Alþýðublaðið - 01.11.1996, Síða 4

Alþýðublaðið - 01.11.1996, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 p Ó I ■ Einar Karl Haraldsson segir frá fundi jafnaðarmanna sem haldinn var á ísafirði um síðustu helgi Þar sem er vilji, þar er vegur Ahrif þeirrar blöndu af yfirburða- stöðu og hugmyndaleysi sem ríkis- stjóm Davíðs Oddssonar er full af, eru máttleysi og doði í stjómmálalífi al- mennt og sérstaklega á vinstra kantin- um. Það er helst að forsetinn geti hleypt fjöri í hlutina með því að hvetja til þjóðarátaks í vegamálum Barð- strendinga. Samgönguráðherra fékk víst tvö hundruð manns á fimd á Pat- reksfirði á dögunum þar sem hann og þingmenn Sjálfstæðisflokksins voru skammaðir linnulaust fyrir dáðleysi í þjóðmálum. En á þeim bænum eru menn víst ánægðir meðan fólk nennir að skamma þá. Það var hinsvegar hugur í fólkinu sem kom í Morgunstund jafnaðar- manna á Isafirði síðast liðinn laugar- dag. Þetta var með fjölmennari pólit- ísku samkomum sem þar hafa verið haldnar lengi, milli 50-60 manns, og að sama skapi góðmennt. „Það verður enginn sigurvegari nema við séum öll sigurvegarar," sagði viskubrunnurinn og rokksöngv- arinn Bruce Springsteen eitt sinn. Þessi predikun leitaði á hugann meðan hlýtt var á fjörugar umræður á ísafirði. Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Alþýðubandalagsins og óháðra, innti menn eftir því út frá hvaða hagsmun- um yrði gengið í samstarfi jafnaðar- manna. Hvað væri til dæmis í það spunnið fyrir Vestfirðinga sem fækk- að hefði um þúsund í áratug og fengju ekki að nýta heimamið til þess að þróa sín byggðarlög og atvinnulíf í íjórð- ungnum? Eins og nærri má geta gáfu spum- ingar af þessu tagi tilefni til mikilla vangaveltna um fiskveiðistjórnun, stjómkerfi landsins og ráðstöfun opin- Fjölmörg málefni voru til umræðu á fundinum og auk sameiningarmála má þar nefna fiskveiðistjórnun, stjórnkerfi landsins, ráðstöfun opinbers fjármagns, breytingar á vinnulögggjöf og fleira. bers fjármagns. En Sighvatur Björg- vinsson úr Þingflokki jafnaðarmanna spurði heimamenn hversvegna Vest- firðingar kysu alltaf Sjálfstæðisflokk- inn yfir sig þó að hann hefði sannar- lega ráðið mestu um ófarir þeirra í sjávarútvegsmálum. Og ekki stóð á svarinu frá Valdemar Lúðvík Gísla- syni, fyrrum bæjarfulltrúa Alþýðu- flokksins í Bolungarvík. „Fólk hefur einfaldlega ekki trú á að litlu flokkam- ir hafi getu til þess að breyta einu eða neinu. Þetta er of máttlaust, það þarf meiri styrk til þess að fólk festi trú á þá.“ Hér var náttúrlega gefinn upp bolt- inn til þess að fjalla um hvemig ríkis- stjómaiflokkamir hefðu breytt vinnu- löggjöf án samráðs við verkalýðs- hreyfinguna á síðast liðnum vetri. Hvemig sjónarmið framleiðenda og eigenda væm ráðandi í samfélaginu en hagsmunir launafólks og neytenda víkjandi. Hvernig væri verið að skipta sameiginlegum auðlindum lands- manna upp milli hagsmunablokka í at- vinnulífinu. Hvemig áhrif helminga- skiptastjórnar Framsóknar og Sjálf- stæðisflokksins væm að koma fram í viðskiptalrfinu. Og svo framvegis. Annar þráður er líka tekinn upp í Morgunstundum jafnaðarmanna en það er samrunaþróun á öllum sviðum samfélagsins. Sveitarfélög sameinast, verkalýðsfélög sameinast, fyrirtæki sameinast - á tímum hraðfara tækni- breytinga og gjörbreyttra samgangna og samskipta vrkur aðgreining og sér- staða fyrir stærri einingum og sam- ræmingu. Það er langt frá því að allt þetta sé bölvað. Margt af því er blátt áfram nauðsynlegt og sjálfsagt. En eigi allur þessi sammni að verða á for- sendum fákeppni, einkavinavæðingar, sérhagsmuna og blokkamyndana í at- vinnulífinu er voðinn vís. Ef ekki er fyrir hendi sterkt pólitískt afl, sem gætir hagsmuna launafólks og neyt- enda á slíkum tímum, er hætt við að öll ráð þjóðfélagsins verði í höndum nokkurra fjölskyldna og pólitískra taglhnýtinga þeirra. Það var sama hveijir tjáðu sig á ísa- firði, hvort það var þingkempan Kar- vel Pálmason eða verkalýðsforinginn Lilja Rafney Magnúsdóttir, allir vom sammála um að æskilegt væri að halda áfram samtölum af þessu tagi. Fólk talaði um hversu ólfkt það væri að koma í slíka spjallstund þar sem mál væm rædd í einlægni, heldur en þar sem reynt væri að magna ágrein- ing í kappræðu. Pétur Sigurðsson vitn- aði um gott samstarf jafhaðarmanna í verkalýðshreyfingunni og kvað sam- starf þeirra á hinum pólitíska vett- vangi svo mikla nauðsyn að ekki mætti kæfa það í karpi um kvóta eða önnur eilífðarmál. Það var einnig fróðlegt að heyra hljóðið í bæjarfulltrúum AJþýðuflokks og Alþýðubandalagsins á ísafirði. Sig- urður Ólafsson sagði það fyrst og ffernst vera stærðffæði sem réði því að hann væri í meirihluta bæjarstjómar á Isafirði með Sjálfstæðisflokki en ekki pólitík. Aðrir kostir hefðu ekki verið í stöðunni. í máli hans og Smára Har- aldssonar kom ffam vemlegur áhugi á að taka öðmvísi á hlutunum en gert hefur verið. Smári sagði að í þessari Morgunstund væri samankomið fólk sem gæti breytt og skipt máli í stjóm- málum á Vestfjörðum. í flugvélinni á leiðinni til Reykja- víkur var það umræðuefni okkar Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, Þing- flokki jafnaðarmanna, hvað þessi Milli 50-60 manns sóttu fundinn sem var með fjölmennari pólitísku samkomum sem haldnar hafa verið lengi á ísafirði. morgunstund hefði verið holl áminn- ing fyrir okkur aðkomufólkið. Það er þolinmæðisverk og talsvert flókið mál að stilla saman hugsjónum og hagsmunum í stórri hreyfingu jafn- aðarmanna þannig að ölfum finnist að þeir muni hljóta sigurlaun eins og Bmce Springsteen talaði um. En ekki dugir að vera verkkvíðinn og alltaf er hægt að biðja fyrir sér eins og einn fundarmanna í fjölmennri Morgun- stund jafnaðarmanna í Borgarbyggð gerði um daginn: Guð gefi okkur þol- inmæði - og það strax! Þar sem er vilji, þar er vegur. Von- andi sannast það bæði í vegagerð um Barðaströnd og á braut jafnaðarmanna til meiri áhrifa á Islandi. ■ LYFJA Opið alla daga vikunnar frá kl. 9.00 til 22.00 LyF a lagmarksverði LYFJA Lágmúla 5

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.