Alþýðublaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
ALÞYÐUBLAÐID
IÞ i n 9 s e t n i n
?r
■ Ávarpforseta íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, við setningu Alþingis 1. október 1996
Þjóðin sjálf er
herra okkar allra
Vandi þjóðþinga á okkar tímum felst í þeirri
þversögn að annars vegar styrkist krafan um
aukið lýðræði og opnari stjórnunarhætti og
hins vegar hafa samtök sérhagsmuna eflst að
skipulagi og sérfræði ásamt því að embættis-
stofnanir framkvæmdavaldsins verða sífellt öfl-
ugri bakhjarl ríkisstjórna sem löngum vilja
beita þingin agavaldi.
Alþingi skipar veglegan sess í
sögu þjóðarinnar. Engin önn-
ur stofnun vísar jafn skýrt til
uppruna íslendinga og örlaga lands-
manna á liðnum öldum. Eftir endur-
reisn var Alþingi vettvangur sigra í
baráttu þjóðarinnar fyrir sjálfstæði,
lýðréttindum og alhliða framförum.
Hér var staðfestur árangur í langri og
oft erfiðri sókn fólks í landinu til auk-
ins réttar og bættra kjara.
Þingmennimir sem fýrst komu sam-
an í sal Lærða skólans en síðan hér við
Austurvöll hafa orðin ein að vopni.
Þeir studdust við söguleg rök og fom-
an rétt, vísuðu til þjóðlegrar 'menning-
ar og arfleifðar, en byggðu málflutn-
ing sinn á alþjóðlegum frelsishug-
myndum samtímans. A þennan hátt
unnu þeir hvern sigurinn af öðrum
með orðsins brandi einum saman.
Flestar aðrar þjóðir hafa orðið að
færa mannfómir til að öðlast fullveldi
og festa í sessi lýðræðisskipan og
þingræði. Þúsundir hafa látið lífið,
þolað fangelsun eða refsingar í þágu
þessara hugsjóna. Enn á okkar dögum
eru þjóðir og samfélög víða um heim
að öðlast á dýrkeyptan hátt þau lýð-
réttindi sem við íslendingar teljurn
sjálfsögð og eðlileg, jafnvel svo hvers-
dagsleg að varla taki því að minnast á
þau við hátíðleg tækifæri.
Skyldan að vera
demókratískur
Lýðræðið kann á stundum að þykja
litlaust og starfsvettvangur þingsins
viðburðasnauður, en væri hvort
tveggja á brott numið yrðum við fóm-
arlömb umskipta sem myndu koll-
steypa flestu því sem okkur finnst
eðlilegt og sjálfsagt í mannlegu sam-
félagi.
Þegar Ásgeir Ásgeirsson kom hér í
þingsalinn í fyrsta sinn sem forseti
lýðveldisins vék hann nokkuð að
stöðu Alþingis og sagði:
„Á Alþingi heyr þjóðin sitt hags-
muna- og hugsjónastríð. Kosningar og
flokkaskipting er sú borgun sem vér
greiðum fyrir afnám hnefaréttarins.
Þarfimar segja til sín um land allt og í
öllum stéttum. Flokkar semja sér
stefnuskrár og bræða þær saman í
stjórnarsamvinnu. Svo kemur veru-
leikinn máske og takmarkar getuna.
Það hendir jafnvel þingmenn, án þess
að sé um að sakast, og ríkisstjómir að
þurfa stundum að gera fleira en gott
þykir og annað en vonir stóðu til. En
hvað sem því líður, þá er allt þetta
framför og hámenning borið saman
við það þegar höfðingjar kölluðu
menn frá vinnu um hábjargræðistím-
ann og fóm um hémð fylktu liði, drep-
andi, eyðandi og étandi upp búfé
bænda á Sturlungaöld."
Ásgeir Ásgeirsson forseti sagði
einnig við þingsetninguna 1952, hina
fyrstu að loknum forsetakosningum,
að hann væri þakklátur fyrir að hafa
átt sæti á Alþingi um langt skeið, og
bætti svo við:
„Það er ekki einungis vegna þess að
þar er gott að fylgjast með því hvað
gerist í löggjöf og þjóðmálum, heldur
einnig hinu hvemig það gerist. Ég segi
það umbúðalaust að þingmenn eru
heiðarlegir menn og áhugasamir um
að láta gott af sér leiða. Á Alþingi þró-
ast engin spilling sem ekki gætir eins
á öðmm sviðum mannlegs samstarfs.
Flokkar lúta að vísu að sumu leyti
öðrum lögmálum en einstaklingar,
hver út af fýrir sig, en bæði flokkar og
einstakir þingmenn hafa sinn metnað
sem getur verið hvort tveggja, heil-
brigður og óhóflegur. Það mætti miklu
góðu koma til leiðar ef ofmetnaður
tmflaði aldrei almenningsheill. Lýð-
ræðinu er hætta búin þegar harðstjóm
og einræði ná tökum á flokkum. Þeirra
er ekki síst skyldan að vera demókra-
tískir, ef þjóðfélagið á að vera það í
heild.“
Það er hollt að hugleiða þessa
áminningu Ásgeirs Ásgeirssonar. Hún
hefur haldið gildi sínu í rösk fjörtíu ár.
Allir hafa fyrirrennarar mínir flutt
hér við upphaf þings hvatningarorð og
hugleiðingar um brýn viðfangsefni á
hverri tíð. Og það er fróðlegt og lær-
dómsríkt að skoða málflutning forset-
anna fjögurra í þessum sal. Þær ræður
veita margvíslegar vísbendingar um
samband forseta við þing og þjóð.
Þegar ég nú feta í þeirra fótspor og
kem hér til þings með nýja ábyrgð á
herðum vil ég þakka alþingismönnum
öllum samstarf og vináttu á liðnum ár-
um og láta í ljósi ósk um farsæl sam-
skipti við Alþingi og ríkisstjóm.
Vöm þjóðþinganna
Islenskt þjóðfélag hefúr tekið mikl-
um stakkaskiptum á síðustu áratugum.
Þær breytingar hafa haft margvísleg
áhrif á stöðu og viðfangsefni Alþingis.
Að vissu leyti heyr þingið nú vamar-
baráttu til að tryggja að það vald sem
því ber samkvæmt lýðræðisgrundvelli
íslenskrar stjórnskipunar flytjist í
reynd ekki smátt og smátt til sérfræði-
stofnana framkvæmdavaldsins eða til
starfsliðs og stjórnenda hagsmuna-
samtaka.
Þessi þróun er ekki einstök fyrir
okkar samfélag. Við þennan vanda er
glímt í þjóðþingum allra þróaðra lýð-
ræðisríkja og bmgðist við með mis-
munandi hætti: Tvennt ber þó hæst í
vöm þjóðþinganna.
I fýrsta lagi að nýta sér tækni sjón-
varps, útvarps og alnets til að gera
umræður og þingskjöl jafnóðum að-
gengileg alþjóð. Beinar útsendingar
frá umræðum í löggjafarstofnun og
jafnvel endurtekningar um kvöld og
helgar þegar fólk hefur tóm til að
hlýða á málflutning kjörinna fulltrúa
sinna eru nú víða í þróuðum lýðræðis-
ríkjum talin mikilvæg aðferð til að
styrkja lýðræðislega stöðu þingsins.
Það er fróðlegt í þessu sambandi að
minnast þess að við endurreisn Al-
þingis árið 1845 var það helsta krafa
frelsissinna að þinghaldið yrði allt í
heyranda hljóði. Hannes Stephensen
prófastur og alþingismaður benti kon-
ungsfulltrúa á mikilvægi þessarar
kröfu, „enda væm opnar dyr það sem
allir hér á landi mundu óska eftir, með
því alþing hið foma hefði og verið
haldið í heyranda hljóði,“ eins og seg-
ir í Tíðindum frá Alþingi íslendinga
1845.
Kandídat Jón Sigurðsson eins og
hann var þá nefhdur í þingtíðindum, „-
kvaðst hafa meðferðis bænarskrá um
þetta efni, og lét í ljósi, að þetta mundi
vera skýlaus vilji allrar þjóðarinnar",
eins og einnig er frá greint í þingtíð-
indum.
Forystumönnum sjálfstæðisbarátt-
unnar var á fyrsta fundi hins endur-
reista Alþingis ljóst að forsenda fyrir
áhrifum þingsins og gagnsemi var að
landsmenn allir ættu rétt á að fýlgjast
með störfum þingsins. Nú hefur ný
tækni gert okkur kleift að veita öllum
þennan rétt hvar sem menn búa á
landinu og í krafti alnetsins einnig
þeim sem dvelja um langa eða
skamma hríð fjarri fósturjörðinni.
í öðm lagi hafa þjóðþing víð'a stigið
skref í þá átt að styrkja starfsnefndir
þingsins og efla getu þeirra til að vega
og meta kröfur og álit ólíkra hags-
munaafla. Að nokkm hefur hér á landi
á síðustu árum verið haldið inn á
þessa braut og er það vel. En vissulega
kæmi til greina að veita þjóðinni allri
einnig áheymarrétt að umræðum um
mikilvægustu efnisþætti á vettvangi
nefhda þingsins líkt og gert er vfða í
erlendum þjóðþingum. Slík skipan
væri vissulega í samræmi við þau
sjónarmið Jóns Sigurðssonar og sam-
herja hans á Alþingi að þingið yrði
háð í heyranda hljóði enda væm það
„fom réttindi er íslendingar hefðu áð-
ur notið“ eins og Jón forseti komst að
orði í umræðunum 1845.
Vandi þjóðþinga á okkar tímum
felst í þeirri þversögn að annars vegar
styrkist krafan um aukið lýðræði og
opnari stjómunarhætti og hins vegar
hafa samtök sérhagsmuna eflst að
skipulagi og sérfræði ásamt því að
embættisstofnanir framkvæmdavalds-
ins verða sífellt öflugri bakhjarl ríkis-
stjóma sem löngum vilja beita þingin
agavaldi.
í þessari þraut er engin lausn án erf-
iðleika eða togstreitu. Hollt er að
minnast þess að gmndvöllur lýðræðis
og lýðveldis í stjómskipan okkar ís-
lendinga er að valdið er hjá fólkinu,
þjóðinni sjálfri. Ekki aðeins á kjördag
á nokkurra ára fresti, heldur ávallt og
ævinlega.
Almannahagur - viðmiðun
sem mestu skiptir
Það er í samræmi við þennan lýð-
ræðislega grundvöll stjómskipunar-
innar að þjóðin velur sjálf forseta lýð-
veldisins. Umboð hans er frá fólkinu í
landinu. Við embættistökuna 1. ágúst
síðastliðinn sagði ég að starf forseta
Islands fælist fyrst og fremst í þjón-
ustu við þjóðina. Einungis dómgreind,
lífsreynsla og lifandi tengsl við fólkið
í landinu gætu vísað forseta rétta leið í
starfi.
Þessa leiðsögn árétta ég nú, en
rninni jafnframt á að þótt kjördæmi og
stjómmálaflokkar eigi hlut að skipan
Alþingis þá er þjóðin sjálf herra okkar
allra. Almannahagur er sú viðmiðun
sem mestu máli skiptir.
Kristján Eldjám, þriðji forseti ís-
lands, orðaði þessa skyldu Alþingis
svo í ræðu við þingsetningu árið 1970:
„Ábyrgð Alþingis er því mikil,
bæði einstakra þingmanna og þingsins
í heild. Þeim öflum sem að verki em í
þjóðfélaginu, félagslegum hreyfingum
þess, þörfum og kröfum og úrlausnar-
efnum hvers konar og á öllum sviðum
má líkja við fjölþætt og flókið kerfi
stórra og smárra vatna sem koma
langt og víða að en hníga þó öll að
lokum að einum miklum farvegi. Al-
þingi er slíkur farvegur, farvegur
landsmálanna. í þeim farvegi hljóta að
verða straumköst, en traustur farvegur
á að hemja þau öfl sem innan hans
byltast, og skila öllu að ósi farsællega
án þess að bresta. Sú er ætíð ósk og
von þjóðarinnar í hvert sinn sem Al-
þingi kemur saman.“
Þessi orð Kristjáns Eldjárns við
þingsetninguna 1970 geri ég nú að
mínum.
Á komandi vetri bíða þingsins mörg
erfið úrlausnarefni. Mikilvægt er að
varðveita þann stöðugleika í verðlags-
málum sem haldist hefur í rúman hálf-
an áratug. Einnig þarf jafnt og þétt að
ná jafnvægi í viðskiptum okkar við
umheiminn, draga úr erlendum skuld-
um og styrkja hér innanlands í senn
rekstrargrundvöll ríkissjóðs og fjár-
hagsstöðu heimilanna.
Þessi viðfangsefni kunna á næst-
unni að reyna á þolrif þings og þjóðar
vegna ólíkra viðhorfa til þess hvemig
best er að nýta þann ávinning sem er í
vændum og að hluta er ávöxtur þeirra
fóma sem almenningur hefur fært á
undanfömum árum. Erfiðleikar hafa
löngum fært íslendinga saman en með
betri tíð hefur á stundum losnað um
samfylgdina. Nú ríður á að þing og
þjóð beri gæfu til að finna leiðir sem í
senn styrkja efnahagslífið og bæta
lífskjör heimilanna.
Ég óska Alþingi alls velfamaðar í
vandasömum störfum og bið alþingis-
menn að rísa úr sætum og minnast
fósturjarðarinnar.
Millifyrirsagnir eru blaðsins.