Alþýðublaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996
s k i I a b o ð
Íii ÚTBOÐ
F.h. Garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar, er óskað
eftir tilboðum í jarðvinnu 1. áfanga við gerð friðlands fyr-
ir fugla í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Verkið er fólgið í
greftri á síki, fyllingu í Vatnsmýrartjörn, byggingu yfirfalls
og jarðvegsskiptum í göngustígum.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn kr. 10.000 skila-
tryggingu.
Opnun tilboða: miðvikud. 9 okt. n.k. kl. 14:00 á sama
stað.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. sjálfseignar-
stofnunarinnar Skógarbæjar, óskar eftir tilboðum í
raflagnir fyrir hjúkrunarheimilið Skógarbæ að Árskógum
2 í Reykjavík. Verkið tekur til fullnaðarfrágangs almennra
raflagna innanhúss.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 1. okt.
n.k. gegn kr. 15.000 skilatr.
Opnun tilboða: fimmtud. 17. okt. n.k. kl. 14:00 á
sama stað.
INNKAUPASTOFINIUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3- 101 Reykjavík
Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616
Alþýðuflokkskonur
Fyrsti fundur okkar á þessu hausti verður haldinn laugardaginn 5. októ-
ber kl: 16,00 að Hofgörðum 26, Seltjarnarnesi.
Fundarefni: Sjávarútvegsmál. Framsögumaður er Unnur Skúladóttir
fiskifræðingur.
Við hefjum fundinn með gönguferð um Seltjarnarnesið. Leiðsögumað-
ur verður Ásta B. Þorsteinsdóttir.
Að loknu erindi Unnar mun grill- og kjötmeistarinn Jónas Þór sjá um
að matreiða ofan í vinkonur sínar i Alþýðuflokknum.
Mætum allar með góða skapið og hefjum vetrarstarfið af krafti.
Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku sem allra fyrst til einhverrar undir-
ritaðrar:
Guðlaug: 555-2783
Helga: 554-5051
Hlín: 568-7653
Petrína: 426-86-62
Ungir afnaoarmenn
Félag Ungra
jafnaðar-
manna í
Reykjavík
Þetta verður síðasti sambandsstjórnar-
fundur fyrir sambandsþing. Félögum
er bent á að samkvæmt lögum SUJ
eiga þau einn fulltrúa í sambandsstjórn
fyrir hverja 50 félaga, og að auki sitja
allir formenn félaga í sambandsstjórn.
Aðalfundur félagsins verður haldinn
miðvikudaginn 16/10 klukkan 20:00.
Fundurinn verður haldinn í
Hinu Húsinu, Aðalstræti 2.
Dagskrá
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sambandsstjórnarfundur
Sambandsstjórnarfundur verður hald-
inn næstkomandi laugardag, þann 6.
október. Fundurinn verður haldinn í
Hinu Húsinu, Aðalstræti 2 og hefst
hann klukkan 15:00.
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta sambandsstjórn-
arfundartekin til afgreiðslu.
2. Sambandsþing
3. Samstarf ungliðahreyfinganna í kjör-
dæmamálinu.
4. Kosningar í laus embætti.
5. Ónnur mál.
Ungir
jafnaðarmenn
Málstofur SUJ verða með fundi á skrif-
stofu sambandsins, Hverfisgötu 8-10
sem hér segir:
Málstofa um Umhverfismál
1. Fundur miðvikudaginn 2/10
klukkan 20:00
2. Fundur miðvikudaginn 8/10
klukkan 20:00
Málstofa um Menntamál
1. Fundurfimmtudaginn 3/10
klukkan 20:00
2. Fundur fimmtudaginn 9/10
klukkan 20:00
Fundarboð
Félag ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði
auglýsir aðalfund þann 11. október 1996
kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði. j i,:
Dagskrá auglýst síðar. ' ■'.•■Þ
F.h. stjórnar
Hörður Arnarson
Dyggur og skilvís áskrifandi
Alþýðublaðsins leitar að
dvalarstað
Sárvantartveggja til þriggja
herbergja íbúð, helst í Mið-
bæ, Vesturbæ eða Hlíðum.
Er í síma 551 8039.
Bragi
ALÞÝÐUFLOKKURINN - JAFNAÐARMANNAFLOKKUR ÍSLANDS
48. flokksþing Alþýðuflokksins
- Jafnaðarmannaflokks Islands
verður haldið í Perlunni í Rey kj avík,
helgina 8. til 10. nóvember 1996.