Alþýðublaðið - 04.02.1997, Síða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
■ Sýning í kvöld á Hvanneyri og Japansferð framundan
-segir Benedikt Erlingsson leikari en leikritið
Ormstunga, ástarsaga, hefur notið óslitinnar velgengni
frá því í ágúst.
• ísafjörður • ísafjörður • ísafjörður • ísafjörður •
ísland að vetri býður
upp á fjölmarga
möguleika til afþreyingar
og skemmtunar.
Skíðaferðir, fjallaskoðun,
listalíf, matur, menning og
skemmtun. Flugleiðir
innanlands bjóða flug, gistingu,
skemmtun og ævintýri á einstöku
Gjugg-verði fyrir einstaklinga, hópa
og fyrirtæki.
Lífgaðu upp á tilveruna í vetur og skelltu þér
í ógleymanlega helgarferð til ísafjarðar
með Flugleiðum innanlands.
á ísafirði
- isafjank - feyiiæHk
S'?-S*S-S5-2-k%/: fcé 13
14.230
• Flug fram og til baka.
• Gisting í 2 nætur með
morgunverði.
• Afslóttarhefti og flugvall-
arskattur innifelinn.
Verð pr. mann.
ÍSAFJARÐAR.BÆR gleður!
QjpgjgftjeJjytij 7A -9a fj&Mar/
Ósvikið vestfirskt þorrablót
Boðið upp á stórskemmtilega helgar-
dagskrá frá föstudegi til sunnudags,
með ótal skemmtilegum uppákomum:
• Siglingar
• Skíða- og sleðaferðir
• Þorrapizzur
• Tónleikar
• Hlaðborð til sjávar og sveita
• Smakkferð
r
n
r
X _
n &
Munið!
Skíðavikan landsfræga verður
dagana 23.-31. mars 1997!
- skoðunarferð um Neðstakaupstað
- upplifun ítónleikasal
- náttúruskoðun með vættakorti
- skíðaferð
Leikararnir Benedikt Erlingsson og Halldóra Geirharðsdóttir í hlutverkum
sínum í Ormstungu, en leikritið hefur slegið rækilega í gegn.
„Það er svo mikil aðsókn að þessu
verki að við önnum henni varla,“
segir Benedikt Erlingsson sem leik-
ur ásamt Halldóru Geirharðsdóttur
í verkinu Ormstunga, ástarsaga. I
kvöld verður verkið sýnt í bænda-
skólanum að Hvanneyri og er þar
með komið á söguslóðir sínar. „Sag-
an gerist að hluta til í Borgarfirðin-
um, á bænum Gilsbakka og á Borg
og fjallar um bændur og búalið og
heimsreisur ungra íslendinga og
hvernig þeir verða stjörnur í út-
löndum svo ekki sé minnst á Helgu
fögru, fegurstu konu fjarðarins,“
seigir Benedikt.
Sýningin í kvöld er sú fimmtugasta
og fimmta í röðinni en verkið var
frumsýnt í skemmtihúsinu þann 1. ág-
úst í fyrra og hefur verið leikið fyrir
fullu húsi síðan þá. Nú eru síðustu
sýningar fyrir dyrum í Skemmtihúsinu
vegna anna leikaranna og annara verk-
efna. „Við stefnum á leikferð um
landið með vorinu en Það hefúr verið
beðið um sýningar á Akureyri,
Vopnafírði, Egilsstöðum, Bakkafirði,
ísaftrði, Tálknafirði, Akranesi."
Áhugi á Gunnlaugi Ormsstungu og
Helgu fögru er þó ekki einungis bund-
in við ísland. „Það eru japanskir
sendimenn að safna leiksýningum og
öðrum uppákomum á Norðurlöndum
vegna norrænna daga sem verða í
borginni vegna opnunar á Disneygarði
svo þversagnakennt sem það nú
hljómar. Það stendur til að byggja vík-
ingaþorp inni í skemmtigarðinum.
Þeir hafa fengið send gögn um sýn-
inguna og eru væntanlegir hingað
fljótlega. Þetta er lyginni líkast en af
verður þá förum við til Tokyo.“
Einnig eru ungir menn að stofna fé-
lag um að efla menningarleg tengsl Is-
lands og Argentínu og hefúr komið til
tals að leiksýningin haldi þangað á
leiklistarhátíð í Buenos Aires, en það
er þó ekkert ákveðið í þeim efnum.
Aðspurður um hvort að þau hefðu
eitthvað nýtt á prjónunum eftir alla
þessa velgengni sagði Benedikt:
„Við Halldóra erum með ýmislegt á
pijónunum en erum bæði dálítið upp-
tekin fram á vor. Þetta er búið að
ganga lengur en við vonuðum og vild-
um, það er ánægjulegt en veldur því
að ýmislegt annað situr á hakanum á
meðan. Það eru þó allskyns leyniprój-
ekt í gangi.“
Listasafn íslands
Níu um-
sóknir
Umsóknarfrestur um stöðu for-
stöðumanns Listasafns íslands rann út
31. janúar. Umsóknir frá eftirtöldum
höfðu borist 3. febrúar: Guðmundur
R. Lúðvíksson, myndlistarmaður, og
listfræðingamir Hrafnhildur Schram,
Ólafur Kvaran, Þorgeir Ólafsson, Að-
alsteinn Ingólfsson, Sigríður Gunnars-
dóttir, Halldór Björn Runólfsson,
Guðbjörg Kristjánsdóttir og Guðrún
Helga Jónasdóttir.
Og að
vatnið
sýni
hjartað
sitt
Sýningu Halldórs Ásgeirssonar lýk-
ur um næstu helgi sunnudaginn 16
febrúar. Á sýningunni er lituðu vatni
varpað á vegg með halogenljósum.
Ber sýningin nafnið, „Og að vatnið
sýni hjarta sitt,“ en titillinn er sóttur í
ljóð eftir Octavio Paz. Sýningin er op-
in fimmtudaga til sunnudaga frá 14 til
18.