Alþýðublaðið - 05.11.1996, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐK)
3
s k o ð a n i r
vörð um Ríkisútvarpið
Samþjöppun valds og eignarhalds í fjölmiðlum á íslandi
er staðreynd sem vissulega er áhyggjuefni í svo litlu
samfélagi. í Ijósi þess verður það æ mikilvægara að
hér sé rekið öflugt ríkisútvarp.
Stöndum
að er athyglisvert að landsfundur
Sjálfstæðisflokksins samþykkti nú
á dögunum að afnema ætti skyldu-
áskrift að Ríkisútvarpinu, á sama tíma
og eignarhald á fjölmiðlum færist á æ
færri hendur.
Pallborð |
•A Ásta R.
Jóhannesdóttir
skrifar
Hagsmunir almennings eða
hagsmunir eigenda
Sérstaklega er þetta íhugunarefni
fyrir almenning í ljósi þeirrar umræðu
sem verið hefur undanfarið í kjölfar
brottrekstrar fféttastjóra Stöðvar 2 úr
starfi. Þar kemur fram að ein af
ástæðum fyrir brottrekstrinum telur
hún afskipti eigenda fjölmiðilsins af
fréttaflutningi fréttastofunnar.
Þar voru þær skýringar gefnar að
fréttaflutningurinn hefði skaðað aug-
lýsingahagsmuni Stöðvar 2 og um
leið fjárhagslega hagsmuni eigenda
fjölmiðilsins. Fréttastjórinn benti
réttifega á það, að fréttastofunni bæri
að”yará óiiáð eigendum og hafa hags-
múnFálmenriings í.fyrirrúmi. Trú-
verð^^ejfei.-'tréj'ts-er-' k<)minn undir
því.
Fjölmiðlarnir - fjórða valdið
Fjölmiðlar hafa upplýsingahlut-
verki að gegna gagnvart almenningi
og aðhaldshlutverki gagnvart stjórn-
völdum. Fái menn á tilfinninguna að
einhverjir aðrir hagsmunir ráði ferð-
inni í fréttaflutningi missir fréttastof-
an trúverðugleikann, verður ómark-
tæk og almenningur missir áhuga á að
fylgjast rtieð fréttaflutningi hennar.
,, Þa^..px táj^ð.um, fjö 1 ti|ið 1 a sem
§pr^al,v^}4 jð! á i ?ftir .löggja’fárváldi,
framkvæmdavaldi og dómsvaldi.
Það er því full ástæða til að hafa
áhyggjur af hvemig eignaraðild á fjöl-
miðlum hér á landi er að þróast.
Hringamyndun í fjölmiðla-
heiminum
I einkareknum Ijósvakamiðlum, út-
varps- og sjónvarpsrekstri, virðist
vera að eiga sér stað hringamyndun.
Sömu aðilar eru eigendur að Stöð 2
og Sýn, þeir eiga síðan og reka út-
varpsstöðina Bylgjuna. Þeir eiga einn-
ig hlut að útgáfufélaginu sem gefur út
dagblaðið DV, sem aftur rekur dag-
blaðið Dag-Tímann.
Þessi aðili hefur mjög sterka og
vaxandi stöðu. Fyrsti einkarekni sam-
keppnisaðilinn við Stöð 2, Stöð 3, er í
eigu hins svokallaða „Kolkrabba" og
hefur sá hópur sem kenndur hefur
verið við smokkfisk nú komið að
þeim rekstri. Það skiptir því afar
miklu máli að búa fjölmiðlum, hvort
sem um er að ræða dagblöð, útvarps-
eða sjónvarpsstöðvar, þannig um-
hverfi að samkeppni sé möguleg og
til staðar.
Mikilvægt hlutverk Ríkisút-
varpsins
Samþjöppun valds og eignarhalds í
fjölmiðlum á Islandi er staðreynd sem
vissulega er áhyggjuefni í svo litiu
samfélagi. f ljósi þess verður það æ
mikilvægara að hér sé rekið öflugt
ríkisútvarp, fjölmiðiil í eigu allra
landsmanna, sem sé gert það kleift að
veita öðrum fjölmiðlum í einkaeign
verðuga samkeppni.
Alveg eins og Ríkisútvarpinu var
nauðsyn að fá samkeppni frá fjöl-
miðlum í einkaeign á sínum tíma, þá
er einkareknu stöðvunum ekki síður
nauðsyn á aðhaldi og samkeppni frá
Ríkisútvarpinu.
Afkoma og sjálfstæði tryggt
Ríkisútvarpinu auðnast aðeins að
veita það aðhald, fái það rekstrarfé í
formi afnotagjalda eða á annan hátt.
Nefskattur hefur verið nefndur í stað
skylduáskriftar og afnotagjalda. Ég
hef efasemdir um að nefskattur skili
sér til Ríkisútvarpsins sem skyldi.
Nefskattar, sem settir hafa verið á,
hafa sjaldnast verið afnumdir og tekj-
unum, sem komið hafa inn til ríkisins,
hefur oftar en ekki verið ráðstafað í
annað þegar til íjárlagagerðar kemur.
Með afnotagjöldum er sjálfstæði Rík-
isútvarpsins betur tryggt og því þann-
ig gert betur kleift að sinna sínu
margþætta hlutverki. Mikilvægi Rík-
isútvarpsins verður æ ljósara þegar
mál skipast hjá einkareknu fjölmiðl-
unum eins og nú gerist.
Höfundur er alþingismaður.
Einsog Alþýdublaðiö greindi
frá fyrir nokkru eru nýjir ís-
lenskir „sitcom" sjónvarpsþættir
í vinnslu, það er þættir f líkingu
við Rosanne, Já, ráöherra, Fyrir-
myndarfaðir og svo framvegis,
þættir sem fjalla um sömu per-
sónurnar á gamansömum nót-
pm. Þeir heita Fornbókabúðin og
eru eftir leikarana Jóhann Sig-
urðarson, sem jafnframt leik-
stýrir og Guðmund Ólafsson
en hann fer með eitt aðalhlut-
verkið. Búið að taka upp fjóra
þætti og eru þeir nú í klippingu.
Stöð 2 hyggst sýna fyrsta þáttinn
28. desember en fyrirhugað er
að þeir verði alls 12...
g meira af sjónvarpsefni.
RÚVbetuc fest kaup á nýj-
um breskum þáttum sem gerðir
eru eftjr handriti Dennis Pott-
ers. Nýju þættirnir hefjast 18.
nóvomber og heita Karaoke og
eru topplejkarar í hlutverkum:
Albert Finney, Richard E.
Grant, Julie Christie og Saf-
fron Burrows toppmódel. Leik-
stjóri er Renny Rye sá sami og
leikstýrði þáttaröðinni Lipstick
on your Collar, rómaðum þátt-
um sem sýndir voru (Sjónvarp-
inu fyrir tveimur árum. Potter,
sem nú er allur, fékk þau tíðindi
frá lækni sínum að hann þjáðist
af magakrabbameini og í stað
þess að fara og njóta í vellysting-
um því litla sem eftir var af hans
lífi hespaði Potteraf tveimur
sjónvarpsseríum: Karaoke og
framhaldinu sem heitir Cold Las-
arus og gerist uppúr miðri næstu
öld...
Niðurstöður fjölmiðlakönnun-
ar Félagsvísindastofnunnar
sem gerð var dagana 8. til 14.
október voru að berast hlutað-
eigandi í gær. Þetta er doðrantur
uppá 100 blaðsíðurog má búast
við að fjölmiðlar birti það uppúr
henni á næstu dögum sem þeir
telja sér til framdráttar. í niður-
stöðunum kemur fátt á óvart
þegar litið er til sjónvarpsefnis.
Fréttir á RÚVtróna á toppnum
með meðaláhorf í um 44 pró-
sentum. Ellefufréttir eru nokkuð
traustar eða með 23 prósent. Nýr
þáttur Hemma Gunn fær 38
prósent og Dagsljóser með að
meðaltali um 30 prósent. 19:20 á
Sföð2kemureinnig vel útúr
könnuninni eða með tæp 40 pró-
sent...
Mikil hreyfing hefur orðið í
valdastöðum eftir að
Hanna María Pétursdóttir
hætti sem þjóðgarðsvörður og
prestur á Þingvöllum. Heimir
Steinsson sótti um stöðu henn-
ar og þykir auðsætt að hann sé
þegar búinn að tryggja sér starf-
ið með samkomulagi við Bjöm
Bjarnason menntamálaráðherra
og Davíð Oddsson forsætisráð-
herra. Þá losnar staða útvarps-
stjóra og er Markús Örn An-
tonsson talinn líklegasturtil að
hreppa stöðuna. Markús er starf-
andi framkvæmdastjóri Útvarps
og segja leikfléttusmiðir að lík-
legast sé að Bogi Ágústsson
taki við stöðu hans en hann mun
vera orðinn þreyttur á að stjórna
fréttastofu Sjónvarps. Kemur þá
loks að enda fléttunnar: Elín
Hirst, brottrekinn fréttastjóri
Stöðvar 2 sást snæða kvöldverð
með Kjartani Gunnarssyni
framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins og nánasta ráðgjafa
Davíðs Oddssonar á Hótel Sögu
í lok síðustu viku. Um hvað ætli
þau hafi verið að tala? Hug-
myndin er sem sagt sú að Elín sé
kandídat Sjálfstæðisflokksins í
að taka við starfi Boga...
fimm á förnum v e g i
Fylgdist þú með landsfundi Kvennalistans?
Eydís Leifsdóttir skrif-
stofumaður: Nei, ekki neitt.
Mér finnst Kvennalistinn vera
úreltur.
Guðmundur R. Karlsson
dómvörður: Voða lítið. Mér
finnst óðum vera að íjara und-
an þessum konum.
Dagmar Jónasdóttir skrif-
stofumaður: Nei, ég hef
engan áhuga á pólitík.
Arnbjörg Gunnarsdóttir
verzlunarmaður: Nei, ég sá
aðeins um fundinn í fréttum,
en ég held að Kvennalistinn sé
búinn að vera.
íris ívarsdóttir gjaldkeri:
Lítillega. Ég er alls ekki hrifin
af kynskiptum listum.
m e n n
Við erum láglaunaland og það er
einkum skýringin á því afhverju
þessi þjónusta er svona ódýr.
Ólafur Einarsson lýtalæknir um ódýrar
brjóstastækkanir á íslandi. Hugmyndireru
um að bjóða útlendingum í brjóstastækkun-
arferðir til íslands. DT á laugardag.
Nonni ekki nennir iengur,
nægöu honum tólf löng ár.
Heim af velli hetjan gengur,
hann er móður, ekki sár.
Ólafur Stefánsson yrkir um Jón Baldvin. DT.
Mörgum nemendum mundi
bregða, ef þeir framreiknuðu tíu
ára kostnað af einum sígarettu-
pakka á dag eða tíu ára kostnað
af einum lítra af gosi á dag.
Þannig má líka framreikna
bjórinn og súkkulaðið, sem
margir innbyrða af algeru
tillitsleysi við eigin fjárhag.
Jónas Kristjánsson leggur landsmönnum
lífsreglur í leiðara DV á laugardag.
Gamlir stalínistar í Menningar-
og friðarsamtökum íslenzkra
kvenna senda mér tóninn vegna
heidur vinsamlegrar umfjöllunar
um Maríu Þorsteinsdóttur í þess-
um þáttum fyrir hálfum mánuði.
Ekkert af því er svaravert, en rifj-
ar upp gamla góða kaldastríð-
sæðið. Megi þeim vel farnast
þarna f fortíðinni.
Matthías Johannessen svarar fyrir sig í
helgispjalli á sunnudag.
Ekki eitt af mest spennandi um-
ræðuefnum sem hugsast getur
þetta „Veljum íslenskt". Nánast
einsog skyldan að bjóða upp Ijótu
stelpunni í bekknum einu sinni á
önn eða umbera leiðinlegan
frænda af því að það eru jól.
Stefán Jón Hafstein í leiöara DT.
Hvað þessi vetur ber í skauti
sér skal Víkverji ósagt látið.
Að hluta til er hann þó leir í hönd-
um okkar, sem við mótum sjálf.
Veldur hver á heldur.
Skáldlegur Víkverji á sunnudag.
Guðdómlegt bíó
Bíósmekkur
páfans
í nýjasta tölublaði Kaþólska kirkju-
blaðsins er listi yfir nokkrar kvik-
myndir um trúmál sem fjölmiðlaráð
páfa telur athyglisverðar.
Andrei Rublev Andrei Tarkowsky.
Mission Roland Joffe.
The Passion ofJoan ofArc Carl T. Dreyer.
Flowers ofSt. Francis Robcrto Rossellini.
The Gospel According to Matthew Pier Paolo Pasolini.
Therese Alain Cavalier.
Ordet Carl T. Dreyer.
The Sacrifice Andrei Tarkowsky.
Francis Liliana Cavani.
Ben Hur William Wyler.
Babette ’s Feast Gabriel Axel.
Nazarin Luis Bunuel.
Monsieur Vincent Maurice Cloche.
A Man for All Seasons Fred Zinnemann.