Alþýðublaðið - 26.09.1996, Síða 1
■ Ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýna forseta Islands fyrir
ummæli hans um vegi í Barðastrandasýslu
■ Yfirlýsingar Gunn-
ars Birgissonar vekja
Dónaleg framkoma
í garð forsetans
- segir Steinunn Þorsteinsdótt-
ir hreppsnefndarmaður í Reyk-
hólahreppi. „Við höfum lengi
verið afskipt í vegamálum og
erum ánægð með að vakin
skuli athygli á því."
„Mér finnst þetta dónaleg
framkoma í garð forsetans. Ég
skil ekki afhverju mennirnir geta
ekki gleymt pólitíkinni aðeins,
eða afhverju forsetinn má ekki
hafa skoðanir á vegamálum,“
sagði Steinunn Þorsteinsdóttir,
sem sæti á í hreppsnefnd Reyk-
hólahrepps í Barðastrandasýslu,
um viðbrögð ráðherra og þing-
manns Sjálfstæðisflokksins við
yfirlýsingum Ólafs Ragnars
Grímssonar um ástand vega í
sýslunni.
Forseti lét þau orð falla eftir
heimsókn sína vestur á dögunum
að brýnt væri að bæta vegi í
Barðastrandasýslu, enda væru
þeir óvíða verri á landinu. Hall-
dór Blöndal samgönguráðherra
brást við með því að segja að Ól-
afur Ragnar hefði betur sýnt
vegamálum Vestfirðinga áhuga
þegar hann var þingmaður. Þá
ritaði Árni Johnsen alþingismað-
ur grein í Morgunblaðið í gær og
sagði að forseti hefði farið út fyr-
Halldór Blöndal og Ólafur
Ragnar Grímsson á Alþingi.
íbúum í Barðastrandasýslu
finnst viðbrögð sjálfstæð-
ismanna við orðum forseta
ósæmileg.
ir verksvið sitt.
Steinunn sagði að íbúar í sýsl-
unni væru mjög ánægðir með
heimsókn forsetahjónanna, sem
hefði heppnast vei í hvívetna. Þá
væri ástand vega í sýslunni með
þeim hætti, að ekkert athugavert
væri þótt vakin væri athygli á
því. „Við höfum lengi verið af-
skipt í þessum málum og erum
ánægð með að vakin skuli athygli
á þessu máli,“ sagði Steinunn.
■ Njála í fyrsta sinn
í finnskri þýðingu
Gunnará
Hlíðarenda
f Bosníu
Njáls saga er nú í fyrsta sinn komin
út á finnsku og hefur hlotið mikið lof
gagnrýnenda. Þýðinguna gerði hinn
þekkti rithöfundur Antti Tuuri, sem
áður hafði þýtt Egils sögu á frnnsku.
Gagnrýnandinn Aimo Siltari segir
þýðinguna „afreksverk" og hrósar
gagnorðum og kaldhæðnislegum stíl
sögunnar. Njáls saga lýsir hringrás
blóðhefndarinnar sem engan enda tek-
ur og steypir heilum ættum, skyld-
mennum og vinum í glötun, segir Silt-
ari. Hann segir að Njáls saga beini
huganum að þeim ódæðisverkum og
bræðravígum sem unnin hafa verið í
hjarta Evrópu síðustu ár.
furðu og reiði
Getum ekki
látið bjóða
okkur svona
vinnubrögð
- segir Guðmundur Oddsson.
Bæjarfulltrúar Alþýðuflokks
leggja til að tónlistarhöll verði
byggð í Kópavogi.
„Við erum með menntamálaráð-
herra sem hefur lýst því yfir að stefna
beri að byggingu tónlistarhallar innan
tíðar. Ef það er tilfellið að Kópavogur
getur lagt fram 300 milljónir eins og
ekkert sé í byggingu tónlistarhúss í
Kópavogi eins og Gunnar Birgisson
vill meina, þá er spuming hvort ekki
eigi að hugsa stænra og reisa tónlist-
arhöll," segir Guðmundur Oddsson
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í
Kópavogi en hann hefur ásamt Krist-
jáni Guðmundssyni lagt fram tillögu í
bæjarstjóm þess efnis að sérhönnuð
tónlistarhöll verði byggð í Kópavogi.
„Við erum með hóp fólks sem
hefur áhuga á að taka þátt í því að
reisa tónlistarhöll og kannski er þama
komið þar sem þarf til að leysa í eitt
skipti fyrir öll þau tónlistarhúsa-
vandamál sem hafa svo mjög plagað
þjóðina. Kópavogur yrði þá eins kon-
ar Mekka tónlistarlífs í landinu,“ seg-
ir Guðmundur.
Tillagan kemur í beinu framhaldi
af þeim orðum Gunnars Birgissonar,
formanns bæjarráðs, í Morgunblað-
inu að ákveðið hefði verið að reisa
sérhannað tónlistarhús í Kópavogi.
Þessi tilkynning Gunnars virðist
koma flestum bæjarfulltrúum á óvart
og þeir kannast ekki við að ákvörðun
hafi verið tekin í því máli. Bæjar-
stjórinn, sem nýkominn er til landsins
úr fríi, mun ekki heldur kannast við
þess ákvörðun og er sagður heldur
óhress með málsferð.
„Það er náttúrlega fyrir neðan allar
hellur að við skulum lesa það fyrst í
blöðunum að búið sé að ákveða
framkvæmdir upp á hundruði millj-
óna,“ sagði Guðmundur Oddsson.
„Ég meina það í fúllri alvöru að við
getum ekki látið bjóða okkur svona
vinnubrögð.“
w
■ Oróleiki á fréttastofu Stöðvar 2 vegna brottreksturs Sigursteins Mássonar
Þetta er skrípaleikur
Bessastaöa-
bækurnar
á sínum stað. Hvað
segir Korní í dag?
Þingmenn stjórnar-
andstöðunnar safna
vopnum sínum fyrir
heitan vetur í pólitík.
Eða hvað?
Ritstjórinn sem get-
ur eldað menn uppí
rúm til sín -eða
getur hún það?
- segir Sigursteinn Másson og
telur víst að Jón Ólafsson ráði
því að hann var rekinn. Heimir
Már Pétursson: Sem trúnaðar-
maður lít ég þetta mjög alvar-
legum augum.
,,Ég er mjög ósáttur við það að Elín
Hirst fréttastjóri skuli gera lítið úr mér
sem starfsmanni. Ég hef aldrei á sjö
ára fréttamannsferli mínum fengið svo
mikið sem eina ámiimingu,“ segir Sig-
ursteinn Másson fyrrverandi frétta-
maður Stöðvar 2 í samtali við Alþýðu-
blaðið. Eins og blaðið greindi frá í
gær hefur Sigursteini verið sagt upp. f
hans huga leikur enginn efi á um að
uppsögnin tengist efhi heimildamynd-
ar um Geirfmnsmálið sem hann er að
vinna og þeirri staðreynd að kona Páls
Baldvins Baldvinssonar er dóttir eig-
inkonu Hallvarðs Einvarðssonar ríkis-
saksóknara sem kemur við sögu í
myndinni.
Sigursteinn segir þetta koma sér í
opna skjöldu einkum vegna þess að í
sumar lýsti Elín því yfir í vitna viður-
vist að hún teldi vinnu Sigursteins við
gerð heimildarmyndar um Geirfmns-
málið markverða. „Það komu aldrei
neinnar kvartanir vegna þessarar
vinnu minnar né kvartanir þess efnis
að ég gæti illa sinnt vinnu minni á
fréttastofunni hennar vegna,“ segir
Sigursteinn.
Heimir Már Pétursson.er trúnaðar-
maður fréttamanna Stöðvar 2 og hann
segist aldrei hafa orðið var við
óánægju með störf Sigursteins. „Ég
undrast þessa uppsögn og þær ástæður
sem fréttastjóri gefur í viðtali við Al-
þýðublaðið. Ég lít það alvarlegum
augum þegar einum af mínum starfs-
félögum er sagt upp störfum og í upp-
sagnarbréfinu eru engar ástæður gefii-
ar,“ segir Heimir og telur það augljóst
að þessi gjömingur ali á óöryggi með-
al starfsmanna. ,,Það er illt ef hægt er
að segja starfsmönnum upp án aðvar-
ana eða gildra ástæðna. Það hlýtur að
þurfa að endurskoða forsendur þessar-
ar uppsagnar.“
Heimir segir þetta mál svo nýtt á
nálinni og ekkert sé hægt að segja um
hvort gripið verði til aðgerða.
„Ég gat reyndar búist við því að Jón
Ólafsson myndi skipa Elínu Hirst að
Sigursteinn Másson: Ég gat
reyndar búist við því að Jón
Ólafsson myndi skipa Elínu Hirst
að reka mig.
reka mig í framhaldi af samningi mín-
um við Ríkissjónvarpið um sýningar-
rétt,“ segir Sigursteinn. „En það var
eftir að forsvarsmenn Stöðvar 2 höfðu
reynst ófáanlegir til að samþykkja að
frumsýning á þáttunum tveimur yrði
þar vegna þeirra vandræða sem þeir
telja sig standa frammi fyrir vegna
dagskrárstjórans Páls Baldvins Bald-
vinssonar og tengsla hans við ríkissak-
sóknara. Það er enginn vafi á að af-
staða þeirra tengist þessu máli enda
kom það fram í öllum samtölum, við-
ræðum og þetta vita allir innan Stöðv-
arinnar, og aldrei verið einhver felu-
leikur af hálfu Páls Baldvins. Hann
hefur alltaf sagt þetta vandræðamál
fyrir sig.“
Sigursteinn segir tómt mál um að
tala að fféttastofa Stöðvar 2 sé sjálf-
stæð. „Það vita allir fréttamenn sem
eru starfandi á fféttastofunni að svo er
ekki í raun. Því miður og þetta er ein
staðfestingin á því. Ég sat langan fund
með Jóni Ólafssyni sjónvarpsstjóra,
Magnúsi E. Kristjánssyni markaðs-
stjóra og Hreggviði Jónssyni fram-
kvæmdastjóra þróunarsviðs nýverið.
Mér þykir það harla sérkennileg til-
viljun þegar Elín, eftir að hafa látið
þess getið í vitna viðurvist að ég hafi
alveg staðið mína plikt á fréttastof-
unni, segi mér upp daginn eftir fúnd-
inn. Þetta er í rauninni skrípaleikur,"
segir Sigursteinn.