Alþýðublaðið - 28.08.1996, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐK)
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
s k o d a n i r
21166. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Tvö dagblöð kvödd
I dag koma tvö dagblöð út í síðasta sinn, og eiga bæði að baki
langa og sumpart merkilega útgáfusögu. Tíminn var stofnaður
17. mars 1917 og var málgagn hins unga og tápmikla Framsókn-
arflokks. Óhætt er að segja að blaðið hafí átt mikinn þátt í sókn
flokksins á uppvaxtarárum hans, enda engir aukvisar sem þar
stýrðu pennum; menn á borð við Tryggva Þórhallsson og Jónas
Jónsson frá Hriflu. Jónas var vitaskuld sérstaklega aðsópsmikill á
ritvellinum enda var honum léð tunga spámannsins og sannfær-
ingarkraftur krossfarans. Á gullaldarárum Tímans var hann einn
máttugasti fjölmiðill landsins, og átti því ríkan þátt í að móta
skoðanir og sjónarmið landsmanna.
Margir hæfileikamenn hafa gegnum tíðina starfað á Tímanum,
en á ýmsu hefur oltið með reksturinn síðustu áratugi og einatt
litlu mátt muna að Tíminn hrataði fyrir ættemisstapa. Framsókn-
arflokkurinn hefur þurft að leggja í kostnaðarsamar björgunarað-
gerðir, og því var hið gamla óskabam orðið flokknum þungur
baggi. Óneitanlega var kaldhæðnislegt að Frjáls fjölmiðlun skyldi
taka yfir rekstur blaðsins, enda hafa Framsókn og DV átt litla
samleið. En Tíminn var til hinstu stundar trúr sínum Framsóknar-
flokki, enda ritstjórinn fenginn úr þingliðinu, þótt áherslur í
fréttaflutningi væm í seinni tíð enganveginn einlitar.
Dagur var ekki nema árinu yngri en Tíminn, og var sömuleiðis
málgagn Framsóknar. Dagur hefur ekki með jafn afgerandi hætti
markað spor í fjölmiðlasöguna, enda ekki ýkja langt síðan hann
fór að koma út daglega. Eigi að síður var blaðið um áratugi eitt
öflugasta landsbyggðarblaðið, og þegar Dagur í núverandi mynd
er lagður niður nýtur hann meiri útbreiðslu á Norðurlandi en
nokkuð annað blað. Dagur hefur smámsaman slitið formleg
tengsl við Framsóknarflokkinn, en hugmyndafræðilegir þræðir
hafa þó aldrei rofnað.
Um leið og Alþýðublaðið þakkar Tímanum og Degi samfylgd-
ina er starfsmönnum nýja blaðsins óskað alls velfamaðar.
Glæsilegur árangur
í Atlanta
Ástæða er til að óska íslensku keppendunum á Ólympíuleikum
fatlaðra til hamingju með glæsilegan árangur í Atlanta. Fæstir
áttu von á að íslendingum tækist að fylgja eftir góðum árangri í
Barcelona fyrir fjórum árum en annað var uppá teningnum: þeir
uppskáru fimm gullverðlaun, fem silfurverðlaun og fímm brons-
verðlaun, og settu fjölmörg Islandsmet, heimsmet og ólympíu-
met. Þannig varð Island í 28. sæti af 117 þátttökuþjóðum, sé tekið
mið af fjölda verðlauna. Árangur Islendinganna er engin tilviljun.
Sveinn Áki Lúðvíksson aðalfararstjóri segir í samtali við Morg-
unblaðið í gær að fyrir fjómm ámm hafi verið gerð áætlun sem
miðaði að því að vera með úrvalsíþróttafólk, og byggja það upp
með hámarksárangur í Atlanta í huga. Þá sagði Sveinn Áki:
„Svona stefhumótun er það eina sem dugir því áhugamennskan
gildir ekki lengur í íþróttum fatlaðra ef árangur á að nást.“
Svo er að sjá, sem forystumenn íþróttasambands Islands og
Ólympíunefndarinnar gætu margt lært um þjálfun afreksmanna af
íþróttasambandi fatlaðra. ■
Velkomin vestur
- velkomin heim
Reynslan að vestan á auðvitað að verða til þess að við
iátum ekki staðar numið. Vel færi á því að við tækjum
ákvörðun sem fyrst um frekari móttöku erlendra flótta-
manna. Sýnir ekki einmitt reynslan frá ísafirði það, að
önnur byggðarlög geta allt eins boðið fram skjól fyrir
strfðshrjáð fólk úr f jarlægum heimshlutum?
✓
A dögunum mætti ég ungri bros-
Á\.mildri stúlku, sem hljóp yfir Silf-
urtorgið á fsafirði, með skólatösku á
bakinu. Það vakti óneitanlega athygli
mína að sjá unga stúlku á skólaaldri,
með skólatösku á bakinu svo löngu
áður en að skólar almennt hófust og
það tók mig dálitla stund að átta mig á
ástæðunum.
Gestaboð |
■I Einar Kristinn
skrifar
Stúlkan unga var ein þeirra nýju ís-
firðinga, sem lagt höfðu land undir fót
yfirgefið sitt stríðshrjáða föðurland
suður við Adríahaf og sest að á ísa-
firði. Gleðin og eftirvæntingin leyndi
sér ekki. Hún, eins og landar hennar,
var greinilega ákveðin í að takast á við
lífið í nýju landi. Sjálf var hún að
hefja nám í íslensku og við að kynna
sér sitthvað sem að notum gæti komið
í nýjum heimkynnum vestur við fsa-
fþirðardjúp
Efasemdarraddir
Óneitanlega vakti það athygli þegar
bæjarstjóm Isaíjarðar óskaði eftir því
við félagsmálaráðherra á síðasta hausti
að kannaðir yrðu möguleikar á því að
bæjarfélagið tæki á móti flóttamönn-
um þeim sem ríkisstjórnin hafði
ákveðið að veita skjól. Málið var tekið
upp í ríkisstjóminni og samþykkt af
heilum hug.
Ég neita því ekki að á þessum tíma
heyrðust efasemdarraddir. Væri það
nú skynsamlegt að stefna þessu fólki
öllu vestur á Isafjörð? Færi ekki betur
að það fengi að vera í Reykjavík? Og
eitthvað fleira var sagt í þessum dúr.
Velkomin vestur - velkomin
heim
En niðurstaðan varð semsagt sú, að
flóttafólkið frá fyrmrn Júgóslavíu fór
til ísafjarðar, þar sem var tekið á móti
því af einstökum hlýhug og ljúf-
mennsku og það boðið velkomið vest-
ur; velkomið heim.
Það var gaman að íylgjast með því
hversu vel var að öllu staðið. Þegar
fulltrúar Rauða krossins kvörtuðu
undan því að það vantaði sjálfboðaliða
til þess að aðstoða, þá fylltist sjálf-
boðaliðanámskeiðið. Þegar leitað var
eftir því við fólk á svæðinu um að
gefa húsmuni, leikföng og annað það
sem venjuleg fjölskylda þarf, þá
streymdi fólk að með hluti sem ekki
voru af verra taginu.
Fólkinu var úthlutað íbúðum við
Pollgötuna, í miðbæ ísafjarðar, rétt í
næsta nágrenni við alla þjónustu og
með útsýni yftr sjálfan Pollinn, eitt
helsta tákn Isafjarðar. Betra gat það
ekki verið.
Aðdáunarvert framtak
kvenna
Hópar kvenna tóku til við að koma
íbúðunum í gott horf. Kvenfélagið í
Hnífsdal sá um eina íbúð, einhver
annar hópur um aðra og svo framveg-
is. Allt var gert af þeirri natni, sem
verið væri að útbúa eigin íbúðir til
varanlegrar búsetu. Þess var vandlega
gætt að allt væri gert af smekkvísi.
Þegar konunum fannst að húsgögnin í
íbúðinni sem þær voru að útbúa pöss-
uðu ekki nægilega vel saman, var at-
hugað í þá næstu hvort ekki mætti
skipta á húsgögnum svo vel færi á
báðum stöðum. - Græni stóllinn var
færður á milli hæða, þar sem hann fór
betur og sá blái settur inn í staðinn,
svo dæmi sé tekið. Og mér var jafnvel
sagt af konum sem skutluðust heim og
tóku niður gluggatjöldin sín og komu
þeim fyrir hjá hinum nýju íbúum við
Pollgötuna.
Það er ekki laust við að maður fyll-
ist í senn aðdáun og stolti yfir þessum
móttökum og þeim hlýhug sem þær
bera með sér. Slíkar viðtökur bera
hróður íbúa hins nýja ísafjarðarbæjar
um land allt og sýna vel hvers þeir eru
megnugir.
Vel að öllu staðið
Bæjaryfirvöld hafa og staðið afar
vel að öllum undirbúningi og ekki til
sparað svo að sem best takist til. Sama
er raunar að segja um allt það fólk
sem að málinu hefur komið, og þá
ekki síst fúlltrúa Rauða krossins jafnt
á ísafirði sem syðra.
Forsvarsmenn Rauða krossins tjáðu
mér líka að mjög fljótlega hefðu for-
svarsmenn fyrirtækja boðið fólkinu at-
vinnu af ýmsu tagi. Athyglisvert var
og að margir úr hópi þess létu í ljósi
áhuga á að fá sem fyrst að verða virkir
þátttakendur í sínu nýja samfélagi.
Það var vissulega góðs viti. Auðvitað
er best ef þetta fólk nær því sem fyrst
að verða fúllgildir og venjulegir íbúar
í samfélaginu. Til þess stendur vilji
þess sjálfs.
Efasemdarraddirnar hafa
hljóðnað
Efasemdarraddimar hafa fyrir löngu
hljóðnað. f mínum huga er enginn vafi
á því að einmitt sú ákvörðun að heim-
ila ísfirðingum að taka á móti flótta-
fólkinu nú var gríðarlega mikilvæg.
Viðtökumar og undirbúningurinn sýn-
ir að það var rétt ákvörðun
Við íslendingar höfum nefnilega
staðið okkur skammarlega við mót-
töku flóttafólks. Það er alls ekki
vansalaust hversu við höfum haldið að
okkur höndum í þeim efnum, eins.pg
ég benti raunar á í grein sem ég rítaði
á sínum tíma hér í Alþýðublaðið þegar
það kom fyrst til tals að ísafjarðarbær
tæki á móti flóttamönnunum sem rík-
isstjómin hafði boðað að veitt yrði hér
skjól.
Andrúmsloft á Isafirði er ótrúlega
alþjóðlegt. fbúamir em vanir því að
þar búi um lengri og skemmri tíma
fólk af erlendu bergi brotið og af ýms-
um þjóðemum. Sú sambúð hefúr jafn-
an gengið vel og árekstralítið. Sú
reynsla sem þegar er fengin bendir til
þess að þannig verði þetta líka nú.
Hinir nýju íbúar ísafjarðarbæjar hafa
verið boðnir velkomnir vestur og hér
með er það endurtekið.
Reynslan að vestan á auðvitað að
verða til þess að við látum ekki staðar
numið. Vel færi á því að við tækjum
ákvörðun sem fyrst um frekari mót-
töku erlendra flóttamanna. Sýnir ekki
einmitt reynslan frá ísafirði það, að
önnur byggðarlög geta allt eins boðið
fram skjól fyrir stríðshijáð fólk úr fjar-
lægum heimshlutum?
Höfundur er þingmaöur Sjálfstæöis-
flokksins á Vestfjöröum.
a t a I 2 8.
ú s t
Atburðir dagsins
1818 Landsbókasafn íslands er
talið stofnað þennan dag. Það
hét upphaflega íslands Stiftis
bókasafn og tók til starfa 1825.
Jón Ámason þjóðsagnasafnari
var fyrsti bókavörðurinn. 1862
Her Garibaldis tekur land við
Calabria í herferð sinni til
Rómar. 1927 Ríkisstjórn
Tryggva Þórhallssonar tók við
vöidum, og sat í tæp fimm ár.
1967 Tólf manna áhöfn Stíg-
andi frá Ólafsfirði fannst heil á
húfi eftir að hafa verið í björg-
unarbátum á fimrnta sólar-
hring. 1974 Rfkisstjórn Geirs
Hallgrímssonar, samstjórn
Framsóknar og Sjálfstæðis-
flokks, tók við völdum. 1986
Bylgjan hóf útsendingar, fyrst
útvarpsstöðva í einkaeign.
1988 Bandaríski leikstjórinn
John Huston deyr.
Afmælisbörn dagsins
Johann Wolfgang von Goet-
he 1749, þýskt skáld. Leo Tol-
stoy 1828, rússneskur rithöf-
undur. Charles Boyer 1899,
franskur leikari. Emlyn Hug-
hes 1947, ensk knattspyrnu-
stjama, ættuð frá Wales.
Annálsbrot dagsins
A Hamraendum í Breiðafjarð-
ardölum fann fátækur maður
dautt barn undir pallinum í
baðstofunni; dróttaðist að
vinnukonu Jóns þar búanda, að
hún mundi þess barns móðir
vera og þar leynilega með-
höndlað hafa, hver kona síðan
hvarf, og vissi enginn hvað af
hefði orðið, en um vorið fannst
hún dauð í Haukadalsá.
Eyrarannáll 1683.
Fáráðlíngur dagsins
Mér er sagt ég hafi í skóla ver-
ið sú tegund af fáráðlíngum
sem hafa dúxaveikina. Það er
talið á íslandi að þeir sem hafa
þessa veiki geti aldrei orðið
annað en drykkjurútar, blaða-
menn eða undirkontóristar.
Álfgrímur í Brekkukotsannál Hall-
dórs Laxness.
Málsháttur dagsins
Víðar er guð en í Görðum,
hann er líka í Grindaskörðum.
Ánægja dagsins
Gestir em ævinlega til ánægju
- ef ekki þegar þeir koma, þá
þegar þeir fara.
Portúgalskt orötak.
Orð dagsins
Seggi inarga sverðið vó
í sóknaréli þungu,
langt um fleiri finnast þó
felldir af illri tungu.
Jón Bjarnason frá Presthólum; úr
Síraksrímum.
Skák dagsins
Enski stórmeistarinn Speelman
er frumlegur skákmaður sem
oft hefur náð að velgja sterk-
ustu meisturum heims undir
uggum. Hér það hinsvegar
Hodgson landi hans sem er í
hlutverki fórnarlambsins. Spe-
elman hefur hvítt og töfrar
fram vinning í þessari sakleys-
islegu stöðu.
Hvítur leikur og vimtur.
1. Bxd5! Og hvítur nær vinn-
ingsstöðu, sama hvemig svart-
ur svarar. 1. ... exd5 2. Rxf6+
eða 1. ... Dxd5 2. Hxc8! Hxc8
3. Rxf6+ og drottningin fellur.