Alþýðublaðið - 11.09.1996, Side 3

Alþýðublaðið - 11.09.1996, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n Baráttan um frumkvæðið Það éru nokkrar vikur síðan ég skrifaði í þetta ágæta blað og gagnrýndi orðaskak Alþýðublaðsins og Vikublaðsins og hom þeirra í síðu forystumanna Alþýðuflokks og bandalags. Sérstaklega gerði ég að umtalsefni viðbrögð Alþýðublaðsins við bréfi sem Margrét Frímannsdóttir skrifaði í því skyni að biðja um við- ræður milli stjórnarandstöðuflokkanna um samvinnu. Ég leyfði Margréti að njóta efans um stund um að þar hafi legið að baki einlægur vilji hennar til að samfylkja stjómarandstöðunni, en ekki örvæntingarfull tilraun til að halda •frumkvæðinu* í þessarri svo- kölluðu sameiningarumræðu. Pallborðið | Magnús Árni Magnússon skrifar Nú hafa þau tíðindi orðið að tveir stjórnarandstöðuflokkar hafa komið sér saman um nánara samstarf en aðrir og sameinað þingflokka sína, þó hreyfingarnar sem að baki þeim standa verði áfram sjálfstæðar skipu- lagsheildir. Þá bregður svo við að það hljóð sem heyrist úr horni Alþýðu- bandalagsins er á þá lund að nú ætli það sko að snúast til varnar ásamt Kvennalistanum gegn þeirri vá sem nú steðji að þeim í formi hins nýja þingflokks. Það gerist þrátt fyrir það að yfirlýst markmið þingflokks jafnð- armanna sé að stuðla að nánara sam- starfi innan stjómarandstöðunnar og að þessi sameining þingflokkanna sé í raun til að formgera það sem var orðið í raun: Alger hugmyndafræðileg sam- staða Alþýðuflokks og Þjóðvaka. Menn tala um að með þessu hafi fmmkvæðið verið hrifsað úr höndum Alþýðubandalagsins, sem hrifsaði það an Jónas stofnaði tvo flokka á sama árinu, eða kannski frá stofnun Sjálf- stæðisflokksins, sem kannski var enn meiri atburður í ljósi sögunnar. A Islandi verður enginn ríkur af stjómmálaþátttöku og því síður virtur að verðleikum í lifanda lífi. En það hlýtur að vera hávamálaerindið um orðstírinn sem rekur menn til þessarar eih'fu baráttu um frumkvæðið, því ef ekki væri fyrir hana, væri búið að sameina þessa flokka fyrir löngu. Höfundur er varaþingmaður Alþýðuflokksins í Reykjavík Menn tala um að með þessu hafi frumkvæðið verið hrifsað úr höndum Alþýðubandalagsins, sem hrifsaði það þá væntanlega úr höndum Jóhönnu sem hrifsaði það úr höndum Jóns Baldvins og Ólafs Ragnars sem tóku við því af Vilmundi.... þá væntanlega úr höndum Jóhönnu sem hrifsaði það úr höndum Jóns Baldvins og Ólafs Ragnars sem tóku við því af Vilmundi sem tók upp frumkvæði Hannibals, sem tók við af Héðni og sjálfsagt eru þeir margir minni spámennimir þama á leiðinni sem héldu dauðahaldi í frumkvæðið að sameiningu Alþýðunnar í einum flokki. Héldu slíku dauðahaldi í frum- kvæðið að það varð að kyrkingartaki hins eigingjama. Allir vilja eiga heið- urinn að því sem yrði mesta afrek á sviði spilamennsku stjómmálanna síð- Um næstu mánaðarmót hefst vetrardagskrá Sjónvarpsins með form- legum hætti. Ýmsir ís- lenskir þættir verða á dag- skrá. Alþýdublaðið hefur þegar sagt frá spjallþætti þeirra Ingólfs Margeirs- sonar og Árna Þórarins- sonar en hann mun bera heitið Á 11. stundu og verður á dagskrá á mið- vikudagskvöldum. Hemmi Gunn verður á skjánum hálfsmánaðarlega á laug- ardagskvöldum og á móti honum verður grínþáttur sem þau Guðný Hall- dórsdóttir, Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr hafa yfirumsjón með en auk þeirra koma að gerð þáttanna þau Edda Björgvinsdóttir og Magnús Ólafsson. Vænt- anlega sprellandi fjör þar á ferð en þátturinn mun heita Orninn er sestur. Dagsljós og Ó-ið verða ennfremur á dagskrá sem og síðasta vetur... Mikill áhugi er fyrir Geirfinnsmálinu og eins og lesendur Alþýðu- blaðsins þekkja er Sigur- steinn Másson nú að gera heimildamynd um málið og Viðar Víkings- son kvikmyndagerðar- maður er nú að leita eftir fjármagni til að gera mynd sama efnis. Fyrirhugað er að sú mynd lúti lögmáli skáldskaparins og verður einskonar sáIfræði-try11ir. Vinnutitillinn er Öskur í spegli. Viðar hefur þegar hlotið styrk til gerðar myndarinnar frá Menning- arsjóði útvarpsstöðva... Skemmtikrafturinn Dav- íð Þór Jónsson hyggst nú beina kröftum sínum í ríkari mæli inná aðrar brautir en þær einar að segja skemmtisögur á sviði. Davíð upplýsti í út- varpsþætti Árna Þórar- inssonar á Rás 2 á dög- unum að hann væri nú starfandi í hljómsveitinni Farisearnir þar sem hann er potturinn og pannan, semur lög og texta, spilar á gítar og syngur. Hljóm- sveitin er við upptökur og mun senda frá sér disk fyr- ir jólin. Davíð Þór ætlar sjálfur að gefa út plötuna en samningar um drey- fingu hennar standa yfir. Davíð hefur getið sér gott orð sem laga og einkum textasmiður með hinni fornfrægu hljómsveit Kát- um piltum úr Hafnarfirði og með þýðingu sinni á söngleiknum Hárinu. Þá hefur hann samið texta fyrir ýmsar hljómsveitir svo sem SSSól (Það eru álfar inní þér). Hins vegar eru deildari meiningar um sönghæfileika Davíðs en hver mun geta dæmt bet- ur fyrir sig þegar líða tekur að jólum... "FarSido" eftir Gary Larson Psycho III Myndir þú mæta Mike Tyson í hringnum fyrir 330 milljónir? mm Smári Waage bílstjóri: Já, engin spurning. Ég myndi þykjast vera rotaður eftir nokkrar sekúntur. Ómar Örn Hauksson teiknari: Já, en ætli hann myndi ekki rota mig í hvelli. Benedikt Guðbjartsson bankamaður: Nei, mér þyk- ir alltof vænt um það litla sem eftir er af þessu andliti. Sacchini Guillaume nála- stungusérfræðingur: Já, en ætli ég myndi þola meira en svona 5 til 10 sekúntur. Trausti Sverrisson bóndi: Nei, ég kann ekki box. JÓN ÓSKAR Hálaunastáttir maka krókinn og fá launahækkanir ár eftir ár á meðan forysta fjölmennra lág- launasamtaka fíflast í einhverri þjóðarsátt, sem klókir menn skrökva að henni að komi skuldugu láglaunafólki sérstaklega til góða. Oddur Ólafsson í DT í gær. Ferskleiki hugmyndarinnar við að ráða Einar Karl til þessa verkefnis er augljós. Ágúst Einarsson í DT í gær. Halldór Laxness sigraði heiminn með íslenskunni. Bubbi Morthens í DT í gær. Konur, er þetta ekki jafnrétti í hnotskurn? Við getum, við viljum og þorum. Höfum karlmennina með á okkar forsendum. Helga Dögg Sverrisdóttir tekur upp hansk- ann fyrir fráskilda karlmenn. Mogginn í gær. Ég stundaði karate í nokkur ár en eitt sinn þegar ég var á rúntinum á mótorhjóli opnaði ung dama bílhurðina beint í flasið á mér. Hjörtur P. Jónsson rallkappi, og... kappi, í Mogganum í gær. En meiðslin sem ég varð fyrir há mér ekki í rallinu. Þau eru á vinstri fæti, bremsufætinum. Ég nota bensínfótinn meira... Hjörtur aftur. Ef svona nokkuð sæist í Skandinavíu og reyndar víðar yrði allt vitlaust. Það þykir einfaldlega ekki við hæfi að geia þá einhiiða mynd af atvinnulífi og stjórnkerfi þjóða á Vesturlönd- um að þar séu karlar allt í öllu endar er það ekki raunin. Kristín Ástgeirsdóttir þrasar um kynjakvóta en í sendinefnd íslands í Kóreru er engin kona. DV í gær. Dagvistun skal það heita í Reykjavík. Leikskóiar eru einkum í Hafnarfirði og hjá fólki sem ekki vill láta taka sig of alvarlega. Sigurður Antonsson í DV í gær. Samkvæmt orðanna hljóðan er refsing einfaldlega refsing. Jónas Kristjánsson ritstjóri berst fyrir harð- ari refsingum í leiðurum sínum og svo var einnig í gær í DV. fréttaskot úr fortíd m e n n v i t Hundapestin Að því er Magnús Einarsson dýra- læknir segir, er hundapestin komin til bæjarins. Ráðleggur hann sveitahund- um að halda sér í hæfilegri fjarlægð frá bænum meðan pestin geysar, og skorar á eigendur þeirra að hafa áhrif á þá í þá átt. Vonandi hefir þetta til- ætluð áhrif. Alþýðublaðið, þriðjudaginn 12. október 1920.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.