Alþýðublaðið - 26.09.1996, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n
Skrautleg útgáfusaga
og skilaboð Seðlabankans
Gluggað er í tvær greinar í
splunkunýju Viðskiptablaði. 1 nafn-
lausum dálki er fjallað um hræring-
arnar á Helgarpóstinum:
Önnur
sjónarmið
Ef þú hefur ekkert sérstakt við pen-
ingana að gera, ert að leita að hæfilega
villtu og spennandi starfi, þá er Helg-
arpósturinn til sölu með öllu sínu
fylgifé. Seljandi er Prentsmiðjan Oddi
hf. sem heftir lengi átt blaðið, en eign-
aðist það þó ekki formlega fyrren en
fyrir helgina.
Saga Helgarpóstsins er á margan
hátt merkileg - svo merkileg í hugum
sumra fjölmiðlafræðinga að þeir rekja
allt gott sem gerst hefur í íslenskum
fjölmiðlum til stofnunar Helgarpósts-
ins fyrir tæpum tveim tugum ára. Aðr-
ir sem ekki eru eins sigldir í ólgusjó
fjölmiðlunar, en treysta fremur á heil-
brigða skynsemi, telja HP (einsog
blaðið er nefnt) samnefnara alls þess
versta í fari blaðamanna.
En hvetjir svo sem hafa rétt fyrir sér
í þessu má hitt vera ljóst að saga HP
er lifleg og á stundum skrautleg, jafh-
vef skémmtileg á köflum. í fyrstu átti
blaðið erfitt uppdráttar fjárhagslega,
endá gefið út í tengslum við Alþýðu-
blaðið. Það var ekki fyrren blaðið
komst í verulega feitt að það virtist
vera komið til að vera. Þar skipti
mesm Hafskipsmálið sem HP mjólk-
aði hvem blóðdropa úr, svo hressilega
að blaðið stóð h'fvana eftir. Og á eftir
hefur verið haft á orði að fómarlömb
Hafskips hafi verið tvö. Skipafélagið
sjálft og Helgarpósturinn sem neydd-
ist.til að leggja upp laupana.
En góð uppskrift að hressu viku-
riblaði.rykfellur ekki og þvf var Pressan
f stofnuð af krötum, sem þó gáfust upp
á blaðinu eftir nokkuiTa ára baráttu. Þá
■PfiE!0[
RPuSTURlHH
I „Saga HP er lífleg og á stundum skrautleg, jafnvel skemmtileg á köflum.‘
tók einkaframtakið við með sama
baslinu í fjármálum. Þá var Eintak
stofnað af nokkrum fymim Pressu-
mönnum, í samkeppni við Pressuna.
Sú barátta stóð í nokkra mánuði og
lauk með því að blöðin vom sameinuð
undir einum hatti, að tilstuðlan pen-
ingamanna. Þannig varð Morgunpóst-
urinn til.
Pósturinn átti að verða dagblað og
því var byijað að gefa út Mánudagsp-
óstinn í samkeppni við mánudagsblað
DV, sem fram til þessa hafði verið
eini prentmiðillinn sem kom út á
mánudögum, enda hefur Morgunblað-
ið aldrei séð neina séistaka ástæðu til
að gefa út dagblað.
En peningamennimir gáfust fljótt
upp á útgáfunni, enda þreyttir á að
dusta stöðugt kuskið af hvítflibbanum,
enda búið að taka upp gamla nafnið
aftur, Helgarpósturinn. Og eftir það
hefur enginn vitað hver raunverulegur
eigandi HP er og það skýrðist ekki
fyrren í síðustu viku þegar Prentsmiðj-
an Oddi sá sitt óvænna og tók munað-
arleysingjann að sér. En einsog aðrir
sem hafa ættleitt HP vill Oddi selja og
því hefur möguleiki opnast fyrir þá
sem eiga eitthvað af peningum og aÚt-
af dreymt um að komast í fjölmiðlun.
Launahækkanir óraunhæfar
kröfur
Leiðarahöfundur Viðskiptablaðs-
ins í gær ritar eftirfarandi undir
fyrirsögninni Skilaboð til ríkis-
stjórnar:
Aðgerðir Seðlabankans eru skýr
skilaboð til ríkisstjómarinnar um að
beita aðhaldi í ríkisfjármálum, en í
komandi viku mun fjármálaráðherra
leggja fram frumvarp til fjárlaga næsta
árs. Nú er rétti tíminn fyrir ríkisstjóm-
ina að draga vemlega saman seglin í
ríkisrekstri og þá ekki síst í verkiegum
ffamkvæmdum. Með því verður ekki
aðeins dregið úr hættunni á þenslu
heldur geta vemlegir fjármunir sparast
með því að fresta framkvæmdum til
þess tíma er samdráttur gerir vart við
sig og hagstæðara er að semja við
verktaka.
En Seðlabankinn hefur ekki aðeins
sent ríkisstjórninni skilaboð heldur
ekki síður aðilum vinnumarkaðarins
sem standa frammi fyrir kjarasamn-
ingum. Þau skilaboð em einnig skýr.
Kröfur um miklar launahækkanir um
næstu áramót em óraunhæfar kröfur
þar sem þær gmndvallast á hagvexti
sem enn er ekki kominn fram. Aðilar
vinnumarkaðarins verða að sýna þá
ábyrgð að semja um kaup og kjör
miðað við þá verðmætasköpun sem í
landinu er en ekki miða við þá verð-
mætasköpun sem ef til vill verður á
næstu ártun.
í þessu sambandi er hollt að rifja
upp að fyrir örfáum misserum var
fjárfesting hérlendis í sögulegu lág-
marki. Fjárfesting dagsins í dag er
verðmætasköpun morgundagsins. f
reynd hefur fjárfesting ekki vaxið
mjög mikið en sú fjárfesting sem við
hefur bæst er fyrst og fremst í tengsl-
um við stækkun álversins og endur-
nýjun loðnuverksmiðja landsins. Fjár-
festing er því enn of lítil og of ein-
hæf.“ ■
m e n n
Ef við slítum friðinn vegna
þess að forseti ísiands fer út fyrir
verksvið sitt stefnir í mikið óefni,
agaleysi og tortryggni í stað
markvísi og hvatningar.
Þá fjarar fijótt undan.
Árni Johnsen spáir skeggöld og skáimöld
vegna oröa forseta íslands um vegi í Baröa-
strandarsýslu. Mogginn.
Líti hann sér nær.
Dýrið hlýtur að hafa litið á hann
sem skaðræðisskepnu.
Harpa Karlsdóttir lætur ekki deigan
síga og segir refabananum fræga til synd-
anna. Hann haföi lótiö svo um mælt aö re-
furinn sem hann drap hafi veriö skaöræöis-
skepna. DV.
Þingflokkur Kvennalist-
ans hefur þann sið að
skipta um formann á
hverju ári, í samræmi við
stefnu flokksins um vald-
dreifingu. Nú í vikunni var
formlega gengið frá því að
Kristín Halldórsdóttir
verður formaður þing-
flokksins í vetur í stað
Guðnýjar Guðbjörns-
dóttur. Varaformaður
þingflokksins er nú Krist-
ín Astgeirsdóttir, en hún
verður þá væntaniega for-
maður á næsta ári...
Ríkisstjórnin fékk það
óþvegið í forystugrein
DTí gær vegna niður-
skurðar í menntamálum.
Stefán Jón Hafstein rit-
stjóri lagði meðal annars í
leiðaranum krossapróf fyr-
ir Davíð Oddsson, Hall-
dór Ásgrímsson og
Björn Bjarnason, en af
skrifum Stefáns mátti ráða
að til þessa hefðu ráðherr-
arnir kolfallið í mennta-
málum. Þá sagði ritstjórinn
að enginn stjórnarþing-
maður sem DT hafði sam-
band við vegna niður-
skurðar á fjárveitingum til
framhaldsskóla á lands-
byggðinni hefði verið „svo
upplitsdjarfur að svara
spurningu blaðsins um
málið." Eftir þessa yfirlýs-
ingu um blauða stjórnar-
þingmenn kemur lesend-
um spánskt fyrir sjónir að
sjá sjálfstæðismanninn
Hjálmar Jónsson svara
spurningu DT - við hlið
forystugreinarinnar. Og á
síðu tvö er að finna ítarlegt
viðtal við menntamálaráð-
herrann um málið. Kannski
var Stefán Jón barasta ekki
nógu ánægður með svör
þeirra, því gera verður ráð
fyrir að hann viti hvaða
efni er í blaði hans...
Gömlu fjendurnir Björn
Bjarnason og Svavar
Gestsson halda áfram að
skylmast, og berst leikur-
inn um síður Morgun-
bladsins og alla leið á Int-
ernetið, en þar er höfuð-
vígi Björns. Menntamála-
ráðherra klifar á því að
Svavar hafi lært áróðurs-
tækni kommúnista í Aust-
ur-Þýskalandi og sé því
ómarktækur í allri um-
ræðu. Þeir sem héldu að
kalda stríðinu væri lokið
hafa því rangt fyrir sér.
Það er greinilega ískalt í
menntamálaráðuneytinu...
Leikarinn Hjalti Rögn-
valdsson er nú farinn
úr landi eftir að hafa glatt
Ijóðaunnendur í Reykjavík í
allt sumar. Allt bendir
hinsvegar til að útivist
hans verði nú í styttri kant-
inum, því talað er um að
Hjalti semji leikgerð uppúr
Sjálfstæðu fólki eftir Hall-
dór Laxness og setji verk-
ið upp með leikfélaginu í
Lundareykjardal í Borgar-
firði. Efalítið yrði athyglis-
vert að sjá túlkun Hjalta á
frægustu sögu Nóbels-
skáldsins...
“FarSide" eftir Gary Larson
í miðjum klíðum, meðan Jói var að reyna að róa hjörðina,
varð hann skjálfur skyndilega sem steinilostinn andspænis
ímynd fegurðar, en þó óheftrar bræði, á klettinum sem
gnæfði í átt til himins - Bleiki skugginn hafði snúið aftur.
Þröstur er
kein blauwasser!
Jóhann Hjartarson stórmeistari um góöa
frammistöðu Þrastar Þórhallssonar kollega
síns á Ólympíuskákmótinu í Jerevan.
Morgunblaöiö.
Mér tannst boðskapurinn
sem Megas flytur um tómleika
stórborgarlífsins eiga við um
ansi marga í dag, því miður.
Steingrími Hermannssyni seölabankastjóra
er margt til lista lagt. í DT í gær tjáöi hann
sig um nýtt leikrit Megasar.
Ég er ekkert
fituskrímsli.
Alicia Machado, ungfrú alheimur,
sem berst viö aukakíló undir árvökulum
augum fjölmiöla. Mogginn.
fimm á förnum v e g i
Hvað finnst þér um yfirlýsingar forsetans um vegamál á Vestfjörðum?
Trausti Hjaitason raf-
eindavirki: Þær eru í góðu
lagi. Vegamál á Vestfjörðum
eru til skammar fyrir sam-
gönguráðherra og alla ríkis-
stjómina.
Rúnar Steinsson sendill:
Þetta er gott mál. Hann má al-
veg tjá sig um mál sem miður
fara í þjóðfélaginu.
Margrét Sverrisdóttir
verkefnisstjóri: Hann hefur
farið út fyrir rammann.
Jóna Sigurbjartsdóttir
hárgreiðslumeistari: Hann
fór út fyrir sitt verksvið.
Steingrímur F. Stefáns-
son bílstjóri: Vonandi verða
ummælin til þess að eitthvað
verði gert í málunum.
fréttaskot úr fortíd
Fyrstu kvöld-
skemmtun á
haustinu
heldur V.K.F. Framsókn til ágóða
fyrir mjög bágstadda félagskonu í
Bámnni föstudaginn 28. september
kl. 8 1/2. Til skemtunar verður: Upp-
lestur, smáleikrit, frumsamið kvæði
lesið upp, dans. Allir góðir menn
styðji gott málefni! Aðgöngumiðar
seldir í Bámnni á kr. 2.00.
Alþýðublaðið
27. september 1923