Alþýðublaðið - 28.08.1996, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Landráð
ísland og Evrópusam-
bandið-2. grein
s
Eg hélt því fram í síðustu grein
minni hér í Alþýðublaðinu að um-
ræðuna um aðild að Evrópusamband-
inu (ESB) mætti ekki missa út í sama
fen og umræðuna um Evrópska efna-
hagssvæðið (EES). Til þess að forðast
það væri mikilvægt að byija umræð-
una rétt. Þetta er ekki að ástæðulausu
því að margur Islendingurinn hefur
setið undir ásökunum um sölu lands
og sjálfstæðis þegar tekist hefur verið
Pallborðið |
á um mikilvæg mál í gegnum tíðina.
Sárin sem af hafa hioiisí hafa seint
gróið og staðið íslenskum stjómmál-
um fyrir þrifum. Þetta á m.a. við um
NATO, EFTA og nú síðast EES um-
ræðuna. Asakanimar hafa oftast dunið
á þingmönnum þó mikilvægar undan-
tekningar séu frá því eins og mál
„Varins lands“ era dæmi um. Kíkjum
aðeins nánar á þetta.
Andstæðingar NATO, EFTA og
EES stóðu gegn þeim meirihluta Al-
þingis sem gerðist aðili að ofangreind-
um samningum. Þessi sami meirihluti
var ekki kjörinn til að þess að standa
gagngert fyrir því að ganga í NATO
eða gerast aðilar að EFTA eða EES.
Almenningur var því ekki spurður
álits í þessum mikilvægu málum fyrir-
fram. Minnihluti Alþingismanna hélt
uppi málþófi í þeirri von að tefja
mætti eða hindra afgreiðslu á Alþingi
og koma málunum með þeim hætti til
kasta_þjóðarinnar við nýjar þingkosn-
ingar/ Þegar svona er staðið að málum
hjá meirihluta Alþingis og ríkisstjóm
og svik
finnst mér í sjálfu sér ekki óeðlilegt að
minnihlutinn á Alþingi og samtök
andstæðinga utan Alþingis bregðist
hart og óvægið við því Alþingi er ekki
ætlað að hafa vit fyrir þjóðinni heldur
að framkvæma vilja hennar. Þegar um
er að ræða stórmál sem varða framtíð
okkar miklu þarf sá vilji að vera ljós.
Barátta sem háð er undir öðram kring-
umstæðum, oft á mjög stuttum tíma,
verður hörð og snýst því miður oftast
ekki um kjama málsins heldur grun-
semdir um að verið sé að svíkja land
og þjóð. Vopnin sem best bíta era þau
sem höggva að tilfinningum okkar
fyrir sjálfstæði og sögu þjóðarinnar.
Gömlu þjóðskáldin era rifin upp, boð-
skapur þeirra slitinn úr samhengi og
gerður að táknmáli í einhverri baráttu
um allt annað efni á allt öðram tíma
en þau í rauninni tilheyra. Meirihluti
Alþingis er sagður vera flokkur land-
ráðamanna og svikara og hann svárar
síðan og segir minnihlutann málpípu
annarlegra hagsmuna, gott ef ekki
landráðamenn og svikara líka. Afleið-
ingin birtist síðan í störfum Alþingis
áratugum saman þar sem menn og
fíokkar geta helst ekki rætt saman,
hvað þá að sarhnerjar geti sameiiiasí
eins og sundrung jafnaðarmanna er
dæmi um.
Eg er ekki einn um að krefjast þess
að öðruvísi verði staðið að málum
hvað varðar umræðuna um hugsan-
lega aðild að ESB. Uni margt era önn-
ur skilyrði nú til staðar fyrir skynsam-
legri umræðu um framtíð Islands í
samfélagi þjóðanna og stöðu okkar
innan Evrópu en áður hafa verið. Sig-
hvatur Björgvinsson benti á í ágætri
grein skömmu eftir forsetakosningar
að sigur Ólafs Ragnars Grímssonar
væri merki um breytingar í aðsigi. Það
held ég að sé rétt án þess að vita frekar
heldur en Sighvatur hvaða breytinga
sé að vænta. Eitt er víst að Ólafur
Ragnar hefur lýst þeirri skoðun sinni
að aðild að ESB beri að leggja fyrir
þjóðina ef á reynir. Þessi yfirlýsing er
ekki sett fram í andstöðu við ríkjandi
viðhorf stjómmálamanna og lögfræð-
inga, þvert á móti. Eitt og sér styrkir
Meirihluti Alþingis er sagður vera flokkur ianuráða-
manna og svikara og hann svarar síðan og segir minni-
hlutann málpípu annarlegra hagsmuna, gott ef ekki
landráðamenn og svikara líka.
Við handtöku fullyrti konan
að drengurinn heíui iírGÍu ut
sögur um ósiðlegt framferði
hennar og hún hefði ekki haft
aðra leið tii að stöðva hann.
þó þetta viðhorf hins nýja forseta þann
umbúnað sem umræðan um aðild þarf
að hafa. Hann er sá að hver svo sem
meirihlutinn á Alþingi verður þá er
víst að niðurstaða viðræðna verður
lögð fyrir þjóðina. Það verður engu
ofbeldi beitt og þjóðin tekur afstöðu
og ber ábyrgð á örlögum sínum sjálf.
Alþingi þarf ekki að hafa vit fyrir
þjóðinni heldur þarf Alþingi að kosta
kapps um að það sé upplýst og með-
vituð þjóð sem afstöðu tekur. Ekki
bara fróð um reglur, reglugerðir og
styrki því slíkt era hverful sannindi í
síbreytilegum heimi. Þjóðin þarf að
vera meðvituð um sjálfstæði sitt, full-
veldi og sjálfa sig sem einstakling í
samfélagi þjóðanna. Hún þarf að hafa
það á hreinu hveijar afleiðingar það
getur haft á framtíð hennar komi til
aðildar eða verði henni hafnað. Það er
hlutverk okkar Alþýðuflokksmanna
að efna til þessarar umræðu. Ekki sem
Evrópusinnar heldur sem fslendingar
og jafnaðarmenn. í þeirri umræðu
verða engir landráðamenn og svikarar
aðrir en þeir sem láta fordóma og
þekkingarleysi stýra orðum sínum og
gerðum.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Egypsk kona að útskýra afhverju hún beit
tunguna úr sautján ára landa sínum. DV.
Einnig hafði hann [John F.
Kennedy] fengið að vita að
leikkonan fræga hefði sagt að
bólfimi forsetans væri ekki meiri
en hjá lítt þroskuðum unglingi.
Hann bað því bróður sinn,
dómsmálaráðherrann, að tjá
leikkonunni að sambandinu væri
lokið. Varð þetta til þess
að Robert Kennedy gerðist
elskhugi hennar.
Morgunblaðið sagði nýjar fréttir af ástum
Marilyn Monroe og Kennedy-bræðra.
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
Forsetahjónin, Ólafur
Ragnar Grímsson og
Guðrún Katrín Þor-
bergsdóttir, halda í
fyrstu opinberu heimsókn
sína um helgina. Þá ferð-
ast þau um Vestfirði, og
þykir fara vel á því. Fyrsti
áfangastaður Ólafs verður
Hrafnseyri, en þar er fæð-
ingarstaður annars forseta
- Jóns Sigurðssonar.
Þess má til gamans geta
að nýverið fundust í fór-
um forsetaembættisins
myndir úr opinberri heim-
sókn Sveins Björnsson-
ar, fyrsta forseta lýðveld-
isins, til ísafjarðar árið
1948. Þar er meðal annars
mynd af ísfirðingum sem
standa á bryggjunni að
fagna forseta sínum, og er
þar fremstur í flokki fimm
vetra Ijóshærður hnokki -
enginn annar en Ólafur
Ragnar, fimmti forseti lýð-
veldisins...
Viðtal okkar við Her-
mann Gunnarsson á
dögunum vakti athygli,
enda lét hinn síhressi
Hemmi vaða á súðum.
Einsog fram kom verður
hann með þátt í Ríkissjón-
varpinu á laugardags-
kvöldum í vetur, en lét
þess getið að Stöð 2 hefði
líka sýnt honum áhuga.
Reyndin mun hinsvegar
sú, að Hemmi knúði dyra
hjá Stöð 2 og vildi færa
sig þangað, en áhugi
Stöðvarmanna var mjög
af skornum skammti...
r
Ymsir muna áreiðan-
lega eftir uppfærslu á
leikritinu Sjúk ásfeftir
Sam Shepard fyrir fáein-
um árum. Leikhópurinn
„Annað svið" stóð fyrir
sýningunni, og hann er nú
aftur kominn á kreik. Hinn
19. október verður Svan-
urinn eftir bandaríska leik-
skáldið Elizabeth Egloff
frumsýndur í Borgarleik-
húsinu. Leikstjóri kemur
frá Bandaríkjunum, Kevin
Kuhlke, en hann leik-
stýrði einmitt Sjúkri ást.
Hlutverk eru í höndum
Maríu Ellingsen, Björns
Inga Hilmarssonar og
Ingvars E. Sigurðsson-
ar...
„Ég efast stórlega um að mér sé unnt að segja krökkunum
frá honum þessum."
Bjarney Sigvaldadóttir
hárgreiðslumeistari: Nei,
mjög sjaldan. Ég hlusta aðal-
ega á Rás 2.
Iðunn Guðjónsdóttir
nemi: Nei, ég hlusta aldrei á
Bylgjuna, bara á X-ið.
Hinrik Karl Hinriksson
verksmiðjustjóri: Nei, mjög
sjaldan. Ég hlusta bara á Rás
2.
Sigurrós Tryggvadóttir
sjúkraliði: Nei, ég get varla
sagt það.
Kolbrún Sævarsdóttir lög-
fræðingur: Já og þá helst á
kvöldin og alla fréltatíma -
Gulli Helga er bara fyrir litlu
bömin.
Slíka samfélagsþjónustu er
ekki hægt að einkavæða.
Jens Andrésson formaður Starfsmanna-
félags ríkisstofnana um útboð á rekstri
fangelsisins á Kvíabryggju.
Ástandið hefði aldrei orðið
svona alvarlegt í Hafnarfirði,
ef bærinn hefði ekki unnið álver
í happdrætti og látið það gera
sig að peningafíkli.
Jónas Kristjánsson sálgreindi Hafnarfjörö
( forystugrein DV í gær.
Peningunum er betur varið
í að kaupa diskútgáfu upphaflegu
plötunnar.
Umsögn Sveins Haraldssonar um söngleik-
inn Sumar á Sýrlandi. Mogginn.
Hverju sinni sem þeir
[velunnarar RÚV] leggja orð í
belg til liðveislu við Ríkisútvarpið
eru þeir að skipast í einarða
sveit sem sækir fram undir merki
bjartsýni og baráttugleði.
Kommandör Heimir Steinsson fór á kostum
í Morgunblaðinu í gær - að venju.
fréttaskot úr fortíð
Jarðepli
Mig langar að biðja „Alþýðublaðið"
fyrir nokkur orð um jarðepli. Mér
gremst sem sé, hvemig lélegar jarð-
eplategundir, sem ekki era notaðar er-
lendis, nema til skepnufóðurs, era
seldar hér til manneldis, - og það,
sem er gremjulegast að vita, er það,
að almenningur skuli kalla allt bara
jarðepli og engan mun gera á góðum
og lélegum tegundum.
Alþýðublaöiö,
miðvikudaginn 4. april 1923.