Alþýðublaðið - 19.11.1996, Side 8
Þriðjudagur 19. nóvember 1996 174. tölublað - 77. árgangur Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
■ Bæjarstjórn ísafjarðar er meinað að auglýsa deiliskipulag eftir að nýleg skýrsla frá
Veðurstofu íslands varsend Skipulagsráði ríkisins
Mikil vinna í súginn
- segir Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri.
,Jv4ikil vinna fer í súginn og það er
vissulega leiðinlegt að lenda í þessu
en við því er víst ekkert að segja. Við
þurfum að skoða okkar hluti enn og
aftur frá grunni,“ segir Kristján Þór
Júlíusson bæjarstjóri Isaíjarðar í sam-
tali við Alþýðublaðið.
I nýlegri skýrslu írá Veðurstofu fs-
lands er meðal annars gerð úttekt á
Seljalandshverfi á ísafirði. Magnús
Már Magússon, snjóflóðafræðingur
Veðurstofunnar, sagði í samtali við
Alþýðublaðið að hér væri ekki um að
ræða nýtt hættumat heldur tillögur um
hver viðunandi áhætta gæti verið.
„Við vorum að gera áhættulínur mið-
að við ákveðnar forsendur," ségir;
Magnús Már og þar sé um að ræð'a
nýtt hverfi þar sem bæjarstjómin vildi
byggja-
Kristján Þór Júlíusson segir aldrei
hafa staðið til að byggja í blóra við allt
og alla. „Þannig hefur aldrei verið
unnið hér og verður ekki. Við keypt-
um land af ríkissjóði í fyrra sem er í
botni Skutulsíjarðar. A aðalskipulagi
er meðal annars gert ráð fyrir íbúða-
byggð og við vomm að vinna deili-
skipulag að þessu hverfi. Við unnum
það í fullu samráði við Skipulagsráð
ríkisins. Þegar okkar vinnu var lokið
með arkitekt og öðmm óskuðum við
eftir heimild til að auglýsa þetta deili-
skipulag okkar. Við vomm að fá bréf
frá Skipulaginu núna þar sem okkur er
bannað að auglýsa það. Það nær ekk-
ert lengra. Við geram ekki nokkum
skapaðan hlut,“ segir Kristján Þór.
■ Ólafur Gunnars-
son fyrrum fangi er
vonlítill um að geta
rétt úr kútnum
Dæmdur
ur það sem
eftir er
- segir Ólafur sem sér
ekki fram á bjarta framtíð.
„Ég ætla mér ekki að fara aftur í
ræsið en mér er ekki gert það auð-
velt,“ segir Ólafur Gunnarsson sem
var látinn laus úr fangelsi 16. ágúst.
Hann hefur verið kenndur við stóra
fíkniefnamálið og er ekki stoltur af
því.
„Þegar mér var hent út þarna fyrir
vestan þá var ég með 2 þúsund kall
f vasanum. Hvað í ósköpunum á
maður að gera með tvö þúsund kall?
Það liðu 17 dagar þar til ég fór að fá
bætur þrátt fyrir ítrekaðar fyrir-
spurnir," segir Ólafur og telur að
þessi aðstaða sín sé ekki til þess
fallin að halda honum frá afbrotum.
„Mín reynsla er ekki góð. Það er lít-
ill sem engin möguleiki fyrir okkur
fyrrum fanga að fóta okkur og verða
nýtir samfélagsþegnar. Mér er ekki
ætlað að njóta sálfræðiþjónustu og
hef ekki efni á að leita til læknis. Ég
vil gjarnan njóta menntunnar og hef
leitað eftir því að fá að sækja nám-
skeið á vegum atvinnuleysissjóðs en
það er ekki hægt vegna þess að ég
er í félagslega kerfinu. Við lúðarnir
sem komum úr fangelsi eigum okk-
ur vart viðreisnarvon og erum
dæmdir til að vera jaðarmenn það
sem eftir er,“ segir Ólafur en tekur
fram að hann ætli ekki að gefast upp
í fyrren í fulla hnefana.
„Þessi ágæti fangelsisstjóri er bú-
inn að koma því svo fyrir að það er
vonlaust fyrir mig að fá atvinnu
næstu þrjú árin. A hálfsmánaðar-
fresti þarf ég að mæta til fíkniefna-
lögreglunnar og gefa nákvæma
skýrslu um ferðir mínar. Mér ber að
segja frá því hverja ég umgengst og
hvað okkur fer á milli. Nú þegar hef
ég misst af tveimur atvinnutækifær-
um vegna þessa,“ segir Ólafur
Gunnarsson.
Stöndum vörð
um íslenskuna!
„Það er hlutverk þessarar þjóðar að vemda, efla og frjóvga hina sígildu íslensku menningararfleifð, og
til þess er nokkru fórnandi, því hún gefur oss tilverurétt og tilgang. Án hennar værum vér sjálfir ekki
til, ekki sem þjóð, heldur ef til vill 200 þúsund sálir, og á þessu tvennu er mikill munur.“
IKrislján Eldjárnj
Apple-umboðið
Skipholti 21. 105 Reykjavík, simi: 511 5111
Heimasíöa: http://www.apple.is