Alþýðublaðið - 19.11.1996, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n
Stöðugleiki með klofinni þjóð
Það er grátlegt til þess að hugsa í
hversu litlum tengslum stjórnvöld í
þessu landi eru við þjóð sína. Með
markvissum aðgerðum er ljóst og
leynt unnið að því hörðum höndum
að færa þjóðarauðinn á fáar hendur,
með því megin markmiði að gera
hina ríku ríkari og þá fátæku fátæk-
ari. Undanfarið hafa launþegar verið
að gera grein fyrir þeim laöfum sem
lagðar Vérða fram í komandi kjara-
samninguni. Þar eru settar fram kröf-
ur um bætt kjör fyrir stóran hóp
þjóðfélagsþegna sem nú búa við
mjög bág kjör. Fólk með mánaðar-
laun undir 60 þúsund krónum berst í
bökkum og í reynd er vandséð
Pallborð
Guðmundur
Þ. B. Ólafsson
skrifar
Ég er nokkuð viss um að liðið í Garðastrætinu léti það
ekki viðgangast lengi að launin lækkuðu þar á bæ, sem
næmi þvf að eitt núll yrði tekið aftan af launaupphæð-
inni. Ætli launin væru þá ekki nokkuð nærri því sem
þeir ætla þorra launafólks að iifa af.
hvemig þetta fólk fer að því að draga
fram lífið og framfleyta sér og sín-
um. Maður skyldi ætla að góður
skilningur væri á nauðsyn þess að
bæta kjör þessara samborgara okkar
sem minnst mega sín og kröfur um
umtalsverðar launabætur fengu góð-
ar undirtektir hjá stjórnvöldum sem
og aðilum vinnumarkaðarins. Því
miður gefa viðbrögð þessara aðila
ekki tilefni til bjartsýni á bætta af-
komu þeirra lægst launuðu í kom-
andi samningum. Þjóðfélagið fer víst
á hliðina og stöðugleikanum verður
fómað ef slík mannréttindamál, sem
kjarabætur til þeirra verst settu, ná
fram að ganga.
Ósvífni
Forsætisráðherrann okkar, sem
tryggði sér og sínum rúmlega 60
þúsund'króna launahækkun á mán-
uði, ekki alls ekki fyrir löngu, hélt
hjartnæma ræðu á dögunum þar sem
hann varaði launþega við því að
stefna stöðugleikanum og hag þjóð-
arinnar í voða með því að beijast fyr-
ir hækkunum launa, sem væm meiri
en næmi örfáum prósentum. Þvílík
ósvífni. Maðurinn nýbúinn að inn-
byrða hækkun á eigin launum þar
sem hækkunin ein og sér nam meira
en öllum mánaðarlaunum hjá stómm
hópi landsmanna. En hvað varðar
forsætisráðherra um kjör þeirra sem
verst em settir í þjóðfélaginu. Flann,
ásamt stjórnarliði sínu, er á góðri
leið með að færa allt góðærið og
auðlindir þjóðarinnar í hendurnar á
örfáum aðilum í þessu þjóðfélagi.
Aðilum sem eru með tíföld, tuttug-
föld og þaðan af hærri laun en þeir
sem þarf að bæta kjörin hjá.
Aukinn skilningur
Eg hef nefnt það áður og geri það
enn, hvort það sé ekki eina ráðið, að
laun þeirra sem betur mega sín í
þjóðfélaginu, verði lækkuð í það sem
öðrum er ætlað að lifa á og kanna
svo hvort langur tími líði þar til
menn fyndu það út að það færi nú
ekki allt á hliðina þó launin yrðu
hækkuð umtalsvert. Ég er nokkuð
viss um að liðið í Garðastrætinu léti
það ekki viðgangast lengi að launin
lækkuðu þar á bæ, svo sem næmi því
að eitt núll yrði tekið aftan af launa-
upphæðinni. Ætli launin væru þá
ekki nokkuð nærri því sem þeir ætla
þorra launafólks að lifa af.
Hugur til samborgarans
Alþýðuflokkurinn berst fyrir bætt-
um kjömm láglaunafólks. Gísli Ein-
arsson, þingmaður flokksins, hefur
lagt fram á Alþingi frumvarp þar
sem gert er ráð fyrir að lögbinda lág-
markslaun til að losna úr fargi lágra
taxtalauna og óskilvirks launakerfis,
með það að meginmarkmiði að
hækka laun þeirra verst settu.
Ríkisstjórnin hefur ótvírætt sýnt
hug sinn til þjóðarinnar og afkomu
þeirra verst settu. Það verður fróð-
legt fyrir láglaunafólk að fylgjast
með afgreiðslu á frumvarpinu um
lágmarkslaunin, en þar geta aðrir
þingmenn sýnt þann hug sem þeir
bera til samborgara sinna.
Ekkert virðist geta komið í veg
fyrir að séra Heimir Steins-
son útvarpsstjóri fari aftur á
Þingvelli. Hvað sem líður ágæti
séra Heimis fá Björn Bjarnason
og félagar hans í Sjálfstæðis-
flokknum einstætt tækifæri til að
hlutast til um yfirstjórn Ríkisút-
varpsins með því að planta hon-
um á sinn gamla stað. Hvað þeir
hugsa sér I því sambandi er ekki
vitað enn enda eru þeir ekki ein-
ráðir, Framsókn stendur gjarnan
vörð um útvarpið. Menntamála-
ráðherra lýsti yfir þeim vilja sín-
um í útvarpsþættinum Sunnu-
dagskaffi á Rás 2 á sunnudaginn
að nefnd frá stjórnarflokkunum
athugi hvort skipta eigi Ríkisút-
varpinu upp í tvö fyrirtæki, út-
varp og sjónvarp. Ef sú verður
niðurstaðan ertalinn þægilegur
biðleikur í þeirri stöðu að skipa
Pétur Guðfinnsson fram-
kvæmdastjóra Sjónvarps í stöðu
útvarpsstjóra því vart gefist tími
nú til að leggja niður embættið.
Pétur á einungis 2 ár (eftirlaun.
Þar með losnar staða fram-
kvæmdastjóra Sjónvarpsins
sem hlýtur að verða mjög eftir-
sótt því ýmsir sjá fyrir sér að
Sjónvarpinu verði fyrr breytt í
hlutafélag en sjálfu útvarpinu.
Þeir sem þykjast sjá enn lengra í
þessum efnum sjá fyrir sér nýj-
an sameinaðan risa, samruna
gamla ríkisútvarpsins og stöðv-
ar 3. Þar með yrði komið alvöru
mótvægi við Jón Ólafsson á
hinum væng einkaljósvakageir-
ans. En slíka framkvæmd hrista
menn vitaskuld ekki frammúr
erminni...
Einhver afkastamesti rithöf-
undur ársins er án efa Jón
Kalman Stefánsson. Hann
hefur getið sér orð sem eitt af
efnilegustu Ijóðskáldum
yngri kynslóðarinnar, en
sendir nú frá sér sagnasafn-
ið Skurðir í rigningu, sem að
sögn kunnugra erfínasti
skáldskapur. Þá annast Jón
útgáfu á og skrifar inngang
að Ijóðum Jóhanns Gunn-
ars Sigurðssonar, hins
vansæla unga skálds sem
dó úr berklum á öndverðri
öldinni. Þriðja ritið sem Jón
Kalman kemur að er tímarit
Bjarts og frú Emelíu með skáld-
skap bandaríska drykkjurútsins
og utangarðsmannsins Charles
Bukowsky. Semsagt þrjú núll
fyrir Jóni...
Inæstu viku kemur út bók
Pálma Jónassonar um Ólaf
Ragnar Grímsson, sem hann
hefur soðið saman á mettíma. i
tilkynningu forlagsins segir að
fjallað verði um ætt og uppvöxt
Ólafs Ragnars á ísafirði, skóla-
göngu í MR og Manchester, og
afskipti hans af fjölmiðlum og
fræðimennsku. Meginefni bók-
arinnar verði þó leið Ólafs til
áhrifa í stjórnmálum, úr Fram-
sóknarflokknum í gegnum
Möðruvallahreyfinguna og Sam-
tök frjálslyndra og vinstrimanna
yfir í Alþýðu-
bandalagið. Þá
er aðdraganda
kosninganna
lýst ítarlega í
bókinni. Titill
bókarinnar er
Hana fhrseti og
kápuna, sem er
í fánalitunum,
prýðir hin opin-
bera Ijósmynd
af forsetahjónunum. Efalítið
munu einhverjir villast á þessari
„óopinberu ævisögu" og opin-
beru útgáfunni sem Einar Karl
Haraldsson og Karl Th. Birg-
isson annast i umboði Ólafs
Ragnars...
h i n u m e g
"FarSide" eftir Gary Larson
&QA&3V)
„Kemosabe!... Kemosabel... Þetta er að byrja! Þetta er að
byrja!"
f i m m á f ö r n u m v e g i
Fylgist þú með fréttum af atburðum í Afríku?
Örn Þorsteinsson heilari:
Já, það geri ég. Mér finnst að
Vesturveldin verði að grípa í
taumana nú þegar.
Guðmundur A. Þorvarðar-
son blómaskreytinga-
maður: Já, ef að Sameinuðu
þjóðirnar ná ekki að afgreiða
þetta mál nú þegar eru þær
búnar að vera.
Guðjón Guðmundsson
bankamaður: Það er nú
ósköp lítið. Ég hef svo mikið
að gera.
Jón Páll Björnsson tækni-
maður: Já, að einhverju leyti.
Það er erfitt að leysa svona
mál án þess að það teljist af-
skipti af innanríkismálum.
Þióðir heims verða ^tð taka
hönúum saxnan.
Birna Ásgeirsdóttir hár-
greiðslunemi: Nei, ég horfi
aldrei á fréttir.
v i t i m e n n
Ég hafði ekki tíma til að fara í
stúdíó því að ég var oft í spila-
kössum þrjá til fjóra tíma á dag.
Rúnar Þór spilafíkill, alkóhólisti og poppari
í helgarviðtali DV.
Bindið er ekkert annað en ör
sem vísar niður.
Slaufukarlinn Heiðar Jónsson snyrtir í
DV á laugardaginn.
Fyrir réttri viku stóð ég og
tók í hönd Jóns Ólafssonar og
óskaði honum til hamingju með
afmæli Skífunnar.
Stefán Jón Hafstein velti fyrir sér stöðu
sinni í íslensku fjölmiðlaumhverfi í heilsíðu-
grein í DT um helgina.
Það er augljóst að blaðið hefur
verið dregið inn í pólitískan hrá-
skinnaleik í Hafnarfirði, sem eng-
inn getur fullyrt um á þessari
stundu, hvernig er vaxinn.
Aumingja Mogginn. Reykjavíkurbréf helgar-
innar var lagt undir „Dularfulla Morgun-
hlaðsmálið" - hver skrifar og hver skrifar
sig fyrir lesendabréfunum? Þar er efinn.
Skeggið er snyrtilegt og fer dag-
skrárstjóranum vel þegar vetur
konungur ber að dyrum. Sigurður
er fremur lágvaxinn maður, þrek-
inn, stæltur og frísklegur í útliti.
Ólafur Ormsson viðtalssérfræðingur Mogg-
ans kann að koma lesandanum í rétta
stemmningu. í opnuviðtali við Sigurð Val-
geirsson á sunnudag.
Hann hallaði sér aftur í stól dag-
skrárstjóra, spennti greipar,
strauk yfir hárið og skeggið og
varð svolítið hugsandi á svipinn
þegar hann lét hugann líða til
skólaáranna.
Ólafur aftur um Sigurö.
Sigurður Valgeirsson stóð
upp úr stól dagskrárstjóra, strauk
yfir skeggið, horfði um stund
yfir að Esjunni...
Ólafur enn.
Við viljum ekki láta það henda
aftur að fámenn klíka geti haft
prestinn okkar í vasanum.
íbúi í Langholtssókn hringdi. DV í gær.
smáa letrið
Bestu verstu
kántrílagatitlamir
- Do You Love As Good As You Look?
- Get Your Tongue Outta My Mouth ’Cause
J’m Kissing You Goodbye
- Her Teeth Were Stained, But Her Heart
Was Pure
- How Can I Miss You If You Won’t Go
Away?
-1 Changed Her Oil, She Changed My Life
-1 Don’t Know Whether To Kill Myself
Or Go Bowling
-1 Flushed You From The Toilets Of
My Heart
-1 Keep Forgettin’ I Forgot About You
-1 Wanna Whip Your Cow
-1 Would Have Wrote You A Letter, But
I Couldn't Spell Yuck!
- I’m Just A Bug On The Windshield Of Life
- I’ve Been Flushed From The Bathroom
Of YourHeart
- I’ve Got The Hungries For Your Love And
I’m Waiting In Your Welfare Line
- Ifl Can’t Be NumberOne In Your Life,
Then Nuntber Two On You
- If My Nose Were Full of Nickels,
l’d Blow It All On You
- If The Phone Ðon't Ring, Baby,
You'll Know It’s Me
- If You Don’t Leave Me Alone. I’ll Go And
Ftnd Someone Else Who Will
Af Internetinu.