Alþýðublaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 1
■ Sameinast þingflokkur Kvennalista þingflokki jafnaðarmanna?
Sameining þingflokk-
anna komið til umræðu
- segir Stefanía Óskarsdóttir
starfsmaður Kvennalístans.
„Eigum samleið með
Kvennalista," segir Rannveig
Guðmundsdóttir formaður
þingflokks jafnaðarmanna.
„Við eram ætíð að velta íyrir okkur
möguleikum og sá möguleiki að þing-
flokkur Kvennalista sameinist þing-
flokki jafnaðarmanna hefur komið til
umræðu,“ segir Stefanía Óskarsdóttir,
starfsmaður Kvennalistans, í samtali við
Alþýðublaðið. Samkvæmt heimildum
blaðsins mun ákveðinn hópur innan
Lífverðir Friðriks eltu Hrafnhildi
Arnardóttur á kvennaklósettið
og heimtuðu filmu af henni:
„Ég var ekkert smá hrædd og
hjartað hamaðist."
„Eg átti leið hjá Kaffi Reykjavík
þegar ég sá Friðrik krónprins Dan-
merkur ganga þar inn. Ég var með
myndavélina um hálsinn og mér datt í
hug að fara á eftir honum og ná hon-
unt á mynd,“ segir Einar Ólason, ljós-
myndari Alþýðublaðsins sem lenti í
ævintýri sem jafnast á við það sem
gerist í stórborgum erlendis.
„Þegar ég kom inn sá ég Friðrik
standa við barinn í hrókasamræðum
við íslenska blómarós. Ég mundaði
vélina og tók tvær myndir. Þá króaði
krónprinsinn mig af fyrir innan bar-
borðið og heimtaði fílmuna."
Einar neitaði að afhenda filmuna en
þá hótaði prinsinn að láta henda hon-
um út, sagðist þekkja eigendur staðar-
ins og að bannað væri að taka af hon-
um myndir. „Ég sagði honum bara að
gera það og labbaði burtu. Ég sá að
lífverðir Friðriks, alls fjórir, fylgdust
grannt með mér. Þá rak ég augun í
tvær konur sem ég kannaðist við,
Hrafnhildi og Bryndísi, tók filmuna úr
vélinni og laumaði henni til Hrafn-
hildar svo lítið bar á og bað hana að
taka fílmuna með sér. Ég óttaðist að
lífverðimir myndu sitja fyrir mér og
ná af mér filmunni. Svo fór ég en án
afskipta þeirra," segir Einar.
En sagan er ekki aldeilis búin því
vinkonurnar Hrafnhildur Amardóttir
og Bryndís Guðjónsdóttir hárgreiðslu-
meistarar lentu í viðureign við lífverði
krónprinsins.
, Já, Einar lét okkur fá filmu og mér
datt ekki í hug að nokkur hefði séð
það því hann bar sig mjög laumulega
að. Én þeir hafa fylgst svona rosalega
vel með. Þegar við Bryndís fómm á
klósettið ýttu tveir lífverðir hurðinni
skyndilega upp og heimtuðu að fá að
sjá í veskin okkar. Þeir vora tveir og
alveg rosalega ákveðnir og sögðu á
dönsku: Vi skal ha’ fílmen. Sem betur
fer var ég ekki með veskið mitt, en þar
var filman, ég hafí skilið það eftir hjá
vinafólki okkar upp. Það var algjör til-
Kvennalista telja það mjög fýsilegan
kost að ganga til hðs við þingflokk jafn-
,aðarmanna, en andstaða við hugmynd-
ina er þó einnig innan Kvennalistans.
Stefanía staðfesti að málið hefði
komið til umræðu: „ÞegíU hugmyndin
barst í tal má segja að hún hafí vakið
vissan áhuga, en niðurstaða er ekki
fengin.“
„Ég hef þá trú að Kvennalistinn og
þingflokkur jafnaðarmanna eigi sam-
leið,“ sagði Rannveig Guðmundsdóttir.
,Að sjálfsögðu á þingflokkur jaíhaðar-
manna að taka á málum eins og kven-
frelsi og jafnrétti."
Á hádegisfundi á Hótel Borg á degi
viljun að ég var ekki með það. Bryn-
dís var með sitt veski og sýndi þeim
það. Á meðan notaði ég tækifærið,
hljóp upp og kallaði á dyravörðinn.
Bryndís reyndi að ýta öðrum lífverð-
inum til en hann haggaðist ekki. Ég
var ekkert smá hrædd og hjartað ham-
aðist. Skömmu síðar kom dyravörður-
inn til okkar en þá hafði hann átt tal
við lífverðina. Hann spurðist fyrir um
filmuna en við þóttumst ekkert vita,“
sagði Hrafnhildur en þeim vinkonun-
um varð mikið um þessa ævintýralegu
atburðarás.
Friðrik krónprins er í áhöfn danska
varðskipsins Vædderen sem verið hef-
ur á eftirlitsferð um Norðurhöf. Héðan
liggur leiðin á Grænlandshaf, og kem-
ur varðskipið ekki til Danmerkur fyrr-
en 10. nóvember eftir rámlega þriggja
mánaða útivist.
jafnaðarmanna gagnrýndi Steinunn V.
Óskarsdóttir, borgarfulltrái og kvennal-
istakona, það framkvæði sem Alþýðu-
flokkur og Þjóðvaki hefðu tekið og
sagði ekki hafa verið rétt að því staðið:
„Eg er ekki tilbúin að hoppa upp á ein-
hveija lest sem einhver annar er búinn
að ákveða hvert á að fara og með hvaða
veganesti. Ég tel að sem flestir eigi að
geta komið að þessu ferli og geti fundið
að þeir eigi einhvem hlut að því. Og það
verður ekki með þeim hætti sem verið
er að gera núna.“
„Þingflokkur jafnaðarmanna hefur
ekki sent þessi skilaboð,“ segir Rann-
veig um orð Steinunnar. „Fyrir fólk í
- segir Ágúst Einarsson þing-
maður Þjóðvaka.
„Við teljum að veiðleyfagjald sé nú
eitt brýnasta hagsmunamál í íslensk-
um stjómmálum,“ segir Ágúst Einars-
son, þingmaður Þjóðvaka, en þings-
ályktun um veiðileyfagjald er efst á
lista þeirra mála sem þingflokkur jafn-
aðarmanna mun flytja á þingi í vetur.
Þingsályktunin verður lögð fram í
dag. „Málið er tvíþætt,“ segir Ágúst.
„Annars vegar er sú staðreynd að
fiskistofnarnir í kringum landið eru
Alþýðuflokki og Þjóðvaka var samein-
ing þingflokkanna mjög mikilvægt
fyrsta skref. Við eram að reyna að vekja
umræðu og viljum eiga fundi með sem
flestum og finna málefnanlegri sam-
stöðu farveg. Á fundum höfum við orð-
ið vör við að það er fjölmargt sem sam-
einar fólk á félagshyggjuvæng og til-
tölulega fátt sem sundrar," sagði Rann-
veig.
Um þá umræðu sem nú á sér stað
meðal hóps innan Kvennalista um að
sameinast þingflokki jafnaðarmanna
sagði Rannveig: ,Ég fagna því að vilji
sé fyrir því að skoða hvað þarf til svo
við getum átt samleið."
eign allrar þjóðarinnar og núverandi
stýrikerfi gerir ráð fyrir úthlutun veiði-
heimilda, sem tímabundinn afnotarétt-
ur útgerðar. Þessi úthlutun er án nokk-
urs gjalds og síðan geta menn hagnast
á kaupum og sölum á þessum veiði-
heimildum án þess að hafa greitt
nokkuð fyrir þær til eigandans. Þetta
teljum við vera óréttlæti sem mikil-
vægt sé að vinna gegn. I öðra lagi lít-
um við svo á að upptaka veiðileyfa-
gjalds geti verið liður í efnahagslegum
umbótum sent muni, þegar frani líða
stundir, styrkja bæði sjávarútveginn
■ Jafnrétti
Kvenna-
sáttmáli
SÞ þver-
brotinn
-segir Bryndís Hlöðvarsdóttir
alþingismaður. „Sáttmálans
er ekki getið í lagasafni."
Kvennasáttmáli Sameinuðu
þjóðanna hefur verið þverbrotinn
hér á landi en Islendingar hafa
verið aðilar að sáttmálanum frá
þvi árið 1985. Þrátt fyrir það er
hans að engu getið í lagasafni líkt
og annarra alþjóðlegra sáttmála
sem við erum aðilar að. Þetta var
rætt á landsfundi Kvenréttindafé-
lags íslands á laugardag.
Bryndís Hlöðversdóttir alþing-
ismaður og lögfræðingur sagði í
samtali við blaðið að hún hefði
aldrei heyrt á þennan sáttmála
minnst þegar hún var við nám í
lagadeildinni. „Ég gekk á fund
forseta lagadeildarinnar í fyrra
ásamt Láru V. Júlíusdóttur og
orðaði við hann þörfina á því að
taka upp kennslu í kvennarétti.
Hann tók vel í það, en það háir
lagadeildinni að þar eru nær ein-
göngu karlar í prófessorsstöðum.“
Kvennaréttur hefur verið
kenndur í lagadeildum nágranna-
landanna frá því í byrjun áttunda
áratugarins. Kvennasáttmálinn
leggur aðildarþjóðum þungar
framkvæmdaskyldur á herðar, að
sögn Bryndísar. Það er ekki ein-
ungis nauðsynlegt að tryggja jafn-
rétti með lagasetningu heldur
einnig við framkvæmd laganna
hjá dómstólum landsins. Ein gróf-
ustu dæmin um mismunum kynj-
anna fyrir dómstólum eru þegar
tveimur stúlkum voru dæmdar
lægri örorkubætur á grundvelli
kynferðis en drengir í sömu stöðu
hefðu fengið. „Dómarinn byggði
úrskurðinn á hefðbundinni túlkun
laganna en hún stangast oft á við
sáttmála af þessu tagi. Það er því
miður Iíka staðreynd að flest mál
sem kærunefnd Jafnréttismála
fjallar uni enda þannig að dómar
falla kærendum í óhag,“ sagði
Bryndís. „Því er nauðsynlegt að
kynna sáttmálann rækilega fyrir
lögmönnum og almenningi til að
fyrirbyggja að slík og viðlíka
dæmi geti endurtekið sig.“
og bæta lífskjör hérlendis."
í gær boðaði þingflokkur jafnaðar-
manna til blaðamannafundar þar sem
kynnt vora helstu mál sem þingflokk-
urinn eða einstakir þingmenn munu
flytja á þingi í vetur. Auk veiðileyfa-
gjalds stendur allur þingflokkurinn að
málum er varða þjóðareign auðlinda,
aukið framlag til menntunar, endur-
skipulagningu skattakerfis, stefnu-
mörkun í heilbrigðismálum, heild-
stæða félagsmálalöggjöf, atvinnulýð-
ræði, kjördæmamál og jafnrétti kynj-
anna.
■ Ljósmyndari Alþýðublaðsins og tvær hárgreiðsludömur
lenda í erjum við lífverði danska krónprinsins
Friðrik krónprins á galeiðunni
■ Þingflokkur jafnaðarmanna kynnir baráttumál sín á þingi ívetur
Veiðileyfagjald brýnasta hagsmunamálið