Alþýðublaðið - 12.02.1997, Blaðsíða 3
MIÐVIKUAGUR 12. FEBRÚAR 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ö a n
Hnefahögg
Verkalýðshreyfingin reynir nú að
ná fram kjarabótum í kjarasamning-
um, einkum hækkun lægstu launa í 70
þúsund krónur. Vinnuveitendasam-
bandið heldur því blákalt fram að
þessar kröfur setji allt á hvolf í efna-
hagslífmu og verðbólgan fari upp um
tugi prósenta.
Pallborð
Jóhanna
\ Sigurðardóttir
f skrifar
Nær þreföld mánaöar-
laun láglaunafólks
Það var því eins og hnefahögg
franian í launafólk þegar viðskiptaráð-
herra birti svar sitt á Alþingi í gær við
fyrirspum núnni um starfskjör og líf-
eyrisréttindi stjórnenda Búnaðar-
banka, Landsbanka og Seðlabanka.
Þar kemur fram að mánaðarlaun þeir-
ra geta samsvarað tveimur árslaunum
láglaunahópanna. Laun bankastjór-
anna hafa hækkað frá 27-52 prósent á
þjóðarsáttatímanum og hækkun á
iaunum Seðlabankastjóra síðustu tvö
árin vom 36 prósent eða tæp 130 þús-
und á mánuði eða nær þreföld lægstu
laun.
Mánaðarlaun
800 þúsund
Þar með er ekki öll sagan sögð.
Bankastjórarnir sitja í launuðum
stjómum fyrir bankana. Landsbanka-
stjórar sitja í 16 stjórnum, Búnaðar-
bankastjórar í 10 stjómum og Seðla-
bankastjórar í 5 stjómum. Laun fyrir
hveija stjóm em frá 20 þúsund kr. á
mánuði upp í 100 þúsund kr. Viðbót-
artekjur bankastjóranna em líklega frá
Ný fyrirspurn verður því lögð fram þar sem knúið verður á um að fá fram í
dagsljósið þessar neðanjarðargreiðsiur til bankastjóranna.
50 þús kr. upp í 250 þús. kr. á mánuði,
varlega áætlað, en spurningu rninni
um heildargreiðslur vegna stjómarset-
unnar var ekki svarað. Ný fyrirspum
verður því lögð fram þar sem knúið
verður á um að fá fram í dagsljósið
þessar neðanjarðargreiðslur til banka-
stjóranna, auk þess sem spurt verður
um hvort ætla megi að seta þeirra í
ýmsum sjóðum dóttur- og hlutdeildar-
fyrirtækjum bankanna brjóti í bága við
samkeppnislög og um sé að ræða
óeðlileg hagsmunatengsl eða við-
skiptahætti. Varlega áætlað má því
ætla að heildarlaun margra banka-
stjóra með ofangreindum stjómaríaun-
um sé ekki undir 7-800 þúsund krón-
um á mánuði. Auk þess fá bankastjór-
ar nfleg bílafríðindi, ferðakostnað og
dagpeninga.
20 faldar lífeyris-
greiðslur
Ríkisbankamir greiða bankastjóra-
lífeyri til 17 einstaklinga að meðaltali
291 þús. krónur á mánuði. Hæsta Kf-
eyrisgreiðsla nemur að minnsta kosti
445 þús. kr. á mánuði. Margir þessara
einstaklinga njóta einnig ríflegs h'feyr-
is úr öðmm sjóðum svo sem úr Lífeyr-
issjóði alþingismanna og Lífeyrissjóði
ráðherra. Ætla má því að margir
bankastjórar njóti 6-800 þúsund króna
í lífeyrisgreiðslur á mánuði meðan
þorri launafólks þarf að láta sér nægja
3-40 þúsund króna mánaðargreiðslur.
Hungurtaxtar
láglaunafólks
Ofangreindar upplýsingar staðfesta
enn einu sinni það gap sem er milli
ríkra og fátækra í þjóðfélaginu og
hvernig topparnir í kerfinu nánast
skammta sér laun meðan VSI og
stjómvöld hafa allt á homum sér ef
hækka á hungurtaxta láglaunafólks
um nokkur þúsund krónur á mánuði.
Þarf nokkum að undra þó mikil undir-
alda sé í þjóðfélaginu og upp úr geti
soðið hvenær sem er.
Listamiðstöðin Gerðuberg hef-
ur verið ein skemmtilegasta
og frumlegasta listamiðstöð borg-
arinnar um langt skeið og Sjón-
þingin hafa vakið verðskuldaða
athygli. Stundum þegar Gerðu-
berg ber á góma vilja menn
meina að miðstöðin þjóni þeim
göfuga tilgangi að færa listina til
fólksins. Eitthvað virðast listunn-
endur yngstu kynslóðarinnar hafa
misskilið þetta því þeir höfðu á
brott með sér sýningu Finnboga
Péturssonar í bókstaflegum
skilningi samanber frétt á forsíðu
blaðsins...
Svanurinn eftir Guðberg
Bergsson kom út í Frakk-
landi fyrir nokkru síðan hjá frans-
ka útgáfufyrirtækinu Gallimard.
Bókin fékk frábærar viðtökur
gagnrýnenda, meðai annars
skrifaði tékkneski rithöfundurinn
Milan Kundera lofgrein um bók-
ina í í blað frönsku intelligensí-
unnar le nouvel Observateur.
Bókin er nú uppseld hjá útgef-
anda og er önnur prentun vænt-
anleg í verslanir. Gallimard hygg-
ur á útgáfu fleiri bóka Guð-
bergs...
Snarpar umræður urðu á Al-
þingi í gær, þegar greidd
voru atkvæði við lok annarrar
umræðu um frumvarp til laga um
Landsvirkjun. Talsmenn Alþýðu-
bandalagsins gengu langharðast
fram gegn frv. og töldu það fyrst
og fremst miða að því að ná arði
út úr fyrirtækinu fyrir eigendurna,
þar sem Reykjavíkurborg fer fyrir.
Svavar Gestsson formaður
þingflokksins hafði sig mest í
frammi í umræðunum og taldi
hann frumvarpið leggjast með
margvíslegum hætti gegn kjörum
landsmanna. Stefán Guð-
mundsson formaður iðnaðar-
nefndar og reyndur þingmaður úr
Framsóknarflokknum náði hins-
vegar liprum hælkrók á Alþýðu-
bandalagið þegar hann upplýsti
við atkvæðagreiðsluna að arð-
greiðslur af Landsvirkjun hefðu
fyrst verið teknar upp í tíð ríkis-
stjórns, sem Svavar Gestsson
hefði óvart átt sæti í...
r
Iþinginu veltu menn fyrir sér
hvernig umræðurnar um Lands-
virkjunarmálið væru við morgun-
verðarborðið á heimili Svavars.
Frumvarpið er nefnilega afar mik-
ilvægt fyrir Reykjavíkurborg, og
þvi hafa borgarfulltrúar Reykja-
víkurlistans ýtt fast á eftir sam-
þykkt málsins. Eiginkona Svav-
ars og vonandi fastagestur við
morgunverðarborðið er nefnilega
hinn góðkunni forseti borgar-
stjórnar.Guðrún Ágústsdóttir.:..
Sumir höfðu á orði við af-
greiðslu frumvarpsins um
Landsvirkjun að ekki bæri mjög á
samstöðu jafnaðarmanna því
þingflokkur jafnaðarmanna var
með samþykkt málsins. Hafnfirð-
ingurinn Guðmundur Árni Stef-
ánsson: bjargaði þó málinu með
að hafa aðra afstöðu en hinn
Reykjavíkursinnaði þingflokkur,
og greiddi atkvæði með tillögu
Svavars og félaga um að málinu
yrði vísað frá. Við það varð gam-
alreyndum Framsókarnmanni að
orði, að það væri ekki nema von
að jafnaðarmenn færu með him-
inskautum í skoðanakönnunum.
Þeir hefðu nefnilega tekið up
þrautreynt þjóðráð Framsóknar-
flokksins frá fyrri tíð: vera bæði
með og móti umdeildum málum!..
fimm q förnum vcgi
Hverjir vinna kosningar til Stúdentaráðs?
Þröstur Þorkelsson véla-
verkfræðinemi:
“Röskva vinnur með sextíu
prósent atkvæða.
Bolli Pétur Bollason
guðfræðinemi:
Röskva eins og venjulega.
þetta er orðin hefð en við verð-
um að hafa eitt og eitt Vöku-
andlit með.
Iðunn Vigfúsdóttir
bókmenntafræðinemi:
Röskva vinnur. Það þarf hug-
arfarsbreytingu til að Vaka
geti unnið.
Kristín Agústsdóttir
Raunvísindadeild:
Haki, samtök öfgasinnaðra
stúdenta vinna glæsilegan sig-
ur.
Omar Ivarsson
landafræðinemi:
Vaka sigrar vegna þess að
kærastan mín heitir Vaka.
v i t i m c n n
“Fólk tekur ekki einu sinni ábyrgð
á eigin heilsu. Það hegðar sér á
heilsuspillandi hátt. Það reykir og
drekkur og étur sykur. Það hreyfir
sig ekki. Svo ætlast það til að til
skjalanna komi velferðarkerfi og
hirði upp hræið til lyfjameðferðar
og uppskurðar á sjúkrahúsum.”
Jónas Kristjánsson í leiöara DV í gær.
“Að sjálfsögðu tekur þetta fólk
ekki heldur neina ábyrgð á upp-
eldi barna sinna. Það heldur að
þjóðfélagið hafi sett upp skóla til
að taka að sér barnauppeldi. Af-
skiptaleysið leiðir af sér agaleysi
og kröfuhörku.”
Jónas Kristjánsson aftur. DV í gær.
Stífur kjóll alsettur tippum, svo
stuttur að nærbuxurnar fá að njóta
sín, úr gegnsæju efni svo móta
megi fyrir líkamanum ögraði
dómnefndinni í Facette hönnunar-
keppninni svo hann hafnaði í
fyrsta sæti.
Marta María Jónasardóttir sigraöi í Facette
hönnunarkeppninni um helgina. DT í gær.
“Ég hringdi á skrifstofu blaðsins
við Hverfisgötu í dag„ og þá var
mér sagt að blaðið væri flutt. Það
er verkefni morgundagsins að
finna út hvar kontórinn er."
össur Skarphéöinsson nýbakaöur ritstjóri Al-
þýöublaösins í DT.
“Nýja testamentið er sósíalískt rit
og ef kristið þjóðríki hefur ein-
hverstaðar tekist í framkvæmd,
þá er það á Kúbu.”
Grímur Hákonarson áhugamaöur um aöskilnaö
ríkis og kirkju í greininni Nýr hjúskaparsáttmáli
rlkis og kirkju. DT í gær.
“Ágreiningur um það, hvort bygg-
ja skyidi ný hverfi við Rauðavatn
átti þátt í að fella hinn fyrri vinstri
meirihluta frá völdum. Það skyldi
þó aldrei vera, að Geldinganesið
eigi eftir að verða banabiti núver-
andi borgarstjórnarmeirihluta.”
Víkverji Moggans í gær.
“Að kalla á starfsfólkið til að af-
eitra það af alkahóli er vægast
sagt kynleg aðferð til að halda
starfsfólki gangandi_ Og reka það
svo ef ekki tekst sæmilega til eins
og raunin er í þessum undarlega
farsa.”
Sigurbjörg hringdi í lesendasíöur DV og er æf
út af einhverju áfengisvarnarnámskeiöi fyrir
starfsmenn.
■KnnnDiEHni
s
“Og sorglega er nú komið fyrir
konun ef engin önnur leið fmnst til að
njóta jafnréttis á netinu en að taka á
sig karlmannsgervi, klæða sig í and-
lega brók með tippagati, troða virtual-
tóbaki í sýndarveruleikavörina, klóra
sér myndrænt í pungnum og röfla
rámum rómi.”
Þórlaug Ágústsdóttir skrifar pistil I tímaritið
Tölvuheim sem nefnist Lemur þú kvenfólk