Alþýðublaðið - 16.07.1996, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Karpov sigraði
Kamsky auðveldlega
FIDE-heimsmeistarinn Anatoly Karpov til hliðar við FIDE-forsetana núver-
andi og fyrrverandi. Kirsan lljumzinov fyrir miðju og Florencio Campoma-
nes til hægri.
Öruggur sigur Anatoly Karpov yfir
Gata Kamsky í 18 skákum, 10i/2-7i/2
er niðurstaða sem fáum kemur á óvart.
Karpov vinnur með sömu tölu og Ka-
sparov í PCA-einvíginu sínu í New
York síðastliðið haust. Sigur Garys
yfir Wisvanthan Anand á 104 hæð
„World trade center" byggingarinnar
og Karpovs á Kamsky í Elista boðar
álfamhaldandi þaulsetu þeirra ofar öll-
um öðrum spámönnum skákþorpsins;
saman mynda þeirra einhverskonar
Twin-tower skáklistarinnar, ókleyfan
öllum; nema kannski þeim glataða
syni New York-borgar sem var land-
rækur ger fyrir fjórum árum þegar
hann hóf eftir 20 ára hlé að stunda þá
einu iðju sem hann kunni.
Yfirburðasigrar Kamsky yfir þraut-
reyndum andstæðingum sínum í
áskorendaeinvígjum FIDE og PCA
vöktu geysilega athygli og vonir um
að nú væri loksins kominn fram mað-
ur sem gæti skákað veldi Kasparov og
Karpov. f FIDE- keppninni sigraði
hann Hollendinginn van der Sterren
3i/2-1 1/2, Anand 6-4 eftir framlengingu
og loks Valery Salov 5i/2-1 \n.
í PCA-keppninni voru sigrar hans
ekki síður sannfærandi. Hann burstaði
Vladimir Kramnik4i/2-li/2, síðan Nig-
el Short 51/2-11/2, en í lokaeinvíginu
við Anand skorti taflmennsku hans
allan ferskleika og Indveijinn sigraði
6l/2-4l/2.
Erfiðleikar FIDE við halda heims-
meistaraeinvígið voru með eindæm-
um og þurfti skipti í forsetastóli til
þess að það gæti farið fram. Skipan
forseta Kalmykíu, Kirsan Iljumzhinov
var mótbragð Anatoly Karpov við
hallarbyltingu Gary Kasparov á þingi
FIDE í Moskvu í desember 1994.
Hinn nýi FIDE-forseti, rúmlega þrí-
tugur Kalmúki sem sefur aldrei meira
en þrjá tíma á sólarhring og hefur
auðgast á æði myrkfælnum viðskipt-
um, fann stað fyrir einvígið hjá vini
sínum Saddam Hussein í Bagdad.
Jafnframt opinberaði hann allt aðrar
skoðanir sínar á þeim manni en þær
sem CNN, Morgunblaðið og gervöll
heimspressan hefur keppst við að inn-
ræta sérhvetju mannsbami undanfarin
ár. Þá var mælirinn fullur. En í stað
þess að ganga úr þeim leiðindasam-
tökum sem alþjóðasskáksambandið er
lét Skáksamband íslands og önnur
Skákirnar voru
langflestar langar
og erfiðar og allar
tefldar í botn og
einvígið var mun
áhugaverðara en
einvígi Kasparovs
og Anands.
vestræn skáksambönd nægja að mót-
mæla fyrirhuguðum einvígisstað með
óljósum hótunum um hugsanlega úr-
sögn. Öllum að óvörum sá Kirsan
þann kost grænstan að blása Bagdad-
einvígið af, en lumaði jaíhframt á spili
í jakkaerminni, sem sagt því að bjóða
Gata og Anatoly heim í hérað til að
tefla einvígið þar.
Og hinn þriðja júní síðastliðinn
hófst einvígið svo með pompi og
pragt í höfuðborg Kalmykíu, Elistu.
Verðlaunafé opinberlega var 2 miljón
dollarar, stór hluti látinn renna til Fl-
DE og ýmissa kostnaðarliða. Hið
raunverulega verðlaunafé nam hins-
vegar samtals um 1,1 miljón dollara
eða í kringum 75 miljónum króna.
Konuleit í Kalmykíu
Kamsky-feðgar komu til Elista rak-
leiðis frá Dos Hermanos á Spáni þar
sem Gata tefldi við lítinn orðstír á 10
manna móti. Þvert ofan í fyrri reynslu
var Rustam faðir Kamsky hvers
manns hugljúfi í Elista, hrósaði Kirsan
á hvert reipi fyrir snöfurmannlega
björgun einvígisins. Hann sagði við
blaðamenn að það væri ekkert stórmál
þótt sonurinn tapaði einvíginu fyrir
Karpov, til Elista væru þeir ekki bara
komnir til að tefla, sú stund væri
nefnilega í aðsigi að Gata festi ráð sitt
og kvaðst hann ætla sjálfur að velja
konuefnið fyrir Gata úr hópi músl-
ímskra kvenna í Kalmykíu, strákurinn
kæmi þar ekkert nærri enda hefði
hann ekki hundsvit á slíkum málum.
Vrkur þá sögunni að hinum 45 ára
gamla FIDE-heimsmeistara, Antoly
Karpov. í Elista háði hann sitt níunda
heimsmeistaraeinvígi og hefur nú
unnið fjögur einvígi, einu sinni gert
jafntefli, þrisvar tapað en fyrsta ein-
vtgi hans við við Kasparov 1984-85
var óútkljáð. Mér telst til að á þessum
vettvangi hafi hann teflt samtals 233
skákir, unnið 43, tapað 33 og gert 157
jafntefli, sem er árangur upp á um það
bil 52 prósent. Þegar við bætast níu
áskorendaeinvígi allt frá árinu 1974
með 26 sigurskákum, 9 töpum og 59
jafnteflum eða tæplega 60 prósent ár-
angur er ljóst að hér fer maður með
reynslu.
Karpov gerði engar breytingar á
vinnubrögðum sínum í þessu einvígi,
tefldi sömu byrjanimar upp aftur og
aftur með smávægilegum endurbótum
hér og þar og gemýtti sér smávægileg-
ustu mistök Kamskys. Vélin hikstaði
aðeins í byijun, Kamsky jafnaði eftir
tap í fyrstu skák, en síðan fylgdu fjórir
sigrar Karpovs og nokkur jafntefli.
Helsta fræðilega glapræði Kamskys
var að tefla Grunfelds-vörnina sem
Karpov gerþekkir eftir einvígi sín við
Kasparov. Eftir mu skákir var staðan
61/2-21/2. Þá var einn aðstoðarmaður-
inn, John Federowicz, rekinn heim
vegna „hugmyndafræðilegs ágrein-
ings“, eins og það var orðað, og Kam-
sky náði sér á strik í seinni hlutanum.
Hætt er við að Karpov hafi slakað ei-
h'tið á klónni og sálfræðistaðan breyst
eftir því sem hann þokaðist nær IO1/2-
vinnings markinu.
Kasparov á byrjunarreit?
Skákimar vom langflestar langar og
erfiðar og allar tefldar í botn og ein-
vígið var mun áhugaverðara en einvígi
Kasparovs og Anands.
Nú spyija menn hver í sínu homi:
verður sameiningareinvígi PCA og FI-
DE? Allar áætlanir um slíkt gætu
strandað á stöðu PCA sem á í mikilli
tilvistarkreppu eftir að Intel-fyrirtækið
kippti burt stuðningi við samtökin um
leið og Kasparov hóf hið fræga ein-
Karpov 10 = 1 = 1 1=1
Kamsky 01=0 = 00=0
vígi sitt við ,JDeep blue“ tölvu IBM í
vetur. Liðist PCA í sundur stendur
Karpov með pálmann í höndunum og
er vfs til þess að hafna alfarið sjötta
einvíginu við Kasparov sem yrði að
fara í röðina aftur.
Af 18 skákum í Elista vann Karpov
sex skákir, gerði nfu jafntefli og tapaði
þremur. Innihaldsríkasta vinnings-
skákin var sennilega sú níunda sem
hér fer á eftir:
Gegn Gmnfelds-vöminni beitir af-
brigði sem fyrsti sovéski heimsmeist-
ari Mikhael Botvinnik hafði mikið dá-
læti á. Hann endurbætti taflmennsku
sína frá því í fimmtu einvígisskákinni
10. Be3 í stað 10. e6. Framrás a-peðs-
ins, 16. a4 og 17. a5! er svo öflug að
staða svarts riðar til falls. f þessum
liremmingum grípur Kamsky til þess
úrræðis að gefa drottningu sína fyrir
hrók og léttan ann með von bundna
við hraðskreiðan frelsingja á a-lín-
unni. En tækni Karpovs í slíkum stöð-
um svíkur ekki, fyrst skorðar hann a-
peðið rækilega samfara því að byggja
upp hótanir á kóngsvængum. Þá tmfl-
ar hann samgang svörtu mannanna
með hámákvæmum drottningarleikj-
um. 32. ... Ha6 er úrslitaafleikur
Kamsky í vondri stöðu. Hann verður
að láta
e-peðið af hendi eftir 33. Dc4! og
þá er d-peðinu leiðin greið. Kamsky
gefst upp í 41. leik þegar engin hald-
góð vörn finnst við hótun Karpovs,
42. Dh8+! Kxh8 43. Hf8 mát.
0 = =. = 1 = 0 = = 12,5
1 = = = 0 = 1 = = 7.5
9. einvígisskák:
Hvítt: Anatoli Karpov
Svart: Gata Kamsky
Grunfelds - vöm
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. RO
Bg7 5. Db3 dxc4 6. Dxc4 0-0 7. e4
a6 8. e5 b5 9. Db3 Rfd7 10. Be3 c5
11. e6 c4 12. exf7+ Hxf7 13. Ddl
Rb6 14. Re5 Hf8 15. a4 b4
16. a5 bxc3 17. axb6 cxb2 18.
Bxc4+ Kh8 19. Hbl Dxb6 20. Dd2
Rd7 21. Hxb2 Rxe5 22. Hxb6 Rxc4
23. Db4 Rxb6 24. Dxb6 a5 25. 0-0
a4 26. Hal Bf5 27. h4 e6 28. Bf4 Be4
29. Bd6 Hfc8 30. Db5 Bc6 31. Db4
Kg8 32. Ha3 Ha6 33. Dc4 Hca8 34.
Dxe6+ Kh8 35. Be5 Bxe5 36. Dxe5+
Kg8 37. h5 Be8 38. h6 H6a7 39. d5
Hb7 40. d6 Hd8 41. Hf3 — og svartur
gafst upp. ■