Alþýðublaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996
3 ó I i t í k
■ Gallup mælir ánægju með störf ráðherra Sjálfstæðisflokksins
Björn Bjarnason orðinn óvin-
sælasti ráðherra flokksins
I Davíð er eini
i ráöherra Sjálf-
1 stæðisflokks-
n ins sem meira
en helmingur
Hl Jéskil er ánægður
| með. Ánægja
sIIm 21 með störf
hans hefur þó
aldrei verið
minni.
Ánægðir með störf Davíðs Oddssonar
A B D G V Allir
Júní 1995 49,2 69,2 94,1 41,4 32,1 69,6
Október 1995 47,5 68,4 90,2 31,8 31,8 61,3
Apríl 1996 36,1 57,5 89,3 30,5 29,2 60,1
Október 1996 45,6 62,8 85,3 24,6 13,3 54,8
Ánægðir með störf Friðriks Sophussonar A B D G V Allir
Júní 1995 55,9 43,3 65,5 18,9 32,0 47,0
Október 1995 31,7 44,6 71,0 19,3 28,6 42,9
Apríl 1996 30,5 35,8 59,5 16,5 9,1 38,7
Október 1996 39,7 46,9 62,5 16,2 7,1 40,2
Ánægðir með störf Þorsteins Pálssonar
A B D G V Allir
Júní 1995 27,6 61,1 54,7 33,3 39,3 47,1
Október 1995 33,9 69,2 71,1 50,0 33,3 55,6
Apríl 1996 28,8 54,3 57,3 38,8 40,0 48,3
Október 1996 22,2 63,9 59,9 21,0 42,9 43,8
Ánægðir með störf Halldórs A B Blöndals D G V Allir
Júní 1995 44,4 63,3 61,5 42,0 40,9 55,0
Október 1995 27,3 67,4 63,9 36,9 31,6 47,2
Apríl 1996 27,5 58,6 53,9 31,9 36,8 45,1
Október 1996 36,4 48,8 59,9 27,4 36,4 43,8
Ánægðir með störf Björns Bjarnasonar
A B D G V Allir
Júní 1995 45,8 47,1 64,7 48,9 28,6 50,6
Október 1995 35,4 40,5 66,9 26,6 10,5 43,5
Apríl 1996 61,5 45,1 72,8 35,3 36,4 53,0
Október 1996 38,7 48,1 56,3 13,6 30,8 39,1
Dvínandi ánægja með störf
allra ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins, nema Friðriks.
Ánægja með Davíð hefur
minnkað úr 70 prósentum í
55 á rúmu ári.
Ánægja landsmanna með störf
ráðherra Sjálfstæðisflokksins hefur'
aldrei verið minni, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Gallups. Mest er
óánægjan með Björn Bjarnason
menntamálaráðherra, aðeins 39,1
prósent lýsa ánægju með störf hans,
en í vor sem leið var Björn næst-
vinsælastur. Þá er eftirtektarvert að
ánægja með störf Davíðs Oddsson-
ar forsætisráðherra fer mjög minnk-
andi. Nú lýsa 54,8 prósent ánægju
með hann, samanborið við 60,1
prósent í apríl og tæp 70 prósent
fyrir rúmu ári.
Davíð 15 prósentustig
niður
Skoðanakönnun Gallups var gerð
í kjölfar landsfundar Sjálfstæðis-
flokksins, en slíkar samkomur nýt-
ast flokkum einatt vel til að auka
fylgi sitt. Sú er ekki raunin hjá
Sjálfstæðisflokknum.
Ánægja með störf Davíðs fer
minnkandi meðal Sjálfstæðis-
manr.a, þótt enn beri hann höfuð og
herðar yfir aðra ráðherra meðal
stuðningsmanna flokksins. 85,3
prósent Sjálfstæðismanna lýsa
ánægju með störf hans, en hæst
komst hann í 94,1 prósent í júní í
fyrra. Framsóknarmenn og Alþýðu-
flokksmenn eru hinsvegar ánægðari
nú en í sumar með störf Davíðs, en
hann snarfellur hjá stuðningsmönn-
um Alþýðubandalagsins og
Kvennalistans.
Þótt fylgi við Davíð hafi bersýni-
lega minnkað er hann eigi að síður
eini ráðherra Sjálfstæðisflokksins
sem meira en helmingur lýsti
ánægju með.
Þorsteinn vinsælastur
hjá Framsókn
Ánægja með störf Þorsteins Páls-
sonar minnkar verulega, og munar
mestu um breytt viðhorf Alþýðu-
bandalagsmanna og Alþýðuflokks-
manna.
Þá er athyglisvert að Framsókn-
armenn lýsa meiri ánægju en Sjálf-
stæðismenn með störf sjávarútvegs-
ráðherrans, og er hann vinsælli en
Davíð Oddsson í þeirra hópi. Þor-
steinn hefur sótt mjög í sig veðrið
meðal Framsóknarmanna, en í heild
hefur ánægja með hann minnkað
um fjögur og hálft prósentustig síð-
an í sumar.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra naut til skamms tíma mikillar
velþóknunar Framsóknarmanna,
meðan Alþýðuflokksmenn voru lítt
ánægðir með störf hans. Fyrir réttu
ári lýstu kváðust 67,4 prósent
Framsóknarmanna ánægð með
Haildór en aðeins 27,3 Alþýðu-
flokksmanna. Nú er staðan sú að
hlutfall Framsóknarmanna sem er
ánægt með samgönguráðherrann er
komið niður í 48,8 prósent, en 36,4
prósent Alþýðuflokksmanna eru
ánægð með ráðherrann. Þá sækir
hann nokkuð í sig veðrið hjá Sjálf-
stæðismönnum og er ekki lengur
óvinsælastur ráðherra meðal flokks-
manna.
Friörik úr fallsætinu
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra er eini ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins sem fær ögn betri útkomu
nú en síðast, og kemst úr botnsæt-
inu. 40,2 prósent lýsa ánægju með
störf hans, samanborið við 38,7
prósent í júní. Þetta er í fyrsta sinn
á kjörtímabilinu sem Friðrik er ekki
sá ráðherra Sjálfstæðisflokksins
sem minnst ánægja er með.
Ánægja með störf Friðriks vex
meðal kjósenda Alþýðuflokks,
Framsóknar og Sjálfstæðisflokks,
en aðeins meðal eigin kjósenda er
meirihlutinn ánægður með störf
ráðherrans.
Stjarna Björns hrapar
Óhætt er að segja að ánægja með
störf Björns Bjarnasonar mennta-
málaráðherra hrynji. Mesta athygli
vekur að í apríl lýstu tæp 73 pró-
sent Sjálfstæðismanna ánægju með
störf hans en aðeins 56,3 prósent
núna. Alþýðuflokksmenn voru líka
ánægðir með Björn í vor en meðal
þeirra hefur hlutfall ánægðra lækk-
að um heil 23 prósentustig. Þá má
Björn muna sinna fífil fegurri með-
al Alþýðubandalagsmanna. Fyrir
rúmu ári var helmingur þeirra
ánægður með störf hans, en aðeins
13,6 prósent nú.
MVinsælli en
Davíð - hjá
Framsókn.
Hærra hlutfall
Framsóknar-
manna en
Sjálfstæðis-
manna lýsir
ánægju með
störf Þor-
steins.
Halldór Blön-
dal dalar hjá
Framsóknar-
mönnum, en
sækir í sig
veðrið meðal
Alþýðuflokks-
manna. Ekki
lengur óvin-
sælastur hjá
Sjálfstæðis-
mönnum.
í fyrsta sinn á
kjörtímabilinu
er Friðrik ekki
sá ráðherra
Sjálfstæðis-
flokksins sem
minnst
ánægja er
með.
Lítil lukka með
Björn. í fjórum
könnunum á
kjörtímabilinu
hefur ánægja
með störf ein-
hvers af ráð-
herrum flokks-
ins aðeins
eínu sinni
mælst minni.
DHL Hraðflutn ingar hafa fengið nýtt símanúmer
Um leið bætum við símaþjónustuna með því að gefa viðskiptavinum kost á að
hringja beint í einstakar deildir.
.a DHL
Þjónustunúmer 535 1 122
Tolladeild 535 1 133
Fjárhagsdeild 535 1 144
Söludeild 535 1 155
Sérþjónusta / frakt 535 1 199
Aðalfax 535 1 1 1 1
Fax tolladeild 535 1131
Fax sérþjónustu 535 1 171
WDRLDWfDCEXPReSS
I fiö stöndum við skuldbindingar þínar
DHL HRAÐFLUTNINGAR ehf Faxafeni 9 • 108 Reykjavík • Sími 535 1100 * Fax 535 I I I I