum vellíSan og stuSla þannig aS ánægjulegri
ökuferS.
Kurt Johannessen og Jörgen
Knudsen munu væntanlega koma
á óvart í Nýlistasafninu í kvöld.
■ Nýlistasafnið
Gern-
ingarog
bogfimi
í kvöld verður haldið svokall-
að gerningakvöld í Nýlistasafn-
inu þar sem norsku listamenn-
irnir Kurt Johannessen og Jörg-
en Knudsen munu koma fram
ásamt norska bogfimimanninum
Lars Humlekjær. í tilefni heim-
sóknar Norðmannanna munu
nokkrir nemendur Myndlista- og
handíðaskóla íslands fremja
nokkra gerninga en auk þessa
stendur yfir sýning myndlistar-
mannanna Tuma Magnússonar,
Magneu Þórunnar Ásmundsdótt-
ur og Illuga Eysteinssonr í Nýló
og lýkur henni á sunnudaginn.
■ Gunnar Andrés
son í Gallerí Greip
Hleruð
listaverk
Laugardaginn 18. maí klukk-
an 16 opnar Gunnar Andrés-
son sýningu í Gallerí Greip,
Hverfisgötu 82, á horni Vita-
stígs. Hér er um að ræða hljóð-
innsetningu sem byggir á setn-
ingum og samtalsbrotum sem
Gunnar hefur „hlerað“ víðs-
vegar að úr umhverfinu. Sýn-
ingin er opin alla daga nema
mánudaga klukkan 14 til 18.
Tekið skal fram að sýningin
stendur aðeins í átta daga, eða
til sunnudagsins 26. maí.