Alþýðublaðið - 29.11.1996, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996
s k o ð a n i r
MUBIIDID
21221. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Utgefandi
Ritstjóri
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Umbrot
Prentun
Alprent
Hrafn Jökulsson
Jakob Bjarnar Grétarsson
Ámundi Ámundason
Gagarín ehf.
Isafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Tölvupóstur alprent@itn.is
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Böðullinn í Belgrad
Slobodan Milosevic forseti Serbíu hefur af illa dulinni ánægju
dregið leiðtoga voldugustu ríkja heims á asnaeyrum í mörg ár.
Hann er sá maður sem öðrum ffemur ber ábyrgð á helför Júgó-
slavíu og ætti vitanlega að vera sakbomingur númer eitt fyrir
stríðsglæpadómstólnum í Haag. Dáðhtlir leiðtogar heimsins töldu
sig hinsvegar þurfa að kaupa frið með því að versla við böðulinn,
og því var Milosevic skyndilega dubbaður upp í hlutverk friðar-
boða. En nú era teikn á lofti um að almermingi í Serbíu sé loks
nóg boðið, og því hefur staða Milosevic ekki í annan tíma verið
tæpari.
Meðan Josip Broz Tito réði ríkjum í Júgóslavíu var Slobodan
Milosevic dæmigert möppudýr sem kleif metorðastiga flokksins
hægt og bítandi. Hann fæddist á stríðsáranum og getur því ekki
státað af að hafa barist gegn nasistum, einsog Franjo Tudjman,
fasistinn sem situr á forsetastóli í Króatíu. Milosevic var af-
sprengi hins kommúníska samfélags: litlaus tæknimaður, hug-
sjónalaus og vaifærinn tækifærissinni, og í alla staði ólíklegur til
afreka. Jafníramt mótaðist persónuleiki hans af tíðum sjálfsmorð-
um í fjölskyldunni, og nægir að nefna að bæði faðir hans og
móðir bundu endi á líf sitt.
Við fráfall Titos árið 1980 skapaðist pólitískt tómarúm í Júgó-
slavíu, enda hafði hann haldið lýðveldunum sex í einni ríkisheild
með samblandi af stjómvisku og hörku sem enginn annar bjó yf-
ir. Allan níunda áratuginn stefndi Júgóslavía á vit glötunar, án
þess að nokkuð væri gert til að afstýra fyrirsjáanlegum harmleik.
A sama tíma reis Milosevic til metorða í kommúnistaflokki Serb-
íu. Kommúnisminn var Milosevic aldrei heilög trúarbrögð, og
því kom ekki á óvart þótt hann kastaði trúnni næsta auðveldlega,
þegar jámtjaldið féll. Einsog svo margir foringjar kommúnista í
Austur-Evrópu gerðist hann skyndilega ófyrirleitinn þjóðernis-
sinni og lýðskramari: boðaði fagnaðarerindi Stór-Serbíu óg ól á
andúð og ótta við aðrar þjóðir Júgóslavíu. Eftir honum era höfð
orðin: „Serbía nær þangað sem einn einasti Serbi býr.“ Þegar Sló-
vem'a og Króatía sögðu skilið við ríkjasamband Júgóslavíu árið
1991 sýndi Milosevic að honum var alvara: í Króatíu bjuggu um
600 þúsund Serbar - og því náði Serbía Milosevic vitanlega
þangað. Örlög Bosníu-Herzegóvinu vora einnig ráðin þegar þar-
lendir Króatar og múslimar lýstu yfír sjálfstæði í kosningum á
hlaupársdag 1992: þriðjungur íbúanna vora Serbar, og því var
stríð óhjákvæmilegt.
Serbneskir íbúar Króatíu hemámu um fjórðung landsins fyrir
fimm árum með hjálp Alþýðuhers Júgóslavíu, sem var fjarstýrt af
Milosevic. Þegar stríðið barst til Bosníu tæpu ári síðar lögðu
Serbar undir sig tvo þriðja hluta landsins í krafti yfirburða á víg-
vellinum. Utsendarar Milosevic í Bosníu frömdu hryllilegri glæpi
en dæmi era um í Evrópu í hálfa öld. Tvöhundrað þúsund manns
liggja í valnum. Það er ægilegur blóðtollur í landi þarsem bjó hálf
fimmta milljón. Flóttamenn vora á þriðju milljón: fómarlömb
„þjóðarhreinsana“.
Slobodan Milosevic er leikstjóri þessa hryllings. Á dögunum
vora haldnar kosningar í Serbíu og þar fór flokkur hans loks hall-
oka. Serbar era nefnilega ekki upp til hópa blóðþyrstir villimenn,
þótt Milosevic og nótar hans hafi farið langt með að eyðileggja
orðstír þessarar merku og sögufrægu þjóðar. Milosevic gat vitan-
lega ekki sætt sig við úrslit kosninganna og lét endurtaka þær, í
því skyni að hagræða úrslitunum einsog hann er vanur. En serb-
nesku þjóðinni er nóg boðið. Síðustu tólf daga hafa tugþúsundir
safnast saman í Belgrad og fleiri borgum Serbíu og krafist rétt-
lætis og lýðræðis. Dagar blekkingameistarans mikla era senn
taldir. ■
Alzheimer-kynslóðin
Spjallað við "Fulltrúa ungu kynslóðarinnar '96"
að eru farnar að slæðast inn á
barina dömur fæddar '78.
Dömur fæddar eftir lit. Lið sem
aldrei hefur séð svarthvítt sjón-
varp.
Gerist maður þá nokkuð
aldurhniginn, yfir bjórglasinu:
„Ég skal nú bara segja þér það,
að ég man þá tíð þegar ekki var
sjónvarp á fimmtudögum.”
„Nú? Hvað gerðuði þá?
Horfðuði bara á vídeó?”
Það er viss kúnst að spjalla við
æskuna. Skólakerfið er greinilega
hrunið fyrir nokkru. Minnisleysið
er allsráðandi. Við erum að tala um
og tala við Alzheimer-kynslóðina.
„Og ekki nóg með það vina mín.
Þegar ég var á þínum aldri, þá voru
engir barir í Reykjavík.”
„Nú? Enginn kranabjór?”
„E...Sko. Sjáðu nú til. í þá tíð
var enginn bjór. Hann var ban-
naður.”
Vikupiltur
Hallgrímur
Helgason
skrifar
„Nú? Útaf hverju?”
„Bara. Hann var bannaður. Rétt
eins og hundar voru bannaðir.”
„Já, ég man, Mamma hefur sagt
mér frá rauðu hundunum. Hvernig
voru þeir eiginlega? Voru þeir
mjög hættulegir?”
Hér gefst upp gamall maður og
hverfur á klósett, mígur sínum
þrjátíu og eitthvað árum í skál. Og
í gulum boganum bjarmar fyrir
barnæsku manns. Þegar ekki einu
sinni var kanasjónvarp. Þegar
Heimir Steinsson var enn í
guðfræði og jafn langt frá því að
vera sjónvarpsstjóri og ég er frá
því að skilja þessa tattúveruðu
kynslóð þarna frammi. En svo kom
varpið og: Ég man þá tíð þegar
helsta skemmtun vikunnar voru
tuttugu mínútna langir þættir með
Savanna-tríóinu að syngja um
Brúðarskóna hans Davíðs. Kvæði
frá 1918. Ég man þá tíð þegar
maður hlakkaði til þess eins og
party-zone-partýs í Tetriz að horfa
á „Munir og minjar”: Kristján
Eldjárn að kynna þjóðmuni, líkt og
síðar Þorgeir Astvaldsson að kynna
myndbönd. En unga kynslóðin er
búin að gleyma þessu öllu og öllu
öðru líka. Halldór Laxness hvað?
Kristján Eldjárn? Jú...Er hann ekki
gítarleikari?
Þegar ég kem aftur fram er ein-
hver leikur í gangi við borðið.
Ungstúlkan spyr mig:
„En þú? Hvenær ert þú fæddur?”
Ég er allur með hugann við minn
mikla aldur og svara:
„'59.”
Einhvernveginn hljómar það
samt hér eins og á síðustu öld. Ég
sit þarna eins og hver annar Lúðvík
Kristjánsson fullur af íslenzkum
sjávarháttum. Setan undir mér
verður að zetu. Þetta hljómar jafn-
vel svo far-át að hún spyr:
,,Hvað meinaru '59?”
Ég átta mig. Þau eru að spyrja
um stjörnumerki.
Ég er nú samt nógu áhugasamur
um þennan „Fulltrúa ungu
kynslóðarinnar” til að fara með
henni heim. Hún býr í einhverju
sjónvarpsstúdíói í miðbænum,
ásamt heppilega fjarverandi
vinkonu. Ég hlamma mér niður í
stól sem breytist skyndilega í
hjólastól þegar hún spyr:
„Varstu búinn að taka pillurnar?”
Ég horfi í gaupnir mér. Allt í
einu er ég með ullarteppi yfir mér.
Og ég tek eftir því að ég er t
flókainniskóm. Var ég búinn að
taka pillurnar mínar? Það getur
ekki verið, því gigtarverkurinn
læsist nú upp eftir bakinu á mér.
Ég ranka samt loks við mér og
spyr:
„Pillurnar?”
„Já. E og F. Það er ógeðslega
gott saman. Það verður svona
algjört EF. Svona EF-pilla.
Kvöldið verður algjört EF. Þú veist
svona allt-getur-gerst-dæmi. Alveg
þvílíkt þokkalegt. Hérna. Prófaðu”
segir hún og réttir mér tvær litlar
pillur og skellir í sig tveimur sjálf.
Ég læt þær vera. Ég á alveg nóg
með að innbyrða þessa tónlist sem
hún lætur yfir mig ganga. Það mun
vera eitthvað teknó-brjálað-
Chemical-dæmi.
„Þvílíkt flott lag, finnst þér það
ekki?” spyr hún.
Ja, lag. Sama stefið hefur nú
hljómað í bráðum sautján mínútur.
Lag? I mínum huga er lag...ja...í
heila mínum situr bara gamli góði
Ingimar Eydal við hljómborð og
nikkar kurteislega til trommarans
áður en þeir byrja á „Paloma
blanca”. Hvað er ég að gera hér?
Ég er Sjallinn. Sjallinn á sautjándu
öld. Þegar fólk dansaði saman.
Fornir hjúskaparhættir.
„Viltu sjá snákinn minn?” spyr
hún, „Kínú...”
„Kínú?”
„Já finnst þér hann ekki ótrúlega
líkur Keanu Reeves? Þvílíkt sætur
finnst þér ekki?” heldur hún áfram
og fyrr en varði horfist ég í augu
við skriðdýr. Kínú kallinn ullar á
mig. Og EF-pillan hefur nú greini-
lega tekið völdin í höfði stúlk-
unnar:
„Kysstu hann. Það er þvflíkt gott
að kyssa hann. Prófaðu.”
Góðan daginn. Það sem maður
leggur á sig til að kynnast þessari
þjóð. Ég bakka aftur í stólnum,
skíthræddur en...Hún rekur upp í
mig snákinn. Ég er kominn í sleik
við snák! Hey hey. Og jæja.
„Er þetta ekki gött?”
Ja, ég veit það nú ekki. Að kyssa
snák? Tungan f honum er full lítil
fyrir minn smekk. Þetta er eins og
að kyssa Þumalínu. Og Þumalína er
frekar treg, eða fremur óákveðin f
sínum kossum. Rekur sína klofnu
tungu ótt og títt inn og út.
„Leyfðu honum að ferðast. Láttu
hann fara hringinn. Það er þvílíkt
þokkalegt” segir stúlkan og ég hvái
með augunum. Ferðast? Hringinn?
Hún tekur snákinn og býst til að
læða honum niður í hálsmálið hjá
mér. Ég meina. Þó maður sé rithöf-
undur og leggi sig í líma við að
kanna þjóðarþelið þá set ég mörkin
hér. Ég læt ekki misnota mig. Og
það allra síst af snáki. Þó hann
heiti Keanu Reeves.
Ég stend upp og segist þurfa að
fara. Ég sýð saman fullkomna
afsökun: Ég er að fara til London,
bara á eftir, með morgunvélinni.
Að skemmta íslendingum, á
Íslendingahátíð.
„Nú? Eitthvað Þorrablót.”
Hér kemur gamli barnakennarinn
aftur upp í mér:
„Nei Þorrablót: Þú veist hvað
Þorrablótef?” ■
„Já ér það ékkí bára éitthvað að
blóta einhverjúhí-Þorra? Ég þekkti
sko einu sinni eihh Þbrra, og hann
var alltaf að bló'ta...'”'
Ég gefst upp á menningar-
arfleifðar-útskýringum.
„Nei. Þetta er fyrsti des.”
„Ó já? Hann er að koma.”
„Já. Þú veist hvað hann er, er
það ekki?”
„Já. Er það ekki bara fyrsti
desember, jólin að koma og
svona...?”
„Nei. Svona nú...l918...”
„Já já? Var það þá sém fyrsti
desemberinn kom til landsins?” ■
a g a t a 1 29. nóvember
Atburðir dagsins
1211 Páll Jónsson biskup í
Skálholti lést, 56 ára. Steinkista
hans fannst árið 1954. 1641
Fyrsta enska fféttablaðið kem-
ur út. 1780 María Theresa keis-
araynja Austurríkis og drottn-
ing Ungverjalands og Bæheims
deyr. Hún lék lykilhlutverk í
pólitískri refskák 18. aldar.
1909 Rússneski rithöfundurinn
Maxim Gorkí rekinn úr Bylt-
ingarflokknum fyrir borgara-
legan lífsstíl. 1924 ftalska tón-
skáldið Giacomo Puccini deyr.
1930 Kommúnistaflokkur Is-
lands stofnaður við klofning úr
Alþýðuflokknum. 1943 Leið-
togar Bandamanna, Stalín, Ro-
osevelt og Churchill, hittast í
Tehran í fyrsta skipti. 1974
Þýski borgarskæruliðinn Ulrike
Meinhof dæmd í átta ára fang-
elsi. 1986 Breski leikarinn
Cary Grant deyr. 1986 Dregið í
fyrsta sinn í lottóinu. Fyrsti
vinningur, 1,2 milljónir króna,
gekk ekki út. Tölumar voru 2,
7, 8, 23 og 29.1989 Rúmenska
fimleikastjarnan Nadia Co-
maneci sækir um pólitískt hæli
í Ungveijalandi.
Afmælisbörn dagsins
Gaetano Donizetti 1797,
ítalskt tónskáld, samdi 75 óper-
ur. Louisa May Alcott 1832,
bandarískur rithöfundur. C.S.
Lewis 1898, írskt skáld og
fræðimaður.
Annálsbrot dagsins
Giptist Daði Jónsson sýslu-
maður Kjósarsýslu einni
danskri drós, þjónustustúlku
Matthíasar á Stapa, eður hans
kokkapíku.
Vatnsfjaröarannáll yngri 1670.
Tapað/fundið dagsins
Það sem aðrir söknuðu fundu
þeir hjá honum.
Séra Bjarni Jónsson; úr líkræöu
yfir þjófóttum manni.
Málsháttur dagsins
Latur biður latan, en latur
nennir hvergi.
Orð dagsins
Hættu að grdta hringand,
hryggð ei lát á bera;
þó að bjáti eitthvað &
áttu kát að vera.
Gömul vísa.
Skák dagsins
Svarta staðan er býsna furðu-
leg: allir menn nema drottning-
in standa á upphafsrcitum þótt
komið sé í miðtafl. Þetta skýr-
ist af því að Bretinn Basman
stýrír svarta liðinu, cn hann er
einhver frumlegasti og óvenju-
legasti skákmaður heims. Og
hann lumar náttúrlega á vinn-
ingsleik í stöðunni, þótt ekki
láti hann mikið yfir sér. Bibby
hefur hvítt og á sér einskis ills
von.
Svartur leikur og vinnur.
1. ... a4! 2. Bc4 d5! og hvítur
er í vondum málum: hörfi bisk-
upinn leikur svartur Bg4 og
vinnur drottninguna. Góða
helgi!