Alþýðublaðið - 23.08.1996, Page 3
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Oðalseigendur og blámenn
Það yrði sorglegt að þurfa að horfa uppá íslenska
ríkið á sakamannabekk, eina ferðina enn vegna brota
á alþjóðasamþykktum sem við erum aðilar að.
Hvað mig varðar mun ég Ifta á Óðalseigandann
og gesti hans sem heybrækur.
að var ekki laust við að ég fylltist
stolti og þjóðemisvitund þegar ég
heyrði í Óðalseigandanum í útvarpi
fyrir skömmu. Hvert var tilefnið, jú
skítugir strigaskór, illa drukkið fólk
og síðast en ekki síst, þeir sem ekki
hafa aría- vottorð. Aría vottorð þóttu
gulls ígildi í þúsund ára ríki Hitlers.
Sjálfur er ég vel settur þegar kemur að
ættgöfgi. Við lestur minningagreinar
um langömmu mína fyrir nokkmm ár-
Pallborðið |
~
Guðmundsson
H ÉSá skrifar
um komst ég að því að föðurætt mín
er næstum því jafn göfug og móður-
ættin. Þannig er málum háttað að
danskt herskip átti hér viðkomu fyrr á
öldum, þannig að ég get þakkað her-
skipakomu tilvist mína. Fyrir skipinu
fór Her kapteinn kommander Rist
flotaforingi. Ættir hans eru sagðar
auðraktar, og liggja til þýskra aðals-
manna í Bæjaralandi. Afrakstur þess-
arar heimsóknar var Sveinbjöm. Ekki
man ég nafn móður hans, en sjálfsagt
væri það verðugt verkefni fyrir ífiðar-
samtök kvenna að rannsaka herskipa-
komur fyrr á ö.ldum, og áhrif þeirra á
fslan,d í dag, Ég vona að-ég móðgi
engan, enda ekki ástæða til. Mér er
sagt að sú kona sem lengst hefur náð í
íslensku atvinnulífi geti einnig þakkað
tilvem sína koma Her kapteins komm-
ander Rist. Sumir héldu ættamafninu
en aðrir urðu synir og dætur. Móður-
ætt mín er enn stórkostlegri, en þar em
biskupar, jarlar, norskir kóngar og ef
vel er að gáð má einnig rekja ætt mína
til Þórs, og hann er guð. Þannig að ég
te) mig vera gjaldgengan í Óðal. Flest
al.lir I^endingar. em sé^taklega ,vel
Eettaðir'. Reýndar mega súmir sætta sig
við duggara og dátablóð í sínum æð-
um. En það er rétt aðeins til að forða
okkur frá úrkynjun, ef vel er að gáð er
það til hins betra. Vel ættað fólk hlýt-
ur að hafa háleitar skoðanir, kjark, þor
og dug. Það telja margir vera aðals-
merki okkar fslendinga, sérstaklega
við sjálfir. f fyrstu fannst mér ekkert
athugavert við framkomu Óðalseig-
andans. Nokkrir blámanna- og gtjóna-
brandarar komu upp í huga mér. Einn-
ig velti ég fyrir mér rétti þeirra sem
ekki vilja vera í návist annarra kyn-
stofna. Hver vill láta blámenn móðga
konuna sína, eða jafnvel reyna við
hana. Slíkt geta íslenskir karlmenn
ekki sætt sig við, eða hvað? Með því
að útiloka ákveðna þjóðfélagshópa frá
skemmtistöðum, erum við að lýsa yfir
efasemdum um eigið ágæti. Það er
heigulsháttur að þora ekki að niæta
öðrum kynþáttum á jafnréttisgrund-
velli. Slíkt er fyrir neðan virðingu ís-
lensku þjóðarinnar. Með því að sam-
þykkja vinnureglur Óðalseigandans
erum við að fara inn á nýjar brautir í
okkar samfélagi. Brautir sem aðrar
þjóðir hafa reynt, sjálfum sér og öðr-
um til ævarandi minnkunar. „Þögn er
sama og samþykki.“ Er ég var að velta
fyrir mér rétti þeirra er ekki vilja um-
gangast aðra kynþætti, var örlítil hugs-
un alltaf að þvælast íyrir mér. „Aðgát
skal höfð í nærveru sálar.“ Þessi setn-
ing segir allt sem segja þarf. Við fs-
lendingar verðum að læra að hfa með
fólki af mismunandi þjóðemi. Einnig
verðum við að átta okkur á því að á ís-
landi búa Islendingar sem við höfum
boðið að setjast að í okkar landi og
fágnað sem nýbúum. Þáð er skylda
stjórnvalda að tryggja öllúm full
mannréttindi, jafnt Islendingum sem
og gestum er dvelja hér um stundar-
sakir. íslendingar þurfa ekki að vera
hvítir til að vera fullgildir í okkar sam-
félagi. Það er ekkert sem réttlætt getur
mismunun og engin ástæða til. Geti
stjórnvöld ekki uppfyllt þessa lág-
markskvöð verður að vísa málum sem
þessum til dómstóla. Það yrði sorglegt
að þurfa að horfajuppá íslenska ríkið á
sakamannabekk, eina ferðina enn
vegna brota á alþjóðasamþykktum
sem við erum aðilar að. Hvað mig
varðar mun ég líta á Óðalseigandann
og gesti hans sem heybrækur. Hey-
brækur sem ekki geta þrifist nema í
vemduðu umhverfi. Heybrækur sem
ekki geta mætt blámönnum og gulu
fólki ájafnréttisgrundvelli. Heybrækur
sem tapað hafa sjálfsvirðingu sinni.
Slíkar heybrækur eru íslensku þjóð-
inni til skammar. Til forna börðust
blámenn og berserkir saman hlið við
hlið, þeir þóttu bera af öðrum mönn-
um. Við skulum forðast Óðal hey-
bróka og heQa fomar dyggðir til vegs
og virðingar á ný. Þannig munum við
geta horfst í augu við komandi kyn-
slóðir kinnroðalaust.
Höfyndut er verkamaður.
hinumegin
"FarSido" eftir Gary Larson
Haraldur J. Hamar og
hans fólk á lceland
Review eru að flytja starf-
semi sína úr Watergate-
höllinni svokölluðu uppá
Höfða í Nöátun 17. Um
'naéstu mánáðarmót vérða
tímáritm ícefaoÖ Review,
lceland Buisness og flug-
ritin Atlantica og Upphátt
skrifuð í Nóatúninu og
verður fróðlegt að fylgjast
með því hvort efnistök
verða önnur í nýjum húsa-
kynnum...
Ungir jafn-
i
fl
1aðarmenn
halda sam-
bandsþing
seinni hlut-
ann í októ-
ber, í aðdrag-
anda flokks-
þings Aiþýðu-
flokksins. Þar
munu þeir stilla sam-
an strengi, enda ætlunin
að mæta með galvaska
sveit á flokksþingið. Flestir áhrif innan Alþýðubanda-
eiga von á að Gestur G.
Gestsson forseti SUJ gefi
kost á sér áfram, enda
þykir hann hafa unnið gott
starf. Varaforsetar eru
tveir, Aðalheiður Sigur-
sveinsdóttir og Gunnar
A. Ólafsson, og er talið
að Aðalheiður láti af emb-
ætti sem fyrsti varaforseti,
og er lagt að Gunnari að
taka stöðu hennar...
kki einasta er von á
mörgum skáldsögum í
haust, heldur ættu
Ijóðaunnendur að
finna nóg við sitt
hæfi. Gyrðir Elías-
son, Jónas Þor-
bjarnarson og
Linda Vilhjálms-
dóttir eru meðal
þeirra skálda sem
láta að sér kveða...
Brotthvarf Ólafs Ragn-
ars Grímssonar af
þingi hefur margvísleg
lagsins. Nú velta menn því
meðal annars fyrir sér
hver taki sæti hans í hinni
mikilvægu utanríkisnefnd
Alþingis. Sigríður Jó-
hannsdóttir, sem tók
þingsæti Ólafs, er ekki inni
í myndinni og kveðst
fremur vilja fá sæti í
menntamálanefnd. Vara-
maður Ólafs í utanríkis-
nefnd er enginn annar en
Hjörleifur Guttormsson,
en hann er efalítið sá al-
þýðubandalagsmaður á
þingi sem var mestur and-
stæðingur Ólafs og kunnur
fyrir öndverðar skoðanir í
flestum veigamiklum mál-
um. Ýmsum frjálslyndum
alþýðubandalagsmörinum
geðjast lítt tilhugsunin að
Hjörleifur verði talsmaður
flokksins í utanríkismálum,
en refurinn að austan telur
sig vitanlega sjálfskipaðan
í það hlutverk...
„Bíddu, skil ég þetta rétt?... Við ráðum þig til að gæta
barnanna en í stað þess að passa þá eldarðu þau og étur...
BÆÐI?"
f i m m
förnum veg
Starfar þú innan stjórnmálaflokks?
Hjördís Blöndal starfs-
stúlka á sjúkrahúsi: Nei, ég
hef engan áhuga á því.
Jóhann Örn Arnarson
verslunarstjóri: Nei, en ég
hef tekið þátt í kosningastarfi.
Borghildur Þorvaldsdóttir
starfsstúlka á leikskóla:
Nei, ég hef ekkert vit á pólitík.
ejgnenchf;
Ólöf Snorradóttir nemi:
Nei. Pólitík höfðar ekki til
mín.
Pétur Einarsson fram-
kvæmdastjóri: Nei, það er
enginn þeirra nógu góður fyrir
mig.
v i t i m e n n
Súkkulaði skapar vímu.
DV sagði í gær frá rannsóknum
á nýjasta eiturtyfinu.
Þótt eðlilegt sé að leyfa kvik-
myndatökufólki að nota náttúru
íslands sem bakgrunn að kvik-
mynda- og sjónvarpsefni, er ekki
forsvaranlegt að ieigja þeim Al-
mannagjá og loka henni um leið
fyrir innlendum og erlendum
ferðamönnum. Það voru mistök
hjá Þingvallanefnd.
Jónas Kristjánsson í
forystugrein DV í gær.
Töger Seidenfaden,
aðalritstjóri Politiken, á yfir
höfði sér fangelsisdóm vegna
birtingar blaðsins á dagbók
Ritt Bjerregaard, sem fer með
umhveriismál f framkvæmda-
stjórn ESB.
Mogginn í gær.
Staðreyndin er sú
að besta fólkið verður aldrei
lengi atvinnulaust.
Þórarinn Gunnarsson skrifstofustjóri
Samtaka iðnaðarins. Tíminn í gær.
Ég hef soltið og gengið
tötralega til fara vegna
bókasöfnunar minnar. Þetta
er köld gusa í andlitið. Ég hef
náð mér á sálinni en áfallið var
mikið. Ég er flogaveikur og
fékk hvert kastið á fætur
öðru þessa nótt.
Valdimar Tómasson bókasafnari
í Morgunblaðinu í gær, en um síðustu helgi
var fágætum bókum stolið úr fórum hans.
Á undanförnum áratugum
hafa mikiir fjármunir runnið úr
vösum skattgreiðenda til þess að
greiða fyrir útflutningi á lamba-
kjöti, sem litlu hefur skilað.
Forystugrein Morgunblaðsins í gær.
Kunningi Víkverja...
Upphaf pistils Víkverja í gær.
Undirtónninn er auðvitað sá,
þótt þær þori ekki að birta hann,
að íslenskum konum sé ekki
treystandi að vita af erlendum
sjóliðum í höfuðborginni án
þess að leita lags við þá.
Elín Sigurðardóttir í lesendadálki DV í gær.
Hún fordæmir mótmæli Menningar- og frið-
arsamtaka íslenskra kvenna vegna komu
sjóliðanna 4800.
fréttaskot úr fortíð
Skrítla
Stúlka var á gangi á götum Kaup-
mannahafnar. Uti var sólskin og
sunnangola. Þá andvarpaði hún: „-
Þetta var meiri hitinn! Ef ekki væri
andvarinn, þá held ég, að ég stikn-
aði.“ Rétt í því sagði önnur skúlka
skamt frá: „Þetta er ljóti gusturinn! Ef
ekki nyti sólar, þá skylfi ég eins og
hundur."
Guðm R. Ólafsson úr
Grindavík þýddi lausl.
Úr Alþýöublaðinu
fimmtudaginn 23. ágúst 1923