Alþýðublaðið - 05.11.1996, Page 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996
s k i I a b o ð
LANDSPÍTALINN
.. .í þágu mannúðar og vísinda...
GEÐDEILD
Yfirfélagsrádgjafi
Staða yfirfélagsráðgjafa við geðdeild Landspítalans er
laus til umsóknar frá næstu áramótum. Umsækjandi láti
fylgja ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf og
rannsóknir. Umsóknarfrestur er til 1. desember n.k. Um-
sóknir berist til Sigurrósar Sigurðardóttur yfirfélagsráð-
gjafa á geðdeild Landspítalans, sem jafnframt veitir upp-
lýsingar um starfið.
Hjúkrunarfræðingur
Staða hjúkrunardeildarstjóra á göngudeild krabba-
meinslækninga- og blóðsjúkdóma er laus til umsóknar.
Á deildinni er einstaklingum með krabbamein og illkynja
blóðsjúkdóma veitt læknis - og hjúkrunarmeðferð. Við-
komandi þarf að hafa menntun og reynslu í hjúkrun
krabbameinssjúklinga, ennfremur reynslu af stjórnunar-
störfum. Þeir sem áhuga hafa eru vinsamlegast beðnir
um að leggja inn umsókn á skrifstofu hjúkrunarforstjóra
fyrir 15. nóvember n.k. Nánari upplýsingar veita Kristín
Sophusdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri og Anna Stef-
ánsdóttir hjúkrunarforstjóri í síma 560 1300.
KRABBAMEINS- OG LYFLÆKNINGADEILD
Hjúkrunarfræðingur
Á krabbameins- og lyflækningadeild 11E er laus staða
hjúkrunardeildarstjóra. Á deildinni er 21 rúm og þar fer
fram hjúkrun sjúklinga með krabbamein og illkynja
blóðsjúkdóma. Skipulag hjúkrunar er einstaklingshæfð.
Umsækjandi þarf að hafa menntun og/eða reynslu í
hjúkrun krabbameinssjúklinga, ennfremur fimm ára
reynslu af stjórnunarstörfum. Þeir sem áhuga hafa eru
vinsamlega beðnir að leggja inn umsókn á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra fyrir 15. nóvember n.k. Nánari upplýs-
ingar veita Kristín Sophusdóttir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri og Anna Stefánsdóttir hjúkrunarforstjóri í síma 560
1300.
SKURÐDEILD
Hjúkrunarfræðingur
Staða skurðhjúkrunarfræðings á skurðdeild Landspítala
er laus til umsóknar nú þegar. Starfsemi skurðdeildar er
ákaflega fjölbreytt, má þar nefna almennar skurðlækn-
ingar, æða-, þvagfæra-, lýta- og bæklunarskurðlækning-
ar. Landspítali er auk þess miðstöð barnaskurðlækninga
og hjartaskurðlækninga á íslandi. Á deildinni vinna
skurðhjúkrunarfræðingar á dagvöktum, bundnum kvöld-
vöktum auk gæsluvakta. Fyrirhugað er að taka upp
teymisvinnu skurðhjúkrunarfræðinga á deildinni þannig
að sérhæfing á ákveðnu sérsviði verður í boði. Góð að-
lögun eftir þörfum hvers og eins með reyndum skurð-
hjúkrunarfræðingi. Möguleikar eru á hlutastarfi eftir að
aðlögun lýkur. Nánari upplýsingar veita Svala Jónsdóttir
hjúkrunardeildarstjóri í síma 560 1378 og Ásta B. Þor-
steinsdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 560 1300
eða 560 1366.
9ÚTB0Ð
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað
eftir tilboðum í 168,7 m2 viðbyggingu og 160 m2 breyt-
ingar á eldra húsnæði Hverfisbækistöðvar gatnamála-
stjóra við Stórhöfða. Verkið felst í millibyggingu milli
tveggja húsa og breyta geymsluhúsnæði í skrifstofuhús-
næði.
Verklok eru 25. febrúar 1997.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 5. nóv.
n.k. gegn kr. 10.000,- skilatr.
Opnun tilboða: miðvikud. 13. nóvember 1996, kl.
11:00 á sama stað.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVSKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - 101 Reykjavík
Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616
Fulltrúaráð fundar
Fundur í fulltrúaráði (kjördæmisráði) Alþýðuflokksfélag-
anna í Reykjavík verður haldinn í Rúgbrauðsgerðinni
Borgartúni 6, næstkomandi miðvikudag, 6. nóv. 1996 kl.
20:30.
Fundarefni:
Flokksþingið.
Lagabreyting.
Kosning fulltrúa í flokksstjórn.
Önnur mál.
Sérstaklega er minnt á að kosning fulltrúa og varafull-
trúa á flokksþingið gildir jafnframt fyrir fulltrúaráðið
þetta kjörtímabil, sem er næstu tvö árin.
Stjórnin.
ÚTBOÐ
RARIK óskar eftir tilboðum í:
RARIK 96008 - Aflspennir, 6,3 MVA, 66
(33)/11kV.
Útboðsgögn verða seld á aðalskrifstofu RARIK,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með þriðju-
deginum 4. nóvember 1996 og kosta 2.000 kr.
hvert eintak.
Skila þarf tilboðum á skrifstofu RARIK, Laugavegi
118, Reykjavík, fyrir kl. 14.00 föstudaginn 29. nóv-
ember 1996. Tilboðin verða þá opnuð í viðurvist
þeirra bjóðenda sem óska að vera nærstaddir.
Vinsamlega hafið tilboðin f lokuðu umslagi,
merktu: RARIK 96008.
It^RARIK
Laugavegi 1181105 Reykjavík
Sími 560 5500 I Bréfsími 560 5600
FELAG JARNIÐNAÐARMANNA
Félags- og fræðslufundur
verður haldinn þriðjudaginn 5. nóvember kl. 20.00 á
Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Hvað segir vinnutímatilskipun ESB um:
Vinnuverndarmál?
Hámark yfirvinnu?
Hvíldartíma? Frídaga? Vaktavinnu?
Næturvinnu?
Hefur tilskipunin áhrif á þína afkomu?
Halldór Grönvold, skrifstofustjóri ASÍ, fer yfir málið.
Munið félagsskírteinin.
Alþýðu-
flokks-
konur!
Landsfundur Sambands al-
þýðuflokkskvenna verður
haldinn fimmtudaginn 7.
nóvember n.k. í Félagsmið-
stöð jafnaðarmanna, Hamra-
borg 14a, Kópavogi.
Fundurinn hefst kl. 17.00.
Nánari dagskrá auglýst síðar.
Stjórnin.
Fundur
með eldri
borgurum í
Hafnarfirði
Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, alþingismaður, og
Gestur Gestsson, formaður
Sambands ungra jafnaðarv
borgurum í Hafnaríirði í oni
Safnaðarheimili Víðistaða-J’
sóknar miðvikudaginn 6.
nóvember kl. 15.30.
Á dagskrá: Réttindamál eldri
borgara.
Jafnaðarmannafélag
Hafnarfjarðar.
* - s j \JCj i Ul
Ungir
jafnaðar-
menn
Norðurlandaráðsþing æsk-
unnar verður haldið í Kaup-
mannahöfn helgina 8. til 10.
nóvember 1996. SUJ á þar
tvo fulltrúa og auglýsir hér
með eftir áhugasömum ein-
staklingum innan raða sam-
bandsins sem áhuga kunna
að hafa að fara sem fulltrúar
okkar á þingið. Tekið er við
umsóknum og nánari upp-
lýsingar gefnar á skrifstofu
SUJ.
Framkvæmdastjóri
Alþýðu-
blaðið
á
Alnetinu
sendið okkur línu
alprent@itn.is