Alþýðublaðið - 20.11.1996, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o d a n
Einkunn: Dagur-Tíminn 2,5, DV 3,0,
Mogginn 4,5 og Björn Bjarnason?
í nýútkomnu tölublaði Tölvu-
heims er að tinna pistil eftir Asgeir
Friðgeirsson, ritstjóra Iceland
Review, sem kannar heimasíður
fjölmiðla fyrir tímaritið. í þetta sinn
er það heimasíða Dags-Tímans sem
fær 2,5 í einkunn af 10 mögulegum.
Við skulum skyggnast í þennan
heim með Asgeiri:
Önnur
sjónarmið
Netlíf er netvinna
Það er ekki til neins að halda úti vef
á Netinu ef honum er ekki haldið við.
Til hvers er netblað sem kemur á
skrifstofu manns á pappír samdægurs
en fjórum dögum síðar á háhraðaneti
tölvusamskipta? Til hvers er netblað,
sem er af meiði þeirrar tækni sem
flýta á fyrir manni, ef maður þarf að
vaffa inn á allar greinar og lesa langt
inn í þær til að komast að því að mað-
ur hefur ekki áhuga á umfjöllunarefn-
inu?
Lifandi vefur er það sem netveijar
hafa áhuga á og hann kallar á vinnu.
Ef aðstandendur Dags-Tímans eru
ekki reiðubúnir til að vinna þá vinnu
þá tel ég betra heima setið en af stað
farið. Þessi vefur er ókláraður - hann
er ekki fokheldur. Vefbyggingin er
hins vegar góð og því gæti hann orðið
góður.
Stóri kosturinn við hann er að hann
er ókeypis og því mætti ásaka mig um
vanþakklæti. Gagnrýni mín er ekki af
þeirri rót runnin. Skoðun mín er sú að
þessi vefur sé Degi-Tímanum ekki til
framdráttar á meðan hann er eins
ólujlkominn og hann er.
N{H@&tiér.£húga að-á síðasta ári gaf
undirritaður Morgunblaðinu
(htt://www.centrum.is/mbl/) 5,5 í ein-
kunn og DV (htt://www.skyrr.is/dv/)
4,0. Vegna þess hversu lítið þeir hafa
þróast á þeim tíma sem liðinn er lækk-
aði ég þau blöð um einn heilan ef ég
ætti þess kost að gefa þeim einkunn
nú.
Símastaurar syngja
Fyrst Álþýðublaðið er komið í
þennan Net-ham er rétt að kíkja á
eina vönduðustu heimasíðuna sem
býðst: Heimasíða Björns Bjarna-
sonar menntamálaráðherra. Þar
eru nýjustu skilaboðin þessi:
Eftir mótmælin 15. nóvember sló
Morgunblaðið því upp, að barátta
námsmanna væri að hefjast. Veit ég
ekki, hvað býr þar að baki, því að
námsmenn hafa ekki beint öðru en al-
mennum áskorunum til mín og kröf-
um um auknar fjárveitingar. Eg hef
lýst mig fúsan til viðræðna við þá, sótt
fund Félags framhaldsskólanema í
Hvalfirði 11. október, tekið þátt í sjón-
varpsumræðum í Kvennaskólanum
fyrir Óið, tekið á móti nemendum frá
Laugum og Hötn í Homafirði. Barátta
getur vissulega verið markmið í sjálfu
sér til að styrkja innviði sína og skapa
sér stöðu út á við. Ég átta mig ekki á
því, hvort barátta námsmanna er af
þessari rót eða hvort þeir em að safna
liði til að koma öflugri til viðræðna
um ákveðin málefni.
I stuttu máli er ég til þess búinn að
ræða við námsmenn um sjónarmið
þeirra. Ég geri auðvitað alls ekki kröfu
um, að þeir samþykki allt, sem ég tel
skynsamlegt, og þeir geta ekki ætlast
til þess, að ég samþykki allt, sem þeir
vilja. Krafan um svonefndar samtíma-
greiðslur er til dæmis orðin svo loðin,
að erfitt er að átta sig á því, hvað í
henni felst. Svavar Gestsson kynnti að
minnsta kosti tvær útgáfur hennar í
vikunni, eina á Alþingi 12. nóvember
og aðra í útvarpsviðræðum við mig á
Bylgjunni síðdegis 14. nóvember. Síð-
an ragla menn saman námsffamvindu-
kröfum skóla og reglum LÍN. Við
breytum ekki námskröfum með því að
breyta lögunum um LIN.
Eins og þeir sjá, sem fylgjast með
umræðum um samstarf vinstri flokk-
anna, er þar hópur ungs fólks að ræða
um nýjar leiðir. Menntamálin era við-
fangsefni, sem auðvelt er að sameinast
um á pólitískmn vettvangi, sérstaklega
ef menn bera ekki mikla ábyrgð.
Kannski á að skoða hræringar meðal
námsmanna í þessu ljósi, þar séu ein-
hveijir, sem vilji ná flokkspólitískum
árangri með styrk námsmanna að
vopni. Raunar varð sjónvarpsfrétt af
Svavari Gestssyni á útifundi náms-
manna á Akureyri 15. nóvember, þar
sem hann hafði í heitingum við mig,
til að ég rifjaði upp ljóðlínur Tómasar
Guðmundssonar:
og jafnvel gamlir símastaurar syngja
í sólskininu og verða grœnir aftur.
hinumegin
"FarSide” eftir Gary Larson
Senn líður að því að Dags-
Ijóssstjarnan Logi Berg-
mann Eiðsson taki við stöðu
sinni á fréttastofu Sjónvarps og
þarf því ritstýran Svanhildur
Konráðsdóttir að finna ein-
hvern til að hlaupa í skarðið. Al-
menntertalið að Logi hafi staðið
sig eins og hetja í Dagsljósi -
miðað við aðstæður. Ekki fer á
milli mála, eins og þeir vita sem
hafa fylgst með þáttunum, að
Logi hefur búið við ofríki kvenna.
í það minnsta hafa þær Svan-
hildur og Kolfinna Baldvins-
dóttir verið sparar á lofið við
Loga þegar hann lætur sig hafa
það að setja sig í hlutverk tang-
ódansara, leikara, dragdrottn-
inga og svo framvegis. Nú velta
menn því fyrir sér hvernig Loga
gangi að setja sig í alvarlegri
stellingar á fréttastofunni og
hvort djörf efnistök hans í dæg-
urmálunum dragi úrtrúverðug-
leik hans sem fréttahauks...
Félaga í nýstofnuðu Jafnaðar-
mannafélagi Hafnarfjarðar er
farið að lengja eftir aðalfundi
fulltrúaráðs alþýðuflokksfélag-
anna þar í bæ. Fyrirhugað var að
hann færi fram í síðasta mánuði
en eitthvað hefur dregist að
boða til hans. Þá þarf að taka
umsókn nýja félagsins í ráðið til
(jmfjöllunnar og í kjölfarið er fyr-
irsjáanleg veruleg aukning í ráð-
inu. Að baki hverjum fulltrúa í
fulltrúaráði eru 15félagar. For-
kólfar Jafnaðarmannafélagsins
fullyrða að félagaskráin telji hátt
í 300 manns sem þýðir að þeir
eiga rétt á 20 fulltrúum í fulltrúa-
ráð...
Þeir rithöfundar sem hafa
komið bókum sínum í gegn-
um prentsmiðjurnar eru tíðir
gestir í bókabúðum þar sem þeir
gjóa augum á borðin þar sem
jólabækurnar liggja. Það mun
vera nokkur titringur þeirra á
meðal vegna þess að staflinn
með bók Ólafs Jóhanns Ólafs-
sonar Lávarður heims gengur
hratt niður og virðist sama þó á
sé bætt. Samkvæmt því er óhætt
að fullyrða að Ólafur Jóhann
verður meðal söluhæstu höf-
unda þessararvertíðar...
Fyrirferð Gunnars Smára Eg-
ilssonar fyrrum ritstjóra ætlar
að verða með meira móti nú fyr-
ir jólin. Ekki aðeins verður hann
með tvær bækur í jólabókaflóð-
inu, Málsvöm mannorðsmorð-
ingja og Bessastaðabækumar
heldur ætlar hann að standa fyrir
útgáfu menningartímaritsins
Ejolnis en það er samstarfsverk-
efni útgáfufyrirtækjanna Dægra-
dvalar, Bjarts og Smekkleysu.
Þar er ætlunin að skjóta fótum
undir menningarvita þeirrar kyn-
slóðar sem hann tilheyrir en þeir
hafa átt í nokkurri tilvistarkreppu
að viti Gunnars Smára. Auk þess
hefst bók Ólafs Gunnarssonar
Blóðakur á orðunum: „Ég var rit-
stjóri Helgarpressunnar og var
rekinn." í Ijósi þessa telja menn
augljóst að fyrirmynd aðalper-
sónunnar sé enginn annar en
irtæki sem runnið er undan rót-
um SÍS gamla. Fram kom þó i
máli kaupfélgasstjórans Gísla
Jónatanssonar að einhverjir fyr-
irvarar kynnu að vera á og nú
munu þeir vera komnir í Ijós.
Siðast þegarfréttist lá skipið
bundið við bryggju í Reykjavíkur-
höfn. Afríski viðskiptabanki
kaupandans mun ekki enn vera
búinn að gefa grænt Ijós á samn-
inginn. Þetta ku vera talsvert ta-
bú hjá Framsóknarmönnum á
Fáskrúðsfirði enda var með
þessari ráðstöfun afkomunni
kippt undan þó nokkrum fjöl-
skyldum á staðnum, í bili að
minnsta kosti...
„Það hlýtur að vera eitthvað kusk á tenginu... Juðaðu
þessu aðeins til."
Sigurður Már Jóhannes-
son nemi: Hún er 150 ára.
Jónas Hallgrímsson fram-
kvæmdastjóri: Hún átti
hundrað ára afmæli um dag-
inn.
Magnús Sigþórsson
nuddari: Ég hef ekki hug-
mynd um það.
Guðrún Eggertsdóttir
djáknanemi: Hún er tvö-
hundruð ára. Ég ætti að vita
það. Ég var í starfsnámi þar
um daginn.
Baldvin Þór Bergsson
nemi: Hún var vígð 1796, en
tekin í notkun í þessari mynd
árið 1848.
JÓN ÓSKAR
e n n
En eins og venjulega eru engir
peningar eða fríðindi eftir þegar
sá lýður veður uppi með kröfu-
gerð, og góðærið allt um garð
gengið þegar kemur að almenn-
um kjarasamningum.
Oddur Ólafsson spáir í komandi kjarasamn-
inga. DT í gær.
0g ennþá eru femínistar að troða
dúkkudóti uppá litla stráka í þeirri
von að þeir breytist í stelpur, eða
öðlist í það minnsta betri skilning
á kvenþjóðinni.
Friðrik Erlingsson virðist eiga undir högg
að sækja og stendur aleinn í orðaskaki við
alla kvenpistlahöfunda DT.
Mannvinur er hann Friðrik.
Lóa Aldísardóttir um Friðrik Erlingsson
í DT í gær.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur að
þessu leyti lengi verið á undan
sinni samtíð. Hann er fyrst og
fremst kosningabandalag um
völd. Málefni hans eru óljós,
enda eru innan flokksins deildar
meiningar um flest það, sem
máli skiptir. Hann er fyrirmynd
Bifrastarsamtakanna.
Jónas Kristjánsson rýnir í hið pólitíska
landslag. DV í gær.
Ef satt reynist fellur atvinnu-
leysi undir „letifaraldur" eða
farsótt sem gengur yfir þjóðfélög-
in í bylgjum.
Ólafur Ólafsson landlæknir veltir fyrir sér
skilgreiningu leiðandi manna á atvinnuleysi
og segir heilbrigisstéttirnar standa ráðþrota
gagnvart þessum vágesti.
Z er hugrökk bók,
umfram allt hugrökk bók.
Þröstur Helgason um nýja bók Vigdísar
Grímsdóttur í Mogganum í gær.
Sóknarkonur dansa ekki naktar.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaöur
Sóknar í DT í gær.
Það er engum greiði gerður
með svona innantómu blaðri.
Fjölmiðlagagnrýnandi DT um bókmennta-
gagnrýnendur HP og Moggans. Hver á að
gagnrýna fjölmiðlagagnrýnandann?
smáa letrið
Bestu verstu
kántrílagatitlamir
- If You Leave Me, Can I Come Too?
- Mama Get The Hammer (There’s A
Fly On Papa’s Head)
- My Head Hurts, My Feet Súnk. And
I Don’t Love Jesus
- Oh, I've Got Hair Oil On My Ears
And My Glasses Are Slipping Down, But
Baby I Can See Through You
- Pardon Me, I’ve Got Someone To Kill
- She Got The Gold Mine And I Got The
Shaft; She Got The Ring And I Got
The Finger
- She Made Toothpicks Out Of
The Timber Of My Heart
- She’s Got Freckles On Her,
But She’s Pretty
- Thank God And Greyhound She's Gone
- They May Put Me In Prison, But They
Can’t Stop My Face From Breakin' Out
- Velcro Anns, Teflon Heart
- When You Lcave Walk Out Backwards,
So I’ll Think You’re Walking In
- You Can’t Roller Skate In A
Buffalo Herd
^ - You’re The Reason Our Kids
Are So Ugly
Af Internetinu.