Alþýðublaðið - 05.03.1997, Síða 1

Alþýðublaðið - 05.03.1997, Síða 1
Miðvikudagur 5. mars 1997 Stofnað 1919 ■ Vilja ná Æsu af hafsbotni Þurfa 18 milljónir getum þetta og þeir sem halda öðru fram vita ekki hvað þeir segja, segir Stefán Víðir Martin, fram- kvæmdastjóri " Djúpmynd ehf. hafa sent sam- gönguráðherra umsókn um styrk til að ná m.b. Æsu IS af hafsbotni, þar sem skipið liggur í mynni Amar- fjarðar. Djúpmyndir gera ráð fyrir að verkið taki hið minnsta 30 daga, mið- að við að unnið verði allan sólar- hring. Fyrirtækið gerir ráð fyrir að sinna verkefninu í apríl og maí, það er fáist styrkurinn. “Við bíðum eftir viðbrögðum ráð- herrans, en nokkrir þingmenn hafa sýnt málinu áhuga, en þar vil ég nefna Margréti Frímanndóttur og Sighvat Björgvinsson. Við ráðum vel við þetta verkefni. Stærri skipum hefur verið náð upp. Ég trúi ekki öðru en ráðherra veiti okkur þennan styrk. Það eru til menn sem segja þetta ekki hægt, en ég segi á móti, að þeir vita ekki hvað þeir að segja. Þeir sem þannig tala hafa sennilega aldrei migið í saltan sjó,” sagði Stefán Víð- ir Martin framkvæmdastjóri Djúp- myndar. Áætlanir Djúpmyndar gera ráð fyrir að verkið kosti 18 milljónir króna, og að helmingur fjárhæðar- innar, það er 9 milljónir verði greidd- ar þegar skipið er komið upp á 20 metra dýpi og 9 milljónir við verk- lok. í umsókninni segir að Djúp- mynd geri ráð fyrir að skila skips- flakinu í slipp á fsafirði. Að lokinni rannsókn á skipinu bjóðast forráða- menn Djúpmyndar til að koma skip- inu í brotajám eða farga því og að flakið verði þeirra eign að lokinni rannsókn. Við verkið þarf að notast við drátt- arbátinn Orion 11, ásamt sjö manna áhöfn, neðarsjávarmyndavélar, öfl- ugar dælur, tvo vinnupramma, kafara og fleira. ■ Gaui litli og grænmetisréttirnir Borðar kjúklinga á laugardögum ■ Finnur Ingólfsson Meirihlut- inn okkur einskis virði “Það hefur aldrei verið íslend- ingum nokkurs virði að eiga meirihluta í Málmblendisverk- smiðjunni á Grundartanga, því það felur ekki í sér virk yfirráð,” sagði Finnur Ingólfsson, í umræðu á Alþingi sem Gísli S. Einarsson efndi til vegna þess að slitnaði upp úr viðræðunum við Elkem í síð- ustu viku. Svavari Gestssyni þóttu uni- mæli ráðherrans furðuleg, og sagði að með þessu væri hann í raun að verðfella hluta Islendinga og “gefa Elkem óhóflega marga milljarða á einu bretti.” Finnur sagði í svari til Gísla Einarssonar, að það hefði ekki verið reiknað hve mikið íslendingar töpuðu á því að ekki náðist saman um að stækka verksmiðjuna. “Það er þó ljóst, að séu bæði álverið á Grund- artanga og stækkun Málmblendis- ins tekin saman hefði það skapað 1.600 störf á framkvæmdatíma og fjárfestingu upp á 26 milljarða, séu virkjanimar teknar með.” Gaui litli og Sólveig Eiríksdóttir, hafa sent frá sér bókina “Mataræði - Gaui litli á grænum kosti”. í bókinni eru á sjöunda tug uppskrifta án kjöts og fiskjar, fitusnauðar og ger- og sykurlausar. “Ég borða kjúklinga á laugardög- um,” sagði Gaui litli þegar hann var spurður hvort hann væri hættur að borða kjöt. í bók þeirra Gaua og Sóvleigar er uppskriftunum raðað saman í íjórtán máltíðir þannig að saman standa að- alréttir, salöt og salatsósur. “Bókin er fyrir alla. f henni em innkaupalistar, kryddlisti og orðskýringar,” sagði Gaui litli. ■ Valgerður Stefánsdóttir hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra Hafa ekki aðgang að samfélaginu “Það em engin lög á íslandi sem tryggja heymarlausum túlkunarþjón- ustu. Þær tvær milljónir sem við höf- um haft, koma úr Framkvæmdasjóði fatlaðra, en sjóðnum er ætlað að styðja framkvæmdir fyrir fatlaða. Þannig að þetta hefur verið bráða- birgðalausn,” sagði Valgerður Stef- ánsdóttir, hjá Samskiptamiðstöð heymarlausra og heymarskerta, en Samskiptamiðstöðin hefur ekki leng- ur neina peninga til greiða fyrir al- nienna túlkunarþjónstu heyrnar- lausra. Valgerður segir að lög um málefni fatlaðra eigi einnig að ná til heymar- lausra, en í lögum sé fjallað um að- gengi fatlaðra, en hvergi sé tekið fram í lögum að heymarlausir eigi að fá túlk. Hún segir að lögin leysi ekki þarfir heymarlausra fyrir þjónustu. Búið er að leita til félagsmúlaráðu- neytis, menntamálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis vegna þess ástands sem nú hefur skapast, en þrútt fyrir það er ekkert sem bendir til að úr rætist. í gjaldskrá sem Sam- skiptamiðstöðinni er sett, segir að rukka eigi fyrir túlkunarþjónstu, en klukkustundin er verðlögð ú 2.300 krónur. “Heymarlausir hafa ekki aðgang að þjóðfélaginu. Sumir hafa túlkað lög og reglur rúmt, og því er það undir velvilja yfirmanna á hverjum stað sem ræður hvemig gengur, en ekki neinn réttur. Við greiddum túlk- um laun af þessum peningum, en nú em þeir búnir. Það alvarlegasta er að heymarlausir hafa ekki aðgang að heilbrigðisþjónustu. Sem dæmi get ég nefnt mæðraskoðun, sem er ókeypis fyrir allar íslenskar konur, en heymarlausar konur fá ekki túlk, og hafa því lítið sem ekkert gagn af skoðuninni, nema þær borgi túlki fyrir. Það vantar að tekin verði af- staða í lögum að heymarlausir eigi rétt á túlkun.” Valgerður sagði vandræðaástand vera að skapast. Það hafi áður kornið til þess að vandræði hafi hlotist af peningaskorti. “Ég get nefnt dæmi af konu sem var að fara í uppskurð og átti að fasta, en ekki hægt að skera hana þegar til kom, þar sem hún hafði ekki skilið hvað hún átti að gera. Heymar- lausir sem eiga við geðræn vandamál eiga að stríða og verða að hafa túlk við meðferð, verða þá greiða túlkun- ina sjálfir, en flestir heyrnarlausir em láglaunafólk, svo það sést að þetta er fólkinu erfitt. Þetta gildir reyndar um alla heilbrigðisþjónustu, það er nauð- synlegt að skilja og tjá sig um hvað er að. Eins má nefna aðra hluti svo sem að kaupa bfla, fasteignir, fara til bankastjóra, fara á foreldrafundi í skóla og svona má lengi telja. Þetta snertir allt daglegt líf þessa fólks.” 30. tölublað - 78. árgangur ■ Kvennaverkfall í Japan íslensk hugmynd Hópur kvenna í Japan lagði niðar vinnu í fyrradag, en það var fyrsta skipulagða kvennaverkfall- ið í Japan. Kveikjan að því var viðtal sem japanska blaðakonan Mariko Mitsui átti við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra árið 1994. Mariko er virkur feni- inisti og skrifaði meðal annars bók um þessa ferð sína til lands- ins. I bókinni sagði hún meðal annars frá Kvennaverkfallinu, árin 1975 og 1985. Sú frásögn varð kveikjan að því að japanskar konur fóra að undirbúa sitt eigið kvennaverkfall og í fyrradag lagði hópur þeirra niður vinnu og hittist á útifundum til að leggja áherslu ú mótmæli sín vegna lágra launa og bágrar stöðu á vinnumarkaði. ■ Niðurskurður á sjúkrahúsum lands- byggðar í uppnámi Ráðherrann nær ekki sparnaðinum - segir Hjálmar Jónsson. Landlæknir segir að tillög- urnar skapi óöryggi og skerði þjónustu Ég sé engar forsendur til þess að ráðherrann nái 60 milljón króna spamaði á sjúkrahúsum dreifbýlisins á þessu ári. Við þurf- um meira tilhlaup,” sagði séra Hjálmar Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á fundi á Grand Hótel fyrir helgi. Fundur- inn var um afar umdeildar tillög- ur Ingibjargar Pálmadóttur um niðurskurð á tólf dreifbýlissjúkra- húsum. Áætlanir ráðherrans vom harð- lega gagnrýndar á fundinum, sem var sóttur af tjölda þingmanna. Það er til marks um hversu alvar- lega staðan í málinu er álitin inn- an ríkisstjómarinnar, að auk heil- brigðisráðherra, sem sat fyrir svömm, mættu ráðherramir Páll Pétursson og Halldór Ásgrímsson á fundinn, og sátu lengi dags und- ir umræðum. Mesta athygli vöktu ummæli Kristjáns Erlendsson, læknis, en hann er sá embættismaður heil- brigðisráðherra, sem hefur yfir- umsjón með niðurskurðinum. í lok ræðu sinnar lét hann svo um mælt, að þó það væri ef til vill ekki viðeigandi að embættismað- ur léti uppi persónulega skoðun sína á máli sem þessu, þá myndi hann ekki gráta það þó niður- skurðurinn næðist ekki á árinu. Umræða spannst um staðhæf- ingar ráðherrans um að niður- skurðurinn muni ekki leiða til skertrar þjónustu. Landlæknir drap á það í ræðu sinni og sagði: “Þessar hugmyndir munu draga úr þjónustu og skapa óöryggi.” Sjá fréttaskýringu bls. 5 •«C.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.