Alþýðublaðið - 24.01.1997, Síða 3
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Að drepa
Nú heyrir maður að það eigi að fara
að leggja niður Alþýðublaðið.
Það hefur komið út í rúm sjötíu og sjö
ár og má muna tímana tvenna. Það
hefur átt sína stórveldistíma og verið
brautryðjandi í íslenskri blaða-
mennsku og það hefur sokkið niður í
hyldýpisdjúp og verið eins og heila-
dauður sjúklingur í öndunarvél, en
alltaf hefur því samt tekist að lifna við
að nýju. Undanfarin misseri hefur
blaðið átt nokkuð góða spretti, þó
ýmsir hafi ekki alltaf verið sáttir við
Pallborð I
efnistökin, eins og gengur. Það breytir
því ekki að það hefur verið best skrif-
aða blað á landinu og andstæðingar
Alþýðuflokksins hafa óttast það, eða
að minnsta kosti kveinkað sér veru-
lega undan því. Því sá er munurinn á
því að gefa út dagblað og því að gefa
út héraðsfréttablað, eða flokkstímarit,
sem kemur út endrum og eins, að í því
er samfelld umræða sem, ef hún er rétt
formúleruð, vekur athygli allra ann-
arra fjölmiðla landsins. Alþýðublaðið
er alltaf inni í umræðunni.
Fyrir kosningar hefur Alþýðuflokk-
urinn beitt blaðinu miskunnarlaust fyr-
ir sig. ÞaíRtefur- reynst flokknum
dijúgt að háfa tilbúna áróðursstassjón
sem hefur getað þjónað landsbyggðar-
kjördæmunum með mun minni til-
kostnaði, en ef hvert kjördæmi fyrir
sig sæi alfarið um sín útgáfumál.
Flokkurinn hefur einnig getað nýtt sér
það í útsendingar á alla flokksmenn
með litlum aukatilkostnaði, ef á hefur
þurft að halda.
Nú verður þetta allt úr sögunni. Nú
mjin Alþýðuflokksfófk þurfa að leita í
Tfmanum að flokksauglýsingum.
Alþýðublaðið
Á síðasta flokksþingi kusum við Alþýðuflokksmenn okkur nýja forystu.
Til þeirrar forystu voru miklar væntingar gerðar. Á flokkssfjórnarfundinum kemur í Ijós
hvort hún var kosin til þess ömurlega hlutskiptis að drepa Alþýðublaðið.
Ósigur og' niðurlæging Alþýðuflokks-
ins og Alþýðubiaðsins er afger.
Það kann að vera að menn telji að
flokksblöð eigi að heyra sögunni til.
Það kann að vera að menn telji að um-
ræðan í fjölmiðlum dagsins í dag sé
svo hlutlæg orðin að það sé rétt að
raddir stjómmáiaf.okkanna, sem eru
farvegur hins aimenna borgara til að
hafa áhrif á stjóm samféiagsins með
lýðræðislegum hætti, séu óþarfar. Það
sé nóg að fá línuna frá Boga Ágústs-
syni, Jóni Ólafssyni, Jónasi Kristjáns-
syni og Styrmi. Ef menn em á þeirri
skoðun, þá er tímabært að leggja Af-
þýðubiaðið niður því þá eru menn
einnig á þeirri skoðun að tímabært sé
að óritskoðuð rödd jafnaðarmanna í
íslensku þjóðféiagi þagni.
Síðustu helgi urðu ákveðin vatna-
skil í íslenskum stjórnmálum. Ungt
fólk krafðist uppstokkunar á flokka-
kerfinu á svo róttækan hátt að það
hlýtur að eiga sér eftirmála. Gríðarleg
vinna og umræða er if amundan ef það
á að sigla þessu máli í höfn. Það er
deginum ljósara að sú umræða er ekki
fram á síðum Moggans, sem varla
nennti að segja ffá stofnfundi Grósku,
eða á síðum Dagblaðsins, sem sagði
frá honum eins og ungir Alþýðu-
flokksmenn hefðu verið að stofna með
sér samtök tæpum sjötíu áram eftir
stofnun SUJ. Við verðum að eiga okk-
ur umræðuvettvang í formi dagblaðs
og er Alþýðublaðið sjálfsagður vett-
vangur í þeim efnum.
Önnur hugmynd er sú að taka upp
nánara samstarf við Vikublaðið, sem
Alþýðubandalagið gefur út. Það er
helgarblað og því þyrfti formið á út-
gáfu hvors blaðs fyrir sig að breytast
til að hægt væri að samræma kraftana.
Það væri skref í anda dagsins í dag og
nú þegar hafa áhrifamenn í Alþýðu-
bandalaginu, útgáfustjóm Vikublaðs-
ins og ritstjóri þess lýst áhuga á þess-
ari leið. Á síðasta flokksþingi kusum
við Alþýðuflokksmenn okkur nýja
forystu. Til þeirrar forystu vora mildar
væntingar gerðar. Á flokksstjórnar-
fundinum kemur í ljós hvort hún var
kosin til þess ömurlega hlutskiptis að
drepa Alþýðublaðið. ■
Höfundur er varaþingmaður
Alþýðuflokksins.
Blaðamannafundur var hald-
inn í Rúgbrauðsgerðinni í
gær þar sem kynnt voru mark-
mið í tóbaksvörnum. Fjölmiðlar
fengu tvö boð um þennan fund.
Fyrst kom tilkynning um að tób-
- aksvarnárnefnd boðaði til
, bjaðamannafundar og tekið
fram að Ingíbjörg Pálmadótt-
ir heilbrigðisráðherra yrði á
fundinum ásamt aðstoðar-
manni sínum. Daginn eftir barst
tilkynning um að það væri Ingi-
björg Pálmadóttir heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra sem
boðaði til fundarins og aðstoð-
armaður hennar yrði á fundin-
um. Báðar voru tilkynningar
þessar undirritaðar af Þorgrími
Þráinssyni, framkvæmdastjóra
tóbaksvarnarnefndar. Það er
greinilega ekki sama hver það
er sem boðar til fundar af þessu
•;tat|i..;
Listasöfn kvarta gjarnan und-
an fjárskorti og bágum hag,
en það á ekki við um Listasafn
ASÍ. Rekstur safnsins var erfiður
f mörg ár og það safnaði skuld-
um við Alþýðusambandið. Síð-
ustu ár hefur hins vegar allt
snúist að betri veg og hagnaður
af rekstri safnsins nemur millj-
ónum króna á ári. Þar skipta
svokallaðar vinnustaðasýningar
miklu máli. Má nefna sem
dæmi að á næst síðasta ári
hafði Listasafn ASÍ um þrjár
milljónir króna í tekjur umfram
gjöld af vinnustaðasýningum...
Málgagn Alþýðubandalags-
ins, Vikublaðið, hefur ekki
verið víðlesið blað til þessa,
enda þótt heldur þurrpumpuleg
lesning. Nú eru hins vegar uppi
áætlanir um að stokka upp efni
blaðsins og hefja markaðssókn.
Vikublaðið kemur út á föstudög-
um, en áformað er að breyta
um útgáfudag og gefa blaðið út
á mánudögum þegar ekki kem-
ur út annaö blað en DV. Jafn-
framt er í undirbúningi að hefja
auglýsingaherferð til að kynna
blaðið og efni þess. Ekki er vitað
hvort nafni blaðsins verði jafn-
fram breytt og það látið heita
Mánudagsblaðið...
r
Asunnudagskvöldið verður
afmælishátíð í Digranes-
kirkju í Kópavogi vegna 90 ára
afmælis Guðmundar Inga
Kristjánssonar skálds á Kirkju-
bóli. Meðal þeirra sem koma
fram á hátíðinni eru Sigrún
Hjálmtýsdóttir sópran, Karla-
kór Reykjavíkur, kvartettinn
Vestan fjögur og Skólakór Kárs-
ness. Þá verður flutt dagskrá
um líf og Ijóð Guðmundar Inga
sem Kristján G. Guðmunds-
son tók saman...
Fyrir skömmu var opnuð ný
hverfisstöð lögreglunnar í
Breiðholti með pompi og prakt.
Myndir birtust af starfsmönnum
stöðvarinnar ásamt æðstu yfir-
mönnum lögreglunnar í Reykja-
vík, þeim Böðvari Bragasyni
lögreglustjóra og Haraldi Jo-
hannessen nýskipuðum vara-
lögreglustjóra. í framhaldi af
þessu hafa menn verið að velta
því fyrir sér hver hafi tekið við
af Haraldi sem fangelsismála-
stjóri ríkisins...
fimm á förnum vegi
Borðar þú þorramat?
Lilja Kristín Óiafsdóttir
hárgreiðslukona: Já, en ég
er ekki hriftn af þessu súra. En
ég fer alltaf á þorrablót.
Guðrún Sigurðardóttir
sellóleikari: Nei, yfirleitt
ekki. Hins vegar borða ég svið
og rófustöppu og stöku sinn-
um hákarl.
Sigurður Ásbergsson
arkitekt: Já, en þetta er nú
misgott á bragðið.
Snorri Valsson nemi: Nei,
flest af þessu er mjög vont.
Guðni Guðmundsson
nemi: Nei. En ég smakka
samt stundum hákarl og finnst
hann mjög góður.
v i t i m e n n
90 fermetra íbúð á
Bræðraborgarstíg til leigu.
Losnar 1 mars til 1. apríl.
Leiga 78 þúsund krónur á mán-
uði. Svör sendist DV,
merkt K 7797.
Aldeilis kostaboð í húsnæðisauglýsingum
DV á miðvikudag.
í hléinu er boðið til sölu
alls konar sælgæti, þar með ,
talið poppkorn og látum það vera.
Ekki gat Víkverji betur séð en fólk
hafi verið að nærast á frönskum
kartöflum og kokteilsósu í kvik-
myndahúsinu sem hann
heimsótti í vikunni.
Víkverji brá undir sig betri fætinum og
skellti sér í bíó. Mogginn í gær.
Ef til vill mætti bæta
einni spurningu í könnun um
álit útlendinga á ferðamanna-
landinu: - How do You like Ferða-
mannaráð og þau gróðasjónar-
mið sem það stendur fyrir.
Oddur Ólafsson, snarpur aö vanda,
í Degi-Tímanum.
Linna þarf þráhyggju í stóriðju.
Fá þarf færa menn til að reikna
fjárhagsdæmi hennar á nýjan leik
með nýjum breytum, einkum nátt-
úruauði og ferðaþjónustu.
Jónas Kristjánsson í leiðara DV.
Það má segja að hægri
slagsíða og vond hagfræði
standi upp úr öllum flokkum og
fram að þessum tíma hafi jafnað-
armaðurinn fundið sig betur
kominn í Sjálfstæðisflokknum
en Aiþýðuflokknum, svo dæmi
séu tekin.
Guðni Ágústsson í Helgarpóstinum
aðspurður um hugsanlega sameiningu
vinstri flokkanna.
Háalvarleg viðureign þeirra um
meistaratitilinn í umhyggju fyrir
aumingjans leiklistinni er að
verða árviss uppákoma.
Þorgeir Þorgeirson um orðaskak Stefáns
Baldurssonar og Jóns Viðars Jónssonar.
Og þótt það komi þessu
máli ekkert við langar mig
að geta þess að ég setti heims-
met í hástökki í gær.
Ég stökk þrjá og áttatíu.
Benedikt Axelsson kennari í kjallaragrein í
DV. Greinin fjallar ekki um hið nýja heims-
met heldur um keppnisáráttu íslendinga.
fréttaskot úr fortíð
Jón Baldvin í fram-
boð á Austurlandi?
Á tveimur stjómmálafundum, sem
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins, hefur haldið á Aust-
urlandi; Á Seyðisfirði og Eskifirði,
hefur hann látið að því liggja að hon-
um væri ekki á móti skapi að fara f
framboð í Austurlandskjördæmi í
næstu þingkosningum.
Alþýðublaðið 4. september 1986.