Alþýðublaðið - 05.11.1996, Side 1
■ Mikil óvissa um næsta formann Alþýðuflokksins
Beðið eftir svari Rannveigar
„Hef fengið mikla hvatningu,"
segir Rannveig, sem ekki mun
draga fólk á svari.
„Ég hef rætt við stuðningsmenn
mína sem ég met mikils og hef fengið
mikla hvatningu. Eins hef ég fengið
þau viðbrögð að það þurfi að lesa eins
vel og unnt er í stöðuna, sem er á
margan hátt flókin," sagði Rannveig
Guðmundsdóttir í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær. Mikil óvissa ríkti í gær
meðal alþýðuflokksmanna um hvort
Rannveig verður þriðji þingmaður
flokksins til að gefa kost á sér sem arf-
taki Jóns Baldvins Hannibalssonar.
Hún kom heim frá Bandarfkjunum á
laugardag, og kvaðst hafa ákveðið um
helgina að gefa sér örfáa daga til að
kanna hvaða straumar væru í gangi í
flokknum. Hún myndi hinsvegar ekki
draga fólki á svari.
Þeir áhrifamenn í Alþýðuflokknum
sem Alþýðublaðið ræddi við í gær
voru varkárir í yfirlýsingum, enda
þykir staðan mjög óljós. „Sighvatur
stendur best að vígi, það er engin
spuming. Fylgið er hinsvegar mikið á
floti og því erfitt að sjá hvað gerist ef
Rannveig tekur slaginn," sagði einn af
forystumönnum flokksins í gær.
Einn af oddvitum flokksins utan
höfuðborgarsvæðisins sagði að margir
fulltrúar á flokksþinginu ættu eftir að
gera upp hug sinn, ekki síst þeir sem
kæmu af landsbyggðinni. „Því er ekki
að neita að margir hefðu kosið að nota
tækifærið og fá meiri mýkt í forystu
Alþýðuflokksins. Þá hljóta menn að
viðurkenna, að verði kona formaður
flokksins verður auðveldara að ná
'samstarfi við Kvennalistann," sagði
hann.
Flogið hefur fyrir að Guðmundur
Ami Stefánsson og Rannveig myndu
gera með sér bandalag, til að forða
uppgjör sín í milli en þau eru bæði
þingmenn flokksins í Reykjanesi.
Stuðningsmenn þeirra sem rætt var
við í gær kváðust engan pata hafa af
slíku samkomulagi.
Flestir viðmælendur blaðsins voru
sammála um að meirihluti þingfulltrúa
ætti eftir að gera upp hug sinn. „Gefi
Rannveig kost á sér þarf að meta stöð-
una alveg uppá nýtt. Nafn Össurar
hefur líka verið nefnt uppá síðkastið,
þótt hann hafi nánast útilokað fram-
boð,“ sagði alþýðuflokksmaður á höf-
uðborgarsvæðinu.
Alþýðuflokksmaður á Suðumesjum
sagði að margir flokksþingsfulltrúar
þaðan kæmust í erfxða stöðu ef Rann-
veig gefur kost á sér. Bæði Sighvatur
og Guðmundur Ami hafa lagt áherslu
á að vinna fylgi á Suðumesjum, enda
koma margir fulltrúar þaðan. Viðmæl-
andi blaðsins sagði: „Rannveig á auð-
vitað hljómgrunn hér, enda þykir
mönnum að hún hafi sinnt máleftium
Suðumesja með ágætum.“
FLOKKSÞING
■ Flokksþing Alþýðu-
flokksins um helgina
Jón Viðar
kærir
Silju fyrir
Siðanefnd
„No Comment," - segir Jón Við-
ar. Silja: „Ég var bara að gera
grín en kímnigáfu minni er
greinilega mjög ábótavant."
„Mér fmnst ferill minn sem blaða-
maður ekki hefjast vel satt best að
segja,“ segir Silja Aðalsteinsdóttir um-
sjónarmaður menningarefnis DV í
samtali við Alþýðublaðið.
Jón Viðar Jónsson hefúr kært Silju
til Siðanefndar Blaðamannafélags ís-
lands vegna klausu sem birtist í DV
21. október en þar segir meðal annars:
„Mál manna var að hann hefði ekki
þorað að vera innan um svona marga
lcikhússtjóra, leikara og leikhúsáhuga-
menn. Hvað ætli hann hafi haldið að
yrði gert við hann?“
Strax næsta dag birtist á menningar-
síðunni harðorð athugasemd frá Jóni
Viðari sem talar um einstaklega rætoar
meiningar í sinn garð og segir það
hreina og klára lygi að hann hafi ekki
þorað að mæta. ,JÞað er ein meginregla
allrar heiðvirðrar blaðamennsku að
tala jafnan við málsaðila áður en settar
eru fram fullyrðingar um mál, sem þá
varðar. Þessa reglu hefur DV nú broúð
með afar grófum hætti og fróðlegt
verður að fylgjast með „menningar-
fréttum" þess, ef þær verða í líkum
anda,“ segir Jón Viðar meðal annars í
athugasemd sinni.
„Ég segi bara No Comment," sagði
Jón Viðar þegar Alþýðublaðið hafði
samband við hann vegna þessa máls.
Hann var spurður hvort harrn hyggðist
kæra Silju fyrir meiðyrði? „Annað
hvort fer ég í mál eða fer ekki í mál og
það er mitt mál. Ég er ekki búinn að
kæra,“ sagði Jón Viðar en vildi ekki tjá
sig frekar á þessu súgi málsins.
„Ég fékk tilkynningu frá Siðanefnd-
inni þar sem kæran liggur. Lúðvík
Geirsson formaður BI fór fram á bréf
frá mér með skýringum á þessu broti
mínu og ég á að skila því fyrir vikulok
því boðaður er fundur um málið á
mánudaginn kernur," segir Silja. Hún
segir jafnframt að Jón Viðar hafi kraf-
ist þess í bréfi til Jónasar Kristjánsson-
ar ritstjóra að blaðið biðji sig afsök-
unnar en yfirstjórar hafi ekki sinnt því.
„Ég var bara að gera grín en kímnigáfu
minni er greinilega mjög ábótavant.
Það var íjarri því að ég hugsaði þetta
meinfísið. Það virkaði bara fyndið að
þessi harði maður skyldi ekki mæta á
fundinn," segir Silja.
■ Sameiningarumræðan og Kvennalistinn
Ákveðin opnun í gangi
- segir Kristín Ástgeirsdóttir. „Sé ekki að þingkonur
Kvennalista eigi erindi í þingflokk jafnaðarmanna,"
segir Ingibjörg Sólrún.
„Umræðan um sameiningu á landsvísu hefur alla tíð farið
fram innan Kvennalistans. Eftir því sem ég veit best þá hafa
kvennalistakonur tekið þátt í fundum og umræðum um þau
mál. Þannig hafa þær ekki verið tregar til þátttöku þóú þær hafi
kannski ekki fullyrt mikið um málið. Sjálf hef ég sagt að menn
ættu að tala minna og vinna því meira í þeim rnálum," sagði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri aðspurð hvort henni
þætti tímabært að Kvennalistinn tæki að hyggja að samstarfi á
landsvísu með reynslu R-listans í huga. Þórunn Sveinbjamar-
dóttir varaþingkona Kvennalistans sagði í samtali við blaðið að
niðurstaða landsfundar flokksins, sem haldinn var í Viðey um
helgina, hafi verið skýr. „Við ætlum ekki að gefa okkur niður-
stöðu sameiningarmálanna heldur kanna vilja okkar og stöðu
og meta á hveijum tíma hvemig kvenfrelsismálunum er best
borgið í íslenskri pólitík. Umræðu um framtíðina og samein-
ingarmálin er engan veginn lokið í Kvennalistanum," sagði
Þórunn. „Að mínu mati er ákveðin opnun í gangi innan
Kvennalistans," sagði Kristín Astgeirsdóttir þingkona Kvenna-
listans. „Þær konur sem sóttu landsfundinn virtust sammála um
að ákveðin geijun væri í gangi og að við ættum að vera þátt-
takendur í þeirri þróun. Mín niðurstaða af þessum fundi er að
ríkari vilji sé til þess en áður að leita nýrra leiða og ná betri ár-
angri. Þar er Reykjavíkurlistinn fyrirmyndin." A landsfundin-
um kom fram að þingflokkur Kvennalista hefði engan hug á
því að sameinast þingflokki jafnaðarmanna. „Við teljum hag
okkar engu betur borgið þar,“ sagði Þómnn. Ingibjörg Sólrún
segir þessa afstöðu Kvennalistans mjög eðlilega. „Ég sé ekki
að þingkonur listans eigi erindi inn í þingflokk jafnaðar-
rnanna," sagði Ingibjörg Sólrún. „Það er miklu nær að Kvenna-
Ustinn komi að viðræðum ef menn fara að velta fyrir sér kosn-
ingabandalagi á landsvísu."
Valgerður
Bjarnadóttir
ávarpar þingið
Valgerður Bjarnadóttir verður
sérstakur gestur á flokksþingi Al-
þýðuflokksins sem fer fram um
helgina. Hún flytur ávarp í hádeg-
inu á föstudaginn, en flokksþingið
fer fram í Perlunni.
Síðar um daginn mun Svanfríður
Jónasdóttir þingmaður Þjóðvaka og
varaformaður þingflokks jafnaðar-
manna flytja ávarp. Á Iaugardag
stjórnar Einar Karl Haraldsson
starfsmaður þingflokks jafnaðar-
manna pallborðsumræðum um
samstarf á vinstrivæng.
Sósan er frábær með öllu grænmeti.
Hún er kjörin í samlokur og ómissandi
í salatið.
Prófaðu þessa! Hún er pottþétt.
SSL i* i
VOGABÆR
190 Vogar Sími: 424 6525
’WVbg*