Alþýðublaðið - 26.09.1996, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
s k o ð a n i r
MÞY9UBUDID
21183. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavik Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Tölvupóstur alprent@itn.is
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Skýr skilaboð
Skýrari geta skilaboð Seðlabankans tæpast verið. Ef ekkert
verður að gert stefnir í mikinn halla á viðskiptum við útlönd með
tilheyrandi skuldaaukningu og óróa á gjaldeyrismarkaði. Verðlag
fer hækkandi og stefhir að óbreyttu í verðbólgustig sem er hærra
en samrýmist jafnvægi og stöðugleika í hagkerfmu. Varhugaverð
þenslumerki sjást víða. Útlánaaukning hjá peningastofnunum og
stóraukin eyðsla heimilanna er mun meiri en hagvaxtaraukningin.
Fjárfestingar atvinnulífsins eru mjög umfangsmiklar. Undir
venjulegum kringum stæðum bæri að fagna því. Þær bera vott
um bjartsýni og batnandi afkomu. Það er þó athyglisvert að fjár-
festingamar eru nánast eingöngu í sjávarútvegi. Það sem af er ár-
inu hafa innlánsstofnanir aukið lán um liðlega átta milljarða
króna til sjávarútvegsins. Þær fjárfestingar eru að stærstum hluta í
veiðum, en það sem skyggir á þetta er að fjárfest er í úthafsveið-
um með óvissri framtíð.
Það vita allir, sem vilja vita, að við munum ekki veiða 35 til 40
þúsund tonn í Smugunni til langframa. Þá er líka ljóst að veiðar á
20 þúsund tonnum af rækju á Flæmska hattinum verða ekki liðn-
ar til lengdar. Fjárfestingar í þessum veiðum eru því vafasamar,
svo ekki sé meira sagt. Sjávarútvegurinn skuldar um 110 millj-
arða króna, svipaða upphæð og fyrir fimm árum. Þetta er til
marks um að góðærið í sjávarútvegi að undanfömu hefur ekki
verið notað til að ná niður skuldunum, heldur í ný útgjöld.
Skuldir heimilanna fara greinilega vaxandi, samfara batnandi
afikomu fólks. Það er sérkennilegt og mótsagnakennt. Þá er það
og umhugsunarefni, að hér er ekki um að ræða skuldir vegna
íbúðabygginga. Útgáfa húsbréfa hefur aukþess ekki verið meiri í
þijú ár en nú. Kaupmáttur launa hefur hækkað um 10 prósent á
síðustu tveimur árum. Trauðla verður séð að hagkerfi sem vill
vera í jafnvægi geti gert mikið betur án þess að brjóta af sér öll
bönd. Akjósanlegast væri að stilla hagkerfið inná 5 prósent kaup-
máttaraukningu árlega. Það er betri árangur en í nágrannaríkjun-
um. Þessi kaupmáttaraukning hefur hinsvegar að nokkru verið
tekin að láni. Þessvegna þurfum við að leggja meira fyrir og
spara.
Ef þenslan fær að smjúga í gegnum hagkerfið óhindrað með til-
heyrandi afleiðingum verður dýrt fyrir heimilin að skulda, því
vaxandi verðbólga hækkar bæði verðbætur og vexti. Reiknað var
út að hækkun á innfluttu grænmeti í sumar hefur kostað heimilin
í landinu nokkur hundruð milljónir í auknum skuldum. Því miður
hefur ríkisstjómin horft aðgerðalaus á vaxandi spennu og hækk-
andi verðlag. Stjómin ber til dæmis fulla ábyrgð á verðhækkun-
um á grænmeti og fleiri matvælum í sumar. Hún kyndir því
hressilega undir verðlagi, með því að taka hagsmuni fárra ffam-
yfir hagsmuni heildarinnar. Það er þessvegna fagnaðarefni að Al-
þýðusamband íslands skuli loksins vera farið að skoða verðlækk-
anir á innfluttum matvælum sem kröfugerðaratriði í komandi
kjarasamningum. Það var vissulega kominn tími til.
Allt ber því að sama bmnni. Þegar saman fer stjómlaust lífs-
gæðakapphlaup og ríkisstjóm sem telur skyldu sína að hygla sér-
hagsmunum, en lætur reka á reiðanum að öðm leyti, er ekki von
á góðu. Skilaboð og aðvömn Seðlabankans em skýr. Þau snúa að
þjóðinni allri, en ekki hvað síst að ríkisstjórninni: Dragið úr
eyðslu og útgjöldum, annars lendum við á slóð sem leiðir okkur
hratt í miklar og dýrkeyptar ógöngur. ■
Með eld í
Nokkur orð um Bríeti
Bjarnhéðinsdóttur, stofn-
anda Kvenréttindafélags
íslands, á 140 ára afmæli
hennar.
Kvenréttindafélag íslands heldur nú
sinn 19. landsfund, dagana 27-28.
september í Hafnarborg í Hafnarfirði.
Það fer vel á því að halda landsfund-
inn á þessum tíma því 27. september
eru 140 ár frá fæðingu Bríetar Bjam-
héðinsdóttur.
Gestaboð |
Hulda Karen
Ólafsdóttir
skrifar
Bríet Bjamhéðinsdóttir fæddist að
Haukagili í Vatnsdal þann 27. septem-
ber 1856. Foreldrar hennar voru
Bjarnhéðinn Sæmundsson bóndi og
Ingunn Snæbjömsdóttir.
Þegar Bríet er unglingur fer hugur
hennar að beinast að misrétti á milli
karla og kvenna, bæði að því er snerti
verkaskiptingu þeirra á milli, launa-
kjör og ekki síst hversu greiðari karl-
manninum var menntavegurinn en
konunni.
Síðar sagði hún sjálf ítá því þegar
hún sextán ára situr á hnjánum með
rúmíjöl við lítið ljós og skrifar sínar
fyrstu hugleiðingar um „menntun og
réttindi kvenna“. Hugur hennar stóð til
mennta enda hafði hún til þess mikla
hæfileika. Á uppvaxtarárum Bríetar
áttu stúlkur sjaidan kost á öðru en
lestramámi, þrátt fyrir námslöngun og
gáfur. Og þær þurftu að stelast til að
læra að skrifa. Bríet var svo lánsöm að
þegar foreldrar hennar flytjast að
Böðvarshólum í Vesturhópi, Vestur-
Húnavallasýslu vom til húslestrarbæk-
ur sem hún kemst í, „þegar ég var
unglingur heyrði ég lesnar bæði ár-
bækur Espólíns, stærri Mannkynssögu
Melsteðs, Félagsritin, Skími og ýmis-
legt fleira".
Bríet var fermd af séra Jóni Krist-
jánssyni á Breiðabólstað í Vesturhópi
5. júm' 1870 og hlaut sem vænta mátti
ágætan vitnisburð. Til er saga af ferm-
ingu Bríetar. Þegar hún stóð á kirkju-
gólfinu spurði prestur hana einhvers
sem vani var. Hún svaraði og fór með
ritningargrein utanað. Prestur sagði
þetta ekki rétt með farið. Hún þrætti
og lét ekki undan. Eftir messu var far-
ið að líta í biblíuna og reyndist Bríet
hafa rétt fyrir sér.
Árið 1884 fluttist Bríet til Reykja-
víkur þá 28 ára gömul. Hún kynntist
lífsförunauti sínum Valdimar Ás-
mundssyni. Þau eru gefin saman
1888. Síðar sagði Bríet að hún ætti
honum mikið að þakka í sambandi við
þroskaferil sinn, sambúðin við hann
hefði opnað sér nýjan menntaheim.
Valdimar var ritstjóri Fjallkonunnar.
Þegar Bríet heldur sinn fyrsta opin-
bera fyrirlestur 30. desember 1887,
„Nokkur orð um frelsi og menntun
kvenna", hefur þessi framhleypna
unga stúlka, sem gerir kröfur fyrir
hönd kvenna, mætt misjöfnum dóm-
æðum
IVið þökkum forsjóninni fyrir það að til eru konur á ls'
landi með eld í æðum og baráttu í hjarta, sem eru að
vinna að jafnréttismálum!
um. Á þessum tímapunkti fara kven-
réttindamál að verða umræðuefni
manna á meðal.
Mikil frelsisvakning kvenna á upp-
tök sín í ffelsisstríði Bandaríkjamanna
og frönsku stjómarbyltingunni seint á
18. öldinni. Það átti fyrir bandarískum
konum að liggja að vera í fararbroddi
kvenffelsiskvénna.
Bríet kynntist Carrie Chapmann
Catt (1859-1947, forseti Alþjóðasam-
taka kosningafélaga) á ferðum sínum
og dáðist að mælsku hennar, stjóm-
semi og skipulagshæfileikum. C.C.
Catt skrifar Bríeti og vekur máls á því
að hún stofni kvenréttindafélag á ís-
landi sem geti orðið aðili að Alþjóða-
samtökunum. Henni var kunnugt um
takmarkaðan kosningarétt kvenna til
sveitarstjórnar sem íslenskar konur
fengu 1882.
Samband Bríetar og Catt komst á
fyrir tilstilli Jóhönnu Munther sem var
ritari í kosningaréttarsamtökum
danskra kvenna (Dansk Kvindeforen-
ings Valgretsforbund) en veturinn
1905-1906 fékk Bríet mörg bréf frá
henni. í þessum bréfum hvatti Jó-
hanna Bríeti til að stofna kvenréttinda-
félag. Hún hafði skrifað um Bríeti og
störf hennar að kvenréttindamálum og
birt myndir af henni í blaði Dk, Kvin-
den og Samfundet. Þetta blað fór víða
og vakti athygli á Bríeti og því sem
hér var að gerast. Ennfremur sendi Jó-
hanna Bríeti erlend blöð svo að hún
gæti sem best fylgst með öllu sem
gerðist erlendis í kvenréttindamálum.
Enginn vafi er á því að það hefur verið
Bríeti hvatning að fá jafnan fréttir af
starfi hinna skipulögðu og dugmiklu
kvenréttindasamtaka á Norðurlöndum.
Bríet stofnaði Kvenréttindafélag ís-
lands, sunnudaginn 27. janúar 1907 að
Þingholtsstræti 18 í Reykjavík. Félag-
ið fagnar því 90 ára afmæli félagsins í
janúar á næsta ári.
Við, konur og karlar, sem erum
bráðlega að stíga fyrstu skrefin inn í
tuttugustu og íyrstu öldina eigum erf-
itt með að setja okkur í spor þeirrar
ungu kynslóðar sem var að alast upp á
tímumBríetar-. ■' i'3
En hvernig ^tarida jaífnhéttisfiiálSn
nú úm stúndir? Emm við ekkijeimi.að
berjast fyrir jöfnum rétti kárlá bg
kvenna í dag! Hvemig er með launa-
misréttið! Það er endalaust hægt að
telja upp. Eitt er víst að Kvenréttinda-
félag íslands mun halda áfram að
vinna að baráttumálum kvenna og
karla um aldur og ævi og við þökkum
forsjóninni fyrir það að til em konur á
íslandi með eld í æðum og baráttu í
hjarta, sem era að vinna að jafnréttis-
málum!
Landsfundurinn hefst með hátíðar-
setningu í listasal Hafnarborgar,.'én
þar sýna um þessar mundir féfagar í
Leirlistarfélaginu. Félagið á 15 ára af-
mæli um þessar mundir og sýningin
nefnist „Leir í lok aldar“.
Landsfundarstörfin hefjast síðan á
laugardagsmorguninn. Áuk venju-
bundinna fundarstarfa verður fjallað
um CEDAW sáttmálann en Félags-
málaráðuneytið er um þessar mundir
að gefa út upplýsingabækling um
CEDAW sáttmálann.
Félagið hefur fengið stuðning frá
Hafnarfjarðarbæ, Sparisjóði Hafnar-
fjarðar, Sjóvá Almennum, Starfs-
mannafélagi Hafnarfjarðar og Verka-
kvennafélaginu Framtíðin. Félagið
þakkar veittan stuðning.
Höfundur situr í framkvæmda|tjórn
Kvenréttindafélags ísl^nds.
a g a t a 1 2 6. s e P t e m b e r
Atburðir dagsins
1791 Gyðingar fá ríkisborgara-
rétt í Frakklandi. 1888 Frétta-
stofu í Lundúnum berst bréf,
undirritað „Jack the Ripper".
1917 Franski listmálarinn Edg-
ar Degas deyr. 1922 Konstan-
tín I Grikkjakóngur afsalar sér
krúnunni eftir ósigur Grikkja
gegn Tyrkjum. 1970 Fokker
Friendship flugvél frá Flugfé-
lagi íslands fórst í Færeyjum.
30 farþegar voru með vélinni
og fjögurra manna áhöfn. Átta
létust, þar af einn íslendingur.
1990 Dómstólar úrskurða að
breska fyrirsætan Caroline
Cossey fái ekki að giftast - hún
fæddist karlmaður en gekkst
undir kynskipti árið 1975.
Afmælisbörn dagsins
T.S. Eliot 1888, bandarískt
ljóðskáld, höfundur The Waste
Land og Tlw Four Quartets.
George Gershwin 1898,
bandarískur tónsmiður. Brian
Ferry 1945, bresk poppstjama.
Olivia Newton-John 1948,
bresk söngkona.
Annálsbrot dagsins
Það vor sást norður í Svarfað-
ardal teikn í loptinu, svo til að
sjá sem dúkur eða sparlak með
mörgum og ýmislegum litum,
og það um langan tíma. Þetta
sá með öðrum ráðsmaðurinn á
Hólum Jón lllhugason á Urð-
um.
Fitjaannáll 1664.
Húsbændur dagsins
Karlmenn eru húsbændur á
sínu heimili - þangað til gest-
imir em famir.
Belgískt máltæki.
Málsháttur dagsins
Svo er að forðast orðið sem
gjöminginn.
Tilviljun dagsins
Það er undarleg tilviljun, að
Indriði Einarsson skyldi hafa
átt að tengdasonum tvo mestu
leikara á íslandi, þá Jens
Waage og Ólaf Thors.
Jónas Jónsson frá Hriflu. (Indriöi
var leikskáld.)
Orð dagsins
Tíma naumum gefaö gaum,
gakkfrd straumi spilltum.
Sd er aumur sem við glaum
sefur í draumi villtum.
Siguröur Guftmundsson frá Heifti,
úr Varabálki.
Skák dagsins
Svarti kóngurinn á heldur
daufa vist á kantinum, enda
styttist í endalokin. Arakhamia
hefur hvítt og á leik gégn
Mortazavi.
Hvítur leikur og vinnur.
1. Rxf5+! gxf5 2. Hd6+ Kg7
3. Hgl+ og mát í næsta leik,
Hg8.